Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 246. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. 125 milljóna króna villa í Garðabæ
2. Hreinsuðu málningu fyrir mistök
3. Í haldi krókódíls í tvær vikur
4. Ársgamalt barn myrt í stað föður síns
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Næsta kvikmynd hins víðfræga
leikstjóra Christophers Nolans, Int-
erstellar, eða Milli stjarna, verður
tekin upp að stórum hluta hér á landi
ef marka má frétt á vef kvikmynda-
ritsins Empire. Myndin á að gerast í
fjarlægri framtíð og segja af hópi vís-
indamanna í leit að ræktarlandi.
Ferðast þeir milli vídda í þeirri leit, í
gegnum svokölluð ormagöng. Í frétt
Empire segir að mikilvægasti töku-
staður myndarinnar verði Ísland og
að landið verði sífellt eftirsóttara
sem tökustaður vegna landslagsins,
eins og sjá megi af kvikmyndunum
Oblivion, Prometheus og Thor: The
Dark World sem teknar voru ýmist að
hluta til eða miklu leyti hér á landi.
Með helstu hlutverk í Interstellar
fara Hollywood-stjörnur, þau Matt
Damon, Matthew McConaughey,
Anne Hathaway, Jessica Chastain,
Michael Caine og John Lithgow, svo
nokkrar séu nefndar.
AFP
Ísland verður mikil-
vægur tökustaður
Útvarpsleikhús norska ríkisútvarps-
ins, NRK, hefur tryggt sér réttinn á
leikriti Hrafnhildar Hagalín, Opið hús,
sem frumflutt var í Útvarpsleikhúsi
RÚV síðasta vetur og undirbýr nú eigin
upptökur á því. Verk-
ið hlaut Norrænu
útvarpsleikhús-
verðlaunin sem
besta leikna
útvarpsverk árs-
ins og Grímu-
verðlaunin
sem útvarps-
verk ársins.
Opið hús í útvarps-
leikhúsi NRK
Á miðvikudag Hæg breytileg átt og bjart með köflum, en smá-
skúrir sunnan- og vestanlands. Hiti 5 til 12 stig, en líkur á nætur-
frosti í innsveitum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 3-12 m/s. Skúrir sunnan- og
vestanlands en annars skýjað með köflum. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast
austast á landinu.
VEÐUR
Ég er mjög ánægður með að
vera kominn til Sampdoria,“
sagði landsliðsmaðurinn
Birkir Bjarnason við Morg-
unblaðið í gær á leið sinni
til Bern þar sem Sviss og
Ísland mætast í undan-
keppni HM á föstudags-
kvöld. Birkir mun því
leika áfram í ítölsku
A-deildinni. Hann spil-
aði þar með Pescara á
síðustu leiktíð en liðið
féll í B-deildina. »1
Ánægður að fara
til Sampdoria
Lítilláti Wales-verjinn Gareth Bale er
genginn í raðir Real Madrid á Spáni
sem keypti kappann fyrir 100 millj-
ónir evra, 16 milljarða íslenskra
króna. Þetta hæsta verð sem
greitt hefur verið í sögu fót-
boltans jafngildir kostnaði
við gerð Héðinsfjarð-
arganga. »4
Gareth Bale kostaði á
við Héðinsfjarðargöng
Þróttur fékk náðarhöggið í
Pepsi-deild kvenna í knatt-
spyrnu í gær. Liðið tapaði fyrir
Íslandsmeisturum Stjörnunnar
og þar með varð ljóst að Þróttur
er fallinn úr deildinni. Valur
komst upp í annað sæti eftir
stórsigur á HK/Víkingi og FH
náði stigi gegn bikarmeisturum
Breiðabliks. »2
Þróttur féll og Valur
komst í annað sætið
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Um þessar mundir eru um 40 ár síð-
an Þráinn Kristjánsson hóf rekstur
steikhússins The Round Table í
Winnipeg í Kanada og af því tilefni
verða ýmsar uppákomur á veitinga-
staðnum á næstunni. „Það er ekki
sjálfgefið að reka veitingastað í 40
ár og við ætlum að minna á okkur
með ýmsum hætti,“ segir Kristján
Kristjánsson, sem tók við rekstrin-
um af föður sínum fyrir nokkrum
árum eftir að hafa starfað við hlið
hans um árabil.
Að sögn Kristjáns var útlitið ekki
sérlega gott í veitingarekstrinum
árið 2004 en Þráinn gerði nauðsyn-
legar breytingar og stóð uppi með
pálmann í höndunum fjórum árum
síðar. Kristján segir að til greina
hafi þá komið að selja steikhúsið, en
að vel athuguðu máli hafi hann
ákveðið að kaupa það. „Við feðg-
arnir unnum vel saman og hann er
enn mín helsta stoð og stytta,“ segir
Kristján og bætir við að Stefán,
sonur sinn, sé byrjaður að vinna á
Round Table.
Stöðugleiki
Kristján segir að markaður fyrir
veitingahús í Winnipeg sé erfiður,
því fólk hafi tilhneigingu til að halda
í sitt og sóa ekki fjármunum. „Hér
er ákveðinn stöðugleiki og þótt vel
gangi á landsvísu hefur það ekki
áhrif á stöðuna í Winnipeg,“ segir
hann. Kristján bætir við að al-
gengur líftími veitingastaða í
Winnipeg sé 10 til 12 ár.
„Þetta er að mörgu leyti svip-
að og í Reykjavík Ég fer til Ís-
lands einu sinni til tvisvar á ári
og það bregst ekki að mörg veit-
ingahús hafa skipt um nafn frá
síðustu heimsókn, en inn
á milli eru traustar
stoðir eins og
Humarhúsið.“
Undanfarna mánuði hafa staðið
yfir miklar breytingar á Round
Table. „Við höfum í raun tekið allt
húsnæðið í gegn; lagað lýsinguna,
lagað tónlistina að þörfum gest-
anna og breytt merki steikhússins
auk þess sem matseðillinn er í stöð-
ugri endurnýjun,“ segir Kristján.
„Samfara þessu höfum við farið í
markvissa markaðskynningu og
viðskiptin hafa aukist um 12 til
14%.“
Kristján segir breytingarnar
nauðsynlegar til þess að ná til
nýrra viðskiptavina. „Veitinga-
staðir tapa um 3% viðskiptavina
sinna á ári einungis vegna þess að
fólkið eldist og því verðum við stöð-
ugt að vera á tánum og höfða til
nýrra einstaklinga og hópa.“
Hringborðið heillar hungraða
Fjölskyldan hef-
ur rekið steikhúsið
í Winnipeg í 40 ár
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Tímamót Kristján Kristjánsson fyrir utan steikhúsið The Round Table, sem er skammt frá miðbænum í Winnipeg.
Þráinn Kristjánsson flutti með fjölskyldu sinni til Winnipeg eftir að
hafa lagt stund á hótel- og veitingahúsarekstur við Minnesota-
háskóla og opnaði The Round Table 1973. Veitingahúsið skiptist
í nokkur afmörkuð rými og síðan þáverandi borgarstjórar
Reykjavíkur og Winnipeg, Davíð Oddsson og Bill Norrie, komu
ríðandi á íslenskum hestum með Þráni á staðinn 1989 er ein
stofan, borgarstjórastofan, tileinkuð þeim. Önnur stofa,
Bessason-stofa, er tileinkuð Haraldi Bessasyni heitnum, for-
stöðumanni íslenskudeildar Manitoba-háskóla í áratugi.
Í tilefni 40 ára afmælis steikhússins verður sérstök fjöl-
miðlakynning á Round Table 11. september nk. og í
kjölfarið verður sérstökum gestum undanfarin 40
ár boðið í mat næstu daga á eftir.
Viðskiptavinum boðið til veislu
THE ROUND TABLE LÍFSEIGT STEIKHÚS
Þráinn
Kristjánsson