Morgunblaðið - 20.09.2013, Side 2

Morgunblaðið - 20.09.2013, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Vilhjálmur Hjálmarsson á Brekku, alþingismaður og fyrrverandi menntamálaráðherra, er 99 ára í dag. Hann er elstur af þeim mönn- um núlifandi sem setið hafa á Al- þingi. Vilhjálmur er við hestaheilsu, þrátt fyrir háan aldur. „Já, bless- aður vertu, það er ekkert að mér, nema ég er lélegur í hnjánum og boginn eins og kengur eins og langa- langafi var, samkvæmt vísu hans, en að öðru leyti er ekkert að mér.“ Á næstunni kemur út ný bók eftir Vilhjálm, Allt upp á borðið. Hann segir að allt verði uppi á borði í bókinni, en í formála hennar segir að bernskuminningar sæki nokkuð á höfundinn. „Og svo á ég vantalað við Seyðfirðinga!“ segir Vilhjálmur og bætir við að margt fróðlegt hafi hent sig á lífsleiðinni, þó að hann hafi ekki lifað neinu hasarlífi. Vilhjálmur hef- ur gefið út fjölda bóka á lífsleiðinni. Hann vísar í orð Braga Kristjóns- sonar fornbókasala, sem hafi sagt í Kiljunni eitthvað á þá leið að Vil- hjálmur hefði gefið út margar bæk- ur um sjálfan sig og bætt svo við: „Og sumar bara ágætar.“ Vilhjálmur segir að hann sé hættur að skrifa bækur. Þrátt fyrir það er rithöfundarferlinum ekki enn lokið, því að á næsta ári kemur út bók sem hann var búinn að vinna fyrir löngu um örnefni í Mjóafirði. „Það verður síðasta bókin og ég stend við það.“ Vilhjálmur 99 ára í dag Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Er við hestaheilsu Vilhjálmur Hjálmarsson er 99 ára í dag.  Ný bók vænt- anleg og önnur bók í vinnslu María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Krabbameinslæknar íhuga upp- sagnir í ljósi erfiðrar stöðu krabba- meinsdeildarinnar en ítarlega hefur verið fjallað um hana í fjölmiðlum undanfarið. Samkvæmt áreið- anlegum heimildum Morgunblaðsins kemur til skoðunar hjá yfirstjórn Landspítalans að færa einn sérfræð- ing krabbameinsdeildar til í starfi, yfir á lyflækningadeild. Heimild- armenn telja að ef til þess komi þá nýtist kraftar sérfræðingsins síður deildinni og sé það mikil blóðtaka á versta tíma. Heimildarmenn leggja áherslu á að þeir séu ekki ósammála því að ráðast þurfi í einhvers konar breytingar en gagnrýna þó harðlega tímasetningu þessara breytinga og samráðsleysi við aðra sérfræðinga innan deildarinnar. Vilhelmína Haraldsdóttir, fram- kvæmdastjóri lyflækningasviðs, get- ur ekki gefið neitt upp um starfssvið einstakra lækna en segir að verið sé að skoða starf og verkefni deildanna. „Það er mikil áhersla lögð á bætta mönnun í þessari vinnu sem fram- undan er,“ segir Vilhelmína. „Þetta eru mál sem þarfnast mikillar um- ræðu og samráðs til þess að ná fram bestu mögulegu niðurstöðu fyrir alla aðila.“ Kornið sem fyllti mælinn Röð atburða undanfarna mánuði hefur orðið til þess að sérfræðingar íhuga nú stöðu sína. Sú ákvörðun að taka aðstoðar- og deildarlækna af krabbameinsdeildinni og sú stað- reynd að yfirlæknir deildarinnar hætti störfum varð til þess að veikja deildina mjög og margir telja að ekki hafi verið brugðist nógu vel við þeim sviptingum. Yfirvofandi skipulagsbreytingar á lyflækningadeild þar sem krabba- meinslæknir mun mögulega sinna starfi yfirlæknis eru sagðar vera kornið sem fylli mælinn. Í staðinn fyrir að bregðast við ástandi sem er á hættumörkum og styrkja deildina þá sé farið í breytingar sem muni, að sögn heimildarmanna, auka álagið á sérfræðingum enn frekar. Fimm til sex krabbameinslæknar starfa nú á spítalanum. Minna öryggi Verkefnum krabbameins- deildarinnar fjölgar stöðugt eða um 8% á ári en mann- eklunni hefur ekki verið mætt. Þessu hefur að einhverju leyti verið mætt með því að aðrar stéttir eins og hjúkrunarfræðingar hafa lagt meira á sig en upp úr stendur að álagið er orðið meira á deildinni allri. Með því að aðstoðar- og deild- arlæknir eru teknir af krabbameins- deildinni vinna sérfræðingar undir auknu álagi. Þeir standi nú einir og vinni við aðstæður sem ekki eru öruggar og fyrir hendi sé hætta á að eitthvað fari úrskeiðis. Gæði þjón- ustunnar eru sögð verulega skert og margir innan þessa hóps krabba- meinslækna eru að íhuga að segja upp með þriggja mánaða fyrirvara í von um að staða deildarinnar verði bætt að þeim tíma liðnum. Krabbameinslæknar sagðir íhuga uppsagnir  Óttast um öryggi starfsemi deildarinnar verði sérfræð- ingur færður til í starfi  Hugað að mönnun deildarinnar Morgunblaðið/ÞÖK Landspítalinn Krabbameinslæknar eru sagðir óánægðir með samráðsleysi vegna skipulagsbreytinga. Þeir óttast blóðtöku á versta tíma. Björn Zoëga, forstjóri Landspít- alans, segir enga ákvörð- un hafa verið tekna hvað varðar skipulags- breytingar á krabba- meinsdeild og lyf- lækningasviði en vonast til þess að málin skýrist sem fyrst. „Það er verið að skoða ýmsa möguleika út frá ýmsum forsendum. Sérstaklega er verið að skoða málefni krabbameinsdeildarinnar sem og lyflækningadeildar en engar ákvarðanir hafa enn verið tekn- ar. Hart hefur verið unnið að mál- efnum deildarinnar og vonandi náum við að finna þeirri vinnu farveg sem fyrst,“ segir Björn. Engar ákvarðanir teknar YFIRVOFANDI SKIPULAGSBREYTINGAR Björn Zoëga Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Samþykkt var samhljóða á fjöl- mennum félagsfundi Varðar, full- trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, að halda prófkjör þann 16. nóvember næstkomandi til þess að ákveða lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Tillaga um að veita undanþágu frá greiðslu félagsgjalda var felld naumlega þar sem hún náði ekki til- skildum meirihluta, en tveir þriðju fundarmanna þurftu að samþykkja hana. Þar með verða þeir einir kjör- gengir sem greitt hafa félagsgjöld til aðildarfélags síns innan Sjálf- stæðisflokksins, en mismunandi er eftir félögum hversu há þau eru eða hvort aðildarfélagið rukkar fé- lagsgjöld. Hætt við leiðtogaprófkjör Mikil eftirvænting hafði verið eft- ir fundinum, þar sem stjórn Varðar hafði ætlað sér að láta kjósa um tvær tillögur, eina um prófkjör og aðra sem fæli í sér að einungis yrði kosið um efsta sæti framboðslistans. Af því varð ekki, því á stjórnarfundi Varðar fyrr um daginn ákvað Óttarr Guðlaugsson, formaður félagsins, að leggja fram sáttatillögu um að hald- ið yrði prófkjör 16. nóvember næst- komandi í samræmi við 23. grein prófkjörsreglna Sjálfstæðisflokks- ins. Þar með var hætt við hugmynd- ir um leiðtogaprófkjör, en nokkur aðildarfélög höfðu ályktað gegn því að sú leið yrði farin. Óttarr segir fundinn hafa verið vel heppnaðan og skemmtilegan, en um 200 manns tóku þátt í honum. Óttarr segir einhug hafa verið um að halda prófkjör enda tillagan sam- þykkt með öllum greiddum atkvæð- um. „En hin tillagan féll og nú er það verkefni okkar að vinna út- færslu af því með gjaldið og und- irbúa prófkjörið í heild sinni sem er aðalatriðið.“ Ætti að hleypa sem flestum að Gísli Marteinn Baldursson, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagð- ist fagna niðurstöðunni. „Ég fagna því að prófkjör hafi orðið niðurstað- an enda er það lýðræðislegasta og besta leiðin til að velja á lista. Á þessum tímum lítils trausts á stjórn- málamönnum ætti Sjálfstæðisflokk- urinn að sjálfsögðu að hleypa sem flestum að ferlinu og leyfa þeim að taka þátt í að velja sína fulltrúa á lista. Þetta er ekki tíminn til að reyna að loka hurðunum í Valhöll og hleypa bara útvöldum inn.“ Pressphotos/Geirix Húsfyllir Fundurinn í Valhöll var vel sóttur og mættu um 200 manns. Samþykkt að halda prófkjör  Tekist á um greiðslu félagsgjalda Prófkjör í Reykjavík » Samþykkt var samhljóða á félagsfundi Varðar að halda prófkjör 16. nóvember næst- komandi fyrir borgarstjórn- arkosningarnar í Reykjavík. » Fellt var að veita undanþágu frá reglum flokksins um að til þess að vera kjörgengur þurfi að vera búið að greiða fé- lagsgjöld. Tæknideild lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu rannsakaði í gær eldsvoðann í Trésmiðju Akraness í fyrrinótt. Engar upplýsingar var að fá um orsök eldsins í gær en beðið er niðurstaðna rannsóknarinnar. Byrj- að var í gær að rífa það sem eftir stóð af Trésmiðjunni og færa af vett- vangi. Eiginlegu slökkvistarfi við Tré- smiðju Akraness lauk um tvöleytið í fyrrinótt. Þráinn Ólafsson, slökkvi- liðsstjóri Akraness, sagði í samtali við mbl.is ljóst að gríðarlegt tjón hefði orðið í eldsvoðanum og að mesta mildi væri að ekki hefði farið verr. Enginn var inni í húsinu þegar eldurinn kom upp. Þá var logn á Akranesi sem hindraði frekari út- breiðslu eldsins. sgs@mbl.is Ekkert vitað enn um orsök eldsins  Byrjað að rífa Trésmiðjuna Morgunblaðið/Árni Sæberg Bruni Enn er ekki vitað um orsök.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.