Morgunblaðið - 20.09.2013, Síða 4

Morgunblaðið - 20.09.2013, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 VIÐTAL Guðni Einarsson gudni@mbl.is Vetur hefur sest snemma að víða, meðal annars í Fljótunum á Norður- landi. Fram við Stíflu innst í sveit- inni er kominn töluverður snjór en því er ekki fyrir að fara á Brúnastöð- um sem standa niðri við Miklavatn. Þar var mikið fannfergi í vor. „Síðasti skaflinn fór af hlaðinu 28. júlí í sumar. Það er enn skafl nokkur hundruð metra frá bænum. Síðasti vetur var alveg skelfilegur,“ sagði Jóhannes H. Ríkharðsson, bóndi á Brúnastöðum. Hann sagði að síðasta sumar hefði verið mjög gott. „Júní var alveg draumur, besti júní sem við höfum fengið í manna minnum, liggur við. Júlí var í sjálfu sér ágætur en óvenjulegur að því leyti að hann var mjög úrkomusam- ur. Þegar við byrjuðum loksins að heyja í lok júlí þá vorum við í erf- iðleikum með að þurrka. Töluvert mikil úrkoma í ágúst stríddi okkur svolítið en það var hlýtt og ágætis veður. Við höfum ekki fengið svona mikla úrkomu í ágúst í mörg ár. Það komu þó alltaf tveir til þrír þurrir dagar inn á milli. Grasspretta var alveg með ein- dæmum góð, einhver sú besta í mörg ár. Heyfengur varð mikill. Ætli ég sé ekki með 250 rúllum meira en í fyrra sem er um 20% aukning,“ sagði Jó- hannes. Hann sagði að bleyta í jörð hefði gert aðeins erfitt fyrir með að klára heyskapinn og ná heyjunum heim. Því verki er varla lokið enn. Aðeins bar á kali í túnum á Brúna- stöðum í vor. Nýræktir á fyrsta ári fóru mjög illa út úr síðasta vetri. Þær voru rétt að ná sér á strik í haust. Það kom ekki að sök því göm- ul harðbalatún skiluðu svo miklu. Af sumum túnunum var tvöföld upp- skera miðað við árin 2011 og 2012, sem voru mikil þurrkaár. Sluppu með skrekkinn Jóhannes er fjallskilastjóri í sinni sveit. Réttað var í Holtsrétt í Fljót- um laugardaginn 14. september. „Við sluppum með skrekkinn í smalamennskunni eins og í fyrra. Við kláruðum göngurnar í blíðskap- arveðri hér á laugardeginum. Svo komu ósköpin aftur á sunnudeg- inum, eins og „taka tvö“ frá því í fyrra,“ sagði Jóhannes. Verið var að slátra fé frá honum í gær á Sauð- árkróki. „Mér sýnist áberandi hjá okkur að lömbin undan yngstu ánum vanti þroska. Þær hafa ekki náð alveg að hafa sig fram úr vorinu. Það er meira af litlum lömbum en und- anfarin ár. Við höfum látið skera 400 lömb og meðalfallþunginn var tæp- lega 17 kíló. Það er meira en maður átti von á. Lömbin virðast vera mjög holdgóð. Gróðurinn hefur verið sterkur í fjöllunum bæði í ágúst og september og nýgræðingur alveg endalaust. Féð hafði það gott,“ sagði Jóhannes. Hann sagði að þau ættu töluvert af graslömbum og þau virð- ast hafa spjarað sig ágætlega. Graslömbin eru undan ám sem drápust af slysförum í vor. Þau á Brúnastöðum misstu töluvert marg- ar ær ofan í læki og skurði í gegnum snjóinn þar sem þær drukknuðu. Reyna að bata minnstu lömbin „Maður tekur fyrst lömbin sem eru tilbúin á markaðinn og reynir að gera hin lömbin markaðshæf,“ sagði Jóhannes. Meðalfallþungi dilka frá Brúna- stöðum var um 15,5–16 kg eftir þurrkasumarið í fyrra. Jóhannes ætlar að reyna að ala minnstu lömb- in lengur og bata þau eitthvað fyrir slátrun. Vandinn er sá að illa gekk að rækta grænfóður vegna þess hvað sumarið var stutt. Ef tíðarfarið batnar þá eiga lömbin eitthvað að geta bætt við sig. Verði haustið nú svipað og í fyrra, þegar september var skelfilegur, þá er ekki við því að búast að lömbin stækki mikið. Ljósmynd/Hjördís Leifsdóttir September 2013 Mikill snjór er kominn í fjöllin og innst í sveitinni en ekki á Brúnastöðum. Eins og „taka tvö“ frá í fyrra  Síðasti vetur var mjög erfiður í Fljótunum  Það vetraði líka snemma nú  Grasspretta var með eindæmum góð í sumar  Féð virðist hafa haft það gott í sumar  Meira er af litlum lömbum nú Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Maí 2013 Kristinn Jóhannesson, sonur hjónanna á Brúnastöðum, við skafl við útihúsin í vor. Framkvæmdir eru hafnar við nýja ljósastýrða gangbraut yfir Hring- braut á móts við Sæmundargötu. Önnur ljósastýrð gangbraut er fyrir á Hringbrautinni við Þjóðminjasafnið, en aðeins nokkrir tugir metra verða á milli gangbrautanna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur lögreglu höfuðborgarsvæðisins ekki verið tilkynnt um þessa nýju gangbraut, sem verið er að setja upp. Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur samþykkti í mars sl. að ráðist yrði í gerð göngu- og hjólastíga á Sæmundargötu og þverun fyrir gangandi og hjólandi yfir Hringbraut í framhaldi hennar. Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, var eini fulltrúinn í ráðinu sem greiddi atkvæði gegn tillögunni. Fram kom á sínum tíma að kostnaður við þessa framkvæmdir væri áætlaður um 90 milljónir króna. Morgunblaðið/Júlíus Stutt verður milli gangbrauta á Hringbraut „Það hefur löngum verið vandamál að leigutekjur eru í of mörgum tilfellum ekki gefnar upp til skatts,“ segir Skúli Egg- ert Þórðarson ríkisskatt- stjóri. Í Morgunblaðinu í gær var haft eftir einum af stofnendum væntanlegra Samtaka leigjenda, að dæmi væru um að leigu- salar byðu fólki að leigja svart, meðal ann- ars með þeim hætti að leigutakar borguðu hærra verð en greint væri frá í þinglýsingu. „Þetta er eitt af mörgum sviðum í skatt- lagningu þar sem grunur er um töluverð undanskot, því miður,“ segir ríkisskatt- stjóri. Eftirlit skattsins með skattskilum á leigu- markaði getur þó verið örðugt þar sem margir leigja aðeins út eina og eina íbúð. Viðvarandi vandamál? Skattyfirvöld hafa haft áhyggjur af því að þetta verði viðvarandi vandamál, nema tak- ist með einhverjum hætti að fá leigutaka til að sjá sér ávinning í því að greina frá þess- um málum með skýrari hætti en verið hef- ur, t.d. í gegnum húsaleigubótakerfið, að sögn Skúla Eggerts. Hann segir skattyfirvöld hafa litið sér- staklega til þeirra aðila sem eru með um- fangsmeiri leigu með höndum.  Löngum verið vandamál Skúli Eggert Þórðarson Grunur um töluverð skatt- undanskot

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.