Morgunblaðið - 20.09.2013, Qupperneq 9
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013
Aukablað alla
þriðjudaga
Túnikur
kr. 8.900.-
Str. M-XXXL
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
Margar gerðir og litir
Færðu ekki nógan svefn, eldist húð þín of hratt?
Kynnum nýtt Advanced Night Repair. Athugaðu hvað það getur gert fyrir þína húð.
20% afsláttur af öllum húðdropum frá Estée Lauder þessa viku.
KAUPAUKI
KAUPAUKINN INNIHELDUR:
Take it Away Makeup Remover - nýjan farðahreinsi, 30ml
Advacned TimeZone Creme, - dagkrem sem vinnur á línum og hrukkum, 15ml
Perfectionist [CP+R] – serum sem dregur úr línum og hrukkum, 7ml
Advanced TimeZone Eye Creme – augnkrem sem vinnur á línum og hrukkum, 5 ml
Pure Color Lipstick – full stærð, litur Candy
Sumptuous Extreme Mascara – svartan maskara
Beautiful EDP Spray – ilmvatn 4,7ml
Fallega snyrtibuddu.
Kaupaukinn þinn
DAGANA 19. – 25. SEPTEMBER
Í HYGEA KRINGLUNNI
OG SMÁRALIND
Glæsilegur *kaupauki fyrir þig ef
þú kaupir vörur frá Estée Lauder
fyrir 6.900 eða meira.
*meðan birgðir endast
Kringlunni og Smáralind
TÍSKU
MARKAÐUR
POP-UP
MC PLANET
VÖRUMERKIÐ HÆTTIR!
OPNUNARTÍMI:
MÁN.-FÖS: 13-18 - LAU.12-16
50-80% afsláttur!
MÖRKINNI 6 -108 REYKJAVÍK
Allt á að seljast!
Mest selda
ævisagan
í Eymundsson
þessa vikuna
11.09.13 – 17.09.13
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Borgarráð Reykjavíkurborgar sam-
þykkti í gær úthlutun á lóð við Suð-
urlandsbraut til Félags múslima á
Íslandi. Fulltrúar
Besta flokksins,
Samfylkingar og
Vinstri grænna
greiddu allir at-
kvæði með tillög-
unni, en fulltrúar
Sjálfstæðis-
flokksins sátu all-
ir hjá við at-
kvæðagreiðsluna
og létu fylgja
bókun.
Dagur B. Eggertsson, formaður
borgarráðs, segir að ákvörðun ráðs-
ins í gær hafi verið síðasta stigið á
löngu ferli en ákveðið hafi verið fyrir
um 14 árum að úthluta lóðum til
fjögurra trúfélaga; ásatrúarmanna,
búddista, rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar og svo múslima sem
hefðu verið síðastir í röðinni.
Endurskoða lög um Kristnisjóð
Þeir borgarráðsfulltrúar sem
samþykktu tillöguna létu bóka að
þeir óskuðu Félagi múslima á Ís-
landi til hamingju með lóðina. Í bók-
un meirihlutans var einnig óskað eft-
ir því að Alþingi myndi hefja
endurskoðun á þeim ákvæðum í lög-
um um Kristnisjóð og fleiri nr. 35/
1970 sem leggja þær skyldur á
herðar sveitarfélögum að leggja til
ókeypis lóðir undir kirkjur og und-
anskilja þær gatnagerðargjaldi.
„Það sem vekur athygli er að
sveitarfélögin eru skyldug með lög-
um að finna lóðir og afhenda þær án
endurgjalds,“ segir Dagur en sú af-
hending er á meðal þess sem hefur
verið gagnrýnt við úthlutun lóð-
arinnar. „Auðvitað skil ég að fólk
setji spurningarmerki við það og það
gerði borgarráð líka,“ segir Dagur.
Í bókun meirihlutans segir meðal
annars að á þeim tíma sem lögin um
Kristnisjóð hafi verið sett hefði mátt
færa fyrir því rök að eðlilegt væri að
Reykjavíkurborg léti frá sér án end-
urgjalds lóðir undir kirkjur. Það
væri hins vegar tímaskekkja að
skylda sveitarfélög einhliða til að
ráðstafa dýrmætu borgarlandi án
endurgjalds til þeirra trúfélaga sem
sækjast eftir því. Reykjavíkurborg
styður eftir sem áður fjölbreytt
trúarlíf í borginni.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokks ákváðu að sitja hjá við af-
greiðslu málsins. Í bókun þeirra er
meðal annars gagnrýnt að ekki hafi
verið farið eftir sérstökum skil-
málum sem samþykktir voru ein-
róma í borgarráði í apríl 2011, þar
sem kveðið var á um að sett væru
tímamörk á lóðaúthlutanir til trú-
félaga þannig að lóðum yrði skilað
aftur til borgarinnar eftir tvö ár ef
framkvæmdir hefðu ekki hafist.
Á sama tíma var samþykkt að trú-
félög ættu við úthlutun lóða að upp-
lýsa um fjármögnun framkvæmda.
Þessi hóflegu skilyrði væru eðlileg
ráðstöfun í ljósi þess að trúfélög
greiða ekki gatnagerðargjöld. Þrátt
fyrir það væru engir skilmálar fyrir
úthlutun lóðarinnar nú. Segir í bók-
uninni að slík stjórnsýsla sé óskilj-
anleg og fordæmalaust að borgarráð
kannaðist ekki við eigin ákvarðanir.
Því gætu fulltrúar Sjálfstæðisflokks
ekki stutt tillöguna nú.
Í bókuninni var tekið fram að
borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokks styddu fjölmenningu, fjöl-
breytt trúarlíf og jafnræði borg-
arbúa. Var því tekið undir bókun
meirihlutans um að eðlilegt væri að
endurskoða lög um úthlutanir lóða
til trúfélaga.
Bygging mosku sam-
þykkt í borgarráði
Vilja að Alþingi skoði lög um úthlutun lóða til trúfélaga
Morgunblaðið/Ómar
Bænastund Samþykkt hefur verið í borgarráði að afhenda múslimum lóð
undir mosku. Langan tíma hefur tekið að útvega lóð fyrir moskuna.
Lóð undir mosku
» Borgarráðsfulltrúar Besta
flokksins, Samfylkingar og
Vinstri grænna samþykktu út-
hlutun lóðar en fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks sátu hjá.
» Lög nr. 35/1970 um Kristni-
sjóð skylda sveitarfélög til
þess að úthluta trúfélögunum
lóðum án endurgjalds.
Dagur B.
Eggertsson
Íbúasamtök miðborgar Reykjavík-
ur sendu í gær Umhverfis- og
skipulagssviði Reykjavíkurborgar
athugasemdir við tillögu að Að-
alskipulagi 2010 til 2030.
Íbúasamtökin gera athugasemd
við áform um að heimila fimm hæða
byggingar meðfram strandlengj-
unni norðanverðri í miðborginni og
enn hærri byggingar á skil-
greindum þróunarsvæðum einkum
meðfram samgönguásum og
strandlengju í norðri. Þau telja slík-
ar byggingar rýra gæði þeirra
íbúðahverfa sem fyrir eru og ekki
vera í samræmi við eldri byggð.
Þá hafa samtökin verulegar efa-
semdir um frekari áform um enn
þéttari byggð í miðborginni. Í
þriðja lagi er gerð athugasemd við
þá skipulagstillögu að heimila megi
rekstur veitingastaða í flokki III á
miðborgarsvæðinu. Samtökin telja
að þær heimildir muni leiða til enn
frekari ágangs og ónæðis fyrir íbúa
miðborgarinnar vegna áfengisveit-
inga og mótmæla harðlega öllum
frekari heimildum til reksturs veit-
ingahúsa í flokki III.
Morgunblaðið/Ómar
Reykjavík Ýmsar athugasemdir voru
gerðar við skipulag miðborgarinnar.
Gera athugasemdir
við aðalskipulagið
Verð á kaffi í íslenskum verslunum
hækkaði að meðaltali um 14,5% frá
ágúst 2011 til ágúst 2013. Á sama
tímabili lækkaði heimsmarkaðsverð
á Robusta kaffibaunum um 15,1%,
en um 40% af öllu kaffi í heiminum
eru framleidd úr slíkum baunum.
Á vefsvæði Neytendasamtakanna
segir að neytandi hafi haft samband
og fullyrt að heimsmarkaðsverð á
kaffi hafi farið lækkandi án þess að
sú verðlækkun hefði skilað sér í
verslunum hér. Neytendasamtökin
spyrja af hverju kaffiverðið hér þró-
ist ekki í samræmi við heimsmark-
aðsverð og þróun gengis.
Ekki í samræmi við
heimsmarkaðsverð