Morgunblaðið - 20.09.2013, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Rósa Braga
Líf og fjör Björg Sonde Þráinsdóttir og Eva Bragadóttir dagmæður með börnin sem flesta daga eru tíu talsins.
Í Grafarvogi hafa þrír dagfor-
eldrar nýtt sér þann kost að leigja
húsnæði gamals gæsluvallar og
segir Björg að gömul skólahús
sem eru færanleg, séu líka nýtt.
„Þetta er mjög sniðug leið til að
nýta hús sem annars væru í niður-
níðslu,“ segir Björg. Þrátt fyrir
ungan aldur eru stúlkurnar
óhræddar við að prófa sig áfram
og takast á við nýja hluti. Það að
breyta gömlum gæsluskúr í ný-
stárlega daggæslu, var áskorun
sem þeim þótti báðum gaman að
takast á við. Endurnýjun Það má vel nýta gömul hús og gefa þeim ný hlutverk.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013
Alltof margir hafa skoðan-ir á öllum fjandanum.Margt af því sem þessihópur fólks segir er lit-
að af hvatvísi og vanþekkingu
enda er engin leið að gaumgæfa
hvert mál. Enginn ætti að
skammast sín fyrir að segja pass
með nokkuð reglulegum hætti.
Það er heilbrigt að segja af og
til einfaldlega: „Nei, ég hef ekki
skoðun á þessu.“
Orð heimspekingsins Williams
Kingdons Cliffords (1845-1879)
koma óneitanlega í hugann þegar
staldrað er við þetta málefni.
„Það er ætíð rangt, alls staðar og
fyrir hvern mann að trúa ein-
hverju á ófullnægjandi for-
sendum,“ sagði hann. Já, fleiri
mættu hafa fast land undir fótum
þegar þeir tjá sig, sem myndi
ugglaust hafa það í för með
sér að þeir hefðu eitthvað
fram að færa. Þvæla er
vitaskuld lítils virði.
Mögulega má þetta
rekja til þess að margir
enduróma alltof oft við-
horf annarra eða
eru blindaðir af
tilfinningum, eink-
um reiði, í stað
þess að beita rök-
hugsun.
Hópur fólks
vonaðist eftir
stökkbreyttum
heimi eftir
bankahrun og
kallaði eftir því að
gagnrýnni hugsun
yrði beitt í hvívetna.
En það er að sjálf-
sögðu ómögulegt að
hafa skoðanir á öllu og
á sama tíma iðka sómakæra
hugsun. Ætli það sé ekki ráðlegt
að leita aftur í brunn mér vitrari
manna. Páll Skúlason, prófessor í
heimspeki, hefur skilgreint gagn-
rýna hugsun með þessum orðum:
„Gagnrýnin er sú hugsun sem
fellst ekki á neina skoðun eða
fullyrðingu nema hún hafi fyrst
rannsakað hvað í henni felst og
fundið fullnægjandi rök fyrir
henni.“
Sá sem sannarlega er
hugsandi getur því
engan veginn
haft ráðrúm
til að hafa
skoðanir
á öllu.
Já, það
er öllum
hollt að kunna að
segja pass þótt það
þýði að rakið tækifæri
til að upplýsa heiminn
um stórkostlega tíma-
mótaskoðun fari for-
görðum.
»Alltof margir hafaskoðanir á öllum
fjandanum. Margt af
því sem sagt er því litað
af hvatvísi og vanþekk-
ingu.
HeimurHelga Vífils
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
MYNDARLEGUR
www.landrover.is
NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4
VERÐ FRÁ 10.990.000 KR.
Land Rover Discovery 4 er einn glæsilegasti jeppi sem til er. 211 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins
8,3 l/100 km í blönduðum akstri*, ný 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýrinu og loftpúðafjöðrun
á öllum hjólum sem tengd er Terrain Response stillanlega fjöðrunarkerfinu.
Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
8
7
5
8
*M
ið
að
vi
ð
up
pg
ef
na
r
vi
ðm
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
um
el
ds
ne
yt
is
no
tk
un
íb
lö
nd
uð
um
ak
st
ri
.
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080