Morgunblaðið - 20.09.2013, Side 14

Morgunblaðið - 20.09.2013, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Upphafleg áætlun okkar þegar við komum hingað á Hvammstanga í vor var sú að vera hér meðan á foreldraorlofi stæði. Þegar leið á sumarið varð okkur æ fjarlægara að fara aftur í bæinn. Við ákváðum því að taka af skarið og flytja hing- að. Skapa okkur verkefni og störf sem komu fyrr en varði,“ segir Unnur Vilborg Hilmarsdóttir, sem nú er að taka við framkvæmda- stjórn Selaseturs Íslands á Hvammstanga. Ferðaþjónusta, sýning og rannsóknir Unnur Valborg segir áhugavert að taka við stjórn Selaseturs Ís- lands. „Sjálf hef ég unnið sem stjórnendaþjálfari undanfarin ár og ætlaði að sinna því áfram að hluta og búa til fleiri ný verkefni héðan. En með föstu starfi er staðan önn- ur,“ segir Unnur sem tekur við nýju starfi 1. nóvember. Starfsemi Selasetursins hófst ár- ið 2002. Er því ætla að vera inn- legg til efldrar ferðaþjónustu í í Húnaþingi vestra, það er miðla upplýsingum um íslenska selastofn- inn en hann heldur sig mikið t.d. á Vatnsnesi og þar í kring í Húna- vatnssýslum. Áhugaverð sýning er uppi og jafnframt unnið að ýmsum rannsóknarverkefnum. Unnur Valborg er uppalin á Hvammstanga og bjó þar til átta ára aldurs. Eftir það var hún oft nyrðra hjá föður sínum, Hilmari Hjartarsyni, og hans fólki, svo ræt- urnar slitnuðu aldrei. Fyrir nokkr- um árum festi hún með systkinum sínum kaup á ættarhúsinu Valhöll – og hefur síðan dvalið þar í fríum. „Þegar við Alfreð Alfreðsson maðurinn minn vorum nú í vor komin með tvö lítil börn ásamt unglingi fannst okkur gott að skipta um umhverfi og vera í sveit- inni. Og við tókum ákvörðun um að vera hér áfram. Alfreð vinnur á meðferðarheimili fyrir sunnan; er á vöktum í tvo daga en á sex daga frí þar á milli,“ segir Unnur Vil- borg. Síðustu vikurnar, frá því fjöl- skyldan flutti endanlega norður, segist Unnur Valborg hafa fundið vel að mörgum finnist ákvörðunin bráðsnjöll. Marga fýsi að flytja út á land, en taki ekki af skarið. Þarf varla að hreyfa bílinn „Jú, auðvitað er á einhvern mælikvarða dýrara að búa úti á landi en á Reykjavíkursvæðinu. Þetta er allt spurning um viðmið. Hér í þorpinu þarf ég varla að hreyfa bílinn og get komist flestra minna ferða fótgangandi. Tveggja ára sonur minn komst strax inn á leikskóla, verslunarferðum fækkar sem og ferðum á skyndibitastaði sem sparar peninga. Svona gæti ég haldið áfram. Hvammstangi er góður kostur.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hvammstangi „Hér þarf ég varla að hreyfa bílinn og get komist flestra minna ferða fótgangandi,“ segir Unnur. Varð æ fjarlægara að fara aftur suður  Sneri aftur á heimaslóðir á Hvammstanga  Tekur við rekstri Selaseturs Íslands  Upplýsingum miðlað um seli Selur á skeri Óvíða er að finna jafn mörg sellátur og við Miðfjörð. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hæstiréttur þyngdi í gær fangels- isdóm yfir Aroni Pétri Karlssyni fyrir fjársvik í tvö og hálft ár, en héraðsdómur hafði áður dæmt hann í tveggja ára fangelsi. Að auki var Aron Pétur dæmdur til að greiða Arion banka 64.323.376 krónur, Íslandsbanka 48.748.312 krónur og Glitni banka 48.551.779 krónur, í öllum tilvikum með dráttarvöxtum. Honum var einnig gert að greiða hverjum um sig 250.000 krónur í málskostnað. Eins er honum gert að greiða verj- anda sínum 4.354.850 krónur í málskostnað. Ennfremur er fyr- irtæki hans gert að sæta upptöku á 96.931.458 krónum. Hæstiréttur staðfesti þar fyrri dóm héraðsdóm. Málavextir voru þeir að í janúar 2010 tilkynnti kínverska sendiráð- ið um kaup á húsnæðinu Skúla- götu 51 þar sem Sjóklæðagerðin var áður til húsa. Húsið var í eigu félagsins Vindasúlna en þar í for- svari var Aron Pétur ásamt föður sínum. Fasteignin var veðsett fyrir rúman milljarð króna vegna lána í Arion banka, Íslandsbanka og Glitni. Um miðjan desember 2009 var gengið að tilboði frá indversku fyrirtæki í fasteignina fyrir 575 milljónir króna. Bankarnir féllust á þessa sölu og léttu af fasteign- inni áhvílandi veðum sínum á fyrsta veðrétti gegn andvirði söl- unnar. Skömmu síðar var hins vegar samþykkt tilboð frá kín- verska sendiráðinu upp á 875 milljónir. Í millitíðinni var búið að færa fasteignina í nýtt félag, 2007 ehf., í eigu sömu aðila, en það fé- lag hét AK fasteignir. Upplýsti Ar- on Pétur bankana ekki um þá ráð- stöfun. Hæstiréttur þyngdi dóm Arons E N N E M M / S ÍA / N M 5 8 7 0 9 *Miðað við uppgefnar eyðslutölur framleiðanda í blönduðum akstri www.renault.is SPARNEYTNIR Á GÓÐU VERÐI BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is SPORT TOURER 1,5 l, sjálfsk. dísil EXPRESSION 1,5 l, beinsk. dísil Sjálfsk. dísil GRAND, 7 MANNA: 4.690 þús. kr. Verð: 3.890 þús. kr. Verð: 2.890 þús. kr. Verð: 4.290 þús. kr. RENAULT MEGANE RENAULT CLIO RENAULT SCENIC L/100 KM* L/100 KM* L/100 KM* 4,2 3,4 4,7 GE bílar / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkst. Austurlands / Egilsst. / 470 5070 IB ehf. / Selfossi / 480 8080

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.