Morgunblaðið - 20.09.2013, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 20.09.2013, Qupperneq 17
Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 Grafarvogssöfnuður ætlar að leggja sitt af mörkum við söfnun línuhraðals fyrir Landspítalann um helgina en á sunnudag verður upp- skerumessa í kirkjunni kl. 11. Þar verður uppskeru sumarsins safnað saman og hún boðin upp eftir messu. Fram kemur í tilkynningu, að fólk geti til dæmis komið með grænmeti, kartöflur, ávexti, brauð, kökur, sultur eða hvað annað sem því dettur í hug. Góðgætinu verði stillt upp í kór kirkjunnar, það bor- ið út að lokinni messu og síðan boð- ið upp. Guðrún Karls Helgudóttir, prest- ur í Grafarvogskirkju, þjónar í upp- skerumessunni á sunnudaginn. Slík messa var einnig haldin á síðasta ári til styrktar Kvennaathvarfinu. Grafarvogskirkja Uppskeran verður boð- in upp eftir messu á sunnudag. Uppskerumessa í Grafarvogskirkju STUTT Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík skorar á ríkisstjórnina að hækka skattleysismörkin mynd- arlega í tengslum við afreiðslu fjár- laga fyrir árið 2014. Í ályktun frá félaginu segir, að hækkun skattleysismarka sé besta kjarabótin fyrir eldri borgara. Jafnframt krefst kjaranefndin þess, að það verði forgangsmál á haustþingi að leiðrétta kjara- gliðnun þá, sem lífeyrisþegar hafi orðið fyrir síðastliðin fjögur ár. Skattleysismörk verði hækkuð Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Hvalaskoðunarfyrirtæki hafa stutt rannsóknir á hvölum og eru sífellt meðvitaðri um að starfsemi þeirra hafi ekki áhrif á hvalina. Þetta segir Rannveig Grét- arsdóttir, fram- kvæmdastjóri hvalaskoðunarfyr- irtækisins Elding- arinnar í Reykja- vík. Doktorsrann- sókn sem sagt var frá í Morgun- blaðinu í gær bend- ir til þess að ferðir hvalaskoð- unarbáta hafi áhrif á hegðun hrefna í Faxaflóa. Rannveig segir hins vegar að rannsóknin sýni fyrst og fremst fram á að umferð skipa almennt hafi áhrif á dýrin. „Þetta er nokkuð sem við höfum verið að skoða. Við leggjum okkur öll fram um að draga úr neikvæðum áhrifum ef þau eru til staðar,“ segir Rannveig. Hún segir að fyrirtækið hafi bæði hjálpað til við þessa rannsókn og aðra sem hefur verið í gangi frá 2007. „Við fáum bráðabirgðaniðurstöður hjá rannsakendum og notum þær á fundum hjá Hvalaskoðunarsamtök- unum til að fá stjórnendur fyrirtækj- anna til að skilja að þeir gætu mögu- lega haft áhrif á dýrin. Við erum að reyna að vera eins ábyrg og við get- um í þessu,“ segir hún. Meiri kröfur um reglur Eftir því sem hvalaskoðunarfyrir- tækjum fjölgar er þörf á frekari reglum að sögn Rannveigar. Fyrir- tæki bæði í Reykjavík og fyrir norðan hafa hist og farið yfir hvernig þau haga sér nálægt hvölunum. Þá séu Hvalaskoðunarsamtök Íslands með reglur og þær hangi um borð í bát- unum. „Það eru meiri og meiri kröfur um að farið sé eftir reglunum. Skipstjór- arnir passa hver annan. Um leið og einhver skipstjóri fer ekki eftir regl- unum þá tala menn saman. Það er aukin meðvitund um að það skiptir gríðarlega miklu máli að við höfum ekki áhrif á hvalina því þeir eru nátt- úrlega það sem við erum að sýna. Þess vegna höfum við stutt þessar rannsóknir því við viljum vita hvaða áhrif við höfum,“ segir hún. Morgunblaðið/Kristinn Skoðunarferð Ferðamenn sækja í hvalaskoðunarferðir hér á landi. Ferðir bátanna hafa áhrif á hrefnu í Faxaflóa skv. rannsókn sem gerð var þar. Vilja vita um áhrifin á hvalina Rannveig Grétarsdóttir  Fleiri skip en hvalaskoðunarskip hafa áhrif Ákveðið hefur verið að kynjakvóti verði í spurningakeppni framhalds- skólanna, Gettu betur, vorin 2015 og 2016. Þetta var ákveðið á fundi stýrihóps keppninnar nýlega, en þar sitja fulltrúar þeirra fjögurra menntaskóla sem komust í undan- úrslit í síðustu keppni ásamt fulltrúum Ríkisútvarpsins. Sam- kvæmt nýja fyrirkomulaginu mega aldrei vera fleiri en tveir af sama kyninu í liðum skólanna, en í hverju liði eru þrír þátttakendur. Skarphéðinn Guðmundsson, dag- skrárstjóri RÚV, segir að hópurinn sitji til eins árs og taki afstöðu til leikreglna keppninnar á hverju ári. Stýrihópur næsta árs gæti breytt þessari ákvörðun áður en keppnin vorið 2015 fer fram. Kynjakvóti verður í Gettu betur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.