Morgunblaðið - 20.09.2013, Síða 20

Morgunblaðið - 20.09.2013, Síða 20
NORÐURLAND-VESTRA DAGA HRINGFERÐ HOFSÓS MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Vissulega hefur fennt í sporin en tengsl okkar Íslendinga við frænd- fólk okkar í Vesturheimi verða þó til staðar svo lengi sem rækt er við þau lögð. Margir voru fullir efa- semda þegar starfsemi hér hófst fyrir sautján árum en áhuginn reyndist svo sannarlega til staðar þegar að var gætt,“ segir Valgeir Þorvaldsson, forstöðumaður Vest- urfarasetursins á Hofsósi. Vestur-Íslendingar eru helmingur gesta Starfsemi Vesturfarasetursins hefur vaxið fiskur um hrygg á und- anförnum árum; bæði sýning- arhaldi auk þess sem gestum fjölg- ar jafnt og þétt. Í ár voru gestirnir um 8.000 og telur Valgeir að nærri láti að helmingur þeirra sé Vestur- Íslendingar sem hingað koma til að kanna rætur sínar og slóðir for- feðra. Talið er að rösklega 16 þúsund manns hafi flutt frá Íslandi til Vesturheims á árunum 1870 til 1914. Segja má að flutningar þess- ir hafi byrjað árið 1873, en þá hélt allstór hópur fólks til að mynda úr Bárðardal og Vopnafirði til Bras- ilíu. Um svipað leyti fóru Íslend- ingar svo að flykkjast til Kanada, þaðan sem sendir voru agentar sem kynntu fólki fagra framtíð í fjarskanum. Margir þekktust boð- ið, ekki síst fólk af Norður- og Austurlandi. Þetta voru erfiðir tímar nyrðra; um langt skeið á síð- ari hluta 19. aldarinnar lagðist haf- ís á hverju ári að landinu og Öskjugosinu árið 1875 fylgdi ösku- fall og búsifjar. Margir kusu því að róa á ný mið. „Þetta var hrun, kannski á einhvern hátt hliðstætt því sem hér varð fyrir fáum árum,“ segir Valgeir sem á stóran frændgarð í Kanada – og hefur raunar látið svo ummælt að litlu hafi munað að hann yrði Vestur-Íslendingur. Flestir Íslendinganna fluttust til Kanada og árið 1875 fengu þeir að stofna eins konar sjálfstjórnar- nýlendu við Winnipegvatn, það er Nýja-Ísland. Síðar urðu þessar slóðir hluti af Manitoba-ríki og þar er mikill fjöldi fólks af íslenskum ættum eins og raunar víðar í Kan- ada og nálægum ríkjum Banda- ríkjanna, svo sem Minnesota og Norður- og Suður-Dakota. Endurbyggt og ný hús „Þegar við opnuðum Vestur- farasetrið árið 1996 var starfsemin aðeins í Gamla kaupfélagshúsinu. Síðan þá höfum við endurbyggt og reist ný hús, til dæmis húsið Ljósmynd/Kristín Sigurrós Einarsdóttir. Leiðsögn Valgeir Þorvaldsson á bryggjunni meðal gesta sinna sem gjarnan eru af Íslendingaslóðum í Vesturheimi. Áhuginn endist og frændsemin lifir  Tengsl við Vesturheim styrkjast  Brasilía í brennidepli  Sundlaugin á Hofsósi er af mörgum talin ein fallegasta laug landsins. Laugin var tekin í notkun árið 2010 og er gjöf tveggja athafnakvenna, þeirra Lilju Pálmadóttur og Steinunnar Jónsdóttur, til íbúa Skagafjarðar, en báðar eiga þær ættir að rekja í Skagafjörð. Sundlaugin, sem er 25 metra löng og 10,5 metrar á breidd, er á sjávarbakka sunnarlega í þorpinu, við Staðarbjargarvík og var hönnuð af Sigríði Sigþórsdóttur arkitekt. Þegar synt er frá suðri til norðurs í lauginni rennur vatnsflötur hennar saman við hafflötinn neðan henn- ar og úr henni er stórbrotið útsýni yfir hafið og Drangey. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Drangeyjarsund Kátir sundlaugargestir í boltaleik og Drangey í fjarska. Athafnakonur gáfu sundlaug  Stóð verður dregið í dilka í Lauf- skálarétt í Skagafirði næsta laug- ardag, 28. september. Hrossin verða að morgni dags rekin úr Kolbeinsdal í réttina við holtið sem hún stendur á, Laufskálaholt í Hjaltadalnum. Að jafnaði eru úr dal til réttar rekin um 600 hross; folöld sem fullorðnir hestar. Þá er sagt nyrðra að ámóta margir, það er heimamenn og gestir, fylgi stóðinu ríðandi til réttar. Rétt- arstörf hefjast um hádegisbil og lýk- ur um kaffileytið – og hefst þá rekst- ur heim á bæi í hinum gamla Viðvíkur- og Hólahreppi. Um kvöldið er svo réttardansleikur í reiðhöllinni Svaðastöðum við Sauðárkrók – og hafa gestir þar verið um 2.000 þegar best lætur. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Hross Laufskálarétt og sérstök stemning þar er mikið aðdráttarafl. Réttir og dans Margir áhugaverðir atburðir verða á dagskránni á Hólum í Hjaltadal í vet- ur. Séra Solveig Lára Guðmunds- dóttir, vígslubiskup Hólastiftis, seg- ist hafa áhuga á að auka veg staðarins sem alhliða menningarset- urs þannig að fólk geti gert sér sann- anleg og gagnleg erindi á staðinn. Í vetur verður til dæmis fræðimönn- um og rithöfundum boðið að koma heim að Hólum og dveljast eina viku í fræðimannsíbúð, sem þeir endur- gjalda svo með fyrirlestri í dvalarlok. Nú á haustdögum verða á Hólum þær Bryndís Zoëga, Árelía Eydís Guð- mundsdóttir og Hildur Hákonardóttir en þær hafa hver á sínu sviði látið að sér kveða við ýmis fræðistörf. Fleiri koma svo á staðinn síðar á vetrinum. Aðra helgina í nóvember verða svo kyrrðardagar á Hólum, þar sem fólk getur átt næðisstundir við íhugun, útivist og bænagjörð. „Já, það má til sanns vegar færa að ég hafi flutt mig milli stórra staða,“ segir Solveig Lára sem var sóknarprestur á Möðruvöllum í Hörg- árdal í rúman áratug áður en hún varð Hólabiskup. Við því embætti tók hún í byrjun september í fyrra og flutti á staðinn þegar komið var fram í október. Fyrr á tíð Hundrað kirkna biskup  Alhliða menningarsetur  Kyrrðardagar og fræði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hóladómkirkja Ein af fallegustu kirkjum landsins. Var vígð árið 1763 og setur sterkan svip á Hólastað. Solveig Lára Guðmundsdóttir Hofsósi Verið velkomin í M ynd :aatla Eigendaskipti hafa orðið á bifreiða- og búvélaverkstæðinu Pardus og munu þeir halda rekstrinum áfram í óbreyttri mynd. Almenn viðgerðaþjónusta, varahlutir og alltaf heitt á könnunni. Starfsfólk Pardus PARDUS RAF Bíla- og búvélaverkstæðið Pardus ehf. • Suðurbraut 1, 565 Hofsósi sími 453 7380 / 8932881• Fax 453 7382 • Netfang: pardus@pardusehf.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.