Morgunblaðið - 20.09.2013, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.09.2013, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 Íslendingar neyta mests allra þjóða af fiski og er neyslan rúm- lega fjórföld meðalneysla Evrópu- þjóða og rúmlega fimmföld með- alneysla á heimsvísu. Samt sem áður hefur neyslan hér á landi dregist saman um 3,5% á rúmum áratug. Á sama tíma hefur með- alneysla Evrópubúa aukist um tæp 15%. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Íslandsbanka um stöðu sjávarútvegsins á Íslandi. Ísland skipar 17. sætið af þeim löndum sem framleiða hvað mest af fiski og nemur veiðin um 1,1 milljón tonna árið 2011 sem sam- svarar um 1,4% af heildarafla. Ís- land hefur fallið um sex sæti frá árinu 2001 en þá var Ísland ellefta umsvifamesta fiskveiðiþjóðin. Kína er hins vegar umsvifamesta fiskveiðiþjóð heims með tæplega 14,5 milljónir tonna í heildarafla. Asíulönd veiða langmest eða um 50% af heildarsjávarfangi árið 2011. Þar á eftir kemur Ameríka með um 27% og loks Evrópa með tæplega 16%. 25% aukning sl. áratug Heildarframleiðsla á fiski hefur aukist um tæp 25% síðastliðinn áratug og árið 2011 nam heildar- framleiðsla fisks á heimsvísu um 156,2 milljónum tonna. Samkvæmt spá Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) um þróun á heild- arframleiðslu fisks er gert ráð fyrir að árið 2022 verði hún komin í rúma 181 milljón tonna sem samsvarar um 16% aukningu frá árinu 2011 eða um 1,4% árlegri meðaltalsaukningu og er það að mestu tilkomið vegna aukinnar áherslu á fiskeldi, segir í skýrsl- unni. Veiðar á villtum fiski hafa hald- ist frekar stöðugar síðustu ár eða í um 90 milljónum tonna. Fram- boð hefur haldist stöðugt þó svo að stöku breytingar hafi orðið á aflaþróun eftir löndum, svæðum og tegundum. Ekki er búist við að fiskveiðar muni aukast mikið næstu ár þar sem talið er að fiski- stofnar þoli ekki miklu meiri veiði. Afli flestallra fisktegunda hefur lítið breyst undanfarin ár fyrir ut- an afla á ansjósum. Ansjósur (Pe- ruvian anchovy) eru mest veidda fisktegund í heimi, 8,3 milljónir tonna árið 2011. Frá árinu 2004 hefur veiði á ansjósum dregist verulega saman, að mestu leyti vegna aðgerða stjórnvalda til að vernda stofninn. Fram kom í skýrslu Íslands- banka að rekstur útgerða á Ís- landi sé heilt yfir góður og ytri skilyrði hagkvæm þó svo að af- koman sé misgóð milli fyrirtækja. helgivifill@mbl.is Íslendingar neyta mests allra af fiski  Ísland fellur um sex sæti yfir mestu fiskveiðiþjóðirnar  Skipuðum 11. sætið árið 2011 en sitjum nú í því 17. Ísla nd Por túg al Jap an S-K óre a Nor egu r Spá nn Lith áen Fin nla nd Fra kkla nd Sví þjó ð Kín a Ban dar íkin Kan ada Rús slan d Dan mö rk Me ðal t. E vró pu Bre tlan d Hol lan d Þýs kala nd Níg ería Meðaltal heimsins 18,518 61 57 56 51 43 41 37 34 32 31 24 23 22 22 22 21 20 15 14 Heildarframleiðsla 20 stærstu fiskveiðiþjóða heims árið 2011 Kín a Per ú Ind óne sía Ban dar íkin Rús slan d Jap an Ind lan d Síle Víe tna m Nor egu r Filip pse yjar My anm ar S-K óre a Tæ lan d Me xíkó Ma lasí a Ísla nd Spá nn Ma rok kó Kan ada M ill jó n to nn 16 14 12 10 8 6 4 2 0 Meðaltal 20 stærstu Heimild: FAO Neysla sjávarafurða á heimsvísu árið 2009 (kg/íbúa á ári) Hlutabréfamark- aðir hafa tekið vel í ákvörðun bankastjórnar Seðlabanka Bandaríkjanna um að gera eng- ar breytingar á stefnu bankans í peningamálum. Þegar í fyrrakvöld hækkuðu vísi- tölur á Wall Street, í fyrrinótt í Asíu og í Evrópu í gær. Kom ákvörðunin mjög á óvart þar sem flestir töldu að bankinn myndi draga úr stuðn- ingi við efnahagslífið, en hann til- kynnti þess í stað að hann myndi áfram að kaupa ríkisskuldabréf fyrir 85 milljarða Bandaríkjadala í hverjum mánuði. Hlutabréfamarkaðir tóku víða vel við sér Lufthansa, stærsta flugfélag Þýskalands, hefur lagt inn pöntun á 59 þotum. Um er að ræða 34 Bo- eing 777-9X og 25 Airbus A350- 900 þotur og er listaverð þeirra 14 milljarðar evra, 2.270 millj- arðar króna. Samkvæmt upplýsingum sem Lufthansa veitti í gær verða fyrstu þoturnar afhentar árið 2016. Lufthansa segir þetta stærstu einstöku fjárfestingu einkafyr- irtækis í Þýskalandi en það sem þoturnar sem pantaðar hafa verið eiga sameiginlegt er að þær eyða minna eldsneyti en þær vélar sem eru nú í notkun hjá félaginu. AFP Lufthansa Christoph Franz, stjórnar- formaður Lufthansa, á blaðamannafundi. Lufthansa hefur pantað 59 þotur STUTT Markaðsherferðin Inspired by Ice- land hlaut í fyrradag Euro Effie- verðlaunin í flokknum afþreying og skemmtun. Samtök evrópskra aug- lýsingastofa standa að veitingu þeirra. Herferðin hefur áður hlotið Euro Effie-verðlaun, hlaut aðal- verðlaun keppninnar árið 2011 fyrir bestu notkun samfélagsmiðla. Herferðin er á vegum Íslandsstofu og miðar að því að fá fleiri ferða- menn til Íslands árið um kring. Inspired by Iceland hlaut verðlaun Lopi 33 Sjá sölustaði á istex.is Til leigu, 80 fermetra, gott verslunarhúsnæði með góðum sýninga- gluggum á besta stað við Laugaveg. Laust 1. nóv. 2013. Áhugasamir leggi inn tilboð á netfangið: laugavegur44@gmail.com Laugavegur 44Til leigu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.