Morgunblaðið - 20.09.2013, Síða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013
Á miðvikudag var hinn árlegi Diner en Blanc haldinn í Bryant Park í New
York en það er matarviðburður sem Bandaríkjamenn og fleiri hafa flutt inn
frá Frakklandi. Reglum samkvæmt er staðsetningin aldrei tilkynnt fyrr en
á síðustu stundu og þátttakendur beðnir um að klæðast hvítu og hafa með
sér matarkörfur, postulínsborðbúnað og hnífapör, hvíta borðdúka, stóla og
borð. Viðburðurinn er afar vinsæll og jafnan margir sem enda á biðlista.
AFP
Kvöldmatur í hvítu
New York-búar í skyndilautarferð
Í seinni hluta við-
tals við banda-
rísku sjónvarps-
stöðina NBC,
sem sýnt var í
gær, lýsti Hassan
Rowhani, forseti
Írans, Ísrael sem
hernámsveldi en
sagði að Íran
sæktist ekki eftir
stríði. „Við trú-
um á kjörkassann. Við sækjumst
ekki eftir stríði við nokkurt ríki.
Við leitum eftir friði og vináttu
meðal þjóðanna á svæðinu,“ sagði
hann. Rowhani sagði Ísrael hins
vegar hafa leitt til óstöðugleika
með hernaðarstefnu sinni.
Spurður um helförina neitaði for-
setinn að svara spurningunni og
sagðist pólitíkus, ekki sagnfræð-
ingur, en forveri hans, Mahmoud
Ahmadinejad, var meðal þeirra sem
hafa haldið fram að helförin hafi
aldrei átt sér stað.
Í fyrri hluta viðtalsins, sem fór í
loftið á miðvikudag, sagði Rowhani
að þjóð hans myndi aldrei gera til-
raun til að koma sér upp kjarna-
vopnum.
Hassan Rowhani
ÍRAN
Sagði Írana ekki
sækjast eftir stríði
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Shinzo Abe, forsætisráðherra Jap-
ans, heimsótti Fukushima-
kjarnorkuverið í gær og sagði
stjórnendum versins að gera áætlun
um aðgerðir til að koma í veg fyrir
leka geislavirks vatns í og frá verinu.
Hann sagðist standa við staðhæf-
ingar sem hann setti fram á fundi al-
þjóðaólympíusambandsins um að
tekist hefði að takmarka áhrifin af
geislavirku vatninu.
Heimsókn Abes var m.a. ætlað að
fullvissa umheiminn um að yfirvöld
hefðu stjórn á ástandinu í verinu en
komið hefur í ljós að aðeins nokkrum
mánuðum eftir að fjórir kjarnakljúfa
versins skemmdust illa í kjölfar
jarðskjálftans í mars 2011 leyfðu
stjórnvöld rekstraraðila versins,
TEPCO, að fresta kostnaðarsömum
aðgerðum til að vernda grunnvatn á
svæðinu, af ótta við að þær myndu
setja fyrirtækið á hausinn.
Mengun hundraða tonna grunn-
vatns eykst daglega, er það sam-
blandast geislamenguðu vatni sem
hefur verið notað til að kæla kjarna-
kljúfana. TEPCO segir kjarnakljúf-
ana stöðuga en á hverjum degi þarf
meira vatn til að kæla þá. Mengaða
vatnið er geymt í tönkum en fyrir-
tækið hefur ekki getað svarað því
hvernig það hyggst losa sig við það.
Nokkrir þessara tanka eru farnir að
leka og er vatnið úr þeim talið hafa
farið niður í jarðveginn eða runnið
áleiðis út í sjó.
Segir menguninni
haldið í skefjum
Forsætisráðherra Japans heimsótti
Fukushima Vill áætlun um aðgerðir
AFP
Varinn Shinzo Abe klæddist hlífð-
arfatnaði í Fukushima-verinu í gær.
Staðhæfingar forsætisráðherrans
á fundi ólympíunefndarinnar í
Buenos Aires, um að yfirvöld og
stjórnendur Fukushima-kjarn-
orkuversins hefðu fulla stjórn á
ástandinu í verinu, voru lykilatriði í
því að tryggja Tókýó Ólympíu-
leikana 2020.
Sumir sérfræðingar segja full-
yrðingar forsætisráðherrans hins
vegar jaðra við að vera óheið-
arlegar en háttsettur yfirmaður
hjá TEPCO, rekstraraðila kjarn-
orkuversins, var m.a. á öndverðum
meiði við ráðherrann fyrr í mán-
uðinum þegar hann sagði að ekki
hefði tekist að koma böndum á
ástandið.
Abe hét því í gær að hann myndi
vinna ötullega að því að uppræta
efasemdir um öryggismál í Fuku-
shima-kjarnorkuverinu.
Fullvissaði ólympíunefndina
ÓLYMPÍULEIKARNIR Í TÓKÝÓ 2020
Vopnaðir ræn-
ingjar ógnuðu
Kathryn Blair,
dóttur Tonys
Blairs, fyrrver-
andi forsætisráð-
herra Breta, þeg-
ar hún var á
göngu ásamt unn-
usta sínum síðast-
liðið mánudags-
kvöld. Atvikið átti
sér stað í Marylebone í Lundúnum,
þegar Kathryn var að viðra hundinn
sinn, samkvæmt The Daily Tele-
graph, en hún á heima í nágrenninu.
Parið sakaði ekki og þjófarnir höfðu
ekkert upp úr krafsinu en lögregla
telur atvikið tengjast öðru ráni sem
átti sér stað um 30 mínútum áður.
Hún telur ekki að faðerni Kathryn
hafi valdið því að óþokkarnir réðust
að henni og unnustanum.
BRETLAND
Vopnaðir þjófar ógna
dóttur Tonys Blairs
Tony Blair
Forseti Sýrlands, Bashar al-Assad,
sagði í viðtali við bandarísku frétta-
stofuna Fox News að það myndi
taka að minnsta kosti ár og kosta
Sýrland milljarð Bandaríkjadollara
að láta efnavopn sín af hendi. Hann
sagði átökin í landinu ekki borg-
arastyrjöld, heldur væri Sýrland
fórnarlamb stríðsmanna Al-Kaída,
sem nytu stuðnings erlendra bak-
hjarla.
„Þetta er ekki borgarastyrjöld.
Þetta er stríð. Ný tegund af stríði,“
sagði Assad og fullyrti að íslamskir
skæruliðar frá fleiri en 80 löndum
hefðu tekið þátt í átökunum. Hann
dró í efa sérfræðiskýrslu þar sem
30.000 af 100.000 uppreisnar-
mönnum eru sagðir harðlínumenn
og sagðist vita að meðal andstæð-
inga hans væru tugþúsundir jíhad-
ista.
Tyrkir lokuðu landamærunum að
Sýrlandi tímabundið í gær eftir að
átök brutust út í bænum Azaz milli
sýrlenskra uppreisnarmanna og
liðsmanna Al-Kaída. Aðgerðasinnar
sögðu að samtökin Íslamska ríkið í
Írak og Levant hefðu yfirtekið bæ-
inn en innbyrðis átök andstæðinga
Assads hafa aukist undanfarið.
Innanríkisráðherra Frakklands,
Manuel Valls, sagði í útvarpsviðtali í
gær að um þrjú hundruð ríkisborg-
arar eða íbúar Frakklands hefðu
tekið þátt í átökunum í Sýrlandi eða
væru á leiðinni til þess og varaði við
því að af þeim gæti stafað ógn þegar
þeir sneru aftur.
Framkvæmdastjórn Efnavopna-
stofnunarinnar mun funda á sunnu-
dag til að ræða áætlun Bandaríkja-
manna og Rússa um eyðingu
efnavopnabirgða Sýrlandsstjórnar.
Tekur ár að láta
vopnin af hendi
Ekki borgarastyrjöld, segir Assad
AFP
Viðtal Assad ítrekaði að stjórnvöld
hefðu ekki staðið að árásinni í ágúst.