Morgunblaðið - 20.09.2013, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013
BÆJARLIND 16 KÓPAVOGUR SÍMI 553 7100 WWW.LINAN.IS
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 12 - 18 LAUGARD. 11 - 16
EASY
Hönnun Jahn Aamodt
Stóll kr. 206.600
Stóll + skemill kr. 264.300
Lækjargötu og Vesturgötu
ÚTSA
LA
AFP
Antonis Samaras, forsætisráðherra Grikklands, sagði í
gær að nýnasistum yrði ekki leyft að eitra samfélagið,
fremja glæpi né grafa undan stoðum ríkisins sem gat
af sér lýðræðið. Þúsundir mótmæltu hægriöfgastefnu í
Aþenu á miðvikudagskvöld, eftir að stuðningsmenn
nýnasistaflokksins Gullnar dögunar réðust á hipp-
hopp-listamanninn Pavlos Fyssas og einn mannanna,
George Roupakias, stakk hann til bana.
Sérfræðingar telja vandkvæðum bundið að banna
Gullna dögun samkvæmt gildandi lögum en flokkurinn
hlaut yfir 400 þúsund atkvæði í síðustu þingkosn-
ingum.
Talsmaður ríkisstjórnarinnar sagði hins vegar í gær
að skref yrðu tekin til að afhjúpa hvernig flokkurinn
hefði beinlínis hvatt til glæpsamlegs atferlis. Grískir
fjölmiðlar kölluðu eftir því í gær að starfsemi flokks-
ins yrðu settar þrengri skorður og gagnrýndu yfirvöld
fyrir að hafa leyft honum að starfa óáreittum.
Fá ekki að eitra samfélagið
MÓTMÆLA NÝNASISMA Í KJÖLFAR MORÐS Á HIPPHOPP-LISTAMANNI
Ný skoðanakönnun Insa-rannsókn-
arstofnunarinnar bendir til þess að
Alternative für Deutschland (AfD)
fái nægilegt fylgi í þingkosningunum
í Þýskalandi á sunnudag til að ná
mönnum á þing og gera út um vonir
Angelu Merkel um að viðhalda nú-
verandi stjórnarsamstarfi.
Samkvæmt könnuninni mælist
fylgi AfD 5% og þótt Kristilegir
demókratar, flokkur Merkel, og
samstarfsflokkurinn, Frjálsir demó-
kratar, haldi sínu og rúmlega það,
gerir úthlutun sæta það að verkum
að flokkarnir tapa samkvæmt þessu
þingmeirihlutanum.
Verði þetta niðurstaðan neyðist
Merkel til að ganga í eina sæng með
sósíaldemókrötum en þeir njóta ekki
nægilegs fylgis til að mynda meiri-
hluta með sínum helstu bandamönn-
um, græningjum.
Stofnendur AfD segja evrópska
myntbandalagið hinn mesta pen-
ingasvelg fyrir Þýskaland og vilja að
Þjóðverjar taki aftur upp þýska
markið. Flokkurinn hefur verið sak-
aður um popúlisma í þýskum fjöl-
miðlum og þá hafa sumir flokks-
félaga verið vændir um að aðhyllast
hægriöfgastefnu.
Flokkurinn hefur hingað til mælst
með 3-4% fylgi í könnunum en vin-
sældir hans hafa vaxið í kjölfar
fregna af enn einum björgunarpakka
til handa Grikklandi.
Ógna stjórnarsamstarfinu
Evrópuandstæðingar sækja í sig veðrið í Þýskalandi
Það má með sanni segja að heið-
arleiki borgi sig, það á að minnsta
kosti við í tilfelli hins heimilislausa
Glens James, sem fann 2.400
Bandaríkjadollara í peningum og
40.000 dollara í ferðatékkum í bak-
poka í verslunarmiðstöð í Boston á
laugardag.
James kom bakpokanum í hend-
ur yfirvalda hið snarasta og fékk
góðar þakkir fyrir og viðurkenn-
ingu frá yfirlögreglustjóra borg-
arinnar, Ed Davis. Hinum 27 ára
gamla Ethan Whittington fannst
James hins vegar eiga enn betra
skilið og hóf söfnun fyrir hann á
vefnum gofundme.com.
Um kaffileytið í gær stóð söfn-
unin í 104.625 Bandaríkjadollurum,
jafnvirði nærri 12,5 milljóna ís-
lenskra króna.
James, sem er 54 ára gamall og
hefur verið heimilislaus frá 2005,
sagðist aldrei hefðu haldið eftir
einu penníi af peningunum sem
hann fann en með styrktarfénu
gæti hann hafið nýtt líf. „Ég vil
bara þakka þér fyrir að vera svona
góður,“ sagði hann í símasamtali
við Whittington.
AFP
Fundið fé Einn af þeim sem létu fé af hendi rakna í söfnuninni fyrir James
bauð honum einnig afnot af stúdíóíbúð í New York. Myndin er úr safni.
Stórgræddi á því að
skila peningunum
Efndi til söfnunar fyrir finnandann