Morgunblaðið - 20.09.2013, Side 27

Morgunblaðið - 20.09.2013, Side 27
27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 Í Íslendingasögum er það jafnan fyrir stórtíð- indum þegar menn birt- ast í draumi og yrkja vísu. Mér þótti því vænt um kveðjuna frá Stefáni Jónssyni sem Kári sonur hans kom á framfæri í Morgunblaðinu í gær – og ekki síður snjalla vís- una sem fylgdi. Ég átti ekki von á viðbragði úr þessari átt. Óneitanlega hefði verið gaman ef hann hefði í draumnum vik- ið örstutt að fluguveiði, því að ég hef mætur á bókum Stefáns um veiði- skap. Guðjón Ó., afi minn, gaf margar þeirra út og þeir voru miklir mátar. Ég verð þó að taka ofan fyrir Kára Stefánssyni að muna drauma sína svo nákvæmlega; draumar mínir hafa nefnilega tilhneigingu til að víkja þeg- ar veruleiki dagsins blasir við. En ég eignast þá alltaf aftur, sem betur fer. Við erum öll sammála um að bregð- ast verður strax við því neyðar- ástandi sem komið er upp í heilbrigð- isþjónustunni. Þar stend ég heilshug- ar með Kára og heiti honum liðsinni mínu í þeirri baráttu. Við eigum hins vegar ekki að stilla reikningsdæminu þannig upp að hús fyrir kennslu, rannsóknir, miðlun og kynningu á ís- lensku, handritunum og bókmennt- um okkar komi í veg fyrir fjárfesting- ar í sjúkrahúsum. Er fjárlagagerðin og forgangsröðun fjárveitinga ekki eilítið flóknari en svo? Veruleikinn er sá að nú þegar hefur verið varið 600 milljónum króna í hús íslenskunnar á Melunum. Framkvæmdin hefur verið boðin út og ríkið því skaðabótaskylt ef henni yrði frestað. Við eigum ekki að kasta þessu fé á glæ, heldur leita skynsamlegra lausna. Það gleymist stundum að Hús íslenskra fræða er sameiginlegt verkefni Háskóla Ís- lands og stjórnvalda. Fyrir sjálfsafla- fé Háskólans væri hægt að steypa upp húsið og ganga frá lóðinni, án þess að kæmi til neinna fjárframlaga úr ríkissjóði á þessu ári og hinu næsta. Þeir peningar eru þegar til reiðu. Meira en milljarði væri þá strax veitt út í svelt atvinnulífið, til atvinnusköpunar og virðisauka. Stjórn- völdum væri í lófa lag- ið að smíða raunhæfa framkvæmdaáætlun sem hentaði stöðu rík- isfjármála og ljúka verkinu með sóma. Íslenskan breytist vissulega með hverri kynslóð eins og hún hefur alltaf gert. Í nýja húsinu á Melunum verður hún hvorki sett í krús né kerald, heldur verður þar rými til að safna saman gögnum, fólki og tækjum til sköpunar nýrra verð- mæta, nýrrar þekkingar og bráð- nauðsynlegra nýrra aðferða svo leysa megi áskoranir íslenskunnar í tölvu- heimum og sýna handritin í fyrsta sinn með sóma í bókmenntaborginni. Þetta nauðsynlega svigrúm vísinda- starfsemi til rannsókna, athafna og uppbyggingar staðfesti Kári Stef- ánsson mætavel sjálfur þegar hann byggði hús yfir Íslenska erfðagrein- ingu. Hann vissi sem rétt var, að ekki þýddi að bjóða nýrri kynslóð vísinda- manna upp á sömu vinnuaðstöðu og t.a.m. Björn Sigurðsson á Keldum mátti búa við þegar hann vann sín glæsilegu afrek í þágu íslenskra líf- vísinda. Eftir Guðrúnu Nordal Guðrún Nordal » Þetta nauðsynlega svigrúm vísinda- starfsemi til rannsókna, athafna og uppbygg- ingar staðfesti Kári Stefánsson mætavel sjálfur þegar hann byggði hús yfir Íslenska erfðagreiningu. Höfundur er forstöðumaður Árnastofnunar. Draumur og veruleiki Í nýju aðalskipulagi Reykjavík- ur er gert ráð fyrir því, að gamla Landsímahúsinu verði breytt í hótel. Há nýbygging á að rísa þétt að Kirkjustræti milli kirkjugarðs- ins og Austurvallar andspænis hin- um gömlu og fallegu húsum Al- þingis, þrátt fyrir ítrekuð mótmæli forseta Alþingis og forsæt- isnefndar. Í hótelinu verða 159 herbergi og á aðalinngangurinn að snúa að Kirkjustræti. Ekki er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir hópferða- og leigubíla eða aðra nauðsynlega aðkomu vegna þjónustu við hót- elið. Þar má því búast við örtröð og umferðaröngþveiti. Alþingisreiturinn markast af Kirkjustræti, Templarasundi, Von- arstræti og Tjarnargötu. Það hef- ur legið fyrir síðan 1981 að hann yrði notaður fyrir starfsemi þings- ins. Í fyrstu var gert ráð fyrir myndarlegri skrifstofubyggingu við Kirkjustræti en gömlu húsin yrðu rifin. Um það voru þó skiptar skoðanir og varð að samkomulagi við Reykjavíkurborg, að gömlu húsin yrðu gerð upp og hús Theó- dóru og Skúla Thoroddsens flutt að Kirkjustræti, en að öðru leyti yrði götumyndin óbreytt. Þetta er rakið í ágætri grein Friðriks Ólafssonar, fyrrverandi skrif- stofustjóra Alþingis, í Morg- unblaðinu 15. júní. Aldrei kom til greina að nýbyggingu yrði þrengt milli Austurvallar og Aðalstrætis enda hluti af götumyndinni. Við hljótum að líta á slíka ákvörðun í trássi við vilja Alþingis sem brigð við Alþingi. Í stjórnarskránni er kveðið á Í því felst, að þeim ber að vinna í góðri samvinnu og samstarfsvilja við forseta Alþingis og er það gagnkvæmt. Svo komið verði í veg fyrir að Alþingi þurfi að grípa til þess úrræðis að taka til sín skipu- lagsvaldið yfir Alþingisreitnum, Austurvelli og Kirkjustræti, hvetj- um við undirritaðir fyrrverandi forsetar Alþingis borgaryfirvöld til góðrar samvinnu við forseta Al- þingis. Skorum við á borgarstjórn Reykjavíkur að falla frá áformum um að leyfa byggingu sem þrengir svo mjög að húsum Alþingis. Þannig verði staðið við sam- komulag um óbreytta götumynd sem gert var milli Alþingis og Reykjavíkurborgar þegar ákveðið var að gera upp gömlu húsin við Kirkjustræti. Eftir Ástu R. Jóhannesdóttur, Sturlu Böðvarsson, Sólveigu Pétursdóttur, Halldór Blöndal, Ólaf G. Einarsson, Salome Þor- kelsdóttur, Guðrúnu Helgadótt- ur og Jón Helgason » Svo komið verði í veg fyrir að Alþingi þurfi að grípa til þess úrræðis að taka til sín skipulags- valdið yfir Alþingis- reitnum, Austurvelli og Kirkjustræti, hvetjum við undirritaðir fyrrver- andi forsetar Alþingis borgaryfirvöld til góðr- ar samvinnu við forseta Alþingis. Höfundar eru fyrrverandi forsetar Alþingis. Skyldur borgaryfirvalda við Alþingi Íslendinga Ásta R. Jóhannesdóttir Ólafur G. Einarsson Guðrún Helgadóttir Sólveig Pétursdóttir Sturla Böðvarsson Salome Þorkelsdóttir Halldór Blöndal Jón Helgason um, að Alþingi skuli vera í Reykja- vík og svo um búið að ekkert raski friði þess né frelsi. Þessi ákvæði leggja ríkar skyldur á herðar borgaryfirvöldum, sem þeim er rétt að rækja af hógværð og festu. Litskrúðugur Hjartagarðurinn í Reykjavík hefur sett skemmtilegan svip á miðborgina, með litríkum listaverkum og fjölskrúðugu mannlífi. Þessi ferðamaður féll vel inn í umhverfið. Eggert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.