Morgunblaðið - 20.09.2013, Síða 28

Morgunblaðið - 20.09.2013, Síða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is Skrúfupressur Lofthreinsibúnaður - loftkútar loftsíur - lofttengibúnaður loftþurrkarar Ýmsar stærðir Hafið samband við sölumann Ólafur F. Magn- ússon, fyrrverandi borgarstjóri, hefur í sumar skrifað röð greina í Morgunblaðið og komið fram í fjölda fjölmiðla þar sem hann varar við þeirri hættu sem hann telur stafa af múslimum og trúar- brögðum þeirra, íslam. Jafnframt andmælir hann þeim sem standa vilja vörð um þau mannréttindi músl- ima hér á landi að lögleg trúfélög þeirra, sem eins og þjóðkirkjan eru í formlegu sambandi við ríkið, fái að reisa mosku fyrir trúariðkun sína og starfsemi. Þennan málflutning Ólafs gagn- rýndum við Toshiki Toma í grein sem við skrifuðum í Fréttablaðið 18. júlí sl. en áréttuðum í staðinn mikilvægi akademískra fræðirita og almennrar menntunar í trúarbragðafræðum svo draga megi sem mest úr vanþekk- ingu, fordómum og óþoli í trúar- efnum. Þar sem fylgi samtakanna Mótmælum mosku á Íslandi jókst til muna á Facebook strax í kjölfar þess- arar baráttuherferðar Ólafs, vöktum við jafnframt athygli á hvers eðlis sá málflutningur væri sem þar er haldið á lofti af forystumönnum þeirra. Ólafur brást þegar við hjá Vísi með því að segja okkur hættulega og kalla okkur skemmd epli. Í kjölfarið fylgdu svo þrjár greinar í Morgunblaðinu 2., 15. og 21. ágúst þar sem hann kallar okkur vinstrimenn, andmælir því að ég sé viðriðinn trúarbragðakennslu og kvartar undan því að við beitum hann ofbeldi og hótunum. Sjálfur hef ég ekki hugmynd um hvað Ólafur er þar að fara enda var grein okkar í Fréttablaðinu málefnaleg og allt rétt sem þar var haft eftir annars vegar honum og hins vegar forystumönnum samtakanna. Í greinum sínum heldur Ólafur því m.a. fram að bygging mosku geti orð- ið varasöm fyrir „þjóðmenningu okk- ar og öryggi“, íslam sé verri en naz- isminn, þar sé hver réttdræpur sem gangi af trúnni og eins og hjá nazistum forðum daga sé útrýming gyðinga á stefnuskrá þessara trúarbragða. Ólafur dregur upp þá mynd af múslimum að þeir hafi frá upphafi verið í heil- ögu árásarstríði gegn öðrum trúarbrögðum og ekki síst Evrópu- búum og muni því ekki ljúka í álfunni fyrr en með fullri „íslamsvæðingu og hruni þjóðríkja Evrópu“. Bygging mosku sé móðgun við Vestmannaeyinga þar sem þaðan hafi hátt í 250 manns verið fluttir (af m.a. evrópskum sjóræn- ingjum) í þrælahald til Alsírs sumarið 1627. Ásatrúnni stillir Ólafur upp sem andstæðu íslams, ásatrúarmenn hafi verið umburðarlyndir, miklir nátt- úru- og menningarverndarsinnar og ekki ágengir við boðskap og iðkun trúar, en gleymir því alveg að hinir heiðnu höfðingjar meðal landnáms- manna voru hér ýmsir hverjir sjálfir herskáir víkingar og þrælahaldarar. Hann gengur meira að segja svo langt að fullyrða að ásatrúin hafi ver- ið „á margan hátt heiðarlegri og meira í samræmi við skapgerð og sómatilfinningu okkar en hin inn- flutta kristna trú“ en gleymir því sömuleiðis að hér námu land jafnt kristnir menn sem heiðnir og bendir ýmislegt til að þar hafi kristnir verið fyrr á ferðinni. Alhæfingar Ólafs um múslima og íslam út frá afmörkuðum sögulegum dæmum og rangfærslur hans um ótal önnur efni sýna hversu djúpstæð vanþekking hans er á trúarbrögðunum. Í Kóraninum er t.d. hvergi minnst á að taka beri af lífi þá sem gangi af trúnni og bæði útrým- ing gyðinga og árásarstríð eru ótví- ræð brot á textum hans að mati meg- inþorra múslima. Skrif Ólafs gegn múslimum eru efnislega í fullu samræmi við skrif forystumanna samtakanna Mótmæl- um mosku á Íslandi en þau eru að stórum hluta sótt til erlendra hug- veitna sem helgaðar eru baráttunni gegn íslam. Samtökin, sem nefnd voru Group 1627 við stofnun þeirra ári eftir hryðjuverkaárásina á Banda- ríkin 11. sept. 2001, segjast hafa þýtt yfir 1000 slíkar erlendar greinar. Umhugsunarvert er að meðal bar- áttumála þessara samtaka er að mús- limum hérlendis verði smalað saman og þeim vísað úr landi. Sjálfur talar Ólafur um að múslimar séu „orðnir fram úr hófi plássfrekir í okkar sam- félagi og [muni] gera líf afkomenda okkar óbærilegt hérlendis“. Ólafur andmælir því að við Toshiki skulum hafa dregið norska fjölda- morðingjann Breivik inn í umræðuna og tengt hann við „einstaklinga úr röðum andmælenda moskunnar“. Að sjálfsögðu skiptir það máli að sá sem leiðir samtökin skuli hafa skrifað á Facebook vegg sinn daginn eftir fjöldamorðin að áróðursmyndband Breiviks sé „hrífandi og snilld- arverk“. Sömuleiðis skiptir það máli að Rétthugsun Réttlæti, meðritstjóri hans á Facebook síðu samtakanna, skuli 3. ágúst sl. hafa tekið undir að- dáunina með því að lýsa því yfir á Facebook vegg sínum að þar hafi Breivik sýnt menningarmarxismann í réttu ljósi. Þegar forystumenn þess- ara samtaka saka mig og aðra stuðn- ingsmenn mannréttinda múslima um menningarmarxisma eru þeir einmitt að nýta sér rök sem Breivik færði fyr- ir illgjörðum sínum. Það er akadem- ísk skylda mín að draga þetta fram um samtök sem njóta nú stuðnings yfir 3000 manns á Facebook og Ólaf- ur ver og birtir greinar hjá. Ólafur er stjórnmálamaður sem hefur látið margt gott af sér leiða og margir eru þeir sem bera forystu- manni samtakanna vel söguna. Það er því þeim mun dapurlegra að horfa upp á baráttu þeirra gegn almennum mannréttindum og þann hljómgrunn sem hún hefur fengið. Ógna múslimar virkilega Íslandi? Eftir Bjarna Rand- ver Sigurvinsson » Alhæfingar Ólafs um múslima og íslam út frá afmörk- uðum sögulegum dæmum og rangfærslur hans um ótal önnur efni sýna hversu djúpstæð vanþekking hans er. Bjarni Randver Sigurvinsson Höfundur er guðfræðingur. Nú er í kynningarferli nýtt að- alskipulag fyrir Reykjavík sem er sáttmáli um hvernig byggðin í borginni skuli þróast til ársins 2030. Nú eru liðin fimm ár frá hruni. Fimm ár eru langur tími og til að mynda hafa mörg dokt- orsverkefni verið skrifuð á skemmri tíma. Það er athyglisvert að sjá hvernig tíminn hefur verið nýttur hjá borginni til að bregðast við breyttum forsendum um þróun byggðarinnar. Hvernig svarar nýtt aðalskipulag þörfum Íslendinga og hvernig er brugðist við íslenskum aðstæðum? Aðalskipulagið er sett fram á rúmlega 600 síðum að með- töldum viðaukum og fylgigögnum. Áherslur aðalskipulagsins eru: a) Borgin við sundin, b) Skapandi borg, c) Græna borgin og d) Borg fyrir fólk. Þessar áherslur eru afar víðtækar og ólíklegt er að nokkur setji sig á móti þeim. Í rauninni getur þetta átt við margar borgir í heiminum. Þessi pólitísku slagorð eru útskýrð nánar. Borgin við Sundin „Borgin við Sundin felur í sér stefnumörkun sem leggur áherslu á vöxt borgarinnar til vesturs, á þétta, fjölbreytta og blandaða byggð á Nesinu og við Sundin.“ Í kynningarriti A kemur fram að fyrirhuguð eru bryggjuhverfi líkt og verið hafa í tísku víða erlendis seinustu áratugi. Frekar en að setja fram hugmyndir um hvernig byggð á Ís- landi geti litið út miðað við íslenskar aðstæður og skapað íslenskan anda er hér stefnt að áfram- haldandi endurtekn- ingu á erlendum skipulagshug- myndum þrátt fyrir misjafna reynslu hér á landi. Oft eru borgum markaðar vaxtarlínur (growth- boundaries) sem afmarka svæðið sem þær munu vaxa innan. Slík lína er dregin í aðal- skipulagstillögunni í námunda við Elliðaárnar. Það er óvenjulegt að slík lína sé innan núverandi byggð- ar. Byggðin utan línunnar er á vissan hátt skilin eftir í uppnámi. Hvaða þýðingu mun þetta t.d. hafa fyrir Úlfarsfellssvæðið? Skapandi borg „Skapandi borg felur í sér stefnumörkun um eflingu og sér- hæfingu atvinnusvæða og skilyrði sem styðja við kraftmikla atvinnu- uppbyggingu og nýsköpun í Reykjavík á komandi áratugum.“ Þetta minnir á hugmyndir Rich- ards Florida sem nýlega hefur öðl- ast mikla frægð og sendi til að mynda frá sér bókina The Rise of the Creative Class fyrir rúmum áratug. Og skipulagsverkefnið 22@Barcelona er byggt upp á sambærilegu lík- ani. Hér er því verið að reifa hugmyndir sem byggðar eru á þekktum rannsóknum og hafa verið reyndar í öðrum löndum. Lesandi Að- alskipulags Reykjavíkur 2010 til 2030 fær aftur á móti á tilfinninguna að hér sé um heima- sprottnar hugmyndir að ræða sem hvergi hafi verið reynd- ar þar sem ekki er vísað í rann- sóknir eða heimildir varðandi þetta frekar en annað í skipulaginu. Kannski þótti höfundum skipulags- ins, sem hvergi kemur fram hverj- ir eru, ekki smart að gefa það til kynna að þeir hefðu kynnt sér við- fangsefnið. Græna borgin „Græna borgin felur í sér stefnumörkun sem leggur áherslu á hagkvæma nýtingu lands og auð- linda, bætt umhverfisgæði og lýð- heilsu, vistvænar samgöngur og verndun náttúru.“ Hver vill ekki græna borg? Vill einhver gráa borg? Helst virðist stefnt að því að borgin verði grænni með því að byggja upp þéttari byggð innan þeirra grænu svæða sem nú er að finna í borginni. Borg fyrir fólk „Borg fyrir fólk felur í sér stefnumörkun er varðar lífsgæði borgarbúa og gæði í hinu mann- gerða umhverfi borgarinnar og markmið sem setja manneskjuna í öndvegi og forgangsraða í hennar þágu.“ Einmitt. Skipulag snýst um landnotkun og fólk. Það má því velta fyrir sér hvað sé í rauninni nýtt í þessu skipulagi og hvort það sé að bregðast við ís- lenskum raunveruleika. Eða hvort þetta sé samsafn af stefnum og straumum sem voru í tísku í heim- inum um síðustu aldamót. En það er ýmislegt gott að finna í skipulaginu. Vaxtarásinn frá Kvos að Keldnaholti miðar að því að efla Reykjavík sem línulega borg. Það skýtur þó skökku við að myndirnar sem eru sýndar af Suð- urlandsbraut framtíðarinnar minna á götur í Miðjarðarhafsborg þar sem sólarljósið fellur beint niður. Vegna hnattlegu Íslands fellur sól- arljósið allajafna á ská og er hætt við að þarna yrði ekki aðlaðandi umhverfi sem ýtir undir mannlíf heldur skapast hætta á að þar verði dimmt, kalt og vindasamt. Fagleg vinna í skipulagi Það er ljóst að mikil vinna ligg- ur að baki skipulagstillögunni. Við yfirlestur þessara 222 bls. í A- hluta aðalskipulagsins minnti hann þó meira á kynningarbækling með allt of dýrum bíl en skipulagsplagg sem byggist á greiningu, rann- sóknum og heimildavinnu. Það er frekar erfitt að henda reiður á hvernig nýta má þessa skipulagstillögu sem stjórntæki; til að stýra frekari vexti og uppbygg- ingu borgarinnar. Þarna er að finna samtíning af hugmyndum, sumum góðum, sem verið hafa fyrirferðarmiklar í skipulags- umræðu undanfarin ár. Það eru að vissu leyti fallegar hugmyndir að borgarbúar fari sinna ferða á hjóli og skipti við kaupmanninum á horninu. Slíkt verður þó aldrei ákveðið í skipulagi. Þar ráða aðrir hvatar ferðinni. Miklum tíma hefur verið varið í skipulagsferlið og rétt að fagna því að gefinn var lengdur athuga- semdafrestur sem rennur út föstu- daginn 20. september. Áferðarfagurt en innihaldsrýrt Eftir Sigríði Kristjánsdóttur » Aðalskipulagið minn- ir meira á kynning- arbækling með allt of dýrum bíl en skipulags- plagg sem byggist á greiningu, rannsóknum og heimildavinnu. Sigríður Kristjánsdóttir Höfundur er lektor og náms- brautarstjóri meistaranáms í skipulagsfræði við Landbúnaðar- háskóla Íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.