Morgunblaðið - 20.09.2013, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 20.09.2013, Qupperneq 43
miklum breytingum sem urðu í menntamálum þegar ég starfaði í menntamálaráðuneytinu og það hef- ur verið krefjandi og skemmtilegt að sinna þeim verkefnum sem við höf- um verið að fást við í fjármálaráðu- neytinu síðan ég kom þangað í kjöl- far efnahagsáfallanna 2008. Nú erum við að vinna – í góðu samstarfi við ýmsa aðila, þing og stofnanir – að róttækum umbótum í ríkisfjár- málum sem skiptir miklu að vandað sé til og að gangi vel. Ef ég er ekki í vinnunni taka við áhugamál með fjölskyldunni, sem er mér kærari en allt annað. Við höfum verið að gera upp þrjú gömul hús í Mjóafirði fyrir austan, byggð á ár- unum 1880, 1920 og 1960. Við erum að færa þessi hús í upprunalegt horf samkvæmt aðferðum húsfriðunar, sem er auðvitað langtum tímafrek- ara og dýrara en að byggja nýtt. Ég hef haft mjög gaman af að vinna við þetta með hamri og sög, þótt ég sé nú reyndar bestur með kúbeinið. Svona bjástur tengir mann staðnum, náttúrunni og sögunni, sem er um margt býsna merkileg. Í Mjóafirði var t.d. stærsta hvalveiðistöð á norð- urhveli jarðar á sinni tíð, ef ekki sú stærsta í heiminum. Fjölskyldan reisti sér sumarhús í Hraundal á Mýrum fyrir áratug eða svo. Það hefur verið okkar athvarf frá amstri hversdagslífsins. Ætli við reynum ekki að finna okkur verkefni í Austur-Skaftafellssýslu næst, mitt á milli Mýra og Mjóafjarðar.“ Fjölskylda Eiginkona Guðmundar er Sólveig Berg Emilsdóttir, f. 26.1. 1966, arki- tekt, Hún er dóttir Emils Ragnars- sonar, f. 11.12. 1946, d. 30.5. 2008, skipaverkfræðings (kjörfaðir) og Birnu Brynveigar Bergsdóttur, f. 22.11. 1946, kennara. Blóðfaðir Sól- veigar er Björn R. Ingimarsson, f. 5.4. 1941, flugvirki í Bandaríkjunum. Börn Guðmundar og Sólveigar eru Birna, f. 4.8. 1992, nemi í lög- fræði við HÍ, og Kristján, f. 19.4. 1999, nemi í Hlíðaskóla. Systkini Guðmundar eru Kristín Aðalbjörg Árnadóttir, f. 18.3. 1957, sendiherra í Helsinki; Halldór Árna- son, f. 20.4. 1958, framkvæmdastjóri, búsettur í Reykjavík, Björn Árna- son, f. 21.5. 1959, framkvæmdastjóri, búsettur á Seltjarnarnesi, og Sigrún Árnadóttir, f. 27.10. 1960, bæj- arstjóri í Sandgerði. Foreldrar Guðmundar eru Árni Halldórsson, f. 3.10. 1933, fyrrv. skipstjóri og útgerðarmaður á Eski- firði, og Ragnhildur Kristjánsdóttir, f. 24.3. 1934, fyrrv. fjármálastjóri. Glæsihjón Guðmundur, ásamt eig- inkonu sinni, Sólveigu Berg Emils- dóttur arkitekt. Úr frændgarði Guðmundar Árnasonar Guðmundur Árnason Guðlaug Pálsdóttir af Kjarnaætt systurdóttir Sigurðar, afa Vilhjálms Hjálmarssonar, fyrrv. ráðherra frá Brekku Guðmundur Árnason b. á Gilsárstekk af Ásunnarstaðaætt Aðalbjörg Guðmundsdóttir húsfr. á Höfn Óli Kristján Guðbrandsson skólastjóri á Höfn Ragnhildur Kristjánsdóttir húsfr. á Eskifirði Guðrún Stefánsdóttir húsfr. á Randversstöðum Guðbrandur Ólafsson b. á Randversstöðum í Breiðdal af Sandfellsætt Guðrún Jónsdóttir vinnukona á Bæ í Lóni Þorleifur Bjarnason b. á Svínhólum í Lóni Sólveig Þorleifsdóttir húsfr. á Eskifirði Halldór Árnason form. og útgerðarm. á Eskifirði Árni Halldórsson fyrrv. skipstj. og útgerðarm. á Eskifirði Guðný Sigurðardóttir húsfr. á Eskifirði Árni Helgason útgerðarm. á Eskifirði Friðrik Árnason hreppstj. á Eskifirði Vilborg Árnadóttir húsfr. á Eskifirði Helgi Seljan fyrrv. ráðherra. Árni Helgason stöðvarstj. í Stykkishólmi. Helgi Árnason skólastj. Rimaskóla Þóroddur H. Seljan fræðslustjóri Jóhann Sæberg vélstjóri á Reyðarfirði Helgi Seljan kastljósmaður á RÚV Vésteinn Ólason prófessor og forstöðum. Stofnunar Árna Magnússonar ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 Ríkarður Rebekk Jónssonmyndskeri fæddist aðTunguhóli í Fáskrúðsfirði 20.9. 1888. Hann var sonur Jóns Þór- arinssonar, sem var frægur þjóð- hagasmiður og bóndi að Núpi á Berufjarðarströnd og síðan að Strýtu við Hamarsfjörð, og s.k.h., Ólafar Finnsdóttur húsfreyju. Jón var sonur Þórarins, bónda í Þórisdal í Lóni, bróður Maríu, móð- ur Hans, hreppstjóra á Sómastöð- um, afa Jakobs, prests og rithöf- undar, og Eysteins ráðherra Jónssona. Þórarinn var sonur Rich- ards Long, ættföður Longættar. Meðal systkina Jóns var hinn kunni listmálari Finnur Jónsson, sem lést 1993, hundrað ára að aldri. Ríkharður ólst upp að Strýtu, en fór sautján ára til Reykjavíkur í tré- smíðanám til Stefáns Eiríkssonar og lauk prófi í þeirri grein tvítugur að aldri. Hann stundaði síðan nám hjá Einari Jónssyni myndhöggvara í Kaupmannahöfn og í Teknisk Sel- skabs Skole og stundaði nám í Listaháskólanum í Kaupmannahöfn í fimm og hálft ár. Ríkarður fór með Davíð Stef- ánssyni í hina frægu Ítalíuferð 1920- 21, sem varð Davíð mikil uppörvun og lífsreynsla og efniviður í þó nokk- ur kvæða hans. Ríkarður hélt dag- bók í ferðinni og skrifaði um ferðina í bókina Skáldið frá Fagraskógi, útg. 1965. Auk þess skrifaði annar ferða- félagi þeirra um ferðina, Ingólfur Gíslason læknir í endurminningum sínum, Læknisævi, útg. 1948. Ríkarður flutti til Reykjavíkur 1914 og var þar búsettur síðan, lengst af á Grundarstígnum. Hann starfaði sem myndasmiður og teikn- ari og hélt skóla í mörg ár í tréskurði og teiknun. Hann átti, öðrum frem- ur, mestan þátt í að endurvekja hér forna tréskurðarlist og höfðaletur. Meðal þekktra verka Ríkarðs má nefna biskupsstól í Kristskirkju í Landakoti, krossmark þar með Kristslíkneski og hurðina á Arn- arhvoli. Hann gerði auk þess fjölda brjóstmynda og lágmynda af samtíð- armönnum, skírnarfonta og predik- unarstóla. Ríkarður lést 17.1. 1977. Merkir Íslendingar Ríkarður R. Jónsson 106 ára Guðný Ásbjörnsdóttir 90 ára Ingibjörg Hjartardóttir 85 ára Fjóla Einarsdóttir Magnea Rósa Tómasdóttir Þorsteinn Kristinsson 80 ára Guðmundur Tyrfingsson 75 ára Arndís Ellertsdóttir Kristján Jóhannesson 70 ára Bára Þorbjörg Jónsdóttir Eysteinn Bjarnason Heiðrún Hallgrímsdóttir Kristine Jenny Tveiten Kristín Bjarnadóttir Ragna Salóme Halldórsdóttir Sigþór Erlendsson 60 ára Finnbogi Rútur Hálfdanarson Frímann Kristjánsson Guðleif Erna Steingrímsdóttir Kristján E. Björnsson Margrét Rósa Jónsdóttir Margrét Thorarensen Sigurður Sigurðsson Sólrún Ragnarsdóttir Steindór Sigfússon Zdzislawa Zurynska 50 ára Auður Gunnur Gunnarsdóttir Ásgrímur Pálmason Ásta Hrönn Þorsteinsdóttir Emil Hermann Ólafsson Gestur Pálsson Hallfríður Bjarnadóttir Hrefna Sigurðardóttir Reynir Guðmundsson Xuan Le Bjarnason 40 ára Elísabet G. Þorkelsdóttir Guðmundur Bragi Walters Guðmundur Karl Geirsson Guðni Þrúðmar Snorrason Pawel Panasiuk Phiyada Phrommachat Steinunn Jónatansdóttir Tinna Björk Baldvinsdóttir 30 ára Bjarni Þór Georgsson Davíð Þór Sigurðarson Freyr Guðlaugsson Halla Þórarinsdóttir Kamil Gawek Karen Ósk Halldórsdóttir Kristín Inga Gunnlaugsdóttir Kristján Hilmar Eiríksson Krzysztof Michal Krupinski Til hamingju með daginn 30 ára Guðmundína ólst upp á Hólmavík, er búsett í Reykjavík og stundar nú M.Ed.-nám í grunnskóla- kennslu við HÍ. Maki: Hlynur Gunn- arsson, f. 1983, starfs- maður Brims. Börn: Arndís Írena, f. 2008, og Haraldur Örn, f. 2010. Foreldrar: Hrafnhildur Guðbjartsdóttir, f. 1960, og Haraldur V. Jónsson, f. 1961. Guðmundína A. Haraldsdóttir 30 ára Eyjólfur ólst upp á Hvoli í Fljótshverfi, er bú- settur á Selfossi, er raf- virki frá FB og starfar hjá RARIK. Maki: Guðrún Ósk Guð- jónsdóttir, f. 1983, leik- skólakennari. Börn: Valgerður Ása, f. 2009, og Guðbjörg Marí, f. 2011. Foreldrar: Hannes Jóns- son, f. 1953, og Guðný Marta Óskarsdóttir, f. 1954, ferðaþjónustub. Eyjólfur Hannesson 30 ára Guðjón ólst upp í Eyjum, er búsettur í Kópavogi og er sölumað- ur hjá Innnes-Selecta. Maki: Sveinlaug Sigurð- ardóttir, f. 1982, deild- arstjóri á leikskólanum Ökrum í Kópavogi. Foreldrar: Magnús Birgir Guðjónsson, f. 1949, netagerðarmeistari og þjóðhátíðarfrömuður í Eyjum, og Jóna Kristín Ágústsdóttir, f. 1957, vinnur við heimahjálp. Guðjón Magnússon Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.