Morgunblaðið - 20.09.2013, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 20.09.2013, Qupperneq 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 Bjart er yfir sölum Kjarvals-staða þessa dagana en þarhefur í sumar verið tilsýnis úrval málverka og höggmynda frá fyrstu áratugum ís- lenskrar nútímamyndlistar. Yfir- skrift sýningarinnar er „Íslensk myndlist 1900-1950: Frá landslagi til abstraktlistar“. Hið fyrsta sem grípur athygli sýn- ingargesta þegar komið er inn í vest- ursalinn, fyrir utan myndlistar- verkin, eru bjartir litir á veggjum: gulir, gulgrænir, bleikir og fölbláir. Þá eru stöplar höggmynda og vel út- færðir strimlar (hangandi úr lofti) með kynningartexta einnig í þessum litum. „Bakgrunnur“ sýningarinnar er þannig dreginn fram og látinn örva skynjun áhorfandans auk þess sem skipting salarins í mismunandi „litahluta“ á sér samsvörun í tíma- bilsskiptingu sýningarstjórans: mildur bláminn kallast á við „róm- antík“ og ferskur gulur litur við „róttækni“ í verkum frá 1900-1930. Bleikur og gulgrænn gefa tóninn fyrir „landslag“ á árunum 1930- 1950. Þessi litaumgjörð er ekki eins áberandi í austursalnum þar sem tvö helstu tímabilin eru bæjar- og mann- lífsmyndir frá árunum 1930-1950 undir yfirskriftinni „maðurinn og umhverfi hans“, og svo „nýróttækni og upphaf abstraktlistar“ á 5. ára- tugnum. Þessi kaflaskipting með til- heyrandi skýringartextum og sjón- ræn samsvörun hennar í pastellitum kemur skemmtilega út og gerir sýn- inguna aðgengilega. Einhverjum kann að finnast litavalið á veggj- unum ögrandi en það mætti líka segja að það sé ein leið til að minna á óblíðar viðtökur sem mörg verkanna fengu á sínum tíma, einmitt vegna djarflegrar litameðferðar (og form- túlkunar) listamannanna. Á sýningunni eru mörg þekktustu verk íslenskrar myndlistar frá þess- um tíma. Þegar litið er yfir verkin í vestursal, kemur sýningin þeim sem flett hafa Íslenskri listasögu e.t.v. ekki á óvart, þar sem mörg verk- anna af sýningunni eru einnig birt í því ritverki (ritstjórinn Ólafur Kvar- an er jafnframt sýningarstjóri þess- arar sýningar). Þó er óneitanlega alltaf ánægjulegt að fá tækifæri til að rýna í verkin sjálf (þ.e. í stað ljós- mynda af verkunum). Þarna eru líka ýmis forvitnileg verk, sum úr einka- eigu, sem ekki hafa sést mikið áður á sýningum, til dæmis mynd af konum við þvottalaugar frá 1928 eftir Krist- ínu Jónsdóttur og smærri útgáfa af þekktu Heklumótífi Ásgríms Jóns- sonar. Landslagsverk Þórarins B. Þorlákssonar, Ásgríms, Jóns Stef- ánssonar og Jóhannesar Kjarvals eru á vísum stað, auk verka annarra þekktra listamanna. Val verka varp- ar ljósi á samræðu margra íslenskra listamanna við evrópska strauma og stefnur í samtímanum, hvort sem þeir máluðu fjöll eða önnur viðfangs- efni. Verk þeirra listamanna sem mátuðu sig við róttækustu „ismana“ og tilheyrðu um tíma tengslaneti evrópskrar framúrstefnu á fyrstu áratugum 20. aldar eru sýnd í miðjum salnum, þar sem þau gefa tóninn fyrir róttækar áherslur í austursalnum. Í elsta hlutanum eru sýnd verk eftir konur sem nýlega hafa öðlast fastan sess í hinni op- inberu listasögu, t.a.m. höggmyndir eftir Nínu Sæmundsson og málverk eftir Kristínu Þorvaldsdóttur og Kristínu Þorláksdóttur Bernhöft. Því má velta fyrir sér hvers vegna Karen Agnete Þórarinsson á ekki verk á sýningunni. Í austursalnum er einnig fjöldi áhugaverðra verka (og ekki má gleyma skúlptúrum í miðrými lista- safnsins) frá tímabilinu 1930-1950. Í salnum sést vel hvernig áhrifum frá alþjóðlegum framúrstefnuhrær- ingum, ekki síst expressjónisma og kúbisma, hefur vaxið ásmegin í sam- anburði við vestursalinn. Þarna eru til sýnis verk listamanna er stundað höfðu nám í evrópskum borgum á millistríðsárunum; manna sem höfn- uðu kröfunni um raunsæislega eft- irlíkingu og leituðu róttækari form- rænna leiða en áður til að túlka umhverfi sitt. Sérstök áhersla er lögð á verk Þorvaldar Skúlasonar, sem vissulega var atkvæðamikill listamaður á þessum tíma, en í saln- um er einnig talsvert af verkum eftir Svavar Guðnason, Sigurjón Ólafs- son, Ásmund Sveinsson og Jón Eng- ilberts, auk annarra góðra lista- manna. Frásögn sýningarinnar lýkur mitt í listrænum sprengikrafti áratugarins þegar abstraktlistin stígur með fullum þunga fram á sjónarsvið íslenskrar myndlistar. Sýningin er vel og skipulega unn- in og framsetningin aðgengileg. Á sýningunni eru stundum óþarflega mörg verk eftir suma (karl)- listamenn – ef til vill af gömlum vana? En þótt vissulega megi deila um vægi einstakra listamanna, þá er úrval myndverka í stórum dráttum prýðilegt. Í heild er sýningin „Ís- lensk myndlist 1900-1950: Frá landslagi til abstraktlistar“ vel til þess fallin að kynna og vekja áhuga á íslenskri myndlist, og veita innsýn í helstu hræringar á þeim vettvangi á fyrri hluta 20. aldar. Litrík listasaga Morgunblaðið/Rósa Björk Aðgengileg „Sýningin er vel og skipulega unnin og framsetningin aðgengileg,“ segir m.a. í gagnrýni um sýninguna á Kjarvalsstöðum. Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Íslensk myndlist 1900-1950: Frá landslagi til abstraktlistar bbbbn Til 22. september. Opið alla daga kl. 10- 17. Aðgangur 1.000 kr. Hópar 10+ 600 kr. Frítt fyrir börn yngri en 18 ára, eldri borgara og öryrkja. Árskort 3.000 kr. Sýningarstjóri: Ólafur Kvaran. ANNA JÓA MYNDLIST

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.