Morgunblaðið - 20.09.2013, Page 52
FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 263. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Bundinn með plastfilmu á pallbíl
2. „Hún bara gafst upp og fór“
3. Eiður Smári krafinn um 5 millj. evra
4. Búið að loka Kaffi GÆS
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Miðar á tónleika bandaríska söngv-
arans Marks Lanegans í Fríkirkjunni
30. nóvember nk. seldust upp á innan
við sólarhring í síðustu viku og vegna
mikillar eftirspurnar eftir miðum hef-
ur verið ákveðið að halda auka-
tónleika 1. desember. Tónleikar Lane-
gans hér á landi verða þeir síðustu í
tónleikaferð hans um Evrópu.
Aukatónleikar með
Mark Lanegan
Hljómsveitin
Spaðar fagnar 30
ára afmæli í ár og
heldur upp á það
með plötunni
Áfram með smjör-
ið sem kemur út á
morgun. Spaðar
halda útgáfu-
tónleika á Café
Rosenberg sama dag og hefjast þeir
kl. 22. Spaðar eru Guðmundur Andri
Thorsson, Guðmundur Ingólfsson,
Aðalgeir Arason, Þorkell Heiðarsson,
Magnús Haraldsson, Guðmundur
Pálsson og Sigurður Valgeirsson.
Þrítugir Spaðar
halda útgáfutónleika
Dans- og söngvasýningin The MJ
Experience fer fram í Hörpu í kvöld
kl. 20 og á morgun kl. 14 og rennur
hluti ágóða af miðasölu til SKB,
Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna. Sýningin er byggð á verkum
Michaels
Jack-
sons,
tónlist
og dansi.
Danshöfundur
sýningarinnar er
Helga Ásta Ólafsdóttir.
Jackson-sýning til
styrktar SKB
Á laugardag Vestan 5-10 m/s, en norðlægari á Vestfjörðum. Létt-
skýjað suðaustantil, dálítil rigning eða slydda norðanlands og
stöku skúrir á Vesturlandi. Hiti 3-12 stig, mildast suðaustantil.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, víða 3-8 m/s og rigning með
köflum, einkum á norðaustanverðu landinu, en styttir upp þar síð-
degis. Hiti 2 til 10 stig.
VEÐUR
KR-ingar áttu engin svör
við vel útfærðri leikaðferð
Breiðabliks og steinlágu,
3:0, á Kópavogsvellinum í
gærkvöld. Þeir náðu því
ekki að tryggja sér Íslands-
meistaratitilinn en fá annað
tækifæri til þess þegar þeir
mæta Val á Hlíðarenda á
sunnudaginn. Breiðablik á
enn möguleika á Evr-
ópusæti og mætir Stjörn-
unni í lykilleik næsta
sunnudag. »4
KR fær næst tæki-
færi á Hlíðarenda
Ólafur Stefánsson fékk óskabyrjun á
ferli sínum sem þjálfari þegar Vals-
menn lögðu Hauka, 27:22, í fyrstu
umferð Íslandsmóts karla í hand-
knattleik í gærkvöld. HK, sem flestir
hafa spáð falli, kom skemmtilega á
óvart og náði jafntefli gegn FH,
22:22, með góðum endaspretti. Ak-
ureyri vann Íslandsmeistara Fram
örugglega fyrir norðan, 25:18. »2-3
Óskabyrjun hjá Ólafi
og Valsmönnum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þetta var lélegt hjá okkur enda ekki
við öðru að búast eða eins og einhver
sagði: Hvernig átti öðruvísi að fara,
aðeins átta KR-ingar á móti ellefu
Bretum.“
Svo mælir Gunnar Felixson, fyrr-
verandi landsliðsmaður í fótbolta, um
seinni leik Íslands og Breta í undan-
keppni Ólympíuleikanna í Tókýó
1964. Leikurinn fór fram á Plough
Lane í Wimbledon fyrir um 50 árum,
nánar tiltekið 14. september 1963.
Menn nenna svo sem ekki að velta
úrslitunum fyrir sér enda falla þau í
skuggann fyrir þeirri sögulegu stað-
reynd að í seinni leiknum voru í
fyrsta sinn í knattspyrnusögunni þrír
bræður inná í sama landsliðinu. Þetta
voru KR-ingarnir Hörður, Bjarni og
Gunnar Felixsynir, en Hörður var
varamaður í fyrri leiknum. „Þá mátti
ekki skipta inná og varamaður aðeins
til taks ef einhver veiktist eða forfall-
aðist áður en leikur hófst,“ segir
Hörður. „Við fórum í heimsmetabók
Guinness enda hafði þetta ekki gerst
áður,“ rifjar Bjarni upp. „Metið stóð
samt ekki lengi því Afríkumenn léku
sama leik og slógu held ég metið
skömmu síðar.“
Mótherjarnir of fáir
Í umsögn Morgunblaðsins eftir
seinni leikinn segir að Bretar hafi
leikið níu lengst af.
„Þrjú þúsund áhorfendur voru að
leiknum, sem varð sögulegur þegar
að 8 mín. liðnum. Brian Martin rakst
á Hörð Felixson og var borinn fót-
brotinn út af. Er 20. mín. voru liðnar
varð Ashworth einnig að yfirgefa
völlinn með blæðandi skurð. Enginn
varamaður má koma inn á í þessum
leikjum … Ashworth kom inná eftir
hlé með þrjú saumspor í augabrún.
Hann lék með í 25 mín. er hann fékk
annað högg og varð að yfirgefa völl-
inn að fullu.“ Bretar létu mótlætið
ekki á sig fá og unnu örugglega.
„Hörður bróðir hefur alltaf sagt að
við höfum haft í fullu tré við þá með-
an jafnt var í liðum en eftir að fækk-
aði hjá þeim hafi allt farið í vitleysu
hjá okkur,“ segir Bjarni.
Gunnar segir fátt minnisvert frá
leiknum. „Ég man þó að völlurinn var
mjög sérstakur. Það var ekki bunga í
miðjunni með halla í allar áttir eins
og algengt var heldur var vatnshall-
inn aðeins frá annarri hliðarlínunni
að hinni. Völlurinn var sem sagt
hæstur á öðrum kantinum, þannig að
maður spilaði á efri eða neðri kanti.“
Bjarni grípur boltann: „Það var sér-
staklega erfitt fyrir Gunna bróður
sem senter eða innherja að hlaupa
upp brekkuna.“ „Ég held að þið í
vörninni hafið reyndar átt í meiri erf-
iðleikum,“ svarar Gunnar að bragði,
en leikurinn tapaðist 4:0 og Bretarnir
unnu fyrri leikinn í Laugardal 6:0.
Í heimsmetabók Guinness
Þrír Felixsynir
léku saman í
landsliðinu
Morgunblaðið/RAX
Í sömu sporum Gunnar, Bjarni og Hörður Felixsynir tilbúnir í slaginn á Laugardalsvelli í gær.
Fyrir 50 árum Gunnar, Bjarni og Hörður á Laugardalsvelli.
Körfuboltamaðurinn Hörður Axel Vil-
hjálmsson tók mikla áhættu í sumar
þegar hann keypti upp samning sinn
hjá þýska liðinu Mitteldeutscher en
þar var hann fyrirliði og gekk mjög
vel. Nú er hann búinn að semja við
Valladolid á Spáni og þar með kominn
í bestu deild í Evrópu. Mér fannst mig
vanta nýja áskorun og mig var farið
að klæja í eitthvað stærra,“ segir
Hörður. »1
Áhættan borgaði sig
hjá Herði Axel