Morgunblaðið - 09.12.2013, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 09.12.2013, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 9. D E S E M B E R 2 0 1 3  286. tölublað  101. árgangur  EVRÓPA FRÁ 31.900 KR. eða 27.900 Vildarpunktar og 12.000 kr. NORÐUR-AMERÍKA FRÁ 54.900 KR. eða 47.900 Vildarpunktar og 22.000 kr. ÍS L E N S K A S IA .I S IC E 65 59 7 11 /1 3 + Nánar á icelandair.is Allt um jólasveinana á www.jolamjolk.is dagar til jóla 15 ÁÐUR LÖGREGLA EN SKRIFAR NÚ GLÆPASÖGUR MARÍA SIGRAÐI Í NOREGI OG EYGIR SOCHI LESTUR KENNDUR EFTIR GAMAL- REYNDRI AÐFERÐ ÍÞRÓTTIR ÍSAKSSKÓLI 6GLERLYKILLINN 26 ÁRA STOFNAÐ 1913 Morgunblaðið/Árni Sæberg Surtsey Gróskulegur gróðurblettur hefur myndast fyrir tilstilli máfanna.  Máfar hafa borið mikið af fræjum jurta til Surtseyjar og þeir hafa líka séð um að bera á graslendi sem þar hefur myndast. Stakkaskipti urðu í Surtsey upp úr 1985 þegar máfar tóku að verpa þar í meiri mæli en áður. Borgþór Magnússon vistfræðingur segir að eftir það hafi plöntum tekið að fjölga hratt og gróðurinn þést mik- ið í máfavarpinu, þökk sé driti máf- anna og fæðuleifum. Nú er kominn vísir að mjög þéttu graslendi í Surtsey. „Þetta er eins og frjósömustu tún sem borið er á uppi á landi. Þarna vex mjög þéttur og kraftmikill gróður, en það eru fáar tegundir sem taka hreinlega yfir. Þar á meðal er túnvingull,“ sagði Borgþór. »4 Gróðurspilda sem er eins og frjósamt tún er í Surtsey María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Fjárhagsstaða margra á Suðurnesj- um er sögð vera slæm og margir hafa þurft að leita sér aðstoðar nú fyrir jólin að sögn starfsmanna hjálparsamtaka á svæðinu. Anna Valdís Jónsdóttir, stjórnar- kona og verkefnastjóri útibús Fjöl- skylduhjálpar Íslands í Reykjanes- bæ, segir ástandið mjög svart á Suðurnesjum og greinir mikið von- leysi í fólki. „Það hefur aldrei verið eins mikið um beiðnir um aðstoð og fyrir þessi jól. Það leita fimmtán til tuttugu nýjar fjölskyldur og ein- staklingar til okkar dag hvern núna í aðdraganda jóla. Það er hringt alla daga vikunnar og líka um helgar,“ segir Anna. „Þá verða einstak- lingar oft mjög illa úti enda styrkja flestar hjálparstofnanir aðeins fjölskyldu- fólk.“ Leggst þungt á eldra fólk Anna sér ekki fram á að ástandið lagist í bráð. „Fólk nær engan veg- inn endum saman. Þetta er ekki eins og það á að vera – langt frá því. Þetta eru fjórðu jólin sem Fjöl- skylduhjálpin starfar hér og þetta er versta árið til þessa. Þá leggst þetta þungt á ungt fjölskyldufólk og eldra fólk. Nauðungaruppboð hér eru tíð og við vitum til þess að tvær til þrjár fjölskyldur þurfi að búa saman eða inni hjá foreldrum. Það hringdi eldri maður til okkar um daginn og spurði af hverju þau væru ekki bara tekin af lífi. Það er nátt- úrlega hræðilegt að fólk komið yfir áttrætt þurfi að hafa svona áhyggj- ur,“ segir Anna. Jólaaðstoð Fjölskylduhjálpar á Suðurnesjum verður 22. desember og þá verður mat úthlutað. Tekið var á móti umsóknum í haust og var aðsóknin mikil og nú þarf að vísa fólki frá. „Það eru vel á annað hundrað fjölskyldur sem fá aðstoð frá okkur hérna á Suðurnesjum. Því miður höfum við ekki fjármagn til þess að hjálpa fleirum.“ Staðan slæm hjá mörgum Þórunn Íris Þórisdóttir, starfs- maður Keflavíkurkirkju, hefur um- sjón með velferðarsjóði á Suðurnesj- um en hún segir marga hafa leitað aðstoðar fyrir jól. „Staðan er slæm hjá mörgum og neyðin mikil. Það eru margir sem leita til okkar og við þurfum að hafna mörgum sem ekki ná ákveðnum viðmiðunarmörkum,“ segir Þórunn. Aldrei fleiri aðstoðarbeiðnir  15 til 20 nýjar fjölskyldur og einstaklingar á Suðurnesjum leita aðstoðar á degi hverjum nú fyrir jól  Þurfa að vísa mörgum frá  Staðan þar er sögð grafalvarleg Anna Valdís Jónsdóttir Þær Sigrid Daregård, Jóhanna Stefánsdóttir og Anna Bergljót Böðvarsdóttir sýndu gestum og gangandi réttu handtökin í prjóni og hekli á opnu húsi Hússtjórnarskólans í Reykjavík á laugardag. Þar gat m.a. að líta handverk eftir nemendur skólans auk þess sem heitt var á könnunni. Prjónað og heklað fyrir gesti og gangandi Morgunblaðið/Kristinn Það eru hæg heimatökin í Hússtjórnarskólanum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.