Morgunblaðið - 09.12.2013, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.12.2013, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú er vön/vanur að leita eftir full- komnun, en í dag lendir þú í þeirri stöðu að geta ekki betur. Og þar sem þú ert svo yf- irmáta ánægð/ur með það sem þú færð færðu jafnvel meira. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er engum öðrum að kenna en sjálfum þér ef þér leiðist eitthvað þessa dag- ana. Settu þig í samband við konurnar í fjöl- skyldunni, ekki síst ömmu eða gamla frænku. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þótt einvera sé holl á stundum má of mikið af henni gera sem öðru. Gott hjá þér að bjóða fram krafta þína. Þú mátt alls ekki deila hugmyndum þínum með neinum sem gæti eyðilagt þær. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er allt á fullu í hausnum á þér og þú hefur hundrað lausnir við öllum vanda- málum. Temdu þér forgangsröðun. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þótt þér lítist ekkert á að fá aðstoð við ákveðið verkefni skaltu hugsa málið. Hættu að velta óþægilegu málunum á undan þér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Veltu fyrir þér leiðum til þess að bæta vinnuaðstæður þínar eða aðferðir. Líttu bara niður og sjáðu út í hvað þú ert að henda þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Lífið hefur mikinn tilgang núna, þar sem viss manneskja spilar stóra rullu. Gættu þess að láta pirring hvorki bitna á vinnu- félögum þínum né þínum nánustu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert óhrædd/ur. Nú gengur lífið sinn vanagang. Ef þú venur þig á það daglega að hugsa jákvætt losnar þú á end- anum við bjánaleg vandamál eins og þau sem blasa við í dag. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Viðskiptasamningar og allt sem lýtur að kaupum og sölu ætti að ganga vel í dag. Drífið í hlutunum og hamrið járnið með- an það er heitt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Hraðinn í daglega lífinu magnast næstu vikur. Láttu þér ekki koma á óvart öf- und og illkvittni sumra, farðu varlega í stressinu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þetta er góður dagur fyrir verslun og viðskipti. Veltu hlutunum vandlega fyrir þér og svarið hlýtur að skjóta upp kollinum fyrr en varir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Heimili þitt þarf að vera eins og hlýtt og notalegt hreiður. Ef eitthvað veldur þér streitu farðu á afvikinn stað og hvíldu þig í smástund. Íaðdraganda fréttamannafundaroddvita ríkisstjórnarinnar um aðgerðir vegna skulda heimilanna orti Ólafur Stefánsson: Af mér verður lánum létt, lífsins opnast smugur. Munur að vera í millistétt, mildur Guð almáttugur. Ágúst Marinósson prjónaði við það: Af kæti á morgun millistétt mun á torgum óma. Gleypir sorgir gleðifrétt galsaorgin hljóma. Ármann Þorgrímsson var ekki bjartsýnn á niðurstöðuna: Staða mála einföld er um þó megi þrasa allir borgi sjálfum sér úr sínum eigin vasa. Jón Arnljótsson orti um nið- urskurð á RÚV: Fréttatímar falla brott, fáir verða og stuttir. Líka munu gera gott, gamlir, endurfluttir. Dagskrárliðir detta út, er depurð veldur sumra. Frá eitt til sjö, má heyra hrút, hornóttan, að kumra. Í Sjónvarpinu sífellt hlé, síðkvöldin mun dekka. Bara sýnt er Bretar te, úr bollum sínum drekka. Hjálmar Freysteinsson segist sprunginn á pólitískra-yrkinga- bindindinu, sem hann ætlaði að vera í og þá best að sleppa þessari limru lausri: Fer oft með fjarstæður hreinar og fáum er ljóst hvað hann meinar, ég segi ekki hér hver þetta er, (því þetta er hann Ásmundur Einar). Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af niðurskurði á RÚV og skuldum heimilanna Í klípu „ÞÉR ER VONANDI SAMA, HÚN ER LÍKAMSTJÁNINGARTÚLKURINN MINN.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „MÁTTU SJÁ AF TÍUÞÚSUNDKALLI?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að greiða yfir skallablettinn hans. ÞETTA ER HÁSÆTI KONUNGS. ER ÞETTA EKKI BARA SÝNDAR- MENNSKA? NEI. SPEGILL, SPEGILL, HERM ÞÚ MÉR - HVER ER ... BÍDDU! ÁÐUR EN ÞÚ HELDUR ÁFRAM ... ÞÚ ERT FEITUR! EINN MÚR- STEIN, TAKK!Í huga Víkverja er augljóst aðstærsta frétt síðustu viku var lát mannréttindafrömuðarins Nelson Rolihlahla Mandela. Það eitt að hann hafi náð 95 ára aldri hlýtur að teljast til frétta, ekki síst í ljósi þess hvernig æviskeið hans var. Eins og er um alla menn og konur voru ekki allir aðdáendur Mandela. Það flækist til dæmis fyrir sumum að hann hafi tekið þátt í að stofna hina herskáu deild Umkhonto we Sizwe í baráttunni gegn aðskiln- aðarstefnunni í Suður-Afríku. Til þess verður þó að horfa að án fram- lags hans er alls óvíst að aðskiln- aðarstefnan hefði fengið þann endi sem hún fékk. Þá telur Víkverji öllum hollt að muna að enginn sé alslæmur, og enginn algóður, þó svo að margir vilji horfa á heiminn með slíkum svart-hvítum gleraugum. Meira að segja Gandhi fannst í lagi að grípa til ofbeldis við vissar aðstæður. Til- gangurinn og meðalið og allt það. Í augum Víkverja leikur enginn vafi á því að Mandela var mik- ilmenni, og vel að sínum heiðri kom- inn. Á fésbók spurði vinur Víkverja hvort síðasta stórmennið væri ef til vill fallið frá. Eflaust er til fólk sem í dag, eða síðar meir, vinnur önnur eins afrek og Mandela eða Gandhi unnu á sinni ævi. En Víkverji veit í það minnsta ekki um neinn sem til- heyrt gæti slíkum flokki. x x x Á heimili Víkverja eru lottóraðirkeyptar í áskrift. Það er því, sem von er, nokkur tilhlökkun til næsta útdráttar. Enda hafa Víkverji og betri helmingurinn ákveðið að vera með fimm rétta. Stundum er það gert að leik að fabúlera um ráðstöfun vinningsfjár- ins, sér í lagi ef upphæðin er veruleg. Eins konar „Hvað myndirðu gera við peningana sem frúin í Hamborg gaf þér?“. Af biturri reynslu getur Vík- verji ráðlagt fólki að sleppa slíkum vangaveltum, þar sem kaldur veru- leikinn verður enn kaldari eftirá. Nær væri að lesa mannkynssögu og kynna sér ástandið í öðrum lönd- um. Og þakka fyrir að við höfum það jú umtalsvert betra en næstum allir sem hafa nokkru sinni verið til. víkverji@mbl.is Víkverji Játið að Drottinn er Guð, hann hefur skapað oss og hans erum vér, lýður hans og gæsluhjörð. (Sálmarnir 100:3) NÝ LÍNA AF BAÐINNRÉTTINGUM FRÁ IFÖ Baðinnréttingar eru fáanlegar: hvítar háglans – hvítar mattar – ljósbrúnar – dökkgráar – svört eik Allt í baðherbergið frá A til IFÖ. Opið virka daga kl. 8–18 og laugardaga kl. 10–15 Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.