Morgunblaðið - 09.12.2013, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.12.2013, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2013 Hlutverkin í leikriti lífsins sem ég hef sinnt eru orðin æðimörg. Í tæp þrjátíu ár vann ég í Landsbankanum á Selfossien þar hætti ég um aldamót. Eftir það greip ég í ýmis störf, vann á slysadeild sjúkrahússins, var ritari hjá fógetanum og vann á réttargeðdeildinni á Sogni. Starfið þar gaf mér nýjan skilning á mannlífinu,“ segir Þóra Grétarsdóttir á Selfossi sem er 66 ára í dag. Eystra hefur hún búið alla sína tíð og tekið virkan þátt í bæjarlífinu. Var stirni í starfi Leikfélags Selfoss og tók þátt í uppfærslum þess á ýmsum verkum. „Líklega er hápunkturinn á ferlinum þegar ég, árið 1969 og þá rétt liðlega tvítug, lék Ragnheiði biskupsdóttir í Skálholti, leikriti Guðmundar Kambans. Og það minnir mig á að ég þarf í bókasafnið að nálgast nýútkomna ævisögu Kambans, þaðan sem ég er nú þegar komin með nýjar bækur eftir Árna Þórarinsson, Vigdísi Gríms- dóttur og Sjón,“ segir Þóra. Síðari árin hefur Þóra jafnan boðið sínu fólki og skylduliði þeirra í kaffi á afmælisdegi sínum. „Desember er skemmtilegur tími. Þeg- ar hér er komið sögu er jólabaksturinn langt kominn og gaman að geta boðið afmælisgestunum í fyrsta skammtinn af smákökunum og öðru fíniríi; bakkelsi af ýmsum sortum,“ segir Þóra sem er fráskilin en á einn son; Sigurð Fannar Guðmundsson, sem er kvæntur tveggja barna faðir og býr í Kópavogi. sbs@mbl.is Þóra Grétarsdóttir er 66 ára í dag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Smákökur „Jólabaksturinn langt kominn og gaman að geta boðið afmælisgestunum í fyrsta skammtinn,“ segir Þóra Grétarsdóttir. Biskupsdóttir sem vann í bankanum Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Hafnarfjörður Bjarni Freyr fæddist 5. nóvember 2012 kl. 4.16. Hann vó 4.075 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Erla Arnardóttir og Ingi Björnsson. Nýir borgarar Selfoss Guðrún Birna fæddist 6. september. Hún vó 3.920 g og var 53,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Bryndís Erlingsdóttir og Sveinbjörn Ari Gunnarsson. O ddný fæddist í Reykja- vík 9.12. 1943 og ólst þar upp á Laugavegi 22. Hún var í Miðbæj- arskólanum, lauk landsprófi í Vonarstræti og stúd- entsprófi frá MR 1963. Eftir stúdentspróf starfaði Oddný um skeið hjá lögreglustjór- anum á Keflavíkurflugvelli, fór svo ári síðar til Parísar og bjó þar hjá sendiherrahjónunum, Pétri Thor- steinsson og eiginkonu hans, Odd- nýju Elísabetu Thorsteinsson, sem er föðursystir nöfnu sinnar. Þar stundaði Oddný nám við Sorbonne og kenndi frænda sínum íslensku. Oddný varð einkaritari Grétars Kristjánssonar hjá Loftleiðum haustið 1964, stundaði jafnframt nám í ensku, frönsku og latínu við HÍ og lauk BA-prófum í ensku og frönsku. Oddný Björgólfsdóttir – fyrrv. flugfreyja 70 ára Síðasta ferðin Flugáhöfnin í síðustu ferð Oddnýjar á afmælisdegi hennar, 2010. Frá vinstri: Axel Guðmundsson; Henríetta Gísladóttir; Þuríður Vilhjálmsdóttir; Oddný; Reynir Ólafsson, Margrét Þórarinsdóttir, og Páll Georgsson. Var aldrei flughrædd Skólasystur: Sigríður Á. Ásgrímsdóttir, Oddný og María Jóhannsdóttir. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.