Morgunblaðið - 09.12.2013, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2013
Smáauglýsingar
Hljóðfæri
Þjóðlagagítarpakki:
kr. 23.900. Gítar, poki, ól, auka-
strengir, stilliflauta og kennslu-
forrit.
Gítarinn ehf., Stórhöfða 27,
s. 552 2125.
www.gitarinn.is,
gitarinn@gitarinn.is
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
STOKKABELTI
Gullfallegt stokkabelti eftir Guðmund
Helga Guðnason gullsmið til sölu.
Upplýsingar í síma 895 7177.
TILBOÐ – TILBOÐ – TILBOÐ
Vandaðir dömuskór úr leðri. Stakar
stærðir. TILBOÐSVERÐ: 4.500.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
!
GLÆSILEGAR MITTISBUXUR Í
ÚRVALI
Teg MAJA - fást í hvítu og svörtu í
S,M,L,XL á kr. 2.995,-
Teg GABE - í hvítu og svörtu í
stærðum M,L,XL,2XL á kr. 2.995,-
Teg eco MI - í hvítu og svörtu í
stærðum M,L,XL,2XL á kr. 1.995,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-föst. 10-18.
Opið laugard 10 - 14
Þú mætir - við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
Frú Sigurlaug
Mjóddin s. 774-7377
Mikið úrval
af sloppum
Sundbolir • Tankini
Bikini • Náttföt
Undirföt • Sloppar
Inniskór • Undirkjólar
Aðhaldsföt
Þjónustu-
auglýsingar
Þarft þú að koma fyrirtækinu
þínu á framfæri
Hafðu samband í síma
569 1100 eða á
augl@mbl.is
og fáðu tilboð
Það er erfitt að setjast niður
og skrifa fátækleg orð um
Röggu vinkonu mína og jafn-
öldru. Sama dag og ég fagnaði
því að verða árinu eldri, kvaddi
Ragga þennan heim aðeins 44
ára gömul. Við Ragga höfum
fylgst að frá því við vorum litl-
ar, bjuggum í sama hverfi, vor-
um bekkjarsystur, vorum í skát-
unum og í boltanum. Ég man
þegar Ragga byrjaði að æfa
körfu með okkur, það voru ekki
margar æfingarnar sem hún
mætti á því fljótlega áttaði hún
sig á því að þetta var ekki fyrir
hana og án þess að gera lítið úr
hæfileikum Röggu á þessu sviði
þá held ég að drengirnir hennar
hafi fengið körfuboltagenin frá
pabba sínum. Eitt sumarið
fengu foreldrar mínir þá snilld-
arhugmynd að fá sumarskipti-
nema frá AFS til okkar, það var
allt í góðu nema ég var mjög lé-
leg í ensku en var svo heppin að
við Ragga vorum mikið saman á
þessum tíma og hún talaði fyrir
okkur báðar, enda mjög góð á
því sviði og ófeimin við að tala.
Við áttum okkar frumburði á
sama ári þannig að leiðir okkar
lágu saman þar, þá vorum við
aftur fluttar í sama hverfið og
mikill samgangur milli Ragnars
og Hafliða. Við tókum líka tjald-
vagnatímabil, fórum í ferðalög,
á fótboltamót og fleira með
strákana, fukum út úr Herjólfs-
dal eitt árið á fótboltamóti og
okkur rigndi niður á Bakkaflöt
eina verslunarmannahelgina
þannig að það var sjaldan logn-
molla þar sem við vorum. Síðast
en ekki síst höfum við setið á
körfuboltaleikjum, hvatt strák-
ana okkar áfram og spjallað um
daginn og veginn.
Það var mikið reiðarslag þeg-
ar Ragga greindist með illvígan
sjúkdóm, þessi glaðværa, glæsi-
lega eiginkona og móðir þriggja
drengja sem lýsti upp heiminn
þegar hún hló sínum einskæra
hlátri ætlaði ekki að láta í minni
pokann í þessari baráttu. Hún
barðist eins og hetja og náði
tökum á sjúkdómnum, ég
Ragnheiður Guðný
Ragnarsdóttir
✝ RagnheiðurGuðný Ragn-
arsdóttir fæddist í
Keflavík 22. sept-
ember 1969. Hún
lést á Landspítal-
anum 22. nóvember
2013.
Útför Ragnheið-
ar fór fram frá
Keflavíkurkirkju 5.
desember 2013.
gleymi ekki þeim
degi í vor þegar við
hittumst á körfu-
boltaleik að hún
snéri sér að mér og
sagðist hafa gleði-
fréttir handa mér,
hún hafði sigrað
sjúkdóminn aftur
2-0 fyrir mér eins
og hún orðaði það,
það er á svona
stundu sem maður
tárast gleðitárum. Við héldum
30 ára fermingarafmæli í vor,
þá hafði Ragga greinst aftur.
Hún mætti galvösk í bekkjar-
partíið og svo í veisluna, glæsi-
leg til fara að venju, ætlaði sko
ekki að láta þetta framhjá sér
fara og skemmti sér konunglega
með okkur. Eins ósanngjarnt og
þetta er þá yljum við okkur við
góðar minningar um Röggu.
Elsku Alli, Ragnar, Aron,
Hrannar, Guðrún og Ragnar,
systkini og aðrir aðstandendur,
ég bið góðan Guð að styrkja
ykkur í sorginni.
Sumir hverfa fljótt úr heimi hér
skrýtið stundum hvernig lífið er.
Eftir sitja margar minningar,
þakklæti og trú.
Anna María Sveinsdóttir.
Mig langar í fáeinum orðum
að minnast Ragnheiðar Ragn-
arsdóttur sem kvaddi okkur
fyrir skömmu eftir hetjulega
baráttu við erfiðan sjúkdóm.
Kynni mín af Röggu hófust
þegar hún og Alli fóru að vera
saman fyrir u.þ.b. tuttugu og
fimm árum síðan. Alli var þá
einn af burðarásum Keflavíkurl-
iðsins í körfubolta sem vann
glæsta sigra. Ragga hafði hins
vegar notað tímann til að
mennta sig, farið til útlanda
sem skiptinemi og stundaði fyr-
irsætustörf meðfram því, enda
stórglæsileg stelpa sem hvar-
vetna vakti athygli fyrir glæsi-
leika og tignarlegt fas. Það var
mikil reisn yfir Röggu. Hún var
heimskona. Ánægjulegt var sjá
hversu vel hún og Alli náðu
saman og geislaði af þeim
gleðin og lífshamingjan. Fljót-
lega eignuðust þau frumburðinn
Ragnar Gerald og stuttu síðar
fylgdi svo Aron Ingi á eftir.
Ekki lét Ragga sér nægja að
ala upp tvo unga drengi og
stunda nám með heldur hvatti
hún Alla með ráðum og dáð sem
til þessa hafði nú ekki verið
neitt sérlega sólginn í skólavist
til þess að flytja búferlum til
Flórída í flugvirkjanám. Fljót-
lega eftir heimkomuna kom
Hrannar Már í heiminn og fjöl-
skyldan dafnaði sem aldrei fyrr.
Ragga starfaði sem kennari í
Heiðarskóla og var farsæl í
starfi og naut virðingar nem-
enda sinna og samkennara,
enda metnaðarfull og samvisku-
söm í hvívetna. Fyrir um þrem-
ur árum fóru óveðursský að
hrannast upp í lífi þessarar
glæsilegu fjölskyldu. Ragga
greindist með illkynja mein. Við
tóku erfiðir tímar. Af mikilli
þrautseigju og krafti sigraði
Ragga fyrsta bardagann við
þennan slóttuga púka sem
krabbamein er. Sigurvíman var
skammvinn og enn þurfti
Ragga að ganga í gegnum stífa
læknismeðferð sem reyndi gríð-
arlega á, bæði líkama og sál.
Samhent og sterk stóð fjöl-
skyldan og vinir að baki henni.
Enn og aftur náði Ragga að
kveða niður þennan lævísa
draug sem hert hafði tök sín.
Barátta hennar og seigla við
þennan grimmilega og illkvittna
sjúkdóm tók af henni gríðarleg-
an toll. Þrautseigjan og lífsvilj-
inn var enn til staðar þegar
meinið herjaði á í þriðja sinn af
svo miklum þunga að ekkert
varð við ráðið. Líkaminn réði ei
meir við atganginn og Ragga
fékk loks frið frá þeim kvölum
sem hún hafði svo kröftuglega
gengist við til þess að geta átt
tíma með sinni ástkæru fjöl-
skyldu. Styrkur hennar og
kraftur eru okkur sem lifum
hvatning um að gera daginn í
dag að meistaraverki okkar. Þó
að lífaldur Röggu hafi ekki ver-
ið hár eru afrekin hennar mörg.
Fjórir glæsilegir piltar. Albert,
Ragnar, Aron og Hrannar eru
merkisberar hennar um
ókomna tíð. Ástin er sterkari en
dauðinn og í strákunum sínum
mun Ragga eiga eilíft líf. Elsku
Alli. Ég dáist að þeim styrk og
æðruleysi sem þú hefur sýnt á
þessum erfiðu tímum. Baráttan
og dugnaðurinn sem þú varst
þekktur fyrir á leikvellinum
hefur fylgt þér í gegnum þessi
veikindi. Þú ert sigurvegari og
sýndir það svo ótvírætt í ykkar
miklu raunum.
Kæru Ragnar, Aron og
Hrannar. Harmur ykkar er
mikill og sorgin þungbær, en
ljósið sem mamma ykkur skildi
eftir í hjörtum ykkar mun loga
og skína þegar myrkrið er hvað
svartast og vera ykkur vegvísir,
huggun og innblástur til góðra
verka í framtíðinni. Ykkur öll-
um, foreldrum Röggu, þeim
Ragnari og Guðrúnu, systkin-
um, ættingjum og vinum votta
ég mína dýpstu samúð og megi
guð veita ykkur styrk á þessum
erfiðu tímum.
Tómas Tómasson.
Ljúfmennskan
og hlýjan fylgdu
Þórdísi Dögg frá fyrstu kynnum.
Hún var brosmild og glöð og við
fengum að kynnast börnunum
hennar, sem voru henni svo
óendanlega kær og hennar stolt.
Hún ávann sér traust okkar og
trúnað og við fengum innsýn í
viðkvæma og brothætta sál.
Við þökkum fyrir allar okkar
stundir, Þórdís mín, og biðjum
almættið að halda vel utan um
börnin þín og styrkja þau og
Þórdís Dögg
Gunnarsdóttir
✝ Þórdís DöggGunnarsdóttir
fæddist á Húsavík
15. október 1979.
Hún lést hinn 28.
nóvember 2013
Útför hennar fór
fram frá Húsavík-
urkirkju 6. desem-
ber 2013.
styðja. Þá vottum
við Max, börnunum,
foreldrum, bróður
og öðrum aðstand-
endum okkar inni-
legustu samúðar-
kveðjur.
Fyrir hönd
starfsfólks Mecca
Spa,
Sigrún
Benediktsdóttir.
Það var mikið áfall þegar við
fengum fregnir af andláti okkar
elskulegu Þórdísar. Þessi yndis-
lega vinkona okkar sem átti allt
lífið framundan er á einu auga-
bragði horfin frá okkur. Við
kynntumst Þórdísi þegar við hóf-
um allar nám í snyrtifræði og
myndaðist ótrúlega góður vin-
skapur okkar á milli sem hefur
haldist í gegnum árin þó svo að
við séum búsettar hér og þar yfir
landið. Þórdís var þessi glað-
væra og ljúfa manneskja sem
vildi allt fyrir alla gera. Það var
aldrei leiðinlegt þegar þessi hóp-
ur kom saman enda ófá pylsup-
artíin og vitahittingarnir og allt-
af var glatt á hjalla. Þegar við
hugsum til baka þá getum við
ekki annað en brosað. Þórdís var
ótrúlega auðmjúk þegar hún
sagði frá veikindum sínum og
lagði öll spilin á borðið, en sum
barátta verður ekki unnin. Minn-
ing um vinkonu okkar með stóra
hjartað mun lifa áfram með okk-
ur.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Við vottum fjölskyldu og vin-
um Þórdísar samúð okkar og
biðjum góðan Guð að gefa ykkur
styrk.
Hanna Sigríður, Hulda Rós,
Petra Dögg, Sigríður og
Þorgerður Eva