Morgunblaðið - 09.12.2013, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.12.2013, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2013 Ljósmyndir/Jón R. Hilmarsson Kvöldroði Hvítserkur baðaður síðustu geislum sólarinnar á júlíkvöldi. Jón tekur gjarnan myndir í ljósaskiptunum. Malín Brand malin@mbl.is Hvort tveggja krefst þol-inmæði: Skólastjórnunog ljósmyndun. Eftirsem áður nýtur Jón Hilmarsson þess að fara út á kvöld- in eftir vinnuna og vera einn með sjálfum sér úti í náttúrunni og taka myndir. Hann veit fátt betra en það og hefur tekist í bókum sínum að draga fram áhugavert landslag, náttúru, kennileiti og örnefni á þeim svæðum sem hann hefur myndað. Þakkar eiginkonunni Jón byrjaði að taka ljósmyndir árið 2007 og er sagan af því upphafi nokkuð skemmtileg. „Konuna mína, Alexöndru, vantaði myndir af sjálfri sér og ég spurði atvinnuljósmyndara hvað dagur með honum myndi kosta og það var nóg til þess að ég fór út í búð og keypti mér myndavél,“ segir Jón um þetta ágæta upphaf sem var árið 2007. Síð- an þá hefur Jón sótt nokkur námskeið og lesið sér til um ljós- myndun. Eiginkona hans, Alexandra Chernyshova, er sópran og söng- kennari. Saman hafa þau hjónin unnið ófá myndbönd sem ratað hafa um víða veröld. Einstakt landsvæði Þegar Jón skoðaði ljósmynda- bækur eftir aðra fannst honum oft hlaupið yfir það svæði sem hann og fjölskylda hans bjuggu á og þess vegna gaf hann út bókina Ljós og náttúra Skagafjarðar árið 2011. Þá bjuggu þau á Hofsósi. „Þegar ég var búinn með það verkefni þurfti ég náttúrlega að finna mér nýtt viðfangsefni og þá fannst mér liggja beint við að taka fyrir það svæði sem var næst mér og ákvað að taka þennan landshluta fyrir, Norðurland vestra,“ segir hann. Bókin byggist á þriggja ára vinnu og hefur hún að geyma 121 ljósmynd með skýringum, auk þess sem tæknilegar upplýsingar um hverja og eina og dagsetningu er að finna aftast í bókinni. Þar er einnig kort og númer hverrar myndar merkt þar inn á. Íslensk birta og myrkur Jón hefur gaman af íslensku sumarbirtunni en nýtur þess líka að taka myndir af stjörnunum og norð- Skólastjóri á daginn og myndar á kvöldin Jón R. Hilmarsson hefur gefið út tvær ljósmyndabækur síðan árið 2011. Þær eru báðar um svæði sem honum þykja hafa orðið útundan. Það er Skagafjörðurinn annars vegar og Norðurland vestra hins vegar. Ljósaskiptin eru honum hugleikin og sú einstaka birta sem hér er á sumrin. Jón er skólastjóri leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar og þar býr hann ásamt eiginkonu og sonum. Jón R. Hilmarsson Listakonan Þóra Breiðfjörð heldur úti síðunni www.thorabreidfjord.is en þar kynnir hún listsköpun sína. Hún er að kynna nýja línu um þess- ar mundir og sækir innblástur úr hafnfirska hrauninu. Kjarninn í hugmyndinni er náttúr- an og náttúruvættir. Álfabollarnir koma því svo gott sem beint úr hrauninu en þá hannaði Þóra upp- haflega fyrir hana Ragnhildi í Álfa- garðinum fyrir tveimur árum þegar hún opnaði agnarsmátt kaffihús í Hellisgerði í Hafnarfirði. Sjálf hefur Þóra búið í þrettán ár fyrir ofan Hellisgerði og rekur vinnu- stofu sína á Skúlaskeiðinu sem er gatan fyrir ofan Hellisgerði. Þóra er innfæddur Hafnfirðingur, alin upp í hrauninu og álfatengingin mjög sterk hjá henni. Vefsíðan www.thorabreidfjord.is Álfabollar Náttúruvættir skipa stóran sess í hönnun Hafnfirðingsins Þóru. Hafnfirskt hraun innblásturinn Litlu leikfélögin á landsbyggðinni gegna afar mikilvægu hlutverki og er Leikfélag Flateyrar þar engin und- antekning. Þann fyrsta desember var leikritið „Allir á svið“ frumsýnt en það var sett upp í samstarfi við leikarann Víking Kristjánsson. Íbúar Flateyrar eru sagðir afar stoltir af fólkinu sínu enda þarf mikla samheldni til að svo fámennt bæjarfélag geti sett upp svo stóra sýningu. En 200 manna bæjarfélag getur lyft grettistaki, ef eitthvað er að marka þetta. Margir koma til að sjá vini og ættingja á sviði og hafa áhorfendur ekki orðið fyrir von- brigðum. Á frumsýningunni var salurinn fullur í Félagsheimilinu á Flateyri og að sögn viðstaddra var hlegið frá upphafi til enda. Leikritið fjallar raunar um leikrit. Það er ekki amalegt í skammdeginu að lyfta sér aðeins upp og hafa ber í huga að hláturinn lengir lífið! Endilega … … lítið á Leikfélag Flateyrar Leikur Úr leikritinu Allir á svið, sem var frumsýnt 1. desember. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.iswww.facebook.com/solohusgogn Eldhúsborð og stólar Íslensk hönnun í gæðaflokki Hönnuður: Sturla Már Jónsson Hönnunarverðlaun 2013 (húsgagn kki) Aria Nýja Aría borðalínan fékk Hönnunarverðlaun FHI 2013 í húsgagnaflokki. Borðin eru fáanleg í mismunandi stærðum og útfærslum. Verð frá kr. 91.000 Almar stóll, verð frá 34.000 Máni Hringlaga eldhúsborð með ryðfríum stálkanti og harðplastlagðri plötu. Stærð og litur að eigin vali. Verð frá kr. 85.000 E60 stóll, verð frá 24.300

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.