Morgunblaðið - 09.12.2013, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Bandarísk herflutningavél af gerðinni C-17 hafði stutta
viðkomu á Akureyrarflugvelli fyrir helgi. Vélin var að
sækja búnað sem notaður var við loftrýmiseftirlit að
sögn Friðþórs Eydal, talsmanns Isavia. „Akureyrar-
flugvöllur var varaflugvöllur fyrir loftrýmisverkefni
þeirra sveita sem voru hérna í nóvember. Þar var því
settur upp flugstefnuviti og annar búnaður,“ segir
Friðþór.
Flugtak herflutningavéla af þessari gerð þykir til-
komumikil sjón enda gífurlegur kraftur sem þarf til að
koma vél af þessari stærð í loftið og mátti sjá snjó þeyt-
ast marga metra upp í loft fyrir aftan vélina.
Herflutningavél hefur sig á loft
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Bandaríski flugherinn sækir búnað til Akureyrar
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Að öllu óbreyttu verður ráðningar-
samningum hjá Slökkviliði höfuð-
borgarsvæðisins sagt upp frá og
með 1. febrúar næstkomandi náist
ekki samkomulag um sjúkraflutn-
inga. Verklok verða þá 1. maí. Þetta
kemur fram í bréfi stjórnar Slökkvi-
liðs höfuðborgarsvæðisins til vel-
ferðarráðherra.
„Við stöndum í þeirri von að ríkið
sjái að sér og bæti þessu við fjár-
lögin en ekki er gert ráð fyrir þessu
í fjárlögunum eins og staðan er nú.
Ef það verður ekki gert verður farið
beint í það að skipuleggja uppsagn-
ir,“ segir Gunnar Einarsson, stjórn-
arformaður Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgar-
svæðinu, en óvíst
er hversu mörg-
um verður sagt
upp.
Misráðið hjá
ráðuneytinu
Gunnar bendir
á að langt sé síð-
an farið var í við-
ræður við velferðarráðuneytið um
sjúkraflutninga og þegar báðir að-
ilar gáfu eftir af kröfum sínum var
komist að samkomulagi sem fól í sér
ákveðnar upphæðir og að skuld rík-
isins við slökkviliðið yrði greidd.
„Síðan verða kosningar og nýr ráð-
herra kemur og þá vill ráðuneytið
skoða þessi mál upp á nýtt. Við er-
um hins vegar ekki reiðubúin til
þess. Ég held því fram að þetta sé
góður samningur fyrir báða aðila og
það sé skynsamlegt og faglegt að
sjúkraflutningum sé komið fyrir hjá
slökkviliðinu. Það mun alltaf vera
dýrara fyrir ríkið að sjá um þetta
sjálft eða bjóða það út til einkaaðila.
Það er mjög misráðið hjá ráðuneyt-
inu að ganga ekki að þessu sam-
komulagi,“ segir Gunnar.
Í bréfi stjórnar Slökkviliðsins á
höfuðborgarsvæðinu kemur fram að
skuld ríkisins fyrir árið 2012 hljóði
upp á tæpar 516 milljónir króna og
skuld vegna ársins 2013 nemur nú
um 413 milljónum. Skorað er á
ráðuneytið að greiða skuldina, ann-
ars verður lögmönnum falið að inn-
heimta kröfuna.
Huga að uppsögnum
Gunnar Einarsson
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Forgangsraðað verður enn frekar en
áður var áformað í þágu heilbrigðis-
þjónustunnar í fjárlagafrumvarpi
2014. Stefnt er að hallalausu fjárlaga-
frumvarpi. Þetta kom fram í viðtali
við Bjarna Benediktsson fjármála-
ráðherra í Sunnudagsmorgni Ríkis-
útvarpsins í gær.
Þrír milljarðar til Landspítala
Bjarni sagði að leitað væri að svig-
rúmi til að auka framlög til Landspít-
alans um u.þ.b. þrjá milljarða. Breyt-
ingartillögur á fjárlagafrumvarpinu í
þá veru eru til vinnslu í fjárlaga-
nefnd.
Gert er ráð fyrir milljarðs viðbót í
tækjakaup til Landspítalans, um 1,6
milljarðar fari í að styrkja rekstrar-
grundvöllinn og við það bætist fé í
viðhald og stofnkostnað. Einnig á að
auka framlög til sjúkrahússins á Ak-
ureyri vegna sömu þátta. Þá er í at-
hugun að koma til móts við þarfir
heilbrigðisstofnana vítt og breitt um
landið. Bjarni sagði að heilbrigðisráð-
herra hefði kynnt ákveðnar hug-
myndir í þá veru sem væru til skoð-
unar í fjárlaganefnd. Þetta á að gera
án þess að skila fjárlögum með halla.
Bjarni sagði að tekjugrundvöllur
frumvarpsins væri aðeins að styrkj-
ast og tekjustofnar að taka við sér,
sem skapaði ákveðið svigrúm. Auk
þess væri m.a. til skoðunar að lækka
hámark barna- og vaxtabóta. Bjarni
talaði um að það gæti þýtt um 3%
skerðingu barnabóta sem hækkuðu
um 24% á þessu ári. Einnig er til
skoðunar að lækka hámark vaxta-
bóta aðeins.
Verið er að skoða hugmyndir um
að draga úr framlögum í stóru bóta-
kerfin, en þau hafa stækkað mikið.
Framlög til þróunarmála eru einnig
til skoðunar og hvort ekki sé hægt að
draga úr miklum vexti framlaga til
þeirra til að forgangsraða í þágu heil-
brigðismála.
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjár-
laganefndar, kvaðst geta tekið undir
orð Bjarna Benediktssonar fjármála-
ráðherra í Sunnudagsmorgni.
Til umræðu í vikunni
Hún sagði að fjárlaganefnd væri
búin að afgreiða frumvarp til fjár-
aukalaga með breytingartillögum og
nefndarálitum til annarrar umræðu.
Hún taldi að jafnvel yrði hægt að
dreifa nefndaráliti meirihlutans og
breytingartillögum við fjáraukalög á
Alþingi í dag. Mögulega yrði hægt að
ræða málið á morgun, þriðjudag.
Bjarni Benediktsson sagðist í gær
vonast til þess að önnur umræða um
fjárlögin gæti einnig hafist síðar í
þessari viku.
Hagræða til heilbrigðis
Fjárveiting til Landspítala verði hækkuð um þrjá milljarða Heilbrigðisstofn-
anir úti á landi fái einnig viðbót Minna í barna- og vaxtabætur og þróunarmál
Bjarni
Benediktsson
Vigdís
Hauksdóttir
Atvinnuvega-
nefnd Alþingis
hefur engin
áform um að
leggja til frekari
breytingar á lög-
um um endurnýj-
anlegt eldsneyti í
samgöngum á
landi (40/2013) en
þá sem þegar er
komin fram, að
sögn Jóns Gunnarssonar, formanns
atvinnuveganefndar. „Það er fyr-
irhugað að afgreiða málið eins og
það liggur fyrir,“ sagði Jón.
Atvinnuveganefnd lagði fram í lok
nóvember frumvarp þess efnis að
sektarákvæði 6. greinar laganna
komi ekki til framkvæmda fyrr en 1.
október 2014. Lögin tóku gildi 10.
apríl sl. Samkvæmt þeim á blöndun
dísilolíu og bensíns með endurnýj-
anlegum orkugjöfum að hefjast 1.
janúar 2014. Markmiðið er að auka
hlut endurnýjanlegra orkugjafa í
samgöngum á landi og draga úr los-
un gróðurhúsalofttegunda.
Það hefur ekki verið rætt í efna-
hags- og viðskiptanefnd Alþingis að
gera meira en að fresta sektar-
ákvæðum laganna um endurnýj-
anlegt eldsneyti um nokkra mánuði,
að sögn Frosta Sigurjónssonar, for-
manns efnahags- og viðskipta-
nefndar.
Fyrstu umræðu um frumvarp at-
vinnuveganefndar er lokið á Alþingi.
gudni@mbl.is, thorunn@mbl.is
Ekki meiri
breyting-
ar í bígerð
Jón
Gunnarsson
Aðeins frestun á
sektarákvæðinu
Flughálka var í gærkvöldi í Þist-
ilfirði og vetrarfærð í öllum lands-
hlutum. Vegagerðin sagði að búast
mætti við áframhaldandi hálku,
hálkublettum eða snjóþekju á Norð-
urlandi og éljagangi nokkuð víða.
Víða var hálka á fjallvegum og hálka
eða hálkublettir á vegum.
Nokkrir fjallvegir voru ófærir
eins og Hrafnseyrar- og Dynjand-
isheiðar fyrir vestan og Breiðdals-
heiði fyrir austan. Þungfært var á
Öxi og þæfingsfærð frá Bjarnarfirði
og norður í Reykjarfjörð.
Spáð var hita í kringum frostmark
í dag en svalara norðaustanlands.
gudni@mbl.is
Hálka og
vetrarfærð
Síldin í Kolgrafa-
firði lét sér fátt
um finnast þegar
starfsmenn
Stjörnu-Odda
spiluðu fyrir hana
lögin Brown Sug-
ar og Satisfaction
með Rolling
Stones.
Sigmar Guð-
björnsson hjá
Stjörnu-Odda sagði að þeir hefðu
gert þetta sér til gamans til að halda
upp á að hafa lokið vísindalegum til-
raunum með hljóð til að fæla síldina.
„Hún var kannski ekki alveg jafn-
hrædd við Rolling Stones og hún var
við ýmsa aðra tóna,“ sagði Sigmar.
Hann sagði að þeir hefðu hvorki
prófað fleiri lög né aðra flytjendur
tónlistar.
Síldin sýndi merkjanleg viðbrögð
við ýmsum hljóðum sem prófuð voru
og var sýnilegur munur á áhrifum
hljóðanna. Ákveðnar runur hreinna
tóna skiluðu bestum árangri.
Stjörnu-Oddi hefur skilað niður-
stöðum prófunarinnar til Hafrann-
sóknastofnunar. gudni@mbl.is
Fældist
ekki Roll-
ing Stones
Síldin í Kolgrafa-
firði brást við tónum
Sigmar
Guðbjörnsson
Náist ekki samkomulag um sjúkraflutninga kemur til upp-
sagna hinn 1. febrúar næstkomandi Óvissa um samninga