Morgunblaðið - 09.12.2013, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 09.12.2013, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2013 tofrandi jolagjafir Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com Jólatilboð: 6.350 kr. Andvirði: 8.430 kr. Handsápa 300 ml - 2.130 kr. | Handkrem 75 ml - 2.640 kr. Sturtusápa 250 ml - 2.550 kr. | Ilmpoki 35 g - 1.110 kr. .. ‘ LAVENDER GJAFAKASSI Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Hvorki lögreglan á höfuðborgar- svæðinu né Landssamband lög- reglumanna hafa tjáð sig um sak- fellingardóm héraðsdóms Reykjavíkur yfir lögreglumanninum sem myndir náðust af við handtöku á Laugaveginum í sumar. Grímur Hergeirsson, lögmaður lögreglu- mannsins, segir að stjórn Lands- sambands lögreglumanna muni funda um málið í dag. „Ég hef hitt nokkra lögreglu- menn og forustumenn Landssam- taka lögreglumanna núna eftir dóm- inn og menn eru fyrst og fremst að spyrja sig hvaða þýðingu niðurstað- an hefur,“ segir Grímur en sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins er ólga innan lögreglunnar vegna dómsins. Furða menn sig á þeim kröfum sem dómurinn gerir til lög- reglunnar í ljósi þess að viðurkennt er í dóminum að fullt tilefni hafi verið til handtökunnar, m.a. til að tryggja að konan hrækti ekki aftur, nauðsynlegt hafi verið að handjárna hana og að handtakan gengi fljótt fyrir sig. „Í raun gerir lögreglumaðurinn allt rétt við handtökuna en mátti samt ekki gera þetta eins og hann gerði og er viðurkennd aðferð. Þá lá líka fyrir í þessu máli að það þurfti að halda konunni nokkuð harkalega í lögreglubílnum því hún reyndi þá að sparka í lögreglumennina á leið- inni á lögreglustöðina,“ segir Grím- ur en hann benti á það í málflutn- ingi sínum að ekki mætti gefa fólki frípassa vegna ölvunar. Við aðalmeðferð málsins komu fyrir dóminn lögreglufulltrúi sem kennir lögreglutök við lögregluskól- ann og tveir lögreglumenn sem þjálfa lögreglumenn í þessum tök- um. Þeir báru allir vitni um að lög- reglumaðurinn hefði beitt viður- kenndum aðferðum við handtökuna. Óvissa um viðurkenndar handtökuaðferðir  Stjórn Landssambands lögreglumanna fundar um dóminn Dómur Lögreglumaður var dæmdur fyrir að beita viðurkenndri handtöku- aðferð á ölvaða konu sem hrækti á lögreglumenn á Laugaveginum í sumar. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Nemendur í Skóla Ísaks Jónssonar, Ísaksskóla, hafa náð góðum árangri á samræmdum prófum í íslensku og stærðfræði. Sigríður Anna Guðjóns- dóttir, skólastjóri Ísaksskóla og for- maður Samtaka sjálfstæðra skóla, þakkar þennan árangur m.a. því að ekki hafi verið hvikað frá kennsluaðferðum sem gefið hafi góða raun. Sigríður Anna segir leiðinlegt að sjá hvernig Ísland kom út í nýbirtri PISA rannsókn OECD. Hún vitnar í orð Hermundar Sigmundssonar, pró- fessors, í Morgunblaðinu s.l. fimmtu- dag, um að lestur sé undirstaða alls annars náms. Ísak Jónsson kom heim frá námi í kennslufræði í Svíþjóð 1926 og stofn- aði skólann. Hann hafði kynnst hljóðaaðferðinni, lagaði hana að ís- lensku og notaði við lestrarkennslu frá upphafi. Hann skrifaði m.a. Gagn og gaman. „Við höfum aldrei hvikað frá þessu í okkar skólastarfi,“ segir Sigríður Anna. „Íslenskukennslan er í mjög föstum skorðum. Við leggjum áherslu á íslensku, stærðfræði og samfélagsfræði (átthagafræði).“ Eldri kennarar skólans hafa þjálfað og kennt yngri kennurum þær að- ferðir sem gefist hafa vel í áranna rás. Heimalærdómur er hluti af skólagöngunni í Ísaksskóla. Sigríður Anna segir að foreldrar séu sam- viskusamir og fylgist vel með heima- námi barnanna. Söngur er einnig ríkur þáttur í skólastarfinu. Hver skóladagur hefst með söng í hverri skólastofu. Tvisvar í viku er söngur á sal þar sem allir nemendur koma saman og foreldrar eru velkomnir. Börnin læra ógrynni söngva og ljóða sem styðja enn frek- ar við námið. Hátt yfir landsmeðaltali Nemendur í Ísaksskóla hafa staðið sig vel á samræmdum prófum í 4. bekk og einnig í lesskimun sem gerð er í 2. bekk. Svolítill munur getur verið frá ári til árs, enda árgangarnir ólíkir. Engu að síður hefur Ísaksskóli alltaf verið hátt yfir landsmeðaltali á þessum prófum og stundum hæstur, að sögn Sigríðar Önnu. „Í lesskimun 7 ára barna 2012 vor- um við hæst á landinu. Af þeim gátu 94% lesið sér til gagns, þ.e. 100% drengjanna og 92% stúlknanna. Í gegnum árin hafa drengirnir verið ívið betri en stúlkurnar, sem er ekki í takti við niðurstöður á landsvísu.“ Sigríður Anna bendir á að ráði börnin ekki við að lesa þá lendi þau í vandræðum í stærðfræði. Oft þurfi þau að lesa dæmi áður en þau eru leyst. „Það hlýtur að vera keppikefli hvers skóla að gera börnin læs eins fljótt og hægt er,“ segir Sigríður Anna. Hún kveðst óttast að búið sé að fara „í of marga hringi“ við lestr- arkennslu í íslenskum skólum. „Þeg- ar ég var í Kennaraháskólanum þurfti ég að læra margar aðferðir við lestrarkennslu. Svo áttum við bara að velja aðferð og þannig áttum við að fara út í kennsluna. Ísaksskóli hefur haldið sig við hljóðaaðferðina því hún hefur skilað frábærum árangri.“ Sigríður Anna telur að rannsaka þurfi hvort það skili betri árangri að setja í námskrá að grunnkennsla í lestri skuli vera eftir viðurkenndri aðferð eins og t.d. hljóðaaðferð. „Við vitum að ýmsir skólar hafa prófað aðrar aðferðir og Kenn- araháskólinn einnig. Hljóðaaðferðin þótti gamaldags á sínum tíma og lík- lega þess vegna var farið að leita að einhverju öðru. Það er ef til vill ekki það sem þarf til að kenna lestur,“ segir Sigríður Anna. Hún segir að hljóðaaðferðin dugi hugsanlega ekki öllum. „Það verður alltaf að mæta hverju barni þar sem það er statt.“ Í Ísaksskóla eru 220 nemendur og er hann fjölmennasti sjálfstætt rekni skólinn hér á landi. Yngstu börnin í Ísaksskóla eru 5 ára og þau elstu 9 ára. Um eitt þúsund börn sækja sjálf- stætt rekna leik- og grunnskóla á landinu öllu. Morgunblaðið/Eggert Litlu jólin 2010 Söngur og tónlist skipa stóran sess í starfi Ísaksskóla. Þar er sungið í stofum og á sal og að sjálfsögðu á litlu jólunum. Lestur á gömlum grunni  Í Ísaksskóla er lestur kenndur eftir gamalreyndri aðferð  Skólinn hefur verið verið hátt yfir landsmeðaltali á samræmdum prófum  Heimalærdómur er hluti af skólagöngunni í skólanum Sænska dagblaðið Dagens Nyheter (DN) birti í nóvember s.l. frétt um að grunur léki á að sum lönd hefðu falsað svör í PISA-rannsókninni. Meint fölsun fór þannig fram að hagstæð svör nemenda og skólastjórnenda voru send margoft inn. DN hafði fengið hluta af rannsókn sem birta átti bráðlega um veikleika PISA-rannsóknarinnar. Vitnað var í Jörg Blasius, félagsfræðiprófessor við háskólann í Bonn, sem sagði veilur vera í gögnum PISA. Hann vann rann- sóknina með Victor Thiessen, prófessor emeritus við Dalhousie háskól- ann í Kanada. Veilur sagðar í gögnum NIÐURSTÖÐUR PISA-RANNSÓKNAR OECD DREGNAR Í EFA Sigríður Anna Guðjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.