Morgunblaðið - 09.12.2013, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 09.12.2013, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2013 ÍSLENSK HÖNNUN ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA ÁLAFOSS Álafossvegur 23, Mosfellsbær Opið: Mánud. - Föstud. 09:00 - 18:00 Laugard. 09:00 - 16:00 www.alafoss.is Komdu við og kynntu þér samskiptatæki sem gætu opnað nýjan heim fyrir þig og þína. Ellisif Björnsdóttir heyrnarfræðingur Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur Sími 534 9600 · heyrn.is Opið kl. 9.00-16.30 Verð frá 32.810 kr. Einfalt og ódýrt samskiptatæki með 15% jólaafslætti til áramóta Jólagjöfin fyrir þá sem vilja heyra betur Eyrnalokkagöt Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Mánudaginn 9. desember kl. 18 í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg G uðm unda A ndrésdóttir G uðm unda A ndrésdóttir Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. Jólauppboð í Gallerí Fold Forsýning í Gallerí Fold mánudag kl. 10–17 Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Valdís Gunnarsdóttir, flugfreyja og fyrrver- andi útvarpskona, lést á Landspítalanum í gærmorgun, 55 ára að aldri, eftir stutta sjúk- dómslegu. Valdís fædd- ist í Reykjavík 10. nóv- ember 1958 og ólst þar upp. Valdís var dóttir Gunnars Magnúsar Jónssonar versl- unarmanns og Mar- grétar Einarsdóttur húsmóður. Hún lauk gagn- fræðaprófi frá Austurbæjarskóla ár- ið 1974 og diplómunámi í Stjórnun og forystu frá Háskólanum í Reykja- vík árið 2010. Valdís hóf störf sem flugfreyja árið 1985 hjá Flugleiðum hf. og starfaði þar til ársins 1990. Hún var dag- skrárgerðarmaður á Rás 2 á árunum 1983- 1985 og vann við dag- skrárstjórn og þátta- gerð á Bylgjunni á ár- unum 1985-2008. Valdís tók aftur til starfa sem flugfreyja árið 2007 og sinnti því starfi til æviloka. Hún rak einnig eigið fyr- irtæki, Kroppar og kið- lingar, sem var fyrirtæki með tæki- færiskort. Valdís var ógift. Hún lætur eftir sig tvö börn. Andlát Valdís Gunnarsdóttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leysti seint á laugardagskvöldið upp samkvæmi ungmenna í Soga- mýri í Reykjavík. Tveir piltar voru færðir á Stuðla, þar á meðal húsráðandi sem er þrettán ára. Mikil ölvun var í samkvæminu og sóttu ungmennin að lögreglu- mönnum og hræktu meðal annars á þá. Þurfti að kalla eftir liðs- auka. Það var um klukkan ellefu um kvöldið sem kvartað var við lög- reglu undan hávaða í húsi í Soga- mýri. Þegar lögreglumenn komu á staðinn tók á móti þeim piltur sem sagðist vera 17 ára gamall og hafa fullt leyfi móður sinnar til að halda þarna unglingasamkvæmi. Í ljós kom að pilturinn var aðeins 13 ára gamall og í mjög ann- arlegu ástandi. Reyndist hann hafa haldið samkvæmið í óþökk móður sinnar sem ekki var heima. Húsráðandinn var ógnandi og kastaði hlutum að lögreglumönn- um. Fleiri ungmenni sóttu að lög- reglumönnunum og var ákveðið að kalla eftir liðsauka. Mörg ung- mennin voru í mjög annarlegu ástandi og ákvað lögregla að færa tvo pilta úr samkvæminu á Stuðla. Einn var sóttur af foreldri og einn 16 ára piltur var færður í fangaklefa en hann hafði meðal annars hrækt í andlit lögreglu- manns. Áður en hann var vistaður í fangaklefa var fullreynt að koma honum í hendur foreldra og eða barnaverndar. Aðrir unglingar komu sér sjálf- ir á brott. Mikið ölvuð ungmenni köstuðu hlutum að lögreglumönnum og hræktu á þá Morgunblaðið/Júlíus Að störfum Lögreglan leysti upp sam- kvæmi hjá 13 ára barni um helgina. Tíu ára stúlka var flutt á gjörgæsludeild Landspítalans eftir slys í heima- húsi á Kiðjabergi í Grímsnesi á laugardagskvöldið. Stúlkan var uppi á borði í eldhúsi heimilisins þegar hún féll aftur fyrir sig og á uppþvottavél sem stóð opin. Í hnífaparastandi var eldhúshnífur sem stakkst í vinstra herðablað hennar. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi missti stúlkan mikið blóð og annað lungað féll saman. Líðan stúlkunnar er eftir atvikum en hún var ekki talin í lífshættu og var útskrifuð af gjörgæsludeild í gærkvöldi. Stúlka féll á eldhúshníf í uppþvottavél – með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.