Morgunblaðið - 09.12.2013, Side 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2013
Iðnaðarryksugur
NT 25/1 Eco
Ryksugar blautt
og þurrt
Fylgihlutir
Barki 35mm 2,5m,
málmrör, 30mm
gólfhaus og mjór
sogstútur.
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is
NT 55/1 Eco
Ryksugar blautt og þurrt
Fylgihlutir
Barki 35mm 2,5m, málmrör, 30mm
gólfhaus og mjór sogstútur.
Þegar gerðar eru hámarkskröfur
Sjálfvirk
hreinsun á síu
Ráðherrafundur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO,
sem fram fór á Balí, endaði með samkomulagi sem liðka á
verulega fyrir viðskiptum á milli landa og draga úr kostn-
aðinum við alþjóðaviðskipti um sem nemur 10-15%.
Áætlað er að samkomulagið muni hafa hagræn áhrif
sem jafngilda því að stækka hagkerfi heims um 400 til
1.000 milljarða dala.
Bloomberg greinir frá að samkomulagið sé það fyrsta
sinnar tegundar hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni. Eiga
159 þjóðir aðild að samtökunum sem voru stofnuð árið
1995 sem arftaki GATT.
Indland og Kúba til vandræða
Sátt náðist um samkomulagið undir lok fundarins á
Balí eftir að Bandaríkin og Indland komust að mála-
miðlun um ríkisstyrki við landbúnað og um leið að hópur
þjóða frá Rómönsku Ameríku, leiddur af Kúbu, lét af
andstöðu sinni við samkomulagið. NYT segir andstöðu
Kúbu skýrast af því að eyþjóðin vildi sjá samkomulagið
vísa leiðina að afnámi viðskiptabannsins sem Bandaríkin
lögðu á Kúbu og gilt hefur frá 1960.
Balí-samkomulagið leyfir Indlandi og öðrum þróun-
arlöndum að halda áfram ríkisstuðningi við landbúnað,
svo fremi að slík inngrip hafi ekki truflandi áhrif á al-
þjóðaviðskipti. Aðrar aðildarþjóðir Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar geta lagt fram kvörtun ef niðurgreiddar
landbúnaðarvörur eru seldar á alþjóðlegum mörkuðum
og þrýsta verði niður.
Kveður samkomulagið einnig á um að dregið verði úr
pappírsvinnu á sumum landamærum en Bloomberg segir
alþjóðleg póstsendingafyrirtæki á borð við FedEX og
UPS hafa beitt sér fyrir slíkum ákvæðum. ai@mbl.is
EPA
Viðskiptafrelsi Roberto Azevedo, framkvæmdastjóri WTO, og Gita Wirjawan, viðskiptaráðherra Indónesíu, fagna
farsælum lokum ráðstefnunnar á Balí. Kúba og Indland reyndu lengi vel að stöðva samkomulagið.
Sátt náðist um við-
skiptasamning WTO
Gæti eflt alþjóðahagkerfið um þúsund milljarða dala
Málamiðlun náðist um fyrirkomulag landbúnaðarstyrkja
Góðar fréttir halda áfram að berast
frá Kína. Útflutningstölur fyrir nóv-
ember voru birtar um helgina og
voru umfram spár 41 af 42 mark-
aðsgreinendum sem fréttastofa Blo-
omberg hafði leitað álits hjá.
Vöruflutningar úr landi jukust
um 12,7% miðað við sama tímabil í
fyrra. Innflutningur jókst um 5,3%
á milli ára og var vöruskiptajöfn-
uður 33,8 milljarðar dollara og hef-
ur ekki verið meiri síðan í janúar
2009.
Útflutningstölurnar endurspegla
gögn frá kínverskum tollyfirvöld-
um um aukningu í vörusendingum
til Bandaríkjanna, Evrópu og S-
Kóreu. Útflutningur til Bandaríkj-
anna jókst um 17,7% milli ára og út-
flutningur til Evrópusambandsins
um 18,4%.
Undanfarnar vikur og mánuði
hafa reglulega borist fréttir af
ágætum vexti í kínverska hagkerf-
inu. Eru kröftugar tölur úr atvinnu-
lífinu taldar til þess fallnar að auð-
velda stjórnvöldum í Beijing að
ráðast í fyrirhugaðar umbætur sem
auka eiga frelsi á kínverska mark-
aðnum. Umbæturnar voru kynntar í
byrjun nóvember og hefur aðal-
vísitalan í Shanghaí hækkað yfir
vikuna þær fjórar vikur sem liðnar
eru síðan. Í síðustu viku bætti
Shanghaí-vísitalan við sig 0,7%.
ai@mbl.is
Útflutningur umfram
væntingar í Kína
AFP
Vörur Starfsmaður í leikfangaverksmiðju í Kína staflar upp tuskudýrum.
Vöruskiptajöfnuður Kína hefur ekki verið hærri í fjögur ár.