Morgunblaðið - 09.12.2013, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2013
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Eftir að ríkis-stjórnSamfylk-
ingar og Vinstri
grænna þvingaði
aðildarumsókn að
Evrópusamband-
inu í gegnum Alþingi fyrir rúm-
um fjórum árum hefur sann-
leikurinn oft farið halloka í
vægðarlausum áróðri aðild-
arsinna. Ekkert hefur verið til
sparað í þeim áróðri og þeirri
heiftúðugu baráttu og urðu
átökin til að kljúfa annan
stjórnarflokkinn, enda voru
ekki allir þar reiðubúnir að
ganga þegjandi þvert gegn glæ-
nýjum loforðum og flokks-
samþykktum.
Eitt af því sem hvað oftast og
mest hefur verið misfarið með í
umræðunni um aðildar-
umsóknina er tilgangur hinna
svokölluðu IPA-styrkja Evr-
ópusambandsins.
Í maí í fyrra fullyrti þáver-
andi utanríkisráðherra til að
mynda að það væri misskiln-
ingur „að í gangi sé einhvers
konar aðlögun“ að Evrópusam-
bandinu. Þetta kom fram í svari
við fyrirspurn frá Vigdísi
Hauksdóttur um IPA-styrkina.
Auðvitað er með ólíkindum
og verður áhugavert rannsókn-
arefni fyrir sagnfræðinga fram-
tíðarinnar að tilteknir stjórn-
málamenn og aðrir ákafamenn
um aðild Íslands að Evrópu-
sambandinu skuli ekki hafa
reynt að vera nær sannleik-
anum en raun ber vitni í aðild-
arferlinu. Að þeir skuli hafa
haldið því fram að IPA-
styrkirnir hefðu ekkert með að-
lögun Íslands að Evrópusam-
bandinu að gera er óvenjulega
ósvífið klækjabragð í svo mik-
ilvægri umræðu.
Þessi ósannindi hafa lengi
verið augljós öllum
þeim sem sjá vildu
en eftir síðustu
ákvarðanir og yf-
irlýsingar Evrópu-
sambandsins í
tengslum við þessa
styrki hljóta hinir líka að eiga
erfitt með annað en opna aug-
un.
Evrópusambandið ákvað fyr-
ir viku að hætta að greiða þessa
styrki og þá þurfti ekki frekari
vitna við um hvers eðlis styrk-
irnir eru. Þó varð það enn skýr-
ara þegar Evrópusambandið
sendi frá sér fréttatilkynningu
um málið þar sem útskýrt var
hvers vegna hætt hefði verið við
styrkina. Í tilkynningunni segir
að tilgangur IPA-styrkjanna sé
að veita fjárhagsstuðning til
áframhaldandi aðlögunar að
löggjöf, stöðlum og stefnu Evr-
ópusambandsins í því skyni að
umsóknarríkið yrði að fullu bú-
ið undir aðild að ESB. Þar sem
ríkisstjórn Íslands hafi stöðvað
aðlögunarviðræðurnar sé ekki
lengur grundvöllur fyrir IPA-
styrkjunum.
Fyrrverandi utanríkis-
ráðherra og aðrir þeir sem
lengst gengu í að afvegaleiða
umræðuna um aðlögunina að
ESB munu án efa þurfa að rita
margar bækur áður en þeir
komast loks til þess að viður-
kenna að hafa farið offari í
þessari umræðu og farið rangt
með í áróðri sínum. Sennilega
munu þeir enn um sinn reyna að
halda því fram að hér hafi ekki
verið unnið að neinni aðlögun
að ESB og að eina vinnan sem
átt hafi sér stað hafi falist í því
að kíkja í pakkann.
En hversu oft sem þeir full-
yrða þetta breytir það ekki því
að þeir vita betur. Og það sem
meira er, nú vita allir betur.
Nú þarf ekki lengur
að deila um hvort
IPA-styrkirnir voru
aðlögunarstyrkir }
Staðfesting frá ESB
Allt þetta kjör-tímabil hefur
höfuðborgin verið
vita stjórnlaus.
Það má helst ekki
nefna svo æpandi
sem það er. Sé það
gert birtast „spekingar“ og
segja að slíkar ábendingar taki
ekki nægilegt tillit til sam-
skipta núverandi borgarstjóra
við ættmenni sín á síðustu öld!
Borgarstjórar eru valda-
menn og hafa allir verið gagn-
rýndir sem slíkir án þess að
seilst hafi verið í slík sjónar-
mið. Núverandi borgarstjóri er
þó í raun aldrei gagnrýndur,
enda óviðeigandi. Hann hefur
aldrei gegnt starfi sínu í sam-
ræmi við hefðbundnar starfs-
skyldur. Hans er getið í frétt-
um eftir því hvernig til tekst í
klæðnaði í gleðigöngu og varð-
andi bréf til
Moskvu sem aldrei
var svarað. Gagn-
rýnin snýr að Sam-
fylkingunni og
dótturflokki henn-
ar fyrir niðurlæg-
ingu höfuðborgarinnar.
Nú er loks verið að rífa drasl
af Hofsvallagötu. Sagt var að
embættismenn hefðu eytt
milljónatugum í uppátækið en
borgarstjóri og borgarfulltrúar
ekkert um það vitað! Er það
trúlegt?
Ein helsta gata borgarinnar,
Hverfisgata, hefur verið ófær í
hálft ár og sér ekki fyrir end-
ann á. Tjón íbúa og fyrirtækja
er mikið. Vissi enginn um það
ástand heldur? Leika grímu-
klæddir embættismenn lausum
hala á meðan borgaryfirvöld
hafa kjólaskipti?
Niðurlæging
höfuðborgarinnar
særir þá sem þykir
vænt um hana}
Stjórnlaus höfuðborg
Á
einu hausti er að verða ljóst að
hver einasti er að hnýsast um
hvern einasta. Steinliggja á gægj-
um. Bandarískar leyniþjónustu-
stofnanir eru sakaðar um að
njósna um kreditkortagreiðslur í Evrópu,
hakka sig inn í gagnagrunn Google, hlera síma
vinaþjóða og staðsetja þar að auki eina fimm
milljarða farsíma um allan heim á degi hverj-
um.
„Allir eru að gera það“ er svar Bandaríkj-
anna. Allir séu að spæja. Ástralía um Indónes-
íu, Bretar um Þýskaland, Svíar um Rússa.
Fyrirtæki um fyrirtæki. Foreldrar um börn.
Makar um maka. Já og einnig um fyrrverandi
maka. Það er jafnvel njósnað á grænlenskri ís-
breiðu eins og kom fram í fréttum fyrir helgi.
Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna og
bandaríska leyniþjónustan nýta sér um þriðjung þeirra
upplýsinga sem er safnað í bandarísku Thule-herstöðinni
á Grænlandi.
Afsökunarbeiðni er ekki sjálfsögð þrátt fyrir að vina-
þjóðir séu orðnar uppvísar að fádæma óhugnaðarsnuðri.
Þannig lýsti forsætisráðherra Ástralíu því yfir að þrátt
fyrir að forseti Indónesíu væri góðvinur áströlsku þjóð-
arinnar, í raun næstum allra besti vinur sinn, ætlaði hann
samt ekki að segja fyrirgefðu.
Dagsljósið fer hamförum og grefur allt upp. Ekki að-
eins þessi stærri mál heldur er um vika liðin
frá því að einkaskilaboð Íslendinga birtust á
netinu. Ótrúlega slæmt mál en í framhjáhlaupi
má minnast á að það er með ólíkindum að eró-
tísk skilaboð skuli virkilega vera til í svona lé-
legum gæðaflokki. Flest af þessu var eins og
lesa eitthvað sem tólf ára krakkar skrifa þegar
þeir leika fyllibyttu og klámkjafta.
En talandi um börn. Einn angi af njósnum,
sem er ekki síður ástæða til að skammast sín
fyrir, er að meira en helmingur foreldra skoð-
ar, samkvæmt nýlegum breskum rann-
sóknum, tölvupóst og einkaskilaboð barna
sinna án þeirrar vitundar. Aðeins þriðjungur
þeirra fær samviskubit. Kannski er ekki
skrýtið að hið samfélagslega mein njósnir sé
eins og það er.
Að njósna og fyrirbyggja er sitt hvað.
Fræðsla og hnýsni er ekki það sama. Börn sem standa
foreldra sína að njósnum eru líklegri til að hætta að setja
foreldrana inn í sín einkamál og treysta þeim. Þetta er ná-
kvæmlega sama vandamál og þjóðarleiðtogar heims
standa frammi fyrir núna. Ef við eigum gott samband við
unglingana okkar sem og aðra þjóðarleiðtoga heims er
óþarfi að ganga út frá því versta.
Ef einhver þarf svo óstjórnlega mikið að fá njósna að
honum liggur lífið á er lykilatriðið: Ekki láta komast upp
um þig! julia@mbl.is
Júlía Margrét
Alexandersdóttir
Pistill
Hann var útsmoginn og snar
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Léttburafæðingarnar virð-ast vera mjög bundnarvið þær konur sem voruá fyrsta þriðjungi með-
göngunnar þegar hrunið varð í
október 2008. Þær eru bundnar við
þær konur sem voru að fæða sex
til níu mánuðum eftir að atburða-
rásin fór af stað en aukning létt-
burafæðinga var mest frá apríl til
júní 2009,“ segir Védís Helga Ei-
ríksdóttir, doktorsnemi í lýðheilsu-
vísindum. Hún vann rannsókn, í
víðtækri samvinnu við innlenda og
erlenda vísindamenn, við Miðstöð í
lýðheilsuvísindum við læknadeild
Háskóla Íslands sem sýnir að létt-
burafæðingum fjölgaði á Íslandi í
kjölfar efnahagshrunsins. Nið-
urstöðurnar birtust nýverið í vís-
indatímaritinu PLoS One.
Rannsóknin náði til allra lif-
andi fæddra einbura á Íslandi frá
byrjun árs 2006 til loka árs 2009
þar sem tíðni léttbura- og fyr-
irburafæðinga eftir efnahagshrunið
er borin saman við tíðni slíkra nið-
urstaðna við fæðingu á fyrri hluta
rannsóknartímabilsins. „Það virðist
sem að þær konur sem hafi verið á
fyrstu vikum meðgöngunnar þegar
efnahagshrunið varð hafi orðið fyr-
ir mestum áhrifum. Erlendar
rannsóknir benda til þess að álag
og streita móður geti haft áhrif á
fæðingarþyngd barnsins. Okkar
niðurstöður hljóma vel við aðrar
rannsóknir sem sýna að fyrsti
þriðjungur meðgöngu er viðkvæm-
asta tímabilið hjá svo mörgum,“
segir Védís.
Börn léttari en 2.500 g
Ekki hefur verið gerð sam-
bærileg rannsókn hér á landi en
erlendar rannsóknir sem hafa ver-
ið gerðar t.d eftir náttúruhamfarir
hafa margar sýnt að ýmiskonar
áföll geta haft áhrif á útkomu við
fæðingu, að sögn Védísar. Þær
rannsóknir hafa bent til þess að
álagstengdir viðburðir geti haft
áhrif á framvindu meðgöngu og
niðurstöðu við fæðingu en börn
sem fædd eru of létt eða fyrir tím-
ann eru í aukinni áhættu á nýbura-
dauða auk ýmiss konar heilsufars-
vandamála þegar fram líða stundir.
Með léttburafæðingum er átt
við börn sem eru léttari en 2.500
grömm við fæðingu, fyrirburar
teljast þau börn sem fæðast fyrir
37. viku meðgöngu. Hins vegar
fjölgaði fyrirburafæðingum ekki í
kjölfar hrunsins. Niðurstöður
rannsóknar Védísar benda því til
þess að fjölgun léttburafæðinga
megi fremur rekja til hægari fóst-
urvaxtar en styttri meðgöngutíma.
„Konurnar gengu með börnin
jafn lengi og konur fyrir hrunið,
þessi aukning er ekki tilkomin
vegna styttri meðgöngu. Börnin
virðast hafa vaxið hægar í móð-
urkviði,“ segir Védís.
Rannsókn Védísar og sam-
starfsfélaga leiddi í ljós að létt-
burafæðingar eftir hrunið voru
bundnar við mæður yngri en 25
ára og mæður sem voru ekki á
vinnumarkaði.
„Það kom mér einna mest á
óvart í niðurstöðunum hvað áhrifin
voru bundin við hópa, við þá hópa
kvenna sem oft eru taldir við-
kvæmari; yngri konur og konur
sem voru ekki á vinnumarkaðinum.
Það gæti skýrst af því að þessir
hópar hafi að einhverju leyti orðið
fyrir meiri áhrifum af hruninu en
kannski hafa lífshættir eða lífs-
mynstur breyst við hrunið. Við
getum ekki svarað með vissu
hvað það var sem olli þess-
um áhrifum,“ segir Védís
en rannsóknin
byggist ein-
göngu á Fæð-
ingaskrá.
Neikvæð áhrif hruns-
ins á fæðingarþyngd
Morgunblaðið/Ómar
Léttburafæðingar Védís Helga Eiríksdóttir doktorsnemi skoðaði tíðni létt-
burafæðinga hér á landi eftir efnahagshrunið í október 2008.
Rannsókn Védísar var hluti af
meistaranámi hennar, hún er
nú í doktorsnámi og heldur
áfram með rannsóknina í því.
„Þá er ætlunin að fara alveg
fram til loka ársins 2012 og
reyna að skoða fleiri þætti sem
gætu skýrt þessar létt-
burafæðingar frekar. Við erum
að reyna að skilja af hverju
þessi aukning varð eftir hrun-
ið.
Við sáum ákveðnar vísbend-
ingar um að það væri aukinn
háþrýstingur meðal kvenna á
meðgöngu og það getur verið
ein af þessum skýribreytum
sem við erum að leita að en
það er þekkt að streita getur
hækkað blóðþrýsting. Eins
langar okkur að skoða sér-
staklega hvort konur sem orðið
hafa fyrir tekjumissi hafi verið
í aukinni hættu á að eignast
léttbura.“
Skoðar fleiri
skýringaþætti
FRAMHALD