Morgunblaðið - 09.12.2013, Síða 32
MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 343. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Valdís Gunnarsdóttir látin
2. Samkvæmi 13 ára pilts leyst upp
3. Stúlka féll á eldhúshníf
4. Sextán ára piltur lést í miðju flugi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Duo Harpverk verður með tónleika
í Norræna húsinu á morgun og hefj-
ast þeir klukkan 20.00. Þetta eru
fyrstu tónleikar Duo Harpverks sem
byggjast á ættartré en tónskáld og
flytjendur eru tengd.
Tónleikar byggjast á
ættartré í fyrsta sinn
Aðventu-
tónleikar Kvenna-
kórs Garðabæjar
verða í Digra-
neskirkju í Kópa-
vogi í kvöld og
hefjast kl. 20.00.
Kórstjóri er Ingi-
björg Guðjóns-
dóttir og píanó-
leikari Sólveig Anna Jónsdóttir, en
auk þess koma fram Ágúst Ólafsson
barítónsöngvari og Dagný Mar-
inósdóttir flautuleikari.
Aðventutónleikar
kvennakórs
27. febrúar nk. hefði Ástgeir Ólafs-
son, Ási í Bæ, orðið 100 ára og af því
tilefni verður blásið til gleði- og tón-
listarveislu með mörgum listamönn-
um í Eldborgarsal Hörpu 8. febrúar
2014. Á næsta ári eru líka 140 ár frá
fyrstu þjóðhátíð Vest-
mannaeyja og verður
sagan rifjuð upp.
Miðasala
er hafin
(harpa.is
og midi.is).
Eyjatónleikar í Hörpu
til heiðurs Ása í Bæ
Á þriðjudag Suðlæg átt, 8-13 m/s og slydda með köflum við SA-
ströndina, en annars norðan 5-10 og dálítil él, en snjókoma á Norð-
urlandi. Kólnandi veður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-10 m/s og slydda eða rigning
suðaustantil í kvöld. Annars fremur hæg suðaustlæg átt og þurrt
að mestu, en él vestantil. Hiti 0 til 5 stig sunnan- og vestanlands.
VEÐUR
KR-ingar gerðu sér lítið fyrir
og lögðu Íslands- og bik-
armeistara Keflavíkur í Dom-
inos-deild kvenna í körfu-
knattleik á heimavelli sínum í
Frostaskjóli í gærkvöld. Snæ-
fell komst upp að hlið Kefl-
víkinga í efsta sæti deild-
arinnar en Snæfell náði að
stöðva sigurgöngu Hauka á
heimavelli sínum í Stykk-
ishólmi. Þá hafði Grindavík
betur í grannaslagnum gegn
Njarðvík. »4
KR-ingar lögðu Ís-
landsmeistarana
David Moyes, knattspyrnustjóri Man-
chester United, á ekki sjö dagana
sæla um þessar mundir. Skotinn sá
sína menn tapa öðrum leiknum í röð
á heimavelli þegar liðið lá fyrir New-
castle. Mikil
pressa er nú
komin á
Moyes en
meist-
ararnir eru í
níunda sæti
deild-
arinnar. »6
Mikil pressa komin á
David Moyes
Eyjamenn gerðu góða ferð í Hafn-
arfjörðinn í gær þegar þeir lögðu
andlausa leikmenn FH í Olís-deild
karla í handknattleik í Kaplakrika.
Þetta var síðasti leikur í deildinni á
þessu ári. Með sigrinum komust
Eyjamenn upp í þriðja sæti deild-
arinnar en FH-ingar eru í öðru
sæti, fjórum stigum á eftir toppliði
Hauka. »8
Eyjamenn gerðu góða
ferð í Kaplakrikann
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Í framtíðinni vill hún verða söng-
kona, poppsöngkona, og ekki er
ólíklegt að sá draumur rætist. Hall-
dóra Björg Haraldsdóttir verður
tíu ára 15. desember næstkomandi
og er líklega yngsti keppandi í úr-
slitum Jólalagakeppni Rásar 2 frá
upphafi.
Lag Halldóru Bjargar heitir
„Það eru jól“ og samdi hún bæði
lag og texta auk þess að syngja
lagið. Hægt er að kjósa á netinu á
milli þeirra tíu laga sem eru komin
í úrslit Jólalagakeppninnar fram til
13. desember. Bæði hljómsveitir og
þekktir tónlistarmenn eiga lag í úr-
slitunum en Halldóra Björg stígur
þarna sín fyrstu skref í að hljóma í
almenningseyrum. Hún er samt
ekki óvön því að semja lög og texta.
„Ég hef samið nokkur lög. Ég
byrja yfirleitt á því að raula eitt-
hvað þegar ég er á leiðinni heim úr
skólanum. Ef lagið er gott fer ég
heim til mín, sest við skrifborðið,
raula það og sem texta. Svo spyr
ég pabba minn hvort hann vilji
hjálpa mér smá og hann hefur allt-
af gert það.“
En hvers vegna ákvað hún að
senda lag í jólalagakeppnina?
„Pabbi spurði mig hvort við ætt-
um að taka þátt í henni því hon-
um þættu lögin mín svo flott og
þá bara dúndraði ég í eitt lag.“
Tónlistarfjölskylda
Foreldrar Halldóru Bjargar
eru Haraldur Ægir Guð-
mundsson kontrabassaleik-
ari og Harpa Þorvalds-
dóttir óperusöngkona.
„Ég er að reyna að
stofna hljómsveit sem
heitir þýsku nafni sem
þýðir Tungl eldsins á
íslensku. Það á að
vera hálfgerð fjöl-
skylduhljómsveit en
þegar ég verð aðeins eldri ætla ég
að reka pabba og mömmu og fá
mér tónlistarmenn á mínum aldri.“
Halldóra Björg hefur lært aðeins
á píanó og víólu. Hún er ekki í
neinu tónlistarnámi sem stendur
enda flutti fjölskyldan heim til Ís-
lands í haust eftir sjö ára búsetu í
Austurríki. Hún stefnir samt að því
að læra meira á víóluna.
Stærsti draumur þessarar hæfi-
leikaríku stúlku er að verða söng-
kona þegar hún er orðin stór. „Þeg-
ar ég komst í útvarpið rættist
helmingur af draumnum mínum; að
fá að syngja í útvarpi.“
Halldóra Björg kveðst vera mikið
jólabarn. „Ég var farin að hlakka
til jólanna í sumar og hlustaði
stundum á jólalög þá. Það gerist
líka allt á jólunum; ég á afmæli og
systir mín á afmæli og svo eru ára-
mótin.“
Jólabarn sem samdi jólalag
Tíu ára með lag
í úrslitum Jólalaga-
keppni Rásar 2
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Haraldur Ægir Guðmundsson, faðir Halldóru Bjargar, segir að
dóttir hans hafi ein samið laglínuna og textann við jólalagið.
Það eina sem hann aðstoðaði hana við var að pikka upp
nóturnar í laglínunni og síðan spilaði hann undir.
„Halldóra Björg hefur samið fleiri lög og fyrsta lagið
sem hún samdi þegar við komum heim finnst mér alveg
frábært. Við höfum oft spilað það saman en ekki gert
opinbert því stefnan er hjá Halldóru að útsetja það lag
og taka upp og senda í forkeppni Söngvakeppni Sjón-
varpsins. Draumurinn er að fá Jóhönnu Guðrúnu til
að syngja það en hún er í uppáhaldi,“ segir Har-
aldur.
Halldóra Björg er mikill evróvisjónaðdáandi. „Ég
var líklega mesti aðdáandi keppninnar í Austurríki,“
segir hún og brosir.
Mikill evróvisjónaðdáandi
Jóhanna
Guðrún
Lagahöfundur Halldóra Björg verður tíu ára í vikunni en hún á lag í úrslitum Jólalagakeppni Rásar 2.
SÖNGVAKEPPNI SJÓNVARPSINS NÆST Á DAGSKRÁ