Morgunblaðið - 11.01.2014, Page 6
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Átak aðila vinnumarkaðarins í að
halda niðri verðlagi, í tengslum við
nýgerða kjarasamninga, heldur
áfram að skila árangri. Fleiri fregnir
berast af fyrirtækjum sem hafa hætt
við hækkanir, ákveðið lækkun eða eru
að endurskoða sína verðlagningu.
Jafnframt eru verkalýðsfélögin farin
að senda frá sér ályktanir, þar sem al-
menningur er hvattur til að sniðganga
þau fyrirtæki sem hækkað hafa hjá
sér verð.
Henný Hinz, hagfræðingur á hag-
deild ASÍ, segir viðbrögðin mjög góð
við því bréfi sem sent var til fyrir-
tækja sem boðað höfðu hækkun um
og eftir áramótin.
Hætta við hækkun eða lækka
Tilkynningar komu frá N1, Em-
messís, Kaupfélagi Skagfirðinga, Víf-
ilfelli og Bílastæðasjóði Reykjavíkur-
borgar, þar sem hækkanir voru
dregnar til baka, og Nói-Síríus ætlar
að draga úr sínum hækkunum. Eins
og fram kom í Morgunblaðinu í gær
hafa fyrirtæki á borð við Góu, Mat-
fugl, Flúðasveppi, Hagkaup og Bónus
tilkynnt að þau muni ekki hækka verð
eða jafnvel lækka verð, eins og versl-
anakeðjurnar síðasttöldu. Þá boðuðu
Fóðurblandan, Lífland og Bústólpi
lækkun á fóðri í gær.
Fram kemur í tilkynningu ASÍ frá í
gær að áfram verði send bréf til
þeirra fyrirtækja sem hafi hækkað
eða ætli að hækka hjá sér verð. Þau
sem ekki bregðist við áskoruninni
muni lenda á „svörtum lista“ sem
birtur verður eftir helgina.
Spurð hvort ASÍ sé með þessum
hætti að hvetja neytendur til að snið-
ganga þau fyrirtæki sem hafa hækk-
að verð segir Henný:
„Ef fyrirtækin gefa okkur engin
viðbrögð lítum við svo á að þau standi
við sína hækkun. Þetta er okkar leið
til að upplýsa neytendur, þeir hafa þá
valið um að beina sínum viðskiptum
annað. Okkur finnst það grundvallar-
atriði að upplýsa um þau fyrirtæki
sem ætla ekki að taka þátt í þessari
tilraun með okkur, að halda verðbólg-
unni niðri. Við munum beita öllum
ráðum til þess, enda mikið undir.“
Ábendingum um hækkanir og
lækkanir er hægt að koma á framfæri
á vefsíðunni vertuaverdi.is.
Ragnheiður Héðinsdóttir, for-
stöðumaður matvælasviðs hjá Sam-
tökum iðnaðarins, segist almennt
ekki vera hlynnt þeirri aðferð að
hvetja fólk til að sniðganga þau fyr-
irtæki sem hækkað hafa verð fyrir
sína vöru og þjónustu. Nauðsynlegt
sé að kynna sér í hverju tilviki hvað
liggur að baki slíkum ákvörðunum.
Ragnheiður segir Samtök iðnaðar-
ins líkt og Samtök atvinnulífsins hafa
hvatt sína félagsmenn til að halda aft-
ur af hækkunum eins og mögulegt sé
og flestir hafi orðið við því. Aðstæður
séu hins vegar mismunandi hjá fyr-
irtækjum og í einhverjum tilfellum
hafi hækkanir verið óumflýjanlegar
vegna t.d. mikillar hækkunar á hrá-
efniskostnaði og öðrum aðföngum.
Allir standi í lappirnar
Nokkur verkalýðsfélög funduðu á
fimmtudagskvöldið um nýgerðan
kjarasamning og ályktuðu í kjölfarið.
Þar er í öllum tilvikum lýst mikilli
óánægju með þær verðhækkanir sem
fyrirtæki jafnt sem hið opinbera hafa
boðað. Hvetja félögin launafólk til að
fylgjast vel með verðhækkunum og
sniðganga þau fyrirtæki og verslanir
sem grípa til hækkana. Þetta eru Fé-
lag vélstjóra og málmtæknimanna
(VM), Þingiðn, félag iðnaðarmanna í
Þingeyjarsýslum og Verslunar-
mannafélag Suðurlands.
Í ályktun VM eru verðhækkanirn-
ar fordæmdar. Til að forsendur kjara-
samninga haldi; verðbólga verði lítil
og kaupmáttur aukist sé mikilvægt að
allir standi í lappirnar og haldi aftur
af verðhækkunum.
Fleiri fyrirtæki bregðast við
áskorun um að hækka ekki
Verkalýðsfélög hvetja launafólk til að sniðganga þau fyrirtæki sem hækka verð
Morgunblaðið/Kristinn
Kaupmáttur ASÍ og Samtök atvinnulífsins berjast af hörku gegn verðhækk-
unum og neytendur senda æ fleiri ábendingar um hækkanir í verslunum.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014
66,7%
hækkun á vörslugjaldi á verðbréfa-
reikningi í Landsbankanum.
3%
hækkun á ferðum Herjólfs.
24%
hækkun á vegabréfum.
14,3%
hækkun á árskorti í World Class.
7%
hækkun á sælgæti frá Freyju.
20%
hækkun á Firby-tölvuleikfangi hjá
verslun Toy’s R Us.
3,2%
hækkun á útvarpsgjaldi.
11,2%
hækkun á línuleigu hjá Mílu.
14,2%
hækkun á áskrift að Stöð 2 Sport.
10%
hækkun á stakri sundferð fullorð-
inna í sundlaugum Reykjavíkur.
10%
hækkun á sorphirðugjöldum
hjá Reykjavíkurborg
25%
hækkun á innritunargjaldi
í háskóla í eigu ríkisins.
‹ DÆMI UM HÆKKANIR ›
»
Skeljungur lækkaði síðdegis í gær
verð á dísilolíu og vélaolíu um þrjár
krónur lítrann og bensínlítrann um
eina krónu. Einar Örn Ólafsson, for-
stjóri Skeljungs, segir að lækkunina
megi rekja til styrkingar krónunnar
og þróunar á heimsmarkaði. Skelj-
ungur hafi ekki verið að lækka
vegna þeirrar umræðu sem er uppi
um verðlagsmál fyrirtækja, enda sé
álagning olíufélaga það lítill hluti af
heildarverði eldsneytis.
Önnur olíufélög höfðu í gærkvöldi
ekki lækkað verð hjá sér en með
sinni lækkun fór Skeljungur nær
verðlagningu keppinautanna. Yfir-
leitt er V-Power bensín Skeljungs
um tveimur krónum dýrara en 95
okt. bensín hinna félaganna.
Ríkið hækkaði olíugjaldið um ára-
mótin um 3,1% og fór það í ein-
hverjum tilvikum beint út í verð-
lagningu olíufélaganna.
Skeljungur hefur ekki hækkað
verð á öðrum vörum í sínum versl-
unum, eða á annarri þjónustu. „Við
erum að þrýsta á okkar birgja að
halda aftur af sér í hækkunum,“ seg-
ir Einar Örn.
Eggert B. Guðmundsson, forstjóri
N1, segir félagið elta heimsmark-
aðsverðið hverju sinni og fylgjast
með genginu, þannig að allar verð-
breytingar séu fljótar að skila sér
inn í verðlagið. N1 hafði boðað verð-
hækkun fyrir þjónustu smurstöðva
og hjólbarðaverkstæða en ákvað að
draga það til baka.
„Við ákváðum að verða við áskor-
unum um að hækka ekki, þrátt fyrir
uppsafnaða þörf. Aðföng hafa hækk-
að í verði og þjónusta verið aukin.
Við höfum fjölgað hjá okkur bifvéla-
virkjum og hækkað þjónustustigið.
Þessu hefur fylgt aukinn kostnaður.
En við vonum að samningarnir verði
samþykktir og menn haldi sig við
það plan sem lagt var upp með,“ seg-
ir Eggert.
Skeljungur fór nær hinum
Lækkaði dísilolíulítra um þrjár krónur Ekki hækkað
verð á annarri þjónustu N1 dregur verðhækkun til baka
Morgunblaðið/Kristinn
Eldsneyti Stór liður í útgjöldum
heimilanna er eldsneyti á bílinn.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Verslanir eru farnar að boða lækk-
un á verði einstakra vörutegunda,
eins og Hagkaup og Bónus á þeim
vörum sem fluttar eru beint inn frá
birgjum erlendis. Kristinn Skúla-
son, framkvæmdastjóri Krónunnar,
segir að þar á bæ sé verið að fara
yfir stöðuna og boðar hann „útspil“
eftir helgina í svipaða veru.
„Við ætlum að sporna gegn öll-
um verðhækkunum eins og við get-
um, neytendum til hagsbóta. Þeir
eru vel með á nótunum og spá eðli-
lega mikið í verðlagningu. Við höf-
um ekki verið að velta þessum
hækkunum frá birgjum út í verð-
lagið og reynt að þrýsta á þá að
hækka ekki. Á meðan sú vinna er í
gangi viljum við leyfa þeim að
njóta vafans,“ segir Kristinn, og er
ánægður með þá umræðu sem
komin er upp í þjóðfélaginu. Hún
hafi orðið til þess að fyrirtækin sitji
á sér og hugsi sinn gang upp á
nýtt. „Vonandi verður það til þess
að hækkanir ganga almennt til
baka,“ segir hann.
Skoðunargjald gæti lækkað
Meðal þeirra fyrirtækja sem
hækkuðu verð á þjónustu sinni um
áramótin er Frumherji, sem hækk-
aði verð á bifreiðaskoðunum um
3,8% að jafnaði. Einstök gjöld
hækkuðu um 6-7%. Verð fyrir aðra
þjónustu, eins og fyrir ökupróf,
skipaskoðanir, mælaþjónustu og
fleira, hækkaði ekki.
Orri Hlöðversson, fram-
kvæmdastjóri Frumherja, segir
stjórn félagsins hafa ákveðið að
endurskoða þessa ákvörðun í ljósi
umræðunnar í þjóðfélaginu. Leitað
verði leiða til að draga sem allra
mest úr áður boðaðri hækkun.
„Það er inni í myndinni að þetta
gangi til baka að mestu, en ég get
ekki upplýst hve mikið það verður,
því meira því betra fyrir bíleig-
endur,“ segir Orri.
Hann segir hækkunina um ára-
mót skýrast af verðlagshækkunum
á síðasta ári og auknum rekstr-
arkostnaði.
Krónan boðar verðlækkun
Frumherji endurskoðar hækkun á skoðunargjaldi bíla sem varð um áramótin
Hækka ekki og lækka
» N1, Emmessís, Kaupfélag
Skagfirðinga, Vífilfell og Bíla-
stæðastjóður hafa dregið
hækkanir sínar til baka.
» Góa og Flúðasveppir hækka
ekki verð sinna vara.
» Hagkaup og Bónus lækka
verð fjölda vörutegunda og
Krónan íhugar slíkt hið sama.
» Nói-Síríus hefur dregið úr
áður boðaðri hækkun, verður
mest 7% í stað 9%.
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Í sal FÍ 15. Janúar, kl. 20:00
Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur fræðir
okkur um niðurstöður rannsókna á Eyfjallafjökuls- og
Grímsvatnagosum
Að loknu kaffihléi munu tvíburarnir Ævar og Örvar
Aðalsteinssynir ganga með okkur á Eyjafjallajökul,
Hrútfjallstinda og Sveinstind í Öræfajökli
Aðgangseyrir kr. 600, innifalið kaffi og kleinur
Allir velkomnir!
www.fi.is
Fræðslu- og
myndakvöld
Hvað höfum
við lært af go
sunum í Eyja
fjallajökli og
Grímsvötnum
?
Fjallgöngur á
Eyjafjallajöku
l, Hrútfjallstin
da og Sveinst
ind í Öræfasjö
kli