Morgunblaðið - 11.01.2014, Blaðsíða 28
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Tap á búsvæðum og fæði auk
ágangs manna hefur leitt til þess að
þremur af hverjum fjórum tegund-
um stórra rándýra í heiminum, þar
á meðal ljóna, úlfa og bjarna, fer nú
hnignandi. Meirihluti rándýra býr á
svæðum sem eru innan við helm-
ingur af fyrrverandi búsvæði þeirra
samkvæmt rannsókn sem birtist í
vísindatímaritinu Science.
Í þróuðum löndum eru flest rán-
dýr nú þegar útdauð en þegar litið
er til 31 tegundar stórra kjötæta
eiga þær einnig undir högg að
sækja í Amasonfrumskóginum,
Suðaustur-Asíu og Suður- og Aust-
ur-Afríku.
„Við erum að tapa stóru rándýr-
unum í heiminum. Búsvæði þeirra
eru að hverfa. Mörg dýranna eru í
útrýmingarhættu, bæði staðbundið
og á heimsvísu,“ segir William
Ripple frá Oregon-háskóla í Banda-
ríkjunum sem leiddi rannsóknina.
Gegna mikilvægu hlutverki
Hnignun rándýrategundanna
hefur víðtæk áhrif á vistkerfið.
Þannig leiddi til dæmis fækkun úlfa
og fjallaljóna í Yellowstone-þjóð-
garðinum í Bandaríkjunum til þess
að öðrum dýrum eins og elgjum og
dádýrum fjölgaði. Á yfirborðinu
gætu það virst góðar fréttir en vís-
indamennirnir komust hins vegar
að því að fjölgun þessara skepna
hafði slæm áhrif á gróður og trufl-
aði líf fugla og annarra smærri
dýra.
Á sama hátt hefur fjölgun ólífu-
bavíana í Afríku verið tengd við
fækkun ljóna og pardusdýra. Teg-
undin er nú meiri skaðvaldur við
uppskeru bænda og húsdýr en fílar.
Vísindamennirnir sem gerðu
rannsóknina segja hluta vandans
vera þá úreltu hugmynd fólks að
rándýr séu skaðleg og ógni öðru
dýralífi. Þeir segja að menn þurfi
að gera sér grein fyrir því flókna
hlutverki sem kjötæturnar gegni og
um leið virði þeirra í vistkerfinu.
Þörf er á alþjóðlegu átaki til þess
að vernda stóru rándýrategundirn-
ar svo að sambúð þeirra og manna
geti verið friðsamleg.
„Umburðarlyndi manna fyrir
þessum tegundum er lykilatriði í
verndun þeirra. Við teljum öll dýr
eiga ótvíræðan tilvistarrétt en rán-
dýrin veita einnig efnahagslega og
vistræna þjónustu sem fólk metur,“
segir Ripple.
AFP
Í hættu Rándýrategundir á borð við úlfa eru nú þegar svo gott sem útdauð-
ar í þróuðum löndum en þær eiga víðar verulega undir högg að sækja.
Stóru rándýrin eru að
hverfa úr heiminum
Þremur af hverjum fjórum stórum rándýrategundum fer
hnignandi Hefur slæm keðjuverkandi áhrif á vistkerfið
Mynd Baltas-
ars Kormáks,
„2 guns“, er í
48. sæti yfir
tekjuhæstu
kvikmyndir í
heiminum á
síðasta ári
samkvæmt
lista vefsíð-
unnar Box Of-
fice Mojo. Alls
halaði myndin
inn jafnvirði
um 15,4 millj-
arða króna á heimsvísu.
Á vefsíðunni kemur fram að áætl-
aður kostnaður við myndina og
kynningu hennar hafi verið jafn-
virði tæpra 11,7 milljarða króna.
Miðað við þær forsendur skilaði
myndin hagnaði upp á um 3,7 millj-
arða króna.
„2 guns“ á þó langt í land í
stærstu myndir ársins en það var ár
stórmyndanna í Hollywood sem
aldrei fyrr. Alls voru 26 myndir
frumsýndar sem kostuðu hundrað
milljónir dollara, jafnvirði um 11,7
milljarða króna, í framleiðslu eða
meira. Aldrei hafa jafnmargar svo
dýrar kvikmyndir verið fram-
leiddar á einu ári í Hollywood.
Stærsta mynd ársins var „Járn-
maðurinn 3“ frá Walt Disney sem
halaði inn jafnvirði 140 milljarða ís-
lenskra króna á heimsvísu. Þar á
eftir kom Universal-teiknimyndin
„Aulinn ég 2“ með jafnvirði 107
milljarða króna.
Í þriðja til fimmta sæti voru svo
myndirnar „Fast and the Furious
6“ frá Universal, „Skrímslaháskól-
inn“ frá Walt Disney og önnur
myndin um „Hungurleikana“ frá
Lionsgate en þær höluðu allar inn
meira en sem nemur 85 milljörðum
króna. kjartan@mbl.is
Mynd Baltasars sú
48. tekjuhæsta
HOLLYWOOD
Baltasar Kormákur
við tökur.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Michel Djotodia, forseti Mið-Afríku-
lýðveldisins, sagði af sér embætti á
fundi Afríkuríkja í Tsjad í gær. Allir
135 fulltrúar bráðabirgðaráðs lands-
ins voru mættir til fundarins í N’dja-
mena en forsætisráðherra Djotodia
féllst einnig á að segja af sér.
Leiðtogar Afríkuríkja boðuðu til
fundarins til þess að finna leiðir til að
binda enda á ofbeldisölduna sem
gengið hefur yfir landið að undan-
förnu. Um leið og þeir mættu til
Tsjad var fulltrúum bráðabirgða-
ráðsins skipað að hefjast handa við
tillögu um framtíð forseta landsins
sem hefur mistekist að stöðva blóð-
baðið þar. Hann hafði áður streist
við þrýstingi um að víkja til hliðar.
Átök kristinna og múslíma
Djotodia rændi völdum af Franco-
is Bozize í mars í fyrra ásamt Seleka-
uppreisnarher sínum og varð þar
með fyrsti múslíminn til að gegna
embætti forseta Mið-Afríkulýðveld-
isins en meirihluti íbúa þar eru
kristnir.
Í kjölfarið hófust blóðug átök á
milli trúarhópa sem urðu til þess að
um fimmtungur þjóðarinnar hefur
flúið heimili sín. Sameinuðu þjóðirn-
ar hafa varað við því að ástand
mannúðarmála í landinni sé alvar-
legt en margir flóttamannanna hafa
hafst við í búðum þar sem aðstæður
eru langt frá því heilsusamlegar, að
því er kemur fram í frétt breska rík-
isútvarpsins BBC.
Djotodia segir
af sér embætti
Mistókst að lægja ofbeldisöldu
Forseti Djotodia (t.v.) féllst á að
segja af sér á fundinum í Tsjad.
Þúsundir hafa fallið
Samkvæmt samkomulagi sem
Afríkuleiðtogar komu á í fyrra átti
bráðabrigðastjórn landsins að velja
tímabundinn leiðtoga landsins þar til
kosningar yrðu haldnar á þessu ári.
Þau völdu Djotodia formlega í apríl.
Djotodia leysti upp Seleka-sam-
tökin formlega en vopnaðar sveitir
þeirra hafa engu að síður haldið
áfram að myrða og ræna.
Á móti stofnuðu kristnir lands-
menn sjálfsvarnarsveitir sem nefn-
ast anti-balaka. Seleka-hóparnir eru
mun betur vopnaðir, þungavopnum
og vélbyssum, en sjálfsvarnarsveit-
irnar eru aðallega vopnaðar sveðj-
um, hnífum, spýtum og einstaka
byssum. Þúsundir manna hafa fallið í
voðaverkum beggja fylkinga.
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 02.01.14 - 08.01.14
1 2 Iceland Small WorldSigurgeir SigurjónssonAlmanak Háskóla Íslands 2014Þorsteinn Sæmundsson /
Gunnlaugur Björnsson
5 MýrinArnaldur Indriðason 6
7 Tíminn minn Dagbók 2014Björg Þórhallsdóttir 8
10 Þegar kóngur komHelgi Ingólfsson9 SumarlandiðGuðmundur Kristinsson
4 Sjálfstætt fólkHalldór Laxness3 Almanak Hins íslenskaþjóðvinafélags
Jólasveinarnir 13
Brian Pilkington
Úlfshjarta
Stefán Máni