Morgunblaðið - 11.01.2014, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur vakið athygli yfirmanna
þinna með frammistöðu þinni. Einhver á eft-
ir að koma þér skemmtilega á óvart.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er hverjum manni nauðsynlegt að
vera einn með sjálfum sér öðru hverju og
láta aðra um að halda um stjórnvölinn.
Sýndu þolinmæði.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Haltu áfram að koma skipulagi á
hlutina bæði á heimilinu og í vinnunni. Taktu
eftir því hvað hugarfar þitt skiptir miklu.
Spáðu í það hvert þig langar að stefna.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ættir að reyna að hvíla þig eitt-
hvað í dag, því þú hefur satt að segja geng-
ið ansi nærri þér. Varastu alla áhættu í fjár-
málum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Sumir dagar eru gjöfulli en aðrir og
þessi færir þér ýmis tækifæri. Kannski
slærðu til og kaupir gjöf handa ástvini. Eða
öfugt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Fólk skilur ekki enn þinn kristaltæra
stíl. Taktu þér tíma og þú munt græða mest
á því sjálf/ur. Þú þarft ekki að gera ráð fyrir
öllum í áætlunum þínum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ekki slaka á þótt vel gangi, haltu þínu
striki og láttu hlutina komast á skrið. Vertu
viss um að þessar samræður eigi sér stað.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Samræður um viðkvæm mál-
efni ganga ekki sem skyldi í dag. En nú ertu
í miðjunni og veist hvað þarf til að komast í
mark.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú verður ekki lengur undan því
vikist að taka ákvörðun varðandi starfsvett-
vang. Sýndu varkárni í peningamálum og
ekki eyða um efni fram einungis til þess að
skemmta þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Sumt fólk fær þig til að finnast
þú geta sleppt fram af þér beislinu og gefið
þig augnablikinu á vald. Farðu gætilega í
fjármálum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur góðan tíma til að vinna
mikið og skemmta þér. Fjölskyldulífið er í
fyrirrúmi hjá þér. Mundu að annað fólk er
jafn metnaðargjarnt og kappsfullt í starfi og
þú.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert í essinu þínu núna og gengur
auðveldlega í augun á fólki án þess að
leggja nokkuð á þig. Hafðu auga á smáatrið-
unum því þau geta vegið þungt. Sinntu því
skyldum þínum af kostgæfni.
Á þrettándanum barst „lífs-
lokavísa“ frá Páli Imsland, – „fyrst
menn eru farnir að lýsa eftirmálum
sínum á Leir,“ segir hann:
Þegar mínu lífi lýkur
lagður verð í blauta mold
laus við mein og manna flíkur.
Maðkar narta í fúið hold.
Ekki hugguleg tilhugsun
kannski, – en „raunsætt hjá þér
Páll“ skrifar Fía á Sandi og bregður
upp bjartari hlið:
Þegar endar öl og sex
og ónýtt verður hold
upp af því ég veit að vex
vænsta tré úr mold.
Höskuldur Jónsson hélt áfram að
spinna:
Eftir rjóma, öl og kex
og ýmsa fína lesti:
Oná leiði voru vex
vínviðurinn besti.
Kristbjörg Freydís Steingríms-
dóttir sendi Fíu lífslokavísu:
Lifna mun nú í Leirsins hlóðum
listfenginn andi blæs að glóðum
færist í leikinn fjör og kraftur
Fía er loksins komin aftur.
Stefán Vilhjálmsson skrifaði í
Leirinn að við þessa síðustu vísna-
lotu hefðu rifjast upp fyrirmæli
Hjörleifs á Tjörn um grafskrift sína
sem Stefán hefði lært fyrir nokkr-
um árum:
Á lokasíðu í lífs míns bók
skal letruð þessi hending:
Ævi hans var „dirty joke“,
dauðinn „happy ending“.
Stefán segir að sér hafi lítt orðið
misdægurt yfir hátíðir, – „þótt
stundum hafi átt við „greinar-
merkjalimran“ okkar Gunnars
mágs sem til varð forðum yfir keti á
glóðum“:
Hann spurði mig: „Er þetta ætt?
Er þetta bitastætt?“
„Svei mér,“ ég segi,
„sé þetta eigi
svo gott að ég geti hætt!“
Stefán segist reyndar vera að láta
nudda úr sér einhverja hnúta og
hafa gefið nuddaranum svofellda
áskorun:
Hér á bekknum ligg sem lík,
á lúnum vöðvum slaka;
á þínu nuddi þörf er rík
þú skalt fast á taka.
Síðast lét Hermann Jóhannesson
til sín heyra: „Heilir og sælir leir-
fuglar. Ég reyni að hugsa bara
mátulega mikið um vistaskiptin:“
Þegar endar mitt bjástur og baks
verð ég bljúgur og meir eins og vax,
því Dauðinn er strix
og þá duga engin trix,
en ég vona að það verði ekki strax.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vistaskiptin og vínviðurinn hreini
Í klípu
„ÉG GLEYMI OFT AÐ TAKA MYNDIR,
ÞÓTT ÉG SÉ MEÐ MYNDAVÉLINA Á MÉR.
MIG VANTAR BETRA MINNISKORT.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HÚN FÉKK SVARTA BELTIÐ
Í FYRSTA TÍMANUM.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera enn heilluð
hvort af öðru.
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTA
STAFRÆN
FRAMKÖLLUN Brúðkaupsafmæli
ATSJÚ!
KANNSKI AÐEINS
OF MIKILL
PIPAR?
ATSJÚ!
ATSJÚ!
ATSJÚ!SMAKKAÐU ÞETTA OG
SEGÐU MÉR HVAÐ ÞÉR
FINNST.
NEI, HVAÐ ER ÞETTA?
TÓMT FISKABÚR?
KANNSKI UXU FISKINUM FÆT-
UR OG HANN LABBAÐI BURT!
BEINT
Í KALD-
HÆÐNI.
HÆTTU AÐ BORÐA GULL-
FISKANA MÍNA, GRETTIR!
OG NÚ
ÓRÁÐS-
BULLIÐ.
UPPGERÐ
UNDRUN.
Jólatréð stendur enn í stofu Vík-verja. Og það sem meira er að
hann skammst sín ekkert fyrir það.
Hann ætlar hreinlega að bjóða fólki
í bröns í dag í jóladótið. Vegna þess
að það er markmið (ekki áramóta-
heit þar sem honum líkar ekki við
þetta heiti) á nýju ári að vera ögn
slakari. Ekki stressa sig yfir óþarfa
hlutum. Þegar tími gefst til ratar
jóladótið niður í kassann.
x x x
Öllu er best slegið á frest, þaðgerir það einhver annar fyrir
rest. Þó þessi speki sé stundum
nokkuð góð þá er þetta þó ekki al-
veg viðkvæðið sem Víkverji fer eft-
ir. Heldur verður hann að við-
urkenna að öll kvöld undanfarið
hefur hann verið út um hvippinn og
hvappinn. Því er óþarfi að láta jóla-
dótið fara fyrir brjóstið á sér þegar
stigið er fram úr á morgnana. Held-
ur kveikir Víkverji á jólatrénu og
dáist að því hversu fallegt það er.
x x x
Það er líka aðeins annað sem hanner að prófa. Það er prófraun á
sambýlismanninn. Í þetta skipti ætl-
ar Víkverji ekki að vera fyrri til og
rjúka í að taka niður jóladótið (eins
og ávallt hefur verið undanfarið).
Þess í stað verður farið í þetta þeg-
ar bæði hafa tíma, „nenna“. Af ein-
hverjum ástæðum telur Víkverji að
jólatré í miðri stofu muni ekki fara
jafn mikið fyrir brjóstið á karlpen-
ingnum. Þannig að þetta verður líka
ákveðið próf á Víkverja að tuða
ekki.
x x x
Eftir á að hyggja þá telur Víkverjiað síðasta atriðið í Áramóta-
skaupinu nái að stórum hluta að
endurspegla sambúð karls og konu.
Tekið skal fram að Víkverji hefur
hvorki reynslu af sambúð með sama
kyni, né þekkir hann það vel til
slíkra sambanda að hann geti fullyrt
út frá því. Tuð kvenmanns í karl-
manni yfir hlutum sem hann þarf að
gera í stað þess að gera það sjálf.
x x x
En í þessum téða „skets“ þá eruhjónin að reyna að bæta sig eins
og við viljum innst inni öll – verða
betri í dag en í gær. víkverji@mbl.is
Víkverji
Treystu Drottni af öllu hjarta en
reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit.
(Orðskviðirnir 3:5)