Morgunblaðið - 11.01.2014, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.01.2014, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Umsókn Vesturgarðs ehf. um leyfi til að byggja þrjár hæðir ofan á Kjör- garð á Laugavegi 59 í Reykjavík, var synjað á fundi byggingarfulltrúa nú í vikunni. Að sögn Gunnars Indriðasonar, framkvæmdastjóra Vesturgarðs, er hugmyndin að gera þar skrifstofu- og þjónusturými. Húsið er fjórar hæðir sem stendur en sótt var um að bæta 5., 6. og 7. hæð við. Að sögn Gunnars var einnig sótt um leyfi til að bæta hæðum við Laugaveg 59 árið 2006. Slíku var einnig hafnað á þeim tíma. „Þá var þessu hafnað vegna þess að nýting- arhlutfall lóðarinnar var of hátt. Það helgast af því að lóð aðkomunnar að Kjörgarði telst ekki tilheyra bygg- ingunni, heldur Hverfisgötu 80,“ segir Gunnar. Nú var beiðninni hins vegar synjað á þeim forsendum að ekki væri gert ráð fyrir hækkun hússins í deiliskipulagi. Gunnar segir að með umsókninni hafi verið lagðar fram teikningar. „Þar má sjá að ekkert skuggavarp verður af byggingunni. Við vísuðum á Landsbankahúsið við Laugaveg þar sem þar er einnig inndregin hæð til varnar skugga. Við erum með húsið allt útleigt og gætum þess vegna leigt út frekara rými ef það væri leyft,“ segir Gunnar. Munu reyna áfram Hann segir að áfram verði umleit- anir til þess að reyna að finna lausn á málinu með yfirvöldum. ,,Borgaryf- irvöld hafa sjálf lagt til þéttingu byggðar og betri nýtingu á lóðum,“ segir Gunnar. Synjað um leyfi til að byggja ofan á Kjörgarð Morgunblaðið/Ómar Kjörgarður Umsókn um leyfi til að bæta þremur hæðum við Laugaveg 59 var hafnað á fundi byggingarfulltrúa. Útsendingum Rásar 2 á þættinum Næt- urvaktinni á föstudags- og laugardags- kvöldum hefur verið hætt og þess í stað verða endurfluttir þættir sem voru á dag- skrá á síðasta áratug á föstudagskvöldum og þættir frá því í fyrra á laugardags- kvöldum. Á föstudagskvöldum frá klukkan 22.00 til miðnættis verða sérvaldir þættir af „Geymt en ekki gleymt“ endurfluttir, segir í fréttatilkynningu frá RÚV. Þættirnir voru á dagskrá Rásar 2 á árunum 2002-2008 en í þeim tók Freyr Eyjólfsson fyrir eina plötu úr íslensku dægurtónlistarsögunni, spil- aði lög af henni auk þess að spjalla við tónlistarmennina á bak við plöt- urnar. Á laugardagskvöldum mun Rás 2 síðan endurflytja þættina „Árið er... íslensk dægurlagasaga í tali og tónum,“ sem voru á dagskrá Rás- arinnar á síðasta ári. Umsjónarmaður þáttanna var Gunnlaugur Jónsson. Dagskrárefni frá síðasta áratug kemur í stað Næturvaktarinnar á Rás 2 nazar.is · 519 2777 ÍSLENSKIR BARNAKLÚBBAR Á 0 KR. Swim a’hoy! Hér lærir barnið að synda í sumarfríinu Dance Stars Núna geta bæði þú og börnin lært að dansa í fríinu! Sjóræningja- klúbbur Barnaklúbbur með sjóræningjaskemmtun Chillout Klúbbur Griðarstaður ungling- anna með allskonar afþreyingu FJÖLSKYLDUPARADÍS Okkar uppáhaldsströnd Pegasos Resort og Pegasos Royal eru á uppáhaldsströndinni okkar, sem er frábær fyrir börnin. Sundlaugargarður Pegasos Royal er byggður upp sem sjóræningjakastali en íslenskir barnaklúbbar og fararstjórn er á hótelunum. Ís er í boði allan daginn og úrvalið í „allt innifalið“ er ótrúlegt. Allt innifalið frá154.000,- Börn undir 16 ára aldri frá 84.000,-  BEINT FLUG FRÁ KEFLAVÍK TIL TYRKLANDS KANNSKI BESTA STRÖND MIÐJARÐARHAFSINS! 100% ALLT INNIFALIÐ LÚXUSFRÍ FYRIR ALLA! www.fyrirtaekjakaup.is www.investis.is investis@investis.is TÆKIFÆRIN liggja í atvinnulífinu Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík, s. 546 1100 SÉRFRÆÐINGAR Í MIÐLUN FYRIRTÆKJA OG REKSTRAREININGA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.