Morgunblaðið - 11.01.2014, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014
Taíland-heilsuferðmeðGló
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Við kynnum einstaka heilsu- og matarmenningarferð
til Taílands í samvinnu við Gló. Ferðin samanstendur af
tveimur áfangastöðum í Taílandi, höfuðborginni Bangkok og
paradísareyjunni Koh Samui. Markmið ferðarinnar er að kynna
ferðalanga fyrir menningu landsins í gegnum taílenska matargerð
og heilsusamlegan lífstíl í stórbrotinni suðrænni náttúru.
28. september - 12. október
Fararstjórar: Páll Steinarsson & Solla á Gló
Kynningarfundur verður haldinn 13. janúar kl. 20:00
í húsakynnum veitingastaðarins Gló, Engjateigi 19, 105 Reykjavík.
sp
ör
eh
f.
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Alþingi kemur saman á þriðju-dag eftir jólafrí og þá bíða
þingmanna án efa mörg verkefni.
Þó að ekki sé ástæða til að hvetja
til aukinna afkasta á Alþingi er
þó full ástæða til að hvetja til
lagabóta og lagahreinsunar, ekki
síst eftir lagasetningu síðasta
kjörtímabils.
Eitt af því sem ástæða er til aðlagfæra eru lög um fjöl-
miðla, 38/2011, en setning þeirra
fól í sér mikil afskipti ríkisins af
starfsemi fjölmiðla og marg-
víslegan óþarfan kostnað fyrir
fjölmiðla.
Dæmi um þennan kostnað erkrafa um skýrsluskrif fyrir
Fjölmiðlanefnd með ýmiskonar
upplýsingum
um fjölmið-
ilinn og dag-
skrá hans og
umfjöllunar-
efni, til
dæmis um
„birtingarmyndir kynjanna,
þ.m.t. hlutfall karla og kvenna í
hópi viðmælenda í fréttum og
fréttatengdu efni“.
Til viðbótar þeim kostnaði semá fjölmiðlana leggst við að
sinna ýmsum verkefnum sem lög-
in fela þeim er tugmilljóna kostn-
aður við Fjölmiðlanefnd, sem hef-
ur eftirlit með fjölmiðlunum.
Það eftirlit er í meira lagivafasamt. Segja má að þegar
best lætur sé það óþarft en það
skapar hættu á óeðlilegum af-
skiptum ríkisins af sjálfstæðum
og frjálsum fjölmiðlum, sem ekki
síst þurfa að geta fjallað óhindr-
að um starfsemi ríkisins.
Af þessum sökum ætti ríkið aðleggja þetta eftirlit af og
spara um leið eigin fjármuni og
annarra. Afnám þessa eftirlits er
einföld lagabreyting en þörf.
Lagabætur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 10.1., kl. 18.00
Reykjavík 1 slydda
Bolungarvík 4 skýjað
Akureyri 3 slydda
Nuuk -6 skafrenningur
Þórshöfn 6 alskýjað
Ósló -1 léttskýjað
Kaupmannahöfn 6 skúrir
Stokkhólmur -2 skýjað
Helsinki 1 skýjað
Lúxemborg 3 skýjað
Brussel 5 léttskýjað
Dublin 6 skúrir
Glasgow 6 skúrir
London 10 skýjað
París 6 alskýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 7 skýjað
Berlín 7 skýjað
Vín 7 léttskýjað
Moskva 2 skúrir
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 15 heiðskírt
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 11 skýjað
Aþena 12 heiðskírt
Winnipeg -7 snjókoma
Montreal -7 snjóél
New York 0 slydda
Chicago 0 þoka
Orlando 24 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:04 16:09
ÍSAFJÖRÐUR 11:39 15:44
SIGLUFJÖRÐUR 11:23 15:25
DJÚPIVOGUR 10:40 15:31
Fjórir voru fluttir á slysadeild Land-
spítala eftir að eldur kom upp í íbúð
fjölbýlishúss í Hraunbæ á öðrum tím-
anum í fyrrinótt. Allir voru útskrif-
aðir undir morgun og varð engum
meint af. Talið er að eldurinn hafi
kviknað út frá kerti en rannsókn á
upptökum eldsins stendur yfir.
„Líkamlega erum við í lagi en and-
lega erum við bara í rúst. Íbúðin er
ónýt og allt inni í henni er ónýtt. Við
stöndum bara á götunni á nærbux-
unum,“ sagði Sædís Alma Sæbjörns-
dóttir, einn af íbúum íbúðarinnar í
samtali við mbl.is í gær, en móðir Sæ-
dísar varð eldsins var og vakti hana
og barnsföður hennar. Þurfti barns-
faðir Sædísar að fara aftur inn í íbúð-
ina til þess að bjarga móður hennar
og hundinum. Auk Sædísar, barns-
föðurins og móðurinnar var sjö ára
frænka Sædísar líka í íbúðinni en hún
slapp fyrst út. Á Sædís Alma von á
barni hinn 10. mars næstkomandi.
Íbúðin er mikið skemmd, auk þess
reykur og sót barst inn í aðrar íbúðir
hússins.
Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir
að fólkið sem var inni í íbúðinni hafi
verið stálheppið að komast út og í
raun hafi það verið með ólíkindum því
gríðarlegur hiti var inni í íbúðinni.
Kona sem býr á hæðinni fyrir ofan
sagðist í samtali við blaðamann hafa
vaknað um klukkan tvö við hróp úr
íbúðinni fyrir neðan. Þegar hún leit
fram á gang var þar kolsvartur og
þykkur reykur og komst hún því
hvorki lönd né strönd. Ekki þótti
óhætt að vera úti á svölum og voru
hún – og dóttir hennar – því við bað-
herbergisgluggann meðan á slökkvi-
starfi stóð. Var reykur kominn inn á
baðherbergið þegar hún komst þaðan
út. Aðrir íbúar á sömu hæð fóru út á
svalir og voru þar þar til eldur hafði
verið slökktur og óhætt þótti fyrir
fólkið að yfirgefa fjölbýlishúsið. Íbúð-
ir á neðri hæðum voru hins vegar
rýmdar um leið og slökkvilið kom á
vettvang.
Starfsmenn Rauða krossins komu
á staðinn og veittu íbúum hússins að-
stoð, meðal annars áfallahjálp. Flest-
ir íbúar fengu svo að snúa aftur til
síns heima undir morgun.
Morgunblaðið/Þórður
Brunnið Íbúðin er mikið skemmd og sjá mátti ummerki um eldinn á gangi
fjölbýlishússins. Þannig bráðnaði reykskynjari í loftinu og sót lá yfir öllu.
Sluppu naumlega
úr brennandi íbúð
Telja eld hafa kviknað út frá kerti
Aukablað alla
þriðjudaga