Morgunblaðið - 11.01.2014, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014
STÓRÚTSALA
Vertu vinur okkar á facebook
Engjateigur 5•
Sími 581 2141•
www.hjahrafnhildi.is•
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
St. 36-52
Ótrúlegt buxnaúrval!
Gallabuxur, sparibuxur, stretsbuxur og leggings...
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is
STÓRÚTSALAN HAFIN
VETRARYFIRHAFNIR - SPARIKJÓLAR -
PEYSUR - BUXUR - BOLIR OG M.FL.
Ævintýri Alls eru um níutíu unglingar sem þátt taka í Fenris-verkefninu.
Malín Brand
malin@mbl.is
K
rakkarnir í leikhópnum
Sögu eru þátttakendur
í verkefninu sem nefn-
ist einfaldlega Fenris
sumarið 2014. Fenris
er norrænt unglingaleikhús undir
stjórn hins danska Jóakims sem
einnig leikstýrir danska leikhópnum
Ragnarock. Unglingaleikhúsið varð
til fyrir tæpum þrjátíu árum vegna
tengsla sem komið var á milli sex
unglingaleikhópa á Norðurlöndum í
tilefni af alþjóðaári unglinga á veg-
um Sameinuðu þjóðanna.
Áramótin í Finnlandi
Sigríður Valdís Bergvinsdóttir
er talskona íslenska hópsins sem
samanstendur af átta hraustum
krökkum. Hún er jafnframt móðir
eins drengsins í hópnum. Krakk-
arnir eru allir fimmtán ára nema
einn, en sá er fjórtán ára.
„Þetta snýst um það að nor-
rænu þjóðirnar láti vita hvort þær
vilja vera með í þessu og Ísland og
Danmörk eru einu löndin sem hafa
verið með í öllum Fenris-verkefn-
unum,“ segir Sigríður.
Í ár eru auk Íslands Færeyjar,
Finnland, Danmörk og Noregur
með í Fenris.
Íslensku krakkarnir átta fóru
ásamt leikstjóranum sínum til Finn-
lands í lok desembermánaðar. Þar
voru þau yfir áramótin. „Þetta er
alltaf þannig í Fenris-verkefninu að
krakkarnir hittast í jólafríinu og
páskafríinu. Þannig að þessir fimm-
tán ára krakkar upplifðu menningu í
öðru landi um áramót og það var
mikil lífsreynsla,“ segir Sigríður.
Þau voru þó ekki ein á ferð því
leikstjórinn sér um krakkana, fer
með þeim út og gætir þess að þau
sinni æfingum. Hér heima æfa þau
tvisvar í viku en oftar þegar allur
hópurinn hittist.
Allir til Íslands
Vanalega samanstendur ís-
lenski hópurinn af 12 ungmennum
en í ár eru þau aðeins átta. Það verð-
ur því ærið verk fyrir foreldrana að
útvega öllum hópnum sem kemur að
utan gistingu og mat í sumar þegar
Unglingaleikhúsið
Fenris skrifar leikrit
Alls taka um níutíu krakkar frá Norðurlöndum þátt í leiklistarverkefninu Fenris.
Þetta er í sjötta skipti sem verkefnið er unnið en það fyrsta var árið 1985. Átta
hress ungmenni á aldrinum 14-15 ára taka þátt í verkefninu og búa þau á Akur-
eyri. Þau vörðu áramótunum í Finnlandi með Fenrisfélögum og halda því næst
til Danmerkur um páskana þar sem hópurinn hittist, semur og æfir leikrit.
Finnland Íslenski hópurinn var hjá Finnunum yfir áramótin þar sem stilltir
voru saman strengir fyrir leikritið en hér má sjá þau finnsku á sviði.
Möguleikhúsið er atvinnuleikhús
sem var stofnað árið 1990. Það
hefur sérhæft sig í leiksýningum
fyrir börn og unglinga. Á vefsíðu
leikhússins má sjá eitt og annað úr
sögu þess sem spannar tæpan ald-
arfjórðung.
Flestar sýningar Möguleikhúss-
ins fara fram í leik-, grunn- og
framhaldsskólum landsins.
Aðrar sýningar hafa til dæmis
verið í Tjarnarbíói og nú á sunnu-
dagskvöldið klukkan 20 verður ein-
leikurinn um Jón Steingrímsson og
Skaftárelda sýndur í Tjarnarbíói.
Verkið var frumsýnt í nóvember og
fékk prýðilega dóma. Uppselt hefur
verið á allar sýningar verksins og
því eflaust einhverjir sem vilja
nota tækifærið og bregða sér í
Tjarnarbíó. Möguleikhúsið hefur
unnið ötullega að því að kynna ís-
lenska menningu á erlendri grundu
með leikferðum og heimsóknum á
alþjóðlegar hátíðir. Á undanförnum
árum hefur leikhúsið farið í ellefu
leikferðir til útlanda og fengið tíu
erlenda leikhópa í heimsókn. Það
má því með sanni segja að starf
þess hafi verið viðurkennt á al-
þjóðavettvangi. Allt mögulegt um
Möguleikhúsið á www.moguleikhus-
id.is.
Vefsíðan www.moguleikhusid.is
Fjölbreytt Möguleikhúsið hefur sett upp fjölda verka eins og Langafa prakkara.
Ýmislegt á fjölunum
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Sérstakir Vínartónleikar verða haldn-
ir í Salnum í Kópavogi á morgun,
sunnudag, klukkan 13 en Töfrahurð
stendur fyrir tónleikunum.
Töfrahurð hefur síðastliðin fimm ár
haldið fjölda tónleika sem sér-
staklega eru sniðnir að yngstu kyn-
slóðinni.
Í þetta skiptið verður Töfrahurð-
inni hrundið upp með hvelli og
sprengjum, enda nýtt ár og tilefni til
að fagna. Vínartónlistin mun hljóma
og dansinn duna. Tónskáldin Johann
Strauss og Madame Pirruette verða
aðalstjörnur tónleikanna og leikur
Skólahljómsveit Kópavogs á hljóð-
færin.
Frá klukkan 12.30 verður boðið upp
á barnafordrykk á torginu, sprell og
flugelda. Gestir eru hvattir til að
mæta í sínu fínasta pússi á þessa
tónleika.
Trúðar frá Sirkus Íslandi skemmta
tónleikagestum í forsalnum fyrir tón-
leika en einnig verður boðið upp á
andlitsmálun.
Boðið verður upp á danskennslu og
öllum velkomið að dansa vínarvals.
Töfrahurðinni hrundið upp með sprengjum og hvelli
Vínartónleikar Töfrahurð heldur tón-
leika í Salnum á morgun klukkan 13.
Vínartónleikar fyrir börn og
foreldra með sprellfjörugu ívafi
Háskólanemar
efna til hvatn-
ingargöngu í
dag klukkan 14
og verður
gengið frá Al-
þingi að
Stjórn-
arráðinu.
Tilgangur
göngunnar er að hvetja ríkisstjórnina
til að gera betur, vanda til verka og
endurskoða hvaðan peningar eru
sóttir á erfiðum tímum.
Það eru nemarnir Hjördís Alda
Hreiðarsdóttir, Kristín Þóra Péturs-
dóttir, Dóra Björt Guðjónsdóttir og
Alexander Ephrussi sem standa fyrir
göngunni. Þau hvetja fólk til að mæta
með luktir, stjörnuljós eða kyndla
sem tákn vonarneista um breyttar
áherslur.
Hvatningarganga
Háskólanemar
efna til göngu