Morgunblaðið - 11.01.2014, Síða 24

Morgunblaðið - 11.01.2014, Síða 24
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Velta erlendra greiðslukorta var 86,3 milljarðar króna á fyrstu ellefu mán- uðum síðasta árs. Til samanburðar var hún núvirt 78 milljarðar sömu mánuði 2012, 68,5 milljarðar 2011 og 55,5 milljarðar á árinu 2010. Samanlögð velta erlendra greiðslukorta alla tólf mánuði ársins á tímabilinu 2000 til 2012 er sýnd hér til hliðar og eru tölur núvirtar m.t.t. breytinga á vísitölu neysluverðs. Tal- an fyrir árið 2013 á hins vegar við fyrstu ellefu mánuði ársins, enda liggja desembertölurnar ekki fyrir. Velta erlendra greiðslukorta var 3 milljarður í desember 2011 og 4 millj- arðar í sama mánuði 2012, séu töl- urnar núvirtar á sama hátt. Má því ætla að samanlögð velta ársins 2013 verði ríflega 90 milljarðar, þegar veltan í desember kemur í ljós. Grafið hér til hliðar sýnir einnig veltu innlendra greiðslukorta á Ís- landi og erlendis og veltu innlendra debetkorta á Íslandi. Þann fyrirvara verður að gera við debetkortatöl- urnar að frá og með ársbyrjun 2007 eru debetkort fyrirtækja ekki talin með. Árin 2007 til 2013 eru því samanburðarhæf í þessu efni. Samkvæmt upplýsingum frá Hag- stofu Íslands er ekkert slíkt rof í hin- um þremur kortaflokkunum og eru tölurnar þar því samanburðarhæfar allt tímabilið, frá 2000 til 2013. Aukin velta fyrstu 11 mánuðina Sé eingöngu horft til fyrstu ellefu mánaða áranna frá hruni kemur í ljós að kortaveltan er á uppleið. Velta innlendra greiðslukorta á Ís- landi á því tímabili var núvirt 230,4 milljarðar 2009 en 262,2 milljarðar í fyrra. Hún var til samanburðar nú- virt 287,4 milljarðar 2007 og 277,8 milljarðar 2008, en það voru metár. Velta innlendra greiðslukorta er- lendis hefur einnig aukist en þar ber að hafa í huga að gengi krónunnar gaf mikið eftir í kjölfar efnahags- hrunsins. Veltan í þeim flokki var tæpur 51 milljarður 2009 en tæpir 72 milljarðar í fyrra, á fyrstu ellefu mánuðum hvors árs. Hún var til sam- anburðar 79,8 milljarðar 2008 og 64,8 milljarðar 2007. Velta innlendra greiðslukorta erlendis var því meiri fyrstu ellefu mánuði ársins 2013 en sömu mánuði 2007, en kaupmátt- urinn er mun minni. Má þar nefna að evran kostaði 93,8 kr. 10. janúar 2007 en 169,5 kr. sama dag í fyrra. Þá hefur velta innlendra debet- korta á Íslandi á fyrstu ellefu mán- uðum ársins aukist úr 177,1 milljarði 2009 í 208,6 milljarða 2013. Það er tæplega 18% aukning en til fróðleiks var mannfjöldinn 307.672 einstaklingar 1. janúar 2007 en 321.857 manns 1. janúar 2013. Lands- mönnum fjölgaði þannig um 4,6%. Vöxtur innlendrar kortaveltu á hvern landsmann er því ekki jafn mikill og samanburður á veltutölum milli ára gefur til kynna. Hvað erlendu kortaveltuna varðar sýnir grafið hér fyrir ofan að veltan fyrstu ellefu mán- uði ársins í fyrra er meiri en allt árið 2012. Eins og fram kom í fréttaskýr- ingu í Viðskipta- blaði Morgun- blaðsins sl. fimmtudag hefur vöxtur ferðaþjón- ustunnar haldið uppi hagvexti. Vöxtur fyrstu níu mánuði síðasta árs reyndist meiri en ýmsir greining- araðilar spáðu. Þar má nefna Ís- landsbanka sem spáði í september sl. að 1,7% hagvöxtur yrði á árinu 2013. Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka, segir að- spurður að hagspáin hafi að mestu gengið eftir, nema hvað vöxtur þjón- ustuútflutnings, sér í lagi ferðaþjón- ustu, hafi verið vanmetinn. Spurður hvað Greining Íslands- banka áætli nú að hagvöxtur í fyrra verði mikill segir Ingólfur að líklega verði vöxturinn á bilinu 2-3%. Hins vegar sé spá um 2,6% hagvöxt 2014 og 2,7% hagvöxt 2015 óbreytt. Fjármálafyrirtækið Analytica spáði í ágúst sl. 1-2% hagvexti á árinu 2013. Yngvi Harðarson, fram- kvæmdastjóri Analytica, segir þetta líklega hafi falið í sér vanmat á vext- inum. Meginskýringin sé sú að vægi ferðaþjónustunnar af verðmæta- sköpuninni hafi verið vanmetið. „Vöxtur ferðaþjónustunnar var farinn að minnka í ágúst sl. Að teknu tilliti til árstíðarsveiflu hafði ferða- mönnum þá fækkað. Það hefur snúist við og nú er þeim að fjölga ört aftur,“ segir Yngvi sem telur að nú sé líklegt að hagvöxtur árið 2013 verði að lík- indum ríflega 2,5%. Stígandi í versluninni Sturla Gunnar Eðvarðsson, fram- kvæmdastjóri Smáralindar, merkir hægan upptakt í einkaneyslu. „Það hefur verið jákvæð stígandi í versluninni. Það er misjafnt eftir búðum eins og gengur og gerist. Al- mennt eru kaupmenn þokkalega sáttir við síðasta ár. Þeir eru líka al- mennt bjartsýnir fyrir þetta ár. Út- sölur í janúar fara vel af stað. Gesta- tölur í húsið eru töluvert betri en í fyrra. Nýtingin hjá okkur er góð og öll rými eru í útleigu í Smáralind. Við gætum leigt út meira rými en höfum engin áform um að stækka húsið. Hvað varðar verslun erlendra ferðamanna jókst veltan af endur- greiðslu Tax Free um 100% milli ára 2012 og 2013. Ég held þó að það sé ekki meginskýringin á aukningu í verslun. Við sjáum ferðamenn ekki í þeim mæli og hefur sést í miðbæ Reykjavíkur. Þeim erlendu ferða- mönnum fer þó fjölgandi sem leggja leið sína í Smáralind. Þeir hlaupa lík- lega orðið á tugum þúsunda á ári.“ Erlendu kortin veltu 86 milljörðum  Velta erlendra greiðslukorta á Íslandi var rúmir 86 milljarðar á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs  Vöxtur ferðaþjónustu á þátt í meiri hagvexti í fyrra en spáð var  Upptaktur er í einkaneyslunni Kortavelta og ferðaþjónusta Þróunin frá aldamótum í milljónum króna* Heimild: Hagstofa Íslands. Útreikningar eru blaðamanns. *Veltan 2000 til 2012 er núvirt m.t.t. breytinga á vísitölu neysluverðs. Meðaltal hvers árs í vísitölunni er borið saman við vísitöluna í nóvember sl. en tölur fyrir 2013 eiga við fyrstu 11 mánuði ársins. **Fyrstu 11 mánuðir ársins. *** Fyrirtækjakort eru ekki meðtalin frá 1. 1. 2007. 220.000 200.000 180.000 240.000 260.000 280.000 300.000 320.000 340.000 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013** 30.000 20.000 10.000 40.000 50.000 60.000 70.000 80.000 90.000 Kreditkort, heimili innanlands (v.ás) Greiðslukort erlendis (h.ás)Debetkort, heimili innanlands (v.ás) Erlend greiðslukort innanlands (h.ás) *** Yngvi Harðarson Ingólfur Bender Sturla G. Eðvarðsson 24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014 Skoðaðu úrvalið á NOTADIR.BRIMBORG.IS Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7030 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 Verð: 4.150.000 kr. Mazda6 Vision LTH25 Skráður maí 2013, 2,0 bensín, sjálfsk. Ekinn 33.000 km. Verð: 3.290.000 kr. Ford Focus Trend Edition ONK73 Skráður apr. 2013, 1,6TDCi bensín, beinsk. Ekinn 21.000 km. Tilboð: 1.590.000 kr. Citroën C8SX UFK00 Skráður ágúst 2007, 2,0i bensín, sjálfsk. Ekinn 83.000 km. Ásett verð: 1.990.000 kr. Tilboð: 1.650.000 kr. Honda CR-V Advance BN987 Skráður júní 2006, 2,0i bensín, sjálfsk. Ekinn 149.000 km. Ásett verð: 1.790.000 kr.Við tökum notaðabílinn þinn uppíá hagstæðu verðiog þú getur fengiðmilligjöfina lánaða- möguleiki á engriútborgun. Fylgstu með á FACEBOOK Notaðir bílar - Brimborg Nýlegir bílar hafa munlægri rekstrarkostnað eneldri bílar. Viðhaldið erminna og eyðslan lægri.Kynntu þér málið! LÆKKAÐU REKSTRARKOSTNAÐINN Mikið úrval FINNDU BÍLINN ÞINN Á NOTADIR.BRIMBORG.IS TÖKUM ALLAR GERÐIR BÍLA UPPÍ! nýlegra bíla Tilboðsbílarnir fara beint á Facebook! Í ábyrgð Í ábyrgð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.