Morgunblaðið - 11.01.2014, Page 27
FRÉTTIR 27Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014
Aðeins 0,196% af 7,7 milljörðum
fást upp í kröfur í búið Hreiðar
Már Sigurðsson ehf., félag Hreið-
ars Más, fyrrverandi forstjóra
Kaupþings banka. Nema heimtur
því um 15 milljónum króna.
Þetta kemur fram í frumvarpi til
úthlutunar úr búinu sem verður
kynnt á skiptafundi eftir tvær vik-
ur. Hreiðar Már var eigandi fé-
lagsins en stærsti kröfuhafi er Ar-
ion banki auk lítillar kröfu frá
Tollstjóra.
Félagið var stofnað kringum
hlutabréfakaup Hreiðars í Kaup-
þingi, en við fall bankans urðu
bréfin verðlaus. Í apríl 2011 var fé-
lagið lýst gjaldþrota af héraðs-
dómi.
Samkvæmt frétt í Morgun-
blaðinu í desember 2009 tapaði
eignarhaldsfélag Hreiðars Más 7,9
milljörðum árið 2008, en heildar-
skuldir þess voru 7,3 milljarðar á
þeim tíma. Félagið hélt utan um
eignarhluta Hreiðars í Kaupþingi,
en hann hafði fært alla hlutabréfa-
eign sína yfir í félagið árið 2006.
Hagnaðist um 325 milljónir
Sérstakur saksóknari ákærði
Hreiðar og fleiri lykilstjórnendur
Kaupþings í fyrra fyrir markaðs-
misnotkun og umboðssvik. Hreiðar
Már Sigurðsson ehf. er þar til
skoðunar, en Hreiðar setti hluta-
bréf sem hann fékk vegna kaup-
rétta beint inn í félagið.
Fjármagnaði bankinn kaupin að
fullu og var hagnaður Hreiðars af
þeim viðskiptum tæplega 325 millj-
ónir. Ákært var í því máli í mars á
síðasta ári, en fyrirtaka verður
næstkomandi þriðjudag.
thorsteinn@mbl.is
Heimtur úr búi Hreið-
ars Más aðeins 0,2%
Félag stofnað um hlutabréfakaup forstjóra Kaupþings
Morgunblaðið/Kristinn
Hlutabréfaviðskipti Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaup-
þings, færði hlutabréfaeign sína í bankanum yfir í eignarhaldsfélag 2006.
7,7 milljarða þrot
» Kröfur í búið Hreiðar Már
Sigurðarson ehf., félag í eigu
fyrrverandi forstjóra Kaup-
þings, nema 7,7 milljörðum.
» Heimtur úr búinu nema
0,196%, eða um 15 milljónum.
MP banki hefur
selt 26,8% hlut
sinn í rekstr-
arfélaginu
GAMMA til nokk-
urra annarra
hluthafa
GAMMA, nýs
hluthafa úr hópi
starfsmanna og
félagsins sjálfs.
GAMMA er
rekstrarfélag verðbréfasjóða sem
Gísli Hauksson hagfræðingur og
Agnar Tómas Möller verkfræðingur
stofnuðu sumarið 2008. Starfsmenn
GAMMA áttu fyrir 73,2% hlut í fé-
laginu. Söluverð hlutarins er um 200
milljónir, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins.
Sigurður Atli Jónsson, forstjóri
MP banka, segir í tilkynningu að sal-
an sé liður í að einfalda eignasafn
bankans. Gísli Hauksson, forstjóri
GAMMA, segir söluna ýta frekar
undir óhæði félagsins. „Kaupin á
eignarhlut MP banka eru mjög já-
kvæð fyrir GAMMA og styrkja sér-
stöðu félagsins sem óháðs fjármála-
fyrirtækis. Vöxtur félagsins hefur
verið mikill á síðustu árum og rekst-
urinn góður. Við horfum björtum
augum fram á veginn og þökkum
MP banka fyrir samstarfið.“
MP selur
hlut sinn í
GAMMA
Söluverðið
um 200 milljónir
GAMMA Gísli
Hauksson.
● Hagnaður smásölurisans Haga á
þriðja ársfjórðungi 2013/14 nam 800
milljónum króna, en heildarvörusala var
tæplega 18 milljarðar. Á fyrstu níu mán-
uðum rekstrarársins var hagnaður
Haga, sem meðal annars eiga og reka
verslanirnar Bónus og Hagkaup, 2,7
milljarðar og heildarsala 55,7 milljarðar
króna.
Framlegð fyrstu níu mánaðanna var
24,2% og handbært fé félagsins 2,5
milljarðar. Eigið fé félagsins hefur
hækkað um rúma 2 milljarða og er nú
10,9 milljarðar. Eiginfjárhlutfall Haga
var 41% í lok tímabilsins. Þetta kemur
fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir
og skatta (EBITDA) nam 4.236 millj-
ónum, samanborið við 3.546 milljónir
króna árið áður. Hagnaður eftir skatta
jókst um 34% frá fyrra tímabili og nam
2.773 milljónum króna.
800 milljóna hagnaður
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
++,-.,
+/+-,+
+0.-1+
2+-2,3
+4-41
+.-4./
+24-11
+-+++.
+.4-43
+14-,.
++.-03
+/2-04
+0.-42
2+-52,
+4-/0,
+.-/5+
+24-/+
+-++1
+./-5.
+1/-++
2++-54,.
++.-52
+/2-11
+04-+5
2+-544
+4-/,2
+.-/45
+2/-2.
+-++45
+./-/
+1/-11
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Nýjar hagstæðar lausnir í innréttingum og innihurðum.
Nútímaleg hönnun, glæsilegt útlit og
örugg gæði frá fagmönnum.
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
VERKTAKAR – HÚSBYGGJENDUR