Morgunblaðið - 11.01.2014, Side 32

Morgunblaðið - 11.01.2014, Side 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014 Ínýliðinni viku tyllti ég mér við borð með málfræðingum sem fóru yfirframburð útvarpsþula og undruðust að ekki skyldi meiri spurn eftir þulsem kynni sérlega vel með framgómmælt lokhljóð að fara í erlendumorðum. Aðdáunarvert þótti hvernig Agnus Dei hljómaði í munni hans. Með mér sátu fleiri sem höfðu sérstaka unun af því að hlýða á svona hálærða fræðinga sem gætu talað hiklaust um framgómmælt lokhljóð sem hluta af sínu daglega tungutaki. Við óttuðumst að kannski tilheyrðum við minnihlutahópi sem gæti horfið úr litrófi mannlífsins án þess að nokkur yrði þess var, líkt og sum telja að fara megi að skaðlausu fyrir hlustendum Ríkisútvarpsins. Í vikunni heyrði ég líka ungskáld lýsa því í Virkum morgnum í útvarpinu að í ljóðum sínum reyndi það að fanga nútímann í tungutak- inu, ekki yrkja á einhverju eldra ritmáli úr gullkistum hinna gömlu góðu daga heldur beita orðfæri af vörum ungmenna samtímans. Ég heyrði ekki betur en skáldið teldi að það væri ætlast til þess og jafnvel talið eftirsóknarvert að ljóð væru ort inn í ritmálshefð fyrri kynslóða. Frá því að hugmyndin um hinn skapandi og frumlega nútímahöfund tók að þróast, í kjölfar þess að Snorri Sturluson ruddi brautina með Eglu, hefur það orðið helsta keppikefli ungskálda á hverjum tíma að endurnýja tungutak skáld- skaparins. Ekki að kveða og yrkja inn í hefðina, líkt og þau hugsuðu sem kváðu eddukvæðin og ortu dróttkvæðin, heldur að endurnýja hefðina í anda sínýrra tíma. Hver kynslóð hefur þurft að forðast að klæða kvæði sín í „vaðmálspils sögunnar“ eins og Jón Thoroddsen yngri komst að orði um Flugur sínar árið 1922. Tungutakinu er enginn greiði gerður með stöðnun. Á öllum tímum seilast skapandi skáld út fyrir hefðina til umhverfis síns, í leit að hugmyndum og end- urnýjun orðfærisins. Hætt er til dæmis við að íslenskunni yrði orða vant ef hún hefði ekki notið latínunnar í þúsund ár til að geta nefnt öll nýmæli mannlífsins eftir landnámsöld – en nýjasta náttúruverndarhugsun stjórnvalda er mótuð af þeirri hugmynd að ástæðulaust sé að vernda náttúruna nema hún sé ósnortin af manna völdum frá landnámi þótt slíka náttúru sé hvergi að finna á landinu. Ef sama verndunarhugsun ætti að tíðkast í málpólitíkinni gætum við ekki talað um dömur sem lesa og skrifa bréf í skólum, ættum engin orð um fíkjur og olíu, asna, djöfla, dóna og rusta, né lampa, múr og stræti, svo nokkur tökuorð séu nefnd úr nýrri meistararitgerð Matteo Tarsi frá háskólanum í Pisa á Ítalíu um 172 tökuorð af latneskum uppruna í íslensku. Matteo kynnti rannsókn sína á málstofu Árnastofnunar í vikunni, þar sem fólki hefði ekki orðið bumbult þótt talið bærist að framgómmæltum lokhljóðum – en ansi mörg gætu lent í vand- ræðum að finna nýjar rásir að hlusta á þegar endalausar endurtekningarnar úr gullkistunni í safni útvarpsins verða óbærilegar. Af fágun, endurtekn- ingu og nýsköpun Tungutak Gísli Sigurðsson Morgunblaðið/Ómar Fyrir allmörgum mánuðum heyrði ég í fyrstasinn raddir um að aðild launþegafélaga aðstjórnum lífeyrissjóða væri farin að hafa áhrifá afstöðu þeirra til kjaramála og rekstrar- afkomu fyrirtækja. Þar sem lífeyrissjóðirnir væru orðnir stórir aðilar að rekstri fyrirtækja í landinu skipti afkoma þeirra máli fyrir ávöxtun á því fé sem lífeyrissjóðirnir ávaxta fyrir hönd félagsmanna sinna með kaupum á hlutabréfum í fyrirtækjum sem skráð eru á markaði. Þessir hagsmunir hefðu áhrif á viðhorf stjórna launþega- félaganna. Raunar eru sumir þeirrar skoðunar að í sam- skiptum verkalýðsfélaga og lífeyrissjóða séu sjóðirnir sá aðili sem hafi undirtökin. Með öðrum orðum að áhrifin eða afleiðingarnar af því að verkalýðsfélög og vinnuveit- endur hefðu ruglað saman reytum sínum í lífeyrissjóðum hefðu haft þau áhrif að verkalýðsfélögin væru opnari fyrir því að semja um hófsamari launahækkanir sem væru lík- legri til að tryggja betur afkomu fyrirtækjanna og þar með ávöxtun á fé lífeyrissjóðanna í þeim. Þessar umræður og vangavelt- ur komust á nýtt stig í athygl- isverðum Kastljóssþætti í rík- issjónvarpinu fyrir nokkrum dögum. Þar benti Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsleiðtogi á Akranesi, á tvennt. Í fyrsta lagi hélt hann því fram að stjórnarlaun í stórum lífeyrissjóðum hefðu frá árinu 2011 hækkað um 51-88%. Í öðru lagi vakti hann athygli á því að tilkynnt hefði verið um nýtt kaupaukakerfi hjá N1, sem fært gæti lykilstjórnendum allt að 19 milljónir króna, og spurði hverjir væru helztu eigendur þess olíufélags. Svar hans var að það væru lífeyrissjóðir og þar með félagsmenn þeirra. Í sömu andrá nefndi hann Icelandair Group og sagði að hið sama ætti við um helztu eigendur þar. Það væru lífeyrissjóðir. Það sem í þessum orðum Vilhjálms Birgissonar felst er bersýnilega að hann er að spyrja þeirrar spurningar, hvort lífeyrissjóðir eigi í ljósi mikils eignarhlutar í flestum stórum fyrirtækjum, sem skráð eru á markaði, að beita áhrifum sínum til þess að setja fyrirtækjunum ákveðnar starfsreglur sem m.a. komi í veg fyrir að þau ýti undir vaxandi launamun í landinu með kaupaukakerfum, sem vinsæl voru fyrir hrun. Það má snúa þessu við og segja að í þeim tilvikum, þegar lífeyrissjóðir eiga nánast ráðandi hlut í fyrirtækjum, beri þeir ábyrgð á slíkum launakerf- um. Nú má vel vera að fulltrúar atvinnuvegasamtaka í stjórnum lífeyrissjóðs séu tilbúnir til að bera ábyrgð á slíku en málið verður flóknara fyrir fulltrúa launþega- samtaka í sömu sjóðum. Eru þeir tilbúnir til að taka á sig slíka ábyrgð og jafnvel þótt þeir sem einstaklingar teldu það skynsamlegt má spyrja hvort þeir hafi umboð til þess frá félagsmönnum í þeim launaþegafélögum sem að baki þeim standa til þess að axla ábyrgð á launastefnu fyrir- tækja á borð við N1 eða Icelandair sem verkalýðsleiðtog- inn á Akranesi nefndi. Þarna hefur Vilhjálmur Birgisson opnað á umræður sem ekki er auðvelt að sjá fyrir endann á. Í fyrsta lagi: Hafa fulltrúar lífeyrissjóða samþykkt á stjórnarfundum í viðkomandi fyrirtækjum slík kaup- aukakerfi? Hafi þeir gert það, höfðu þeir samráð við stjórnir þeirra félaga sem þeir eru fulltrúar fyrir? Í öðru lagi: Eiga verkalýðsfélög í krafti fulltrúa sinna í stjórnum lífeyrissjóða, sem eiga stóra hluti í fyrirtækjum, að hafa afskipti af slíkum ákvörðunum? Í eina tíð var það sjónarmið yfirgnæfandi hér að svo væri ekki. Þau viðhorf hafa verið að breytast úti í heimi, þar sem lífeyrissjóðir hafa í vax- andi mæli skipt sér af umdeildum ákvörðunum í fyrirtækjum sem þeir eiga hluti í. Í þriðja lagi: Eru þessi álitamál til marks um að núverandi fyrir- komulag á kjöri stjórna lífeyris- sjóðanna sjálfra sé orðið gersam- lega úrelt og eðlilegt að í þess stað kjósi sjóðfélagar sjálfir sína fulltrúa í stjórnir lífeyrissjóð- anna, sem mundi þýða, að hvorki félög atvinnurekenda né verkalýðsfélaga hefðu þar nokkuð um að segja? Af hverju skyldu atvinnurekendur eiga fulltrúa í stjórnum sjóðanna? Framlag þeirra í lífeyrissjóð starfs- manns er hluti af launakjörum starfsmannsins og þar með eign hans en ekki atvinnurekandans. Að auki vekja athugasemdir Vilhjálms Birgissonar um hækkanir á stjórnarlaunum hjá lífeyrissjóðunum spurn- ingar um hvort verkalýðsfélögin eiga að setja þær reglur að fulltrúar þeirra fái ekki aðrar launahækkanir en samið er um fyrir félagsmennina sem eiga sjóðina. Hér er um að ræða eitt stærsta mál sem komið hefur á borð verkalýðssamtakanna á Íslandi um mjög langt skeið. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, kvaðst ferðast mikið um landið til þess að heyra hljóðið í félagsmönnum verkalýðs- félaganna. Hefur hann rætt þessi mál á slíkum fundum? Mun hann ræða þau í kjölfarið á þessum sjónvarpsþætti? Hann sagði fátt í þættinum um þessi orð Vilhjálms. Auðvitað á að ræða þessi mál á fundum í verkalýðs- félögunum. Auðvitað á að ræða þessi mál á þingum Al- þýðusambands Íslands. Auðvitað eiga launþegasamtökin að marka sér stefnu og taka ákvörðun um í hverju af- skipti þeirra af málefnum fyrirtækja, sem sjóðirnir eiga stóra hluti í, eigi að vera fólgin. Það er rétt hjá Vilhjálmi Birgissyni að launþegar á Ís- landi eiga nú orðið í gegnum lífeyrissjóðina stóra hluti í stærstu fyrirtækjum landsins. Og er það ekki rétt skilið að stórir eigendur fyrirtækja hafi að öðru jöfnu áhrif á starfshætti þeirra og stefnu? Samspil verkalýðsfélaga, lífeyrissjóða og fyrirtækja Vilhjálmur Birgisson hefur opnað á umræður um eitt stærsta mál launþegahreyf- ingarinnar í langan tíma Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Þegar Göran Persson, leiðtogisænskra jafnaðarmanna og for- sætisráðherra í tíu ár, kom til Íslands strax eftir bankahrunið haustið 2008, gaf hann Íslendingum það ráð, sem Svíar höfðu fylgt í miklum erfiðleik- um 1991-1992, að snúa bökum saman og vinna sig út úr vandanum, en kjósa á eðlilegum tíma. Farin var önnur leið á Íslandi. Ráðherrar voru fyrst leidd- ir fyrir fjöldafundi, en síðan grýttir á götum og torgum úti, jafnframt því sem grímuklæddir menn hófu umsát- ur um heimili þeirra, og er það ljót saga. Ríkisstjórnin var hrakin frá völdum og kosið í flýti. Á einum fyrsta fjöldafundinum, í Háskólabíói 24. nóvember 2008, á Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáver- andi utanríkisráðherra, að hafa svar- að fyrir sig: „Þið eruð ekki þjóðin!“ En hún sagði í raun og veru: „Ég skil, að ýmsir hér í salnum vilja okkur burt. En ég er ekki viss um, að þeir, sem eru í salnum, séu þess umkomnir að tala fyrir þjóðina.“ Bauluðu þá nokkrir fundarmenn á hana, en klöppuðu hraustlega fyrir Þorvaldi Gylfasyni prófessor, sem setti fram margvíslegar kröfur í nafni þjóðar- innar. Gat Þorvaldur talað fyrir þjóðina? Annað kom á daginn. Í kosningunum 2013 bauð Þorvaldur sig fram, af því að ráðamenn hefðu ekki hlustað á hann og þá um leið á þjóðina. Fram- boð hans hlaut samtals 4.658 atkvæði eða 2,46% greiddra atkvæða. 97,54% þeirra, sem greiddu atkvæði, afþökk- uðu leiðsögn Þorvaldar. Á aðra mæli- kvarða var hlutfallið, sem Þorvaldur fékk, enn lægra, 1,96% af öllum á kjörskrá vorið 2013 og 1,45% af öllum Íslendingum þá á lífi. Morgunblaðið smíðaði eftir þing- kosningarnar 1949 hugtakið „þjóðina á Þórsgötu eitt“, en þar á bæ var skrifstofa Sósíalistaflokksins, sem setti fram margar kröfur í nafni þjóð- arinnar, þótt mikill meiri hluti Ís- lendinga hafnaði stefnu flokksins. At- hugasemd Ingibjargar Sólrúnar á fundinum í Háskólabíói var sama eðl- is. Þjóðin er ekki þúsund manna fundur fólks í geðshræringu. Þjóðin er miklu djúprættara og víðfeðmara hugtak en svo, að skrifstofufólk í Þórsgötu eða ræðumenn í Há- skólabíói nái utan um það: Það skír- skotar til þeirrar rösklega milljónar manna heildar, sem búið hefur á Ís- landi í ellefu hundruð ár, hugsað, tal- að og skrifað á íslensku og átt sálu- félag. Hugtakið vísar til varanlegra og viðurkenndra hagsmuna þessarar heildar á framfarabraut. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð „Þið eruð ekki þjóðin!“ Funahöfði 1 | 110 Reykjavík Sími 567 4840 www.bilo.is | bilo@bilo.is Funahöfði 1 | 110 Reykjavík Sími 580 8900 | bilalind.is Vantar alltaf fleiri bíla á skrá! Fylgstu með okkur á facebook Fylgstu með okkur á facebook TOYOTA LAND CRUISER 120 GX 33“ breyttur 03/2006, ekinn 117 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur. Verð 4.490.000. Raðnr.311025 NISSAN Patrol GR Common Rail Árgerð 2009, ekinn 213 Þ.KM, bíll í toppviðhaldi, dísel, sjálfskiptur. Rnr.151224 FORD E350 ECONOLINE 44“ breyttur Árgerð 1992, ekinn aðeins 72 Þ.Mílur, dísel, sjálfskiptur. Gríðar- lega fallegt eintak! Verð 5.390.000. Raðnr.251603 TOYOTA Yaris Hybrid Árgerð 2013, ekinn 3 Þ.KM, ben- sín/hybrid, sjálfskiptur, eyðsla 5l, bakkmyndavél. Verð 2.990.000. Rnr.151213 3. 99 0. 00 0 Valdir bílar á 100% láni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.