Morgunblaðið - 11.01.2014, Side 55

Morgunblaðið - 11.01.2014, Side 55
MENNING 55 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014 Dagar undrabarnsins eru á enda nefnist fyrsta sýning ársins í gall- eríinu ÞOKU sem opnuð verður í dag kl. 16 með gjörningi sýnenda, myndlistarkonunnar Rakelar McMahon og ljóðskáldsins Berg- þóru Snæbjörnsdóttur. Þær hafa starfað saman undir nafninu Wund- erkind, eða Undrabarn, frá árinu 2011. Hófu þær þá að velta vöngum yfir tilurð og tilveru undrabarna og hvaða áhrif það hefði á persónueig- inleika þeirra að alast upp sem slík. „Það er einkennilegt að hugsa til þess að sum börn fæðast með undra- verða hæfileika framyfir aðra og mynda með sér kunnáttu á við full- orðna á ákveðnum sviðum mjög ung að aldri. Þessir hæfileikar eru með- fæddir en vegna ákveðinnar pressu frá samfélagi samtímans að skara fram úr hafa margir foreldrar reynt að hafa áhrif á mótun barnsins er það er enn í móðurkviði. Það gera þeir meðal annars með því að spila fyrir fóstrið klassíska tónlist eða lesa fyrir það þyngri bókmenntir. Með því vonast foreldrarnir til að eignast sín eigin undrabörn. Orðið „prodigy“ kemur af latneska orðinu „prodigi- um“ sem þýðir meðal annars undur eða furðuverk. Önnur skilgreining á orðinu er fyrirboði einhvers ills en einnig skrímsli sem brýtur upp regl- ur náttúrunnar. Fyrr á öldum voru sum undrabörn talin andsetin og að mati Aristótelesar gat enginn talist snillingur án þess að á sama tíma teljast ögn brjálaður,“ segir m.a. í tilkynningu vegna sýningarinnar. Á sýningunni gefur að líta teikn- ingar eftir Rakel og textaverk eftir Bergþóru en með verkum sínum „kanna þær samfélagið út frá sjón- arhóli einstaklingsins, einveru innan þess og fáránleika og skoða einnig flökt milli einkalífs og gægjuþarfar, hrifningar og blætis, minnis og for- tíðarþrár,“ skv. tilkynningu. Í verk- unum sé leitast við að draga fram þverstæðurnar í mannlegu ástandi. Rakel og Bergþóra hafa átt í samtali í gegnum teikningar og texta og framið út frá því gjörninga í Reykja- vík, Berlín og Helsinki. Sýningin í ÞOKU er lokaþátturinn í þessu verkefni. ÞOKA er í kjallara Hríms hönn- unarhúss, Laugavegi 25. Lokaþátturinn í verkefni Wunderkind  Gjörningur framinn við opnun sýningar í ÞOKU í dag Undrabörn Kynningarmynd vegna sýningar Rakelar McMahon og Berg- þóru Snæbjörnsdóttur í ÞOKU, Dagar undrabarnsins eru á enda. Tónleikar til heiðurs nokkr- um af meisturum poppsög- unnar, m.a. Freddie Mercury og Elton John, verða haldnir á veitingastaðnum Ránni í Keflavík í kvöld 22.30. Tveir liðsmenn úr bresk-íslensku heiðurshljómsveitinni FX Tributes koma fram á tón- leikunum, þeir Gary Gould og Einar Vestmann en hljóm- sveitin er skipuð þremur Bretum og einum Íslendingi. Hljómsveitin hefur troðið upp á Englandi og á Spáni og flutt smelli stórmenna tónlist- arsögunnar á sérstökum sýn- ingum. Frekari fróðleik um FX Tributes má finna á fxtributes.com. Hressir Einar Vestmann og Gary Gould. Liðsmenn FX Tributes á Ránni 50.000 manns sóttu kvikmyndasýn- ingar í Sambíóunum á tíu dögum í lok desember í fyrra og fyrstu daga janúar, skv. tilkynningu frá fyrir- tækinu. Var þar með slegið met í aðsókn hjá Sambíóunum þar sem slíkur fjöldi hefur aldrei komið í bíóhúsin á jafnskömmum tíma. Í til- kynningu segir að landsmenn hafi alltaf verið duglegir að sækja kvik- myndahús yfir jól en aldrei jafn- duglegir og um síðustu jól. Sam- bíóin sýndu um jólin nýjustu kvikmyndina um Hobbitann, Disn- ey-teiknimyndina Frozen og nýj- ustu kvikmynd Martins Scorsese, The Wolf Of Wall Street. 700.000 gestir komu í fyrra í Sambíóin. Hobbitinn Önnur myndin um Hobbitann hefur verið gríðarvel sótt hér á landi. 50 þúsund bíó- gestir á tíu dögum HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS leikhusid.is ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið Englar alheimsins (Stóra sviðið) Lau 18/1 kl. 19:30 61.sýn Lau 25/1 kl. 19:30 aukas. Fös 7/2 kl. 19:30 71.sýn. Sun 19/1 kl. 19:30 aukas. Fim 30/1 kl. 19:30 Fim 13/2 kl. 19:30 72.sýn. Mið 22/1 kl. 19:30 62.sýn Fös 31/1 kl. 19:30 69.sýn Fim 23/1 kl. 19:30 63.sýn Fim 6/2 kl. 19:30 70.sýn. Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús. Þingkonurnar (Stóra sviðið) Mið 15/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 17/1 kl. 19:30 9.sýn Lau 1/2 kl. 19:30 11.sýn Fim 16/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 24/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 8/2 kl. 19:30 12.sýn Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. ÓVITAR (Stóra sviðið) Sun 12/1 kl. 13:00 25.sýn Sun 26/1 kl. 13:00 27.sýn Sun 9/2 kl. 13:00 Sun 19/1 kl. 13:00 26.sýn Sun 2/2 kl. 13:00 Sun 16/2 kl. 13:00 Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum! Pollock? (Kassinn) Sun 12/1 kl. 19:30 Fös 31/1 kl. 19:30 Lau 18/1 kl. 19:30 Lau 1/2 kl. 19:30 Vel skrifað verk og frábærir karakterar. Aukasýningar komnar í sölu! Englar alheimsins (Menningarhúsinu Hofi) Lau 11/1 kl. 15:00 Englar alheimsins í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í janúar! Karíus og Baktus (Kúlan) Lau 18/1 kl. 13:30 Sun 26/1 kl. 16:00 Sun 9/2 kl. 16:00 Lau 18/1 kl. 15:00 Sun 2/2 kl. 16:00 Sun 16/2 kl. 16:00 Síðustu sýningar fyrir jól - sýningar hefjast aftur í janúar. Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Hamlet – frumsýning í kvöld kl 20 Mary Poppins (Stóra sviðið) Sun 12/1 kl. 13:00 Fös 24/1 kl. 19:00 Sun 2/2 kl. 13:00 aukas Fös 17/1 kl. 19:00 Lau 25/1 kl. 13:00 Fim 6/2 kl. 19:00 aukas Lau 18/1 kl. 13:00 Sun 26/1 kl. 13:00 Fös 7/2 kl. 19:00 aukas Sun 19/1 kl. 13:00 Fim 30/1 kl. 19:00 Lau 8/2 kl. 13:00 aukas Mið 22/1 kl. 19:00 aukas Lau 1/2 kl. 13:00 aukas Sun 9/2 kl. 13:00 lokas Súperkallifragilistikexpíallídósum! Síðustu sýningar! Jeppi á Fjalli (Gamla bíó) Lau 11/1 kl. 20:00 Fim 16/1 kl. 20:00 Sun 19/1 kl. 20:00 Sun 12/1 kl. 20:00 Fös 17/1 kl. 20:00 Mið 15/1 kl. 20:00 Lau 18/1 kl. 20:00 Flytur í Gamla bíó í janúar vegna mikilla vinsælda. Síðustu sýningar! Hamlet (Stóra sviðið) Lau 11/1 kl. 20:00 frums Lau 18/1 kl. 20:00 4.k. Sun 26/1 kl. 20:00 7.k. Sun 12/1 kl. 20:00 2.k Sun 19/1 kl. 20:00 5.k. Fös 31/1 kl. 20:00 8.k. Mið 15/1 kl. 20:00 aukas Fim 23/1 kl. 20:00 6.k. Sun 2/2 kl. 20:00 Fim 16/1 kl. 20:00 3.k. Lau 25/1 kl. 20:00 aukas Frægasta leikrit allra tíma. Ný kynslóð, nýjir tímar, nýr Hamlet. Óskasteinar (Nýja sviðið) Fös 31/1 kl. 20:00 frums Fim 13/2 kl. 20:00 7.k Þri 25/2 kl. 20:00 15.k Lau 1/2 kl. 20:00 2.k Fös 14/2 kl. 20:00 aukas Fös 28/2 kl. 20:00 16.k Sun 2/2 kl. 20:00 3.k Lau 15/2 kl. 20:00 8.k Sun 2/3 kl. 20:00 17.k Þri 4/2 kl. 20:00 4.k Sun 16/2 kl. 20:00 9.k Þri 4/3 kl. 20:00 18.k Mið 5/2 kl. 20:00 aukas Þri 18/2 kl. 20:00 10.k Mið 5/3 kl. 20:00 19.k Lau 8/2 kl. 20:00 aukas Mið 19/2 kl. 20:00 11.k Lau 8/3 kl. 20:00 20.k Sun 9/2 kl. 20:00 5.k Fös 21/2 kl. 20:00 12.k Sun 9/3 kl. 20:00 21.k Þri 11/2 kl. 20:00 6.k Lau 22/2 kl. 20:00 13.k Mið 12/2 kl. 20:00 aukas Sun 23/2 kl. 20:00 14.k Glænýtt verk eftir Ragnar Bragason. Grátt gaman með ógæfufólki á leikskóla Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat, fyrrum aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands, mun á þessu ári veita efnilegum tónlistarmanni styrk til til framhalds- náms erlendis á skólaárinu 2014-2015. Veittur er einn styrkur að upphæð 1.000.000 kr. Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og framtíðaráform, sendist fyrir 15. mars nk. til formanns sjóðsins: Halldór Friðrik Þorsteinsson Pósthólf 8444, 128 Reykjavík. Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna verka eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda. Styrkur til tónlistarnáms MINNINGAR SJÓÐUR JPJ AÐGANGUR ÓKEYPIS ÁST OG HÖFNUN ARÍUR OG SÖNGLÖG ÚR ÝMSUM ÁTTUM HÁDEGISTÓNLEIKAR Í NORÐURLJÓSUM, HÖRPU ÞRIÐJUDAGINN 14. JANÚAR KL.12:15 ELMAR GILBERTSSON, TENÓR ANTONÍA HEVESI, PÍANÓ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.