Morgunblaðið - 11.01.2014, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 11.01.2014, Qupperneq 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014 Fyrir margt löngu sá égRagnar Kjartanssonhverfa ofan í líkkistu ogkyrja tregafullan lagstúf, síendurtekið um langa hríð eftir að lokið hafði verið neglt fast. Þetta var líklega með fyrstu gjörningum þessa fjölhæfa listamanns undir formerkj- um myndlistar, fluttur í Nýlistasafn- inu. Og enn óma tregatónar Ragnars í gjörningum sem vaxið hafa talsvert að umfangi. Í verkinu The Visitors, sem nú er sýnt í Kling og Bang gall- eríi, sést hvar Ragnar liggur að þessu sinni í baði með kassagítar, syngjandi endurtekið lag af trega- blandinni innlifun – en þess má geta að heiti verksins skírskotar til síð- ustu hljómplötu ABBA. Rómant- ískur söknuður er allsráðandi, ekki aðeins í texta lagsins heldur gefur umhverfið einnig til kynna gang tím- ans og fölnandi fegurð: baðkarið er gamalt og lúið, málning flagnar af veggjum. Listamaðurinn er þó ekki einn, í öðrum herbergjum hússins spila og syngja samtímis sjö aðrir tónlistarmenn, auk þess sem hópur fólks úti á veröndinni tekur undir í tónverkinu sem hefur hæga stígandi og endar með tragíkómískum hvelli til þess eins að byrja aftur og þannig koll af kolli (þar til gjörningurinn tekur enda). Tíminn líður en virðist þó standa í stað í merkingar- þrungnum hita augnabliksins. Tímanum í verki Ragnars er því á vissan hátt slegið á frest, ekki aðeins með því hvernig tónlistargjörning- urinn heldur í líðandina, sem áhorf- andinn lifir sig inn í, heldur birtist þessi togstreita einnig í innviðum hússins sem myndar svið tónlistar- gjörningsins. The Visitors er inn- setning sem samanstendur af níu skjámyndum, er veita mismunandi sjónarhorn á viðburðinn. Skjáirnir níu eiga samsvörun í níu rýmum; veröndinni og hinum ýmsu her- bergjum 19. aldar glæsivillu í New York-ríki, eða Rokeby-húsi hinnar auðugu bandarísku Astor-fjölskyldu. Afkomendurnir búa við krappari kjör en hafa leitast við að varðveita fjölskylduvilluna í óbreyttri mynd – eins og safn í hægfara niðurníðslu – og í örlæti sínu hafa þeir jafnframt opnað dyr hússins fyrir listsköpun og viðburðum í samtímanum. Þessi íburðarmikla villa, smekk- lega og fagurlega búin táknum vest- rænnar hámenningar, skírskotar þannig til evrópskrar og bandarískr- ar sögu, og þar með einnig til lista- sögunnar. Þess má geta að villan stendur skammt frá Hudson-ánni, sem er miðlæg í sögu bandarískrar 19. aldar málaralistar. Hver skjá- mynd, sem sýnir listamenn flytja tónlist í tilteknu herbergi, minnir á fallegt, rómantískt raunsæis- málverk. Það er ekki síst melankól- ískur andi bandaríska listmálarans Whistlers sem svífur þarna yfir vötnum. Noktúrnur hans, harmóníur og sinfóníur hafa tekið á sig nýjar myndir: Kristín Anna Valtýsdóttir í einu herbergjanna gæti t.a.m. verið nútímaútfærsla af hvítklæddri stúlku Whistlers í Sinfóníu í hvítu, nr. 2 (1864). Í heild er verkið eins konar síðbúið og saknaðarkennt 21. aldar framhald af 19. aldar hug- myndum um listamanna-bóhemíu. Það er sem evrópsk hámenning sé ofan í negldri líkkistunni en jarðar- förin frestast í lifandi samræðu við samtímann og í stöðugri endur- vinnslu og endurtekningu – enda er arfleifðin ríkuleg og stór hluti af sjálfsmyndinni. Rómantískur sökn- uður Ragnars beinist ekki síst að hugmynd um listamanninn, einsemd hans og einlægri tjáningarþörf í nafni listarinnar og hins sammann- lega. Sungið er um kvenleikann í The Visitors – en hin rómantíska afstaða er jafnan tengd tilfinningum og hinu óröklega, og þar með kvenlægum eiginleikum í vestrænni hugmynda- sögu. Þar sem tónlistargjörning- urinn er að mestu fluttur innandyra, í nokkrum herbergjum, kallast verk- ið á við hugmyndir um einkarýmið en einnig vakna þankar um heimilið sem stað konunnar. Raunar liggur Ragnar sjálfur í vatni – tákni kven- leikans, dulvitundar og eilífrar hringrásar lífsins. Í verkinu er einn- ig að finna skemmtilega vísun í þekkta Venusarmynd eftir 17. aldar málarann Velázquez – Rokeby Ven- us – og merka sögu málverksins, sem tengist m.a. Rokeby-sveitasetr- inu á Englandi og kvenréttindabar- áttunni þar í landi í upphafi 19. aldar þar sem kúgun kvenna var mótmælt með árás á umrætt verk. The Visi- tors er öðrum þræði háfemínískt verk. Þótt Ragnar skírskoti til mál- verksins með uppstillingum sínum og birtumeðferð nýtir hann sér einn- ig tímatengda eiginleika vídeósins, þ.e. hreyfingu og hljóð, og skapar þannig spennu milli slíkra eiginleika og þeirrar frystingar sem fólgin er í myndrænni innrömmun (fjöldi skjáa í rýminu ýtir einnig undir tilfinningu fyrir „málverkasýningu“). Þá hefur innsetningarformið þau áhrif að skynjun áhorfandans flöktir milli skjáa og hreyfing hans og hlustun í rými er virkjuð. Tilfinningaríkur flutningur og innbyrðis samspil gestanna á Rokeby (sem allir eru úr- vals tónlistarfólk) valda miklu um áhrif verksins. Hálfvegis í leiðslu geta sýningargestir lifað sig inn í eigin minningar um liðna tíð, og íhugað merkingu þeirra hér og nú. Í húsi tregans Morgunblaðið/Kristinn Gestir Hluti innsetningar Ragnars Kjartanssonar, The Visitors, í Kling & Bang. „Tilfinningaríkur flutningur og innbyrðis samspil gestanna á Rokeby (sem allir eru úrvals tónlistarfólk) valda miklu um áhrif verksins,“ segir m.a. í gagnrýni um innsetninguna sem sýnd hefur verið í virtum sýningarsölum erlendis. Kling & bang gallerí, Hverfisgötu 42 Ragnar Kjartansson – The Visitors bbbbm Til 9. febrúar 2014. Opið fi.-su. kl. 14-18. Aðgangur ókeypis. Í samstarfi við Thyssen-Bornemisza Art Contempor- ary. ANNA JÓA MYNDLIST Miðasala » www.sinfonia.is » www.harpa.is » Miðasala í anddyri Hörpu » Sími: 528 5050» Opið 10-18 virka daga og 12-18 um helgar Fim. 16. jan. » 19:30 með Sinfóníunni 16. janúar Sigurvegarar úr einleikarakeppni SÍ og Listaháskóla Íslands koma fram á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu sem alla jafna eru einhverjir þeir skemmtilegustu á árinu. Námsmenn fá 50% afslátt af miðaverði í miðasölu Hörpu. Sími 528 5050. Mörg undanfarin ár hafa tónleikar verið haldn- ir í Reykjavík 27. janúar til að minnast þess að þann dag fæddist tónskáldið Wolfgang Ama- deus Mozart. Ekki verður brugðið út af þeirri venju í ár og að þessu sinni kemur hinn kunni ítalski píanóleikari Domenico Codispoti fram á tónleikunum. Hann mun flytja tvo píanókons- erta, kv. 414 og kv. 415, ásamt strengjaleik- urunum Laufeyju Sigurðardóttur, Sigurlaugu Eðvaldsdóttur, Þórunni Ósk Marínósdóttur og Bryndísi Höllu Gylfadóttur. Arndís Björk Ás- geirsdóttir mun gera tónlistinni skil í stuttu spjalli við tónleikagesti. Tónleikarnir verða í boði Reykjavíkurborgar, hefjast klukkan 18 og að- gangur er ókeypis. Fleiri styrktaraðilar koma að tónleikunum að þessu sinni til að gera verkefnið mögulegt. Þetta verður í sjöunda sinn sem Codispoti kemur fram á tónleikum hér á landi. Síðast lék hann í Hörpu í mars síðastliðnum og hlaut lof fyrir, rétt eins og í fyrri heimsóknum himgað. Ítalski píanóleikarinn Codispoti leikur á Kjarvalsstöðum á fæðingardegi Mozarts Domenico Codispoti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.