Morgunblaðið - 16.01.2014, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.01.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Gjaldtaka af ferðamönnum sem koma á Geysissvæðið í Haukadal er ólögmæt. Þetta er mat sérfræð- inga umhverfis- og auðlindaráðu- neytis sem hafa sent Landeigenda- félagi Geysis ehf. erindi um þetta. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær hyggjast landeig- endur nú í sumar hefja innheimtu aðgöngugjalds af þeim hundruðum þúsunda ferðamanna sem á svæðið koma árlega. Þetta ætla þeir að gera í því skyni að standa straum af daglegri hirðu og umhverfisbót- um, sem fylgja álagi á svæðið. Í bréfi umhverfisráðuneytisins, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, er vitnað til samráðs við ráðuneyti fjármála og bent á að ríkið sé eigandi helstu hvera á Geysissvæðinu sem og víðfeðms lands sem að því liggur. Einhliða ákvörðun landeigendafélagsins um gjaldtöku af þessum eigum ríksins eða rekstri á þeim teljist því ekki lögmæt. Uppbygging mikilvæg Að mati ráðuneytisins er mikil- vægt að gera átak í uppbyggingu innviða á Geysissvæðinu og marka stefnu um rekstur þess til fram- tíðar. Er þar bent á að á vegum ráðu- neyta og fleiri sé unnið að útfærslu leiða og til að koma upp aðstöðu á helstu ferðamannastöðum. Til að fjármagna slíkt hafa hugmyndir um svonefndan náttúrupassa verið í deiglu. Stefnan sé að mynda sam- ræmt kerfi um gjaldtöku í stað þess að rukkað sé á sérhverjum stað. Geysisgjaldið talið óheimilt  Umhverfisráðuneyti telur innheimtu aðgöngugjalds við Geysi ekki standast  Ríkið á hverina  Vilja náttúrupassa  Ekki sé rukkað á sérhverjum stað Morgunblaðið/Kristinn Haukadalur Að óbreyttu kostar inn á Geysissvæðið strax í sumar. Stjórnvöld telja ekki heimild fyrir slíku. Ríkið eigi hverina sem hafa mikið aðdráttarafl. Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráð- herra ferðamála, mun á næstu vikum leggja fram frumvarp á Al- þingi um náttúrupassa eða að- göngugjald að vinsælum ferða- mannastöðum. Málið er í undirbúningi í atvinnuvegaráðu- neyti og hafa fulltrúar ferðaþjón- ustu, sveitarfélaga og landeig- enda ásamt fjölmörgum öðrum hagsmunaaðilum komið að borð- inu. „Ég hef lagt mikla áherslu á að allir aðilar máls séu samstiga í þessu. Hef rætt við ýmsa land- eigendur um að taka þátt í því verkefni með okkur. Því er miður, ef rétt reynist, að Geysismenn ætli í raun að hefja gjaldtöku áð- ur en við sjáum til lands í þeirri vinnu og náttúrupassinn eða önnur sambærileg leið hefur ver- ið lögfest,“ segir ráðherrann. Allir aðilar séu samstiga FRAMVARP VÆNTANLEGT bakaðar kjúklingabringur Prófaðu bökuðu kjúklingabringurnar, fylltar með ferskum kryddjurtum og rjómaosti. Gottimatinn.is Bænastund var haldin í Sauð- árkrókskirkju í gærkvöldi vegna ungu stúlkunnar sem lést í umferð- arslysi á Vestur- landsvegi við Fornahvamm síð- astliðinn sunnu- dag. Hún hét Anna Jóna Sigur- björnsdóttur og var 16 ára gömul, fædd 18. janúar 1997. Anna Jóna bjó á Sauðárkróki með fjölskyldu sinni og gekk þar í framhaldsskólann á staðn- um. 18 ára piltur, sem slasaðist alvar- lega í slysinu, liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans þar sem honum er haldið sofandi. Sr. Sigríður Gunnarsdóttir, sókn- arprestur á Sauðárkróki, sem umsjón hafði með bænastundinni, sagði í samtali við Morgunblaðið að mikil sorg ríkti í bænum vegna slyssins. „Þetta er ógurlegt högg fyrir sam- félagið hér,“ sagði hún. Mikill sam- hugur væri ríkjandi meðal bæjarbúa. Mikil sorg vegna banaslyss  „Ógurlegt högg fyrir samfélagið“ Anna Jóna Sigurbjörnsdóttir Kirkjan á Sauðárkróki var þétt setin í gærkvöldi þegar þar var haldin bænastund vegna Önnu Jónu Sigurbjörnsdóttur, sem lést í umferðarslysi á sunnudaginn. Um 250 manns voru við athöfnina, fjölskylda hennar, vinir og skólafélagar og fleiri bæjarbúar. Morgunblaðið/Björn Björnsson Um 250 manns sóttu bænastundina Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Héraðsdómur Austurlands dæmdi í gær að Heilbrigðisstofnun Austur- lands bæri að greiða Hannesi Sig- marssyni, fyrrverandi yfirlækni á Heilsugæslu Fjarðabyggðar, van- goldin laun upp á um 14,8 milljónir króna auk dráttarvaxta. Forsaga málsins er sú að Hannes var leystur frá störfum snemma árs 2009 eftir að hann var sakaður um fjárdrátt með því að hafa oftekið sér milljónir króna í laun. Fékk hann til- kynningu um að hann héldi launum á meðan málið væri til rannsóknar. Rannsókn var látin niður falla 12. júní og ríkissaksóknari staðfesti nið- urfellingu lögreglunnar á Eskifirði. HSA kærði hann að nýju til lögreglu þar sem stofnunin taldi sig vera með nýjar upplýsingar frá Ríkisendur- skoðun um sekt yfirlæknisins. Var Hannesi í kjölfarið tilkynnt í bréfi frá forstjóra HSA að launagreiðslur myndu niður falla frá 1. júlí 2009. Var tilgreind ástæða sú að læknirinn væri við störf erlendis fyrir tilstilli einkahlutafélags í hans eigu. Hannes hefði ekki beðið um leyfi frá stofn- uninni til þess að sinna þeim störf- um. Lögreglan á Eskifirði tilkynnti Hannesi hinn 30. september að mál á hendur honum hefði verið látið niður falla. Honum var svo sagt upp störf- um hjá HSA 28. desember 2009. Fram kemur í uppsagnarbréfi að hann átti rétt á fjögurra mánaða uppsagnarfresti. Stefndi Hannes HSA og krafðist vangoldinna launa á tíu mánaða tímabili, frá 1. júlí 2009 til 1. apríl 2010. Héraðsdómur féllst á kröfuna og var HSA gert að greiða Hannesi áðurgreinda upphæð. Hannes fær vangoldin laun  HSA gert að greiða 14,8 milljónir króna  Stofnuninni var óheimilt að fella niður launagreiðslur Vangoldin laun » HSA höfðaði tvívegis mál á hendur yfirlækni vegna gruns um fjárdrátt. » HSA ákvað að greiða lækn- inum ekki laun frá 1. júlí 2009. » Héraðsdómur telur það ólögmæta aðgerð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.