Morgunblaðið - 16.01.2014, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.01.2014, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014 ✝ Valur Ragn-arsson fæddist á Leifsstöðum í Eyjafirði 10. nóv- ember 1930. Hann lést 2. janúar 2014. Foreldrar hans voru Lilja Odds- dóttir og Ragnar Brynjólfsson. Valur var þriðji elsti tíu barna þeirra. Snemma flutti fjöl- skyldan inn á Akureyri og bjó búskap á Staðarhóli. Fimmtán ára flutti hann ásamt fjölskyldu sinni til Reykjavíkur og fór þá út á vinnumarkaðinn. Á þeim árum átti flug hug hans allan og lauk hann einkaflugmanns- prófi um leið og hann hafði ald- ur til, sextán ára skráður á skírteini nr. 104. Í júlí 1949 var hann í hópi þeirra fyrstu sem útskrifuðust hér á landi sem at- vinnuflugmenn í bóklegum fræðum. Valur hóf störf hjá bif- reiðaverkstæðinu Ræsi á þess- um árum og fór á samning hjá þeim. Hann kvæntist 15. apríl 1954 Þor- björgu Steinólfs- dóttur, f. 12. maí 1934, dóttur hjónanna Vigdísar Magnúsdóttur og Steinólfs Bene- diktssonar. Á sama tíma og þau Þor- björg hófu búskap lauk Valur sveins- prófi og síðar meistaraprófi í bifvélavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík. Valur starfaði við bílaréttingar í samstarfi við bróður sinn allan sinn starfsaldur. Þau hjón bjuggu í 47 ár á Rauðalæk 67 þaðan sem þau fluttu á Jökul- grunn 17 árið 2003. Börn þeirra hjóna eru: Vigdís, gift Bjarna Ásgeirssyni, Ragnhildur, gift Vali Tino Nardini, Lilja, gift Erni Ernst Gíslasyni, og Steinar Benedikt, kvæntur Kristínu Jó- hannsdóttur. Afabörnin eru 11 og langafabörnin orðin 10. Útför Vals fór fram í kyrrþey frá Áskirkju 8. janúar 2014. Allt fram streymir endalaust, ár og dagar líða. Nú er komið hrímkalt haust, horfin sumars blíða. Þetta ljóð Kristjáns Jónssonar kom upp í huga minn í haust þeg- ar pabbi sat í stólnum sínum við gluggann og spurði til veðurs. Úti blés köldu svo hvein í – í raun var hann á þessum stað í lífinu. Við sátum tvö þögul í litla herberginu hans og gegnum hug minn fóru minningabrot eins og gerist á slíkum hljóðum stundum. Þegar ég tók um hendur hans, ískaldar og þreyttar, fannst mér ég þó stinga lítilli hendi í hlýjan lófa, fannst ég finna sterkar hendur lyfta mér upp í hlýja holu að nóttu til, sá fimar hendur tálga birki- greinar. Pabbi var ekki maður margra orða eða sýndi væntumþykju með faðmlagi, enda varla alinn upp við það. Hann kom slíku frá sér á sinn eigin hátt. Hann hjálpaði þegar og þeim sem honum fannst þurfa og ætlaðist ekki til neins á móti. Tók ákvarðanir og hnikaði ekki frá þeim. Við erum fjögur systkinin, tvær eldri stóru stelpurnar, við hin tvö litlu krakkarnir. Fyrstu ár mömmu og pabba hafa örugg- lega einkennst af basli ungra for- eldra með tvö börn að koma þaki yfir höfuðið. Pabbi ýtti frá sér draumum um flugmennsku, reglubundin vinna og innkoma hafa þótt vænlegri kostur. Þá ákvörðun hefur hann sennilega tekið hljóðalaust eins og aðrar. Þegar ég man eftir mér var hag- urinn orðinn betri og líf fjölskyld- unnar breyst í samræmi við það. Pabbi sinnti sínu hlutverki, mamma sínu. Með komu tengda- barna og síðar barnabarna hækk- aði sól á lofti og skein sennilega skærast á þeim árum þegar öll stórfjölskyldan hnoðaðist saman í útilegum, bústöðum og heima við. Pabbi naut sín sem tengdapabbi og ekki síður afi. Kannski hefur honum fundist hann hafa komið okkur í örugga höfn. Nú síðustu ár hafa langafabörnin verið hans sólargeislar. Afabörnin, þeirra stolt eins og mamma orðaði svo fallega, báru hann síðasta spölinn. Svo sann- arlega mega þau líka vera stolt af að hafa átt hann sem afa, og þeirra börn sem langafa. Þakka þér, elsku pabbi, fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig – fyr- ir okkur. Lilja. Mig langar að minnast tengda- föður míns, Vals Ragnarssonar, sem nú er látinn eftir langa sjúk- dómslegu. Okkar leiðir lágu fyrst saman 1973 þegar ég kynnti mig í síma og óskaði eftir að ná tali af elstu dóttur hans. Mun hann hafa hlaupið niður á næstu hæð, þar sem Vigdís var í heimsókn hjá æskuvinkonu. Slíkt mun hafa ver- ið afar óvenjulegt og gerði hann undirrituðum þar með sinn fyrsta en ekki síðasta greiða. Valur reyndist mér ætíð mjög traustur vinur og afar góður félagi á sinn rólega og nægjusama hátt. Ég er þakklátur fyrir þann hlýhug sem hann bar til mín fram á síðustu stundu, og ávarpaði hann mig ætíð með nafni þótt flest annað í minninu væri búið að gefa sig. Hann var mjög dagfarsprúður, stundum fremur fámáll, og lifði almennt nægjusömu og rólegu lífi. Valur var ráðagóður og hand- laginn mjög. Hann var ávallt reiðubúinn til að hjálpa ættmenn- um sínum með hvaðeina og lét gjarnan lítið á því bera. Hann sýndi barnabörnum sínum alltaf mikla þolinmæði og áhuga. Í því sambandi rifjast upp veiðiferðir fjölskyldunnar í Elliðavatn og Hvammsvík. Þar stendur Valur í miðjum hópi lítilla barnabarna að kenna hópnum að beita maís- kornum á önglana með bros á vör, klæddur köflóttu skyrtunni sem var hans einkennisklæðnaður á ferðalögum. Valur las mikið af ýmsu efni og lumaði á mikilli þekkingu og skoðunum á mönnum og málefn- um, sem hann var ekki endilega að flíka. Engum hallmætli hann í mín eyru og hann var almennt mjög orðvar maður. Sömuleiðis var hann aldrei dómharður þótt ekki væri allt að hans skapi. Valur átti sér einkum stang- veiði sem áhugamál og fór gjarn- an með bróður sínum og vinum í veiðiferðir á sumrin. Eina skiptið sem ég man að hafi þykknað í honum gagnvart undirrituðum var þegar ég óskaði honum góðr- ar veiði þar sem hann var að stinga veiðidótinu í Wagoneerinn á leið í Blöndu, sem oft áður. Án þess að mér væri það þá ljóst voru slíkar árnaðaróskir taldar geta spillt verulega fyrir veiði- horfum. Valur hafði einnig alla tíð áhuga á flugi og mun hafa helst óskað sér starfsferils á þeim vett- vangi. Hann tók einkaflugmanns- próf ungur að aldri og átti um tíma hlut í lítilli flugvél. Hann var því ánægður að sjá tvö barnabörn sín ná að feta í þau spor. Sjálfur vann hann við bifreiðaviðgerðir og rak lengstum verkstæði með bróður sínum. Starf Vals hafði stóran kost í för með sér fyrir fjölskylduna sem ósjaldan leitaði til hans með vandamál er sneru að bílaflota hennar sem var ótraustur og bilanagjarn á þess- um árum. Þar sem hann var sjálf- stætt starfandi, kom fyrir að hann var þrautalendingin þegar þurfti að bjarga við flutningum á barnabörnum um bæinn, og skipti þá engu þótt hann þyrfti að loka verkstæðinu um stund. Er ekki ofsögum sagt, að Valur var einstaklega samviskusamur, úr- ræðagóður og greiðvikinn maður, sem bar hag fjölskyldunnar mjög fyrir brjósti. Valur átti sinn sterka bakhjarl í tengdamóður minni, Þorbjörgu, mikilli sómakonu, og vil ég að lok- um votta henni mína innilegustu samúð og óska henni velfarnaðar í framtíðinni. Bjarni. Valur Ragnarsson tengdafaðir minn var hvíldinni feginn er hann kvaddi þessa jarðvist á öðrum degi nýs árs. Hann hafði barist við veikindi lengi. Valur var ekki maður margra orða en frá honum stafaði hlýja og nærveran var ljúf. Þegar hann sagði eitthvað og gerði var eftir því tekið. Hann virkaði lokaður á þá sem hann ekki þekkti en við okkur fjöl- skylduna var hann alltaf hlýr, umhyggjusamur og oft fyndinn og skemmtilegur. Mér þótti vænt um hann og barnabörnin elskuðu hann. Þegar við Steinar giftum okk- ur árið 1993 komst hann að því að það ætti að dansa eftir matinn. Ég skildi ekki alveg þessar áhyggjur sem allir höfðu af Val og hlutverki hans í veislunni. Seinna meir uppgötvaði ég að hann hefði verið dauðskelkaður við að þurfa að dansa við konurn- ar í veislunni. Bauð hann sig því fram sem barnapíu og leysti þar með margfaldan vanda. Hann kom öllum barnabörnunum heim á Rauðalækinn í öruggt skjól og losnaði um leið við fjörið og dans- inn þannig að brúðhjónin og veislugestir gátu dansað fram á nótt. Valur hafði mikinn áhuga á allri veiði og veiðimennsku. Þeg- ar ég byrjaði að veiða sjálf kom hann og gaf mér fluguveiðiboxið sitt og fallegt veiðivesti en í því leyndust gamlar flugur sem hann hafði hnýtt af stakri lagni. Tengdafjölskylda mín er mjög samheldin. Þau eru ófá ferðalögin sem farin hafa verið á undanförn- um árum. Þar ber hæst hópferðir í Djúpuvík, að Hrauni, Geysi og Leifsstöðum. Þegar stórfjöl- skyldan á Rauðalæk lagði í hann á ættarmót til Ellu á Hrauni var farið á lítilli benzrútu norður þannig að allir kæmust saman. Okkar fjölskylda var síðust um borð en Valur var búinn að safna öðrum fjölskyldum saman í benz- kálfinn. Mér er hann minnisstæð- ur ættarhöfðinginn við stýrið í blárri Jay Leno-gallaskyrtu, brúnu flauelsbuxunum með erm- arnar uppbrettar, sólgleraugun og óræða svipinn á sínum stað. Í Ártúnsbrekkunni voru dregnar fram áprentaðar gular húfur og stuttu seinna sönghefti. Þetta var eins og rútuferðir í gamla daga. Kálfurinn fór hægt yfir en þegar við loksins komumst á leiðarenda biðu okkar höfðinglegar mót- tökur hjá Ellu og Magga á Hrauni í Skagafirði. Fjölskyldan á Rauðalæk lagði undir sig jörð- ina því allt var sjálfsagt á þessu litla skemmtilega ættarmóti. Á sjötugsafmæli Þorbjargar fór hersingin öll til Kaupmanna- hafnar. Þá naut Valur þess að fagna með sínum ævifélaga, börnum og barnabörnum. Máls- verður í Tívolí og pílagrímsganga í spor Fjölnismanna eru dýrmæt myndbrot nú þegar leiðir skilur um stund. Vart er hægt að hugsa sér betri ömmu og afa en Val og Þorbjörgu og hafa börnin okkar svo sannarlega fengið að njóta þess. Ávallt hafa þau verið boðin og búin að gæta barnabarna sinna og Valur naut þess að um- gangast öll krílin. Það sá maður ljóst á hlýju viðmóti, þolinmæði og rólyndi sem hafði svo ljúf áhrif á smáfólkið. Nú skilur leiðir. Tengdafaðir minn hefur lagt í sína hinstu för. Eftir standa afkomendur með stórar gjafir sem Valur gaf á sinn hljóða og hógværa hátt. Gjafirnar eru traust, trygglyndi, þolinmæði og hófsemi, allt eiginleikar sem lesa má úr fasi afkomenda hans með ýmsu móti. Hann skilur eftir sig ljúfar minningar um trausta og vandaða manneskju. Tengdamóður minni og ætt- ingjum sendi ég samúðarkveðjur. Blessuð sé minning tengdaföð- ur míns, Vals Ragnarssonar. Kristín Jóhannsdóttir. Það eru margar góðar minn- ingar sem koma upp í hugann þegar maður hugsar um afa Val. Það var alltaf jafngott að koma til þeirra ömmu bæði á Rauðalæk- inn og seinna í Jökulgrunn. Afi var hæglátur, rólegur og vana- fastur maður. Þegar hann kom heim úr vinnunni, í köflóttu vinnuskyrtunni sinni angandi af bílalykt, fór hann beint inn á bað til að skrúbba á sér hendurnar með sérstökum naglabursta. Það þótti mjög spennandi að læðast inn á baðið á eftir honum, stelast í naglaburstann og prófa að skrúbba á sér hendurnar alveg eins og hann gerði. Einnig var mikið sport að fá að laumast í vas- ann á vinnujakkanum hans þar sem leyndist sterkur hálsbrjóst- sykur eða Vicks-brenni. Í minn- ingunni var afi ekki mikill mat- maður en hann sló sjaldan hendinni á móti fitu sem fjöl- skyldumeðlimir skáru frá kjötbit- unum og röðuðu á hans disk, það þótti honum gott. Þótt hann afi hafi kannski ekki verið mikið fyrir að spjalla var hann alltaf áhugasamur um það sem við vorum að gera. Hann hafði góða nærveru og sóttu barnabörnin og síðar langafa- börnin í að leika sér á stofugólfinu við stólinn hans þar sem hann sat og virtist njóta þess að hafa þau í kringum sig. Afi hafði líka mikla kímnigáfu og tók glaður þátt í því þegar maður kom til hans og bað hann að taka út úr sér fölsku tennurnar og gretta sig fyrir okk- ur. Þegar við vorum yngri var stórfjölskyldan, með afa í farar- broddi, dugleg að fara í tjaldútil- egur. Afi og amma voru bæði iðin við að hafa ofan af fyrir okkur krökkunum hvort sem það var að fara með hópinn í sund eða leika í yfir eða fótbolta langt fram á kvöld. Afi Valur hafði einstaklega gott lag á krökkunum og sem dæmi um það bauðst hann til að vera með allan krakkaskarann í næturpössun eftir brúðkaup Steinars sonar síns. Við fengum að gista öll í flatsæng í stofunni og skemmtum við okkur konung- lega við að horfa á Stöð 2 langt fram eftir nóttu. Þegar við urðum aðeins eldri var á tímabili farið eitt kvöld í viku á Rauðalæk, borðað örbylgjupopp og horft á Beverly Hills. Sat þá afi með okkur stelpun- um þar sem hann lét unglinga- dramað yfir sig ganga og virtist hafa gaman af. Afi Valur var yndislegur mað- ur sem við eigum eftir að sakna mjög mikið! Þóra, Vala og Hildur. Elsku afi. Nú ertu farinn frá okkur og bíður eftir okkur hinum megin. Mikið finnst mér það eitt- hvað skrýtið. Samt hefur mér fundist þessi stund vera að nálgast í þó nokk- urn tíma. Það að uppgvötva að einn af mínum föstu punktum í lífinu er nú horfinn veitir mér þessa skrýtnu óþægindatifinn- ingu. Ég ætla að reyna að blása henni í burtu og halda í allt það góða. Mínar uppáhaldsminningar um þig eru svo óendanlega nota- legar. Þær snúast flestallar um það að sitja í nánd við þig, og þá oftast á arminum á brúna stóln- um, sitja saman og njóta augna- bliksins. Það sem er mér dýr- mætast er þessi góða og örugga tilfinning sem þetta veitti mér og gerir líklega enn. Að sitja bara saman án þess að þurfa að segja mikið. Þessar minningar veita mér alltaf sömu tilfinningu, alveg sama hvort þetta minningabrot er 25 ára gamalt eða einnar viku gamalt. Mér leið meira að segja vel á næturvöktum þegar ég vissi af þér í sama húsi. Svo notalegt að geta sest inn á sjúkrastofu til þín og bara verið þar án þess að þurfa að gera eða segja mikið og ná sér þannig í svolítinn frið og ró. Brúni stóllinn þinn kveikir síð- an á enn stærri minningaranga og tengist hann þá helst spila- mennsku. Mér þótti óendanlega skemmtilegt að læra af þér rommý og spilakennsla ykkar ömmu hefur án efa verið mér gott veganesti. Það að hugsa fram í tímann og sjá fyrir hvað gæti komið upp næst er jafnnytsam- legt í spilum, lækningum og bara lífinu öllu. Ég skal sko lofa þér því afi minn að spila áfram vel úr mínum spilum. Hlakka til að hitta þig aftur hinum megin. Sjáumst, þín Martína. Valur Ragnarsson HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Kæru vinir. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar dóttur okkar, systur, mágkonu og barnabarns, DAGNÝJAR ASPAR RUNÓLFSDÓTTUR, Bjarkarheiði 6, Hveragerði. Guðrún Hanna Guðmundsdóttir, Runólfur Þór Jónsson, Hrefna Lind Heimisdóttir, Friðjón Þórðarson, Una Ósk Runólfsdóttir, Haukur Benedikt Runólfsson, Kristinn Hólm Runólfsson, Berglind Kvaran Ævarsdóttir, Thelma Rún Runólfsdóttir, Þráinn Ómar Jónsson, Valgerður Magnúsdóttir, Guðmundur Jónsson, Una Runólfsdóttir, Kristján Jónsson. Ásta var tengdamóðir mín frá 1976 til 1989. Kynni okkar hófust þegar við Sigurlín, dóttir hennar, tókum saman, en þau héldust síð- an en fjöruðu lítillega út þegar þau Sveinbjörn fluttu aftur aust- ur. Ég held að okkur hafi alltaf þótt vænt hvort um annað. Byrjunin var ekki eins og best var á kosið. Við Sigurlín komum Ásta Ingibjörg Árnadóttir ✝ Ásta IngibjörgÁrnadóttir hús- freyja fæddist í Öl- versholtshjáleigu, Holtum, 23. janúar 1923. Hún lést 6. des- ember 2013 á Kirkju- hvoli, Hvolsvelli. Útför Ástu fór fram frá Breiðaból- staðarkirkju í Fljóts- hlíð 21. desember 2013. bæði úr fyrri sam- böndum og Ástu var ekki vel við það að fólk skipti um maka. Fljótlega fann ég þó að vissu- lega gæti Ásta átt það til að viðra hvassar skoðanir en það var í raun bara í nösunum á henni. Í gjörðum var hún umburðar- lyndið og elskulegheitin uppmál- uð. Á fyrstu árum kynna okkar bjuggu þau Sveinbjörn í íbúð í Álf- heimum en það var ekki vist að skapi Ástu. Hún saknaði sveitar- innar í Fljótshlíð og þau hjónin fóru þangað eins oft og tækifæri gafst. Seinna eignuðust þau sum- arbústað í sveitinni. Allt varð samt bjartara hjá henni þegar þau seldu íbúðina og keyptu sér lítið hús í Heiðargerði. Sveinbjörn fékk þar með bílskúr en hún lítinn garð sem hún hafði mikla ánægju af að nostra við. Í upphafi níunda áratugarins bjuggum við Sigurlín í Danmörku, en Árni, sonur Sigurlínar, vildi fara í framhaldsskóla á Íslandi og úr varð að þau Ásta tóku hann í hús til sín einn vetur þangað til við komum heim. Þegar eftirlaunaaldurinn fór að íþyngja, fluttu þau Sveinbjörn í Sólheima 27, beint á móti okkur Auði. Hefði maður notað kíki, hefðum við getað horft inn í eld- húsið og borðstofuna hjá þeim, þau í stofuna hjá okkur. Heim- sóknir voru fáar en við Ásta hitt- umst oft á göngu í hverfinu og spjölluðum saman á léttum nót- um. Ásta vann á prjónastofu fram- an af. En svo kom að prjónastofan lagði upp laupana og önnur vinna í sama geira var ekki til. Ásta tók vinnu á veitingastaðnum á Um- ferðarmiðstöðinni. Þetta var allt of þung vinna, en krafist var af starfsfólkinu, óháð aldri, að það afgreiddi í næturlúgunni. Þá var ég farinn af vinna í Menntaskól- anum við Sund og vitandi um mat- arsmekk rektors notaði ég í þetta eina sinn bakdyraleiðina og kom því til leiðar að þau töluðu saman um að hún tæki við mötuneyti starfsmanna þar. Þetta var upp- hafið að afskaplega farsælum starfstíma sem við starfsmenn skólans sem enn störfum, minn- umst með söknuði. Enginn okkar gleymir brauðsúpunni hennar! En Sveinbjörn þurfti víst stundum að láta sér nægja leifar frá borði okk- ar. Ég færi hér með kæra kveðju frá öllum í MS sem störfuðu á þessum árum. Dóttir okkar Sigurlínar, Mar- grét, var í Vogaskóla við hliðina og kom iðulega við hjá ömmu á leið heim frá skóla. Líka fyrir hana var þessi ráðagjörð góð; amma var henni í þessu sem öðru góð stoð og stytta á erfiðum unglingsárum. Ásta var fulltrúi þeirrar kyn- slóðar sem gat vissulega kveðið upp harða dóma en mátti í raun ekkert aumt sjá og var ævinlega tilbúin til að hjálpa öðrum. Pétur Rasmussen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.