Morgunblaðið - 16.01.2014, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.01.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014 TWIN LIGHT GARDÍNUR Betri birtustjórnun MEIRA ÚRVAL MEIRI GÆÐI ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA EFTIR MÁLI Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Hringdu og bókaðu tíma í máltöku Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061 Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 11-18 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Rannsóknir sem Landsvirkjun vinn- ur að á vatnasviði Stóru-Laxár í Hreppum miðast við að gera miðl- unarlón í Illaveri á Gnúpverjaafrétti og leiða vatnið í stöðvarhús við Hrunakrók. Afrennslið færi aftur í Stóru-Laxá neðan við Laxárgljúfur en ofan við helstu veiðisvæðin. Tilgangur rannsókna Landsvirkj- unar er að fá niðurstöður um það hvort líkur séu á því að hagkvæmt yrði að virkja í vatnakerfinu. Leyfið var veitt á árinu 2012. Nú er unnið að frumrannsóknum og forathugun. Sú vinna beinist að vatnamælingum, öfl- un kortagagna og athugun á hugs- anlegri tilhögun virkjunar. Þá verður kostnaður metinn gróflega. For- athugun á að ljúka í apríl. Ef niðurstöður þessa fyrri áfanga verða jákvæðar mun verða haldið áfram með verkefnið og unnið að rannsóknum á umhverfisáhrifum og frumhönnun virkjunar. Lands- virkjun áætlar að ljúka þeirri vinnu á árinu 2016. Ljóst er af þessu að vinnan er á frumstigi og mikið vatn á eftir að renna til sjávar áður en ákvörðun um virkjun verður tekin. Landsvirkjun hefur tilkynnt virkjanakostinn til Orkustofnunar með það að markmiði að hann verði metinn við þriðju rammaáætlun um vernd og orkunýt- ingu landsvæða. Undirbúningur verður í hægagangi á meðan beðið er eftir niðurstöðum matsins. Ef virkj- unin fær framgang í nýtingarflokki þarf að vinna skipulag og mat á um- hverfisáhrifum og hanna virkjunina. Dregur úr umhverfisáhrifum Umræður um virkjun Stóru-Laxár eru ekki nýjar af nálinni. Settar voru fram hugmyndir um virkjun hennar í tveimur þrepum í skýrslu iðnaðar- ráðuneytisins sem kom út á árinu 1994. Efra þrepið átti að vera miðl- unarlón við Tangahorn og þaðan yrði vatninu veitt til inntakslóns í Illaveri og frá því að virkjun í nágrenni við Hrunakrók. Í neðra þrepinu var áætluð stífla nærri Laxárdal með stöðvarhúsi í stíflunni. Landsvirkjun er eingöngu að skoða efra þrepið og jafnframt er dregið mjög úr umfangi Tangahorns- lóns, frá því sem áður var, og jafnvel eingöngu notast við miðlun í Illaveri. Minnkun lóna dregur úr áhrifum virkjunarinnar á umhverfið. Sú tilhögun sem unnið er út frá nú grundvallast á því að veita Leirá inn í Stóru-Laxá nokkru ofan við ármót og þeim veitt saman inn í Illaver. Reisa þarf þrjár litlar stíflur sunnan og vestan Illavers. Gert er ráð fyrir um tveggja kílómetra aðrennslisgöngum eftir Kóngsási og að við enda þeirra verði um 240 metra lóðrétt göng að stöðvarhúsi neðanjarðar. Frá því yrðu um 2,3 km löng frárennslisgöng sem opnast út í Skillandsá, rétt ofan við ármótin við Stóru-Laxá. Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunardeildar Landsvirkjunar, segir að afl virkj- unarinnar gæti orðið 30 til 35 mega- vött og orkuvinnslugeta 180-200 gígavattstundir. „Þetta virðist vera heppileg stærð þegar verið er að stækka orkukerfið í þrepum.“ Minnkar í gljúfrunum Stóra-Laxá er góð laxveiðiá. Landslag við hana þykir mikil- fenglegt. Þekktust eru Laxárgljúfur sem áin hefur grafið niður í berg- grunninn á hálendisbrúninni í þús- undir ára. Gljúfrin eru um 10 kíló- metra löng og eru víða 100-200 metra djúp. Stóra-Laxá er laxgeng inn í Laxár- gljúfur en talið hefur verið að Foss- inn í gljúfrunum sé ólaxgengur þann- ig að lax hafi ekki komist ofar. Virkjunin byggist á því að veita vatninu fram hjá Laxárgljúfrum. Þau þorna þó ekki upp þar sem nokkrar ár renna áfram í gljúfrin. Afrennsli virkjunarinnar á að fara aftur í Stóru-Laxá ofan við megin- laxveiðisvæðin. Eigi að síður komu fram áhyggjur hjá stangveiðimönn- um þegar Landsvirkjun fékk rann- sóknarleyfi. Veiðiréttareigendur sem rætt er við benda á móti á að miklar sveiflur séu í rennsli árinnar og miðl- un gæti orðið til þess að rennsli henn- ar yrði jafnara yfir sumartímann og það orðið til hagsbóta fyrir laxinn. Dregið úr umfangi lóna  Virkjun í efri hluta Stóru-Laxár í Hreppum miðast við að nýta vatn sem annars færi í Laxárgljúfur  Afrennsli kæmi út í ána fyrir ofan helstu veiðisvæði árinnar  Virkjunin metin í rammaáætlun Morgunblaðið/Einar Falur Laxárgljúfur Stóra-Laxá er vatnsmikil og í neðri hluta hennar eru þekkt laxveiðisvæði. Lax gengur upp í gljúfrin en Fossinn er ólaxgengur. Virkjun Stóru Laxár - Hugmynd að tilhögun Búrfell Þjó rsá Gullfoss Flúðir Hekla Þjó rsá rda lsv . Lan dve gu r Háifoss Bláfell Eystri-Hagafellsjökull (Langjökull) Kj alv eg ur Hr un am an na af ré ttu r Þjó rsá Geysir Þjófafoss Aðkomugöng Frárennslisgöng Stöðvarhús Aðrennslisgöng Litlaversstífla III Litlaversstífla I Litlaversstífla II Stóru Laxárstífla I Stóru Laxár veitulón Leirárstífla Leirárveitulón Le irá rv eit u- sk ur ðu r Stóru Laxár veituskurður Geldingaverslón Illaverslón Hallarmúli Gullfoss Stó ra L axá Litlaver La xá rg ljú fu r St ór a L ax á Stóra Laxá Núverandi vegir og slóðar Nýir aðkomuvegir Skurðir og útlínur lóna Grunnkort/Loftmyndir ehf. Stóru Laxárstífla II „Ég er ekki neikvæður gagn- vart þessari hugmynd. Ef þetta reynist góður virkj- anakostur og hægt er að vinna þetta án þess að spilla landinu, má vel skoða hann,“ segir Hörður Harðarson, bóndi í Laxárdal í Skeiða- og Gnúp- verjahreppi og landeigandi við Stóru Laxá. Veiðifélagið hefur ekki tekið formlega afstöðu til málsins. „Við viljum fyrst fá að sjá nið- urstöður rannsókna á lífrík- inu. Framkvæmdin gæti alveg eins orðið til bóta með jafn- ara vatnsrennsli. Þegar nið- urstöður liggja fyrir verður tímabært að taka afstöðu,“ segir Esther Guðjónsdóttir, bóndi í Sólheimum í Hruna- mannahreppi og formaður Veiðifélags Stóru-Laxár. Esther telur ósennilegt að virkjað verði í Stóru-Laxá á næstunni. Segir að virkjun þar verði tiltölulega lítil og reikn- ar með að margar hagkvæm- ari virkjanir séu framar í röð- inni. Hörður telur hverfandi líkur á að sú tilhögun sem rætt er um hafi neikvæð áhrif á fisk- gengd í ánni. Hins vegar ætti rennsli að verða jafnara yfir árið. „Sveiflur eru slæmar fyr- ir fiskinn og mér sýnist sem leikmanni að virkjun yrði frek- ar til bóta en hitt,“ segir Hörður. Hann telur meira mál hvað gert verði við orkuna og vill að meira af orku Suður- lands verði nýtt í fjórð- ungnum. Landeigend- ur jákvæðir VIRKJUN JAFNAR RENNSLI Hörður Harðarson Esther Guðjónsdóttir Meginhluti mannvirkja virkj- unar í Stóru-Laxá yrði í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Lónið, að- rennslisgöng og stöðvarhús yrðu þar og að meginhluta í þjóðlendu. Hreppsnefnd Hrunamannahrepps verður þó einnig að koma að skipulags- málunum þar sem áin rennur á mörkum sveitarfélaganna. Hreppsnefndirnar gerðu ekki athugasemdir við að Orku- stofnun heimilaði Landsvirkjun að rannsaka virkjunarkostinn. Esther Guðjónsdóttir sem sæti á í hreppsnefnd Hrunamanna- hrepps segir að í því felist ekki afstaða til virkjunarinnar, hún ráðist af niðurstöðu rann- sókna. Hún bætir því við að í sjálfu sér sé jákvætt fyrir svæðið að fá þessar rann- sóknir gerðar, þær geti nýst við aðrar ákvarðanir. Mannvirki austan ár TVÖ SVEITARFÉLÖG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.