Morgunblaðið - 16.01.2014, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014
Gísli Jón Her-
mannsson, stofnandi
og lengi fram-
kvæmdastjóri útgerð-
arfyrirtækisins Ög-
urvíkur, lést á Sóltúni í
Reykjavík mánudag-
inn 13. janúar sl., á 82.
aldursári. Gísli fæddist
30. júní 1932 á Sval-
barði í N-Ísafjarð-
arsýslu, sonur Her-
manns
Hermannssonar, sjó-
manns af Ströndum,
og Salome Rannveigar
Gunnarsdóttur, hús-
freyju frá Ögri.
Gísli Jón lauk gagnfræðiprófi á
Ísafirði 1948, fékk stýrimannarétt-
indi frá Stýrimannaskóla Íslands
1957 og skipstjórnarréttindi að lok-
inni starfsreynslu. Hann var stýri-
maður hjá Bæjarútgerð Reykjavík-
ur 1958 til 1960 og hjá Eldborg hf.
1960 til 1963. Var skipstjóri og út-
gerðarmaður hjá Vigra hf. frá 1963
til 1970, að hann stofnaði útgerð-
arfélagið Ögurvík sama ár ásamt
fleirum, en félagið hefur gert út
togarana Vigra, Ögra og Frera.
Gísli Jón var útgerðarmaður hjá
Ögurvík og skráður framkvæmda-
stjóri allt til ársloka
2013, en hætti dag-
legum störfum fyrir
um ári. Hann gegndi
ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir út-
gerðarmenn. Átti um
skeið sæti í stjórn Fé-
lags íslenskra botn-
vörpuskipaeigenda og
sat síðar í mörg ár í
stjórn LÍÚ og stjórn
innkaupadeildar sama
landssambands. Hann
átti einnig sæti í stjórn
Faxamarkaðar um
nokkurt skeið og sinnti
ýmsum nefndarstörfum á vegum
LÍÚ. Þá var hann um skeið fram-
kvæmdastjóri fiskvinnslunnar
Kirkjusands, sem Ögurvík átti með
SÍS.
Eiginkona Gísla Jóns var Jónína
Margrét Einarsdóttir frá Ísafirði, en
hún lést árið 2001, 74 ára að aldri.
Þau eignuðust þrjú börn; Hjört,
framkvæmdastjóra Ögurvíkur, Mar-
gréti Jónínu, stjórnarformann, og
Hermann, útgerðarstjóra. Barna-
börnin eru tíu og langafabarnið eitt.
Útför Gísla Jóns fer fram frá Bú-
staðakirkju fimmtudaginn 23. jan-
úar næstkomandi kl. 13.
Andlát
Gísli Jón Hermannsson
útgerðarmaður
Aukablað
alla þriðjudaga
Útsalan
í fullum gangi
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
STÓRÚTSALA
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Sparidress - Vetrardragtir - Peysur - Blússur - Bolir
KLASSÍSK GÆÐAVARA FRÁ GERRY WEBER
TAIFUN - GARDEUR - CREENSTONE
FUCHS SCHMITT O.FL. O.FL.
www.laxdal.is
ENN MEIRI AFSLÁTTUR
40-50%
afsláttur
Vinnufatnaður
Sendu okkur nafn og
heimilisfang á praxis.is og við
sendum þér frían vörulista
Mikið úrval af gæða vinnufatnaði sem
þolir þvott allt að 95° og þarf ekki að
strauja.
Erum á sama stað og25090 Dömusandalar
Litur Svart, hvítt, blátt.
Str. 36-42
Verð kr. 12.900
Vatteraðir jakkar 14.900 kr.
Fást í 5 litum, lime, svörtu, rauðu,
kongabláu og fjólubláu. Einnig til á herrana.
Bonito ehf. • Praxis • Friendtex
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími 568 2878, www.praxis.is • www.friendtex.is
Opið mán.-fös. kl. 11.00-18.00, lau. kl. 11.00-15.00
Kringlunni 4 | Sími 568 4900
ÚTSALA
N
í fullum
gangi
Vorum að taka upp nýjar vörur
Fulltrúar sjúkraþjálfara funduðu
með heilbrigðisráðherra í gær-
morgun um reglugerðarbreytingar
er varða greiðsluþátttöku Sjúkra-
trygginga í þjálfun og um ramma-
samning sjálfstætt starfandi
sjúkraþjálfara.
Unnur Pétursdóttir, formaður
Félags sjúkraþjálfara, segist ekki
bjartsýn eftir fundinn. Þrátt fyrir
að Kristján Þór Júlíusson heil-
brigðisráðherra hafi sagt að ríkur
vilji væri fyrir því að fara yfir mál-
ið og koma til móts við sjónarmið
sjúkraþjálfara, hefði komið skýrt
fram að ekki yrði hnikað frá 100
milljóna króna niðurskurðarkröfu
á Sjúkratrygg-
ingar í fjárlög-
um.
Þær reglu-
gerðarbreytingar
sem tóku gildi
um áramótin og
snerta sjúkra-
þjálfara snúa
annars vegar að
aukinni greiðslu-
þátttöku sjúk-
linga í sjúkraþjálfun og hins vegar
afnámi svokallaðrar tíu skipta
reglu, sem heimilaði Sjúkratrygg-
ingum að taka þátt í kostnaði
vegna tíu tíma hjá sjúkraþjálfara,
án þess að skrifleg beiðni frá
lækni lægi fyrir.
„Næstu dagar munu leiða í ljós
hvort einhver flötur finnst á því að
koma til móts við sjónarmið okk-
ar,“ segir Unnur. „Það sem við
gerum núna sem félag er að við
hefjum undirbúning að því að
sjúkraþjálfarar hætti að starfa eft-
ir þessum samningi.“
Hún segir að um leið og þeir
geri það hinn 1. febrúar falli gjald-
skrá Sjúkratrygginga úr gildi.
Hver og einn sjúkraþjálfari muni
setja sína eigin gjaldskrá og fólk
muni sjálft þurfa að sækja rétt
sinn.
Aðgerðir í undirbúningi
Hver sjúkraþjálfari með eigin gjaldskrá náist ekki samningar
Unnur
Pétursdóttir
Mikill áhugi er á veiðileyfum
Stangaveiðifélags Reykjavíkur
(SVFR) en útdeiling veiðileyfanna
hófst í gær. Stefnt er að því að
henni ljúki fyrir mánaðamót, að því
er segir á vef félagsins. Umsókn-
arfrestur rann út 13. janúar. „For-
salan gekk jafnframt vonum fram-
ar og við erum því heilt yfir mjög
ánægð, það er alveg ljóst að salan í
sumar verður góð. Við erum betur
stödd en á sama tíma í fyrra, svo
dæmi sé tekið. Vissulega eru ein-
hverjar gloppur hér og þar sem við
munum koma í vefsöluna að út-
hlutun lokinni, í byrjun febrúar,“ er
haft eftir Bjarna Júlíussyni, for-
manni SVFR.
Fram kemur að mikil ásókn sé í
veiði í Elliðaánum en einnig er til-
greint að margir hafi sótt um að
veiða í Hítará. Þá segir að hlutfall
umsókna sé hærra en í fyrra sé mið-
að við fjölda félagsmanna. Umsókn-
um hefur fækkað um 10%, en það
helst reyndar í hendur við að fé-
lagsmönnum hefur fækkað um rúm
12% frá því sem mest var. Að auki
standa færri veiðisvæði til boða.
vidar@mbl.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Elliðaá Margir hafa sótt um veiðileyfi í Elliðaám hjá SVFR.
Mikil ásókn í veiði-
leyfi hjá SVFR