Morgunblaðið - 16.01.2014, Qupperneq 16
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Aukin samvinna menningarstofn-
ana á Akureyri er rædd um þessar
mundir. Líkur eru taldar á að stofn-
að verði félag á vegum bæjarins til
þess að halda utan um verkefni Leik-
félags Akureyrar, Menningarfélags-
ins Hofs og Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands.
Farþega strætó rak í rogastans í
gær þegar hvert strætóskýlið af
öðru var fullt af útblásnum blöðrum.
Þar höfðu verið á ferð nemendur
fagurlistadeildar Myndlistaskólans á
Akureyri, undir leiðsögn Aðalheiðar
S. Eysteinsdóttur, með svokallaða
innsetningu.
Nemendurnir vinna áfram í dag
og á morgun að verkefninu, sem þeir
kalla Á almannafæri; verða með
gjörning á flötinni fyrir neðan Sam-
komuhúsið kl. 14.30 og með uppá-
komu í Borgarbíói kl. 20 og endur-
taka leikinn á morgun.
Hafdís Sigurðardóttir hefur ver-
ið valin íþróttamaður Ungmenna-
félags Akureyrar fyrir árið 2013 og
kom engum á óvart. Hafdís bar höf-
uð og herðar yfir keppinauta sína í
spretthlaupum og langstökki á Ís-
landi á árinu, setti þrjú Íslandsmet
og vann fjölda Íslandsmeistaratitla.
Hóf vegna kjörs íþróttamanns
ársins á Akureyri verður með ný-
stárlegum hætti. Undanfarin ár
hefur það verið í Ketilhúsinu að við-
stöddum boðsgestum en nú verður
haldin samkoma í menningarhúsinu
Hofi, á miðvikudag í næstu viku,
þar sem öllum bæjarbúum er boðið
að vera viðstaddir. Auk þess að
heiðra íþróttamann ársins verða Ís-
landsmeistarar og landsliðsfólk frá
Akureyri heiðrað og veittar heið-
ursviðurkenningar íþróttaráðs
Akureyrar. Ástæða er til þess að
hvetja bæjarbúa til að fjölmenna á
þessa uppskeruhátíð íþróttafólks í
bænum.
Árleg sleðahundakeppni Ice-
husky fer fram í Kjarnaskógi,
Naustaborgum og Hömrum á laug-
ardaginn. Þar er jafnan gríðarlegt
fjör. Alls eru 15 lið skráð til keppni
auk 6 liða í barna- og unglingakeppni
og hefst dagskrá kl. 10. Ræst er frá
Hömrum.
Gott er búa á Akureyri eins og
heimsbyggðinni er kunnugt. Íbúum
höfuðstaðar Norðurlands fjölgaði
um 134 á síðasta ári. Þeir voru í upp-
hafi árs 17.876, en á gamlársdag
18.110. Konur eru fleiri; 9.130, en
karlpeningurinn 8.980.
Umsækjendur um stöðu út-
varpsstjóra voru 39, þar af fjórir Ak-
ureyringar að því er best er vitað og
er væntanlega met – miðað við höfða-
tölu. Benedikt Sigurðarson fram-
kvæmdastjóri, Michael Jón Clarke
tónlistarmaður, Björn Þorláksson
ritstjóri og Víðir Benediktsson, blikk-
smiður og skipstjóri á Akureyri, láta
sig allir dreyma um starfið. Fleiri
hafa tengingu norður. Spurning um
að flytja höfuðstöðvarnar norður …
Sýning Curvers Thoroddsen á
verkinu Verk að vinna/Paperwork
verður opnuð kl. 15 á laugardag í
Ketilhúsinu á Akureyri. Þar stendur
listamaðurinn fyrir raunveru-
leikagjörningi í anda fyrri verka
sinna þar sem daglegt líf hans og list-
sköpun skarast.
Öldrunarheimili Akureyrar
(ÖA) er það fyrsta á Íslandi sem hlýt-
ur alþjóðlega viðurkennigu sem full-
gilt Eden-heimili. Lögð er áhersla á
að öldrunarheimili séu heimili þeirra
sem þar búa. Unnið er að því að gera
umhverfi íbúanna heimilislegt og líf-
legt, lögð er áhersla á sjálfræði
þeirra og einstaklingsmiðaða þjón-
ustu. Innleiðing Eden-hugmynda-
fræðinnar hófst hjá ÖA árið 2006 og
síðan hefur verið unnið að breyt-
ingum í þá veru með margskonar
hætti.
Sameinaðir stöndum vér – í menningunni
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Blöðrur Nemendur fagurlistadeildar Myndlistaskólans á Akureyri í einu skýla Strætisvagna Akureyrar í gær.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014
Amtmannsstíg 1 sími: 561·3303
101 Reykjavík · humarhusid@humarhusid.is
Hádegistilboð
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Bifreiðum sem seldar voru nauðung-
arsölu hjá sýslumanninum í Reykja-
vík fækkaði um 11% á síðasta ári frá
árinu á undan samkvæmt tölum emb-
ættisins. Í fyrra var 181 bifreið seld
með þeim hætti en þær voru 204 árið
2012. Málum þar sem krafist var
nauðungarsölu bifreiða fækkaði hins
aðeins um 2,7%.
Flestar bifreiðarnar voru seldar í
mars eða 64. Í júní var 41 bifreið seld á
nauðungaruppboði, 44 í september og
32 í nóvember.
Kynna úrræði með bréfi
Fjárnámsbeiðnum fjölgaði um 28%
á milli ára og voru þær 14.244 árið
2013. Flestar þeirra voru í september,
1.551. Þær eru þó enn talsvert færri
en þær voru á eftirhrunsárunum 2009
og 2010.
Alls voru 445 fasteignir seldar loka-
sölu á nauðungaruppboði í Reykjavík
árið 2013. Þá var 91 útburðarbeiðni
skráð hjá sýslumannsembættinu,
flestar þeirra í september eða þrettán.
Um áramótin tóku gildi lög sem
gerir fólki kleift að óska eftir frestun á
nauðungarsölu fram til 1. september.
Að sögn Þórólfs Halldórssonar, sýslu-
mannsins í Keflavík, þar sem fjöldi
nauðungaruppboða er hlutfallslega
mestur, segir að öllum gerðarþolum
hafi verið sent bréf þar sem úrræðið
var kynnt og þeim boðið að fylla út
eyðublað um ósk um frestun. Alls hafi
slík bréf verið send til 411 einstak-
linga. Margir hafi þegar sent svör til
embættisins.
Nauðungarsölur á bifreiðum og fjárnámsbeiðnir 2009-2013
Fjárnámsbeiðnir
Heimild: Sýslumaðurinn í Reykjavík
20.000
18.000
16.000
14.000
12.000
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
0
2009 2010 2011 2012 2013
18
.2
11
16
.4
95
11
.5
89
11
.1
13 1
4.
24
4
1.200
1.000
800
600
400
200
0
Uppboðsmál - bifreiðir
Uppboðsmál
Seldar bifreiðar
2009 2010 2011 2012 2013
1.
0
68
44
1
72
3
28
9
71
8
16
8
66
3
20
4
64
5
18
1
Færri nauðungarsölur
en fleiri fjárnámsbeiðnir
Sýslumaðurinn í Keflavík kynnir gerðarþolum frestun
Morgunblaðið/Kristinn
Uppboð Alls voru 305 fasteignir seldar nauðungarsölu hjá sýslumanninum í
Keflavík á síðasta ári. Þar af voru 256 íbúðir seldar á nauðungaruppboði.