Morgunblaðið - 16.01.2014, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 16.01.2014, Blaðsíða 40
40 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Djarfar ákvarðanir eru góðar fyrir hjartað. Gættu þess að vera ekki of jarð- bundin/n. Og þú sem tókst ekki eftir neinu! Láttu af stjórn og fylgdu straumnum. 20. apríl - 20. maí  Naut Að skapa allt milli himins og jarðar læt- ur þér líða frábærlega vel. Hripaðu niður hug- myndir, hugsanir, drauma. Þú gefst ekki auð- veldlega upp. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Farðu þér hægt og taktu andmæli annarra ekki of nærri þér því þú ert á réttri leið eins og koma mun í ljós. Gefðu þér samt nægan tíma til að skoða málið. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú leggur þig alla/n fram um að geta staðið við gefin loforð. Farðu í bókabúð, á helgarnámskeið, leikrit – þitt andlega atgervi gerir þér kleift að tileinka þér eitthvað nýtt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur haft áhyggjur að undanförnu og mátt ekki láta kvíðann ná tökum á þér. Hefðbundin rómantík virðist hversdagsleg. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú færð sterka tilfinningu um að þú hafir reynt þetta allt saman áður og vilt alls ekki rifja það upp. Mundu að það er fleira sem sameinar mannfólkið en skilur það að. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur verið of góð/ur við sjálfa/n þig því þú átt erfitt með að ná upp afköstum eftir fríin. Haltu bara þínu striki, þetta líður hjá. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Viðskiptasamningar og allt sem lýtur að kaupum og sölu ætti að ganga vel í dag. Að vita hvenær maður á að halda spil- unum og hvenær maður á að pakka er gald- urinn. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Einhver samstarfsmaður þinn fær það á tilfinninguna að þú sért að ryðjast inn á hans verksvið. Svo daglegt líf kaffæri þér ekki alveg skaltu reyna að skapa rými fyr- ir óvæntar uppákomur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft ekki að gera ráð fyrir öll- um í áætlunum þínum. Stundum þarf bara að rífast og illu er bestu aflokið. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú nýtur mikillar vináttu og aðdá- unar. Smáatriði vefjast ekki fyrir þér og þú finnur fljótlegustu leiðina að réttri lausn. Þú ert einstaklega klár þegar læra þarf nýja hluti. 19. feb. - 20. mars Fiskar Gagnrýnisrödd þín stýrir þér í átt að sérþekkingu, í stað þess bara að inna verk vel af hendi. Hugsaðu um það sem þú vilt að ger- ist, það er hið gagnstæða við áhyggjur. Samkvæmt blaðafréttum er JónGnarr borgarstjóri farinn að líta í kringum sig eftir nýju starfi og seg- ist hafa hug á embætti páfa, sem ástæða er til að taka alvarlega. Eða eins og segir í kvæðinu: Í páfans sal er sælan full, því syndalausnin veitir gull, hin bestu vín hann velur sér, það væri staða handa mér. Það er líka svo, að Íslendingar margir hverjir hafa verið hagvanir í Vatíkaninu. Þangað fór hópur Mý- vetninga um miðja síðustu öld og varð sú för víðfræg. Starri í Garði orti: Í Vatíkaninu að Kristi ég gái og kvittun synda ég eftir bíð: „Sæll og blessaður, Píus páfi, þetta er Pétur Jónsson í Reynihlíð.“ Síðar bætti Starri í Garði við, eins og ég lærði söguna: Fyrrum kunnugur Magnúsi Mái, mörstjóri KÞ í seinni tíð. Magnús Már Lárusson hafði verið sóknarprestur í Mývatnssveit fram á vor 1949, er hann var settur prófessor við Háskólann, en Pétur í Reynihlíð vann við sláturhús KÞ á sláturtíðinni. Á miðjum 3. áratugnum beitti Pét- ur sér fyrir því að reistur var gangna- mannakofi á hrauntaglinu á norður- enda Nýjahrauns og kallaður Péturskirkja. Á þessum árum var féð rekið austur þangað á öræfin og vak- að yfir því fram yfir burð. „Péturskirkju klerkur snar kátur flytur ræðurnar,“ mælti Guð og glaður var, „góðan talsmann á ég þar.“ Karlinn á Laugaveginum hefur skoðun á öllu því sem borgarstjórann varðar: Ég geng í kringum Tjörnina handa gæsunum á ég brauð á vetrardegi köldum og vona að hún sé auð. Við Tjarnarendann stendur ein tignarleg höll. Besti flokkurinn býr þar og brátt er sagan öll. En alltaf stendur það einhvern veginn óljóst fyrir mér hvort páfinn situr í Rómaborg eða í Ráðhúsinu hér. 24. apríl 1931 voru gangnamenn samankomnir í Péturskirkju og ræddu menn þingrofið og komandi kosningar. Pétur í Reynihlíð orti: Vaknið upp af værum svefni verjum stjórnar siglutré. Það er margur þingmannsefni þó hann rölti á eftir fé. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Frá Ráðhúsinu við Tjörnina í Vatíkanið í Róm Í klípu „ALLT Í LAGI. GOTT, GOTT. ÉG HELD VIÐ HÖFUM FUNDIÐ VEIKASTA HLEKKINN.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞÚ HEGÐAR ÞÉR VONANDI VEL HÉRNA!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... eins og hið ljúfasta lag. SLÆMT STEFNUMÓT, GRETTIR. HÚN VAR LÁTBRAGÐS- LEIKARI. HVAÐ ÞÝÐIR ÞETTA? SUMT ER BEST LÁTIÐ ÓSAGT. ÁFRAM MEÐ ÞIG, LEIFUR ÓHEPPNI! VIÐ ERUM NÆSTUM KOMNIR UPP! OG ERTU TIL Í AÐ FÆRA SKJÖLDINN ÞINN AÐEINS AFTAR? Víkverji var farinn að hlakka tilþess að prófa hvalabjórinn svo- nefnda. Ekki aðeins finnst Víkverja hvalkjöt með því besta sem hann fær, heldur er bjór einnig nokkuð sem Víkverji hefur átt til að fá sér svona til hátíðabrigða. Það að blanda sam- an þessum tveimur góðu hlutum gat því ekki verið annað en ávísun á frá- bæran hlut. Menn hafa alltént oft dottið í það af minna tilefni. En nei, þá kom yfirvaldið og ákvað að bjarga fullorðnu fólki frá sjálfu sér. Víkverji verður því að bíta í það súra epli – svona rétt áður en bannað verður að bíta í súr epli af heilbrigðisástæðum. x x x Annað mál er það þar sem Víkverjitelur að afskiptum ríkisvaldsins væri mun betur komið. Pepsi-væðing bíóhúsanna er honum hreint ekki að skapi. Pepsi er svo sem ekkert slæm- ur drykkur ef út í það er farið, en Pepsi er bara ekki kók. „Pepsi og popp“ er heldur ekki eins hljómfag- urt og hin sígilda bíóhúsabeiðni um „popp og kók“. Víkverja þykir það miður, ekki síst vegna þess að starfs- fólkið leiðréttir hann alltaf þegar hann biður um sína kók. „Við erum bara með Pepsi,“ segir það, áður en það skýtur inn feimnislega: „Er það í lagi?“ x x x Ef fram heldur sem horfir munuveitingahúsagestir þurfa að panta sér „Jack í Pepsi“, „vodka og Pepsi“, eða einn „kaftein í Pepsi“. Það stefnir því í óefni fyrir okkur gömlu kallana sem viljum bara okkar kók. Af hverju er ekki búið að setja reglugerð um þetta? Menn hafa dott- ið í eina reglugerð af minna tilefni. x x x Víkverji er með eitt líkamsrækt-arráð, svona á nýju ári: hann hef- ur gert mikið úr því við vinnufélaga sína hvað hann ætli sér að vera dug- legur í ræktinni. Svo mjög að Vík- verji veit að ef hann stendur sig ekki má hann eiga von á háði og spotti frá vinnufélögunum. Þar sem helsta tak- mark Víkverja í lífinu er að forðast „bögg“ hefur ráðið virkað vel hingað til. víkverji@mbl.is Víkverji Hversu yndislegir eru bústaðir þínir, Drottinn hersveitanna. Sálu mína langaði til, já, hún þráði forgarða Drottins, nú fagnar hjarta mitt og hold fyrir hinum lifanda Guði. (Sálmarnir 84:2-3) GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Frá okkur færðu skyrturnar þínar tandurhreinar og nýstraujaðar Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380 ÞVOTTAHÚS EFNALAUG DÚKALEIGA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.