Morgunblaðið - 16.01.2014, Síða 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014
Síðumúla 11, 108 Reykjavík, sími 568 6899, vfs@vfs.is www.vfs.is
Band-
slípivélar
3 Kw
75x2000 og
150x2000
Verð frá
kr. 134.900.-
Bandsög
Vökvastýrð niðurfærsla
og lokun á skrúfstykki
Sagar rúnnstál
- 230 mm 90°
- 210 mm vinstri og hægri
Öflug iðnaðarsög blaðstærð
2825x27x0,9
Tilboðsverð
kr. 889.900.-
Borvél gírdrifin
Borgeta í stál 30 mm
Snittun í stál 16 mm
Snúningshraðasvið
105-2348 sn/mín
Verð kr. 695.000.-
Bandsög vökvastýrð
niðurfærsla
Sagar rúnnstál
- 220 mm í 90°
- 160 mm í 45°
Blaðstærð
2450x27x0,90
Verð kr. 495.000.-
Iðnaðarvélar
fyrir fagmenn
Sandblásturskassi
Innri mál
1200x600x570mm
Verð kr. 269.000.-
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Franska kvikmyndahátíðin hefst á
föstudag og stendur til 30. janúar.
Ljóst er að unnendur gaman- og
spennumynda fá
að þessu sinni
mikið fyrir sinn
snúð. Mikil
áhersla er lögð á
kvikmyndir í létt-
um dúr en minn-
isstætt er þegar
myndin The Art-
ist sló í gegn hér
á landi og það er
aldrei að vita
nema annar slík-
ur gullmoli leynist meðal þeirra
mynda sem nú rata á hvíta tjaldið.
Íris Hrund Þórarinsdóttir, vís-
inda- og menningarfulltrúi franska
sendiráðsins, segir myndirnar níu
fjölbreyttar og í raun spanna allt lit-
rófið.
„Við leggjum áherslu á að velja
aðeins gæðamyndir sem sýna vel
fjölbreytileikann í franskri kvik-
myndagerð og allir ættu að geta
fundið sér myndir við sitt hæfi. Í
fyrra voru dramatískar myndir
áberandi á hátíðinni eins og til dæm-
is Ryð og bein en í ár er hins vegar
meiri áhersla lögð á gamanmyndir
þó aðrir flokkar fái einnig að njóta
sín. Í hópi gamanmynda ber hæst
myndina Eyjafjallajökul sem fékk
meira en tvær milljónir áhorfenda á
nokkrum vikum í Frakklandi en það
er ekki á hverjum degi sem frönsk
mynd ber íslenskt heiti,“ segir Íris.
Óvæntur smellur
„Aðrar myndir sem vert er að
nefna eru til dæmis gamanmyndin
Ég um mig og mömmu en hún sló
rækilega í gegn í Frakklandi og er
hér á ferðinni óvæntur smellur; þá
verða einnig sýndar tvær teikni-
myndir sem höfða til barna, Mál-
verkið og Samþykktur til ættleið-
ingar, en þær eru mjög ljóðrænar og
ólíkar því sem við eigum almennt að
venjast. Loks ber að nefna nýjustu
mynd leikstjórans Romans Polanski,
Venus í feldi, en hún hefur vakið
mikla athygli og við erum mjög lán-
söm að fá hana. Við miðum valið út
frá því hvernig myndunum hefur
verið tekið erlendis og reynum að
velja aðeins bestu myndirnar en
frönsk kvikmyndamenning hefur
mikið fram að færa,“ segir Íris.
Hláturtaugarnar kitlaðar
Frönsk kvikmyndahátíð hefst á morgun Áhersla lögð á myndir í léttari kantinum Fjölbreyti-
leiki franskrar kvikmyndagerðar í fyrirrúmi Sýna franska gamanmynd með íslenskt heiti
Íris Hrund
Þórarinsdóttir Eyjafjallajökull Opnunarmynd hátíðarinnar ætti að höfða til Íslendinga.
Guillaume Óvænti smellurinn?Einn á báti Cluzet lék í Intouchables.
Gaman Léttleikinn er í fyrirrúmi í kvikmyndinni Konurnar á 6. hæð.
Venus í feldi
Leikstjóri: Roman Polanski
Gamanmynd um Thomas sem
leitar að réttu leikkonunni og er
við það að gefast upp. Á þeirri
stundu birtist leikkona að nafni
Vanda. Ekki er hún aðeins
þurfandi og örvæntingarfull,
heldur mætir hún með búninga
og kann hlutverkið utan að.
38 vitni
Leikstjóri: Lucas Belvaux
Dramatísk mynd í léttum dúr um
unga stúlku sem er myrt nótt
eina í Le Havre og engin vitni
virðast vera að morðinu – þar til
Pierre hefur upp raust sína.
Þessa nótt heyrði hann nokkuð
sem mun breyta öllu.
Eyjafjallajökull
Leikstjóri: Alexandre Coffre
Fyrrverandi hjón sem fyrirlíta
hvort annað ætla að mæta í
brúðkaup dóttur sinnar í Grikk-
landi en þurfa að grípa til sinna
ráða þegar eldgosið í Eyja-
fjallajökli setur strik í ferðaáætl-
anir þeirra.
Ég um mig og mömmu
Leikstjóri: Guillaume Gallienne
Gamansöm sjálfsævisaga leik-
arans Guillaume Gallienne sem
fjallar um samskipti hans við
móður sína, kynhneigð hans og
aðdáun á konum.
Aðeins þú
Leikstjóri: Gérald Hustache-
Mathieu
Spennusagnahöfundur rann-
sakar lát ungrar fegurðardísar
sem taldi sig vera Marilyn
Monroe endurfædd og virðist
hafa framið sjálfsmorð en ekki er
allt sem sýnist.
Einn á báti
Leikstjóri: Christophe Offenstein
Dramatísk mynd um Yann Kerma-
dec sem tekur þátt í keppni um
að sigla umhverfis hnöttinn. Allt
breytist þó þegar hann uppgötvar
að laumufarþegi leynist um borð.
Málverkið
Leikstjóri: Jean-Francois Laguio-
nie
Teiknimynd um hvernig verur í
málverki vakna til lífsins og lenda
í ýmsum ævintýrum.
Samþykktur til ættleiðingar
Leikstjóri: Jung Sik-jun og Laur-
ent Boileau
Teiknimynd um Jung sem var
ættleiddur ungur frá Kóreu og
fjallar myndin meðal annars um
upplifun hans og aðlögun að lífi
með nýrri fjölskyldu.
Konurnar á 6. hæð
Leikstjóri: Philippe Le Guay
Gamanmynd um hvernig líf
íhaldssamra hjóna tekur stakka-
skiptum þegar þau kynnast hópi
spænskra kvenna sem búa á
sjöttu hæð.
Nánari upplýsingar um hátíðina
má finna á heimasíðunni fff.is.
Franskar og forvitnilegar
FRANSKA KVIKMYNDAHÁTÍÐIN
Polanski Venus undir feldi er
gamanmynd eftir Roman Polanski.
Myndlistarmaðurinn og rithöfund-
urinn Jón B.K. Ransu hefur hafið
fimmtán daga söfnun á vefsvæðinu
Karolina Fund, til að fjármagna
útgáfu nýrrar bókar sinnar um
myndlist, Málverkið sem slapp út
úr rammanum. Er hún framhald
bókarinnar Listgildi samtímans –
Handbók um samtímalist á Íslandi
sem hann sendi frá sér fyrir um
tveimur árum.
Ransu segir hönnun verksins
nánast vera lokið. Fyrst í stað ætl-
aði hann að hafa myndirnar í bók-
inni í svarthvítu, og þá hefði
prentunin verið mun ódýrari, en
svo skipti hann um skoðun og tel-
ur nú mikilvægt að prenta að
minnsta kosti hluta síðnanna í lit.
„Ég fjalla til dæmis um verkið
Grænar ár eftir Ólaf Elíasson, og
sérstaklega um litinn í málverki
eftir Þorra Hringsson. Þessi verk
verður eiginlega að prenta í lit,“
segir hann.
Lágmarksmarkmið fjármögn-
unarinnar er 80.000 krónur, sem
jafngildir einni örk í litprentun.
Aðalmarkmiðið er hins vegar að
ná 450.000 krónum, sem er prent-
kostnaðurinn í heild sinni.
„Þetta er í raun eins og forsala
eða áskrift að
bókinni. Fyrir
2.000 krónur fær
viðkomandi til
dæmis sent ein-
tak. Þá er líka
hægt að greiða
meira og fá árit-
að eintak, eða
kaupa fleiri ein-
tök,“ segir
Ransu og kveðst
bjóða upp á tilboð fyrir fyrirtæki.
Hann telur að með vefsjóðum sem
þessum opnist nýjar leiðir fyrir
fólk til að taka þátt í verkefnum
að ýmsu tagi.
„Í þessi nýju bók fjalla ég fyrst
og fremst um málverkið,“ segir
hann. „Ég skrifa um breytingar
sem komu fram í hugsun um mál-
verkið eftir að ljósmyndavélin kom
fram á sjónarsviðið. Málverkið var
kallað „hin göfunga grein málara-
listar“, og þurfti ákveðna þekk-
ingu og hæfni til að búa til slíkar
myndir. En þegar ljósmyndavélin
kom fram tók hún að nokkru yfir
hinn myndræna þátt. Þá sat eftir
spurningin: Hvað er málverk?“
Síða söfnunarinnar er www.kar-
olinafund.com/project/view/253
Söfnun fyrir lit-
prentun bókar
Jón B.K. Ransu skrifar um málverkið
Jón B.K.
Ransu