Morgunblaðið - 16.01.2014, Page 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014
Fluguveiðiráð Stefáns JónsHafstein og félaga hans,ljósmyndarans LárusarKarls Ingasonar, er að
sögn þeirra bók um hugmyndir. Í
formála útskýrir Stefán Jón mark-
miðið sem þeir leggja upp með: „Að
tileinka sér gildar aðferðir leiðir af
sér góðar hug-
myndir og mark-
vissari veiði. Ég
tók eftir því
nokkru eftir að ég
byrjaði að veiða á
flugu að ánægjan
jókst mikið þegar
veiðin hætti að
snúast um
heppni. Ég fór að
sækja fiska í krafti þekkingar og
reynslu sem smám saman safnaðist
með hjálp góðra veiðimanna. Mér
finnst miklu skemmtilegra að veiða
fisk eins og ég ákveð að veiða hann
heldur en þegar hann slysast á flug-
una. Þess vegna fjallar þessi bók um
markvissa veiði.“(7)
Eins og þeir þekkja sem hafa
fylgst með langlífum fréttavef Stef-
áns Jóns, Flugur.is, þá er hann kapp-
samur fræðari og á gott með að
sannfæra lesendur um að hann fari
ekki með neitt fleipur. Undirritaður
sótti þangað í upphafi veiðiferilsins
ýmis ráð í leit að þekkingu og hér
hefur Stefán tekið saman í bók allra-
handa upplýsingar og ráð sem eink-
um ættu að koma hinum lítt reyndu
að góðum notum við leitina að fiskum
í straum- sem stöðuvötnum. Og von-
andi gengur þeim betur eftir lest-
urinn að fá fiskana til að taka flug-
una.
Bókin skiptist í átta kafla eða
„ráð“. Gefin eru allrahanda ráð sem
eiga að gagnast í glímu við lax, sjó-
bleikju og urriða, sagt er hvernig eigi
að bera sig að við vatnaveiði og með
ólíkum flugum: straumflugum, þurr-
flugum og púpum.
Framsetning efnisins er lifandi og
með miklum ágætum. Textinn er yf-
irleitt knappur, fleygaður með út-
skýringartextum og svo er bókin
ríkulega myndskreytt. Lárus Karl er
einn reyndasti veiðiljósmyndari
landsins og myndasafn hans hefur
nýst vel við hönnunina; hér er fjöl-
breytilegt úrval mynda af veiðimönn-
um við ýmiskonar aðstæður, af flug-
um, stöngum og svo vitaskuld
fiskum. Sérstaklega má minnast á
ágætt úrval mynda af fiskum undir
yfirborðinu sem og fínar myndir af
flugum í vatninu.
Stundum hafa skýringarmyndir
verið dregnar inn á myndir, til dæm-
is þar sem útskýrt er hvernig eigi að
vippa línu, hvernig eigi að veiða
strengi með sem markvissustum
hætti og mismunandi dýpi sem veitt
er á. Það er vel gert og hefði mögu-
lega mátt gera enn meira af.
„Lokaráð“ er síðasti kafli bók-
arinnar, með samantekt og góðum
ábendingum. Sumt gjörþekkja þeir
sem eitthvað hafa veitt á fjölbreyti-
legan hátt með flugu, eins og það
sem tengist línuþyngdum og við-
bragðinu þegar fiskur tekur – þótt
alltaf megi rifja það upp. Á öðru er
nauðsynlegt að hamra, eins og sjálf-
sögðum siðareglum veiðimanna:
„Regla númer eitt er að skilja ekkert
eftir nema sporin sín. Höfuðsynd
veiðimanns er að henda frá sér sígar-
ettustubbum á bakkanum og ónýtu
girni í flækju. Öldósir sem troðið er
undir steina eru engin náttúruprýði.
Sama gildir um plastpoka og rifrildi
af umbúðum.“ Allt þetta eiga menn
að geta sagt sér sjálfir en þarf því
miður sífellt að hnykkja á. Eins er
það með svo margt í þessari ágætu
bók, sem er útskýrt á aðgengilegan
og auðskiljanlegan hátt. Við vitum
margt af þessu og þekkjum, mörg
hver, og njótum samt að lesa, en þeir
sem hafa áhuga á að ná betri árangri
við veiðar geta lært ýmislegt af bók-
inni. Eflaust eiga margir eftir að
rýna í boðskapinn, sér til gagns, og
verða betri veiðimenn fyrir vikið.
Ráð fyrir þá sem vilja veiða
fiska með markvissari hætti
Handbók
Fluguveiðiráð bbbmn
Eftir Stefán Jón Hafstein. Ljósmyndir
eftir Lárus Karl Ingason.
Ljósmynd – útgáfa, 2013. Innb. 144 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Fjölbreytileg Í bókinni hafa höfundar tekið saman fjölbreytileg ráð fyrir þá
sem vilja ná betri árangri við veiðar með flugu, við ólíkar aðstæður.
Stefán Jón
Hafstein
Lárus Karl
Ingason
Tónleikar með Good Moon Deer,
Just Another Snake Cult og DJ
flugvél og geimskip fara fram á
Harlem í kvöld.
Tilgangur tónleikanna í kvöld
mun vera þríþættur eftir því sem
fram kemur í tilkynningu frá skipu-
leggjendum. Í fyrsta lagi leggur
Good Moon Deer land undir fót
hinn 22. janúar nk. þegar sveitin
tekur þátt í Nordisk 2014, ferða-
tónleikahátíð í Danmörku, Fær-
eyjum og að lokum á Íslandi. Með
þeim í för verða þrjú erlend bönd,
þ.e. Sekuoia frá Danmörku, Byrta
frá Færeyjum og Sea Change frá
Noregi. Tónleikarnir á Harlem eru
ætlaðir til að standa straum af
ferðalögum hljómsveitarinnar.
Í öðru lagi verður frumsýnt nýtt
myndefni með Good Moon Deer
sem haldast á í hendur við tónleika-
flutning sveitarinnar á tónleika-
ferðalaginu. Og í þriðja lagi er ætl-
unin að skemmta og gleðja
tónleikaþyrsta Íslendinga.
Good Moon Deer
á Harlem í kvöld
Stuð Tónlistarmenn kvölsins hyggj-
ast skemmta og gleðja.
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C
Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16
Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri
HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG!
50%AFSLÁTTUR AFÖLLUM
VÖRUM Í BÚÐINNI
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Lau 18/1 kl. 19:30 61.sýn Lau 25/1 kl. 19:30 aukas. Fös 7/2 kl. 19:30 71.sýn.
Sun 19/1 kl. 19:30 aukas. Fim 30/1 kl. 19:30 65.sýn Fim 13/2 kl. 19:30 72.sýn.
Mið 22/1 kl. 19:30 62.sýn Fös 31/1 kl. 19:30 69.sýn Fös 14/2 kl. 19:30 73.sýn
Fim 23/1 kl. 19:30 63.sýn Fim 6/2 kl. 19:30 70.sýn. Sun 23/2 kl. 19:30 74.sýn
Veilsa aldarinnar - leikrit ársins 2013.
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Sun 19/1 kl. 13:00 26.sýn Sun 2/2 kl. 13:00 28.sýn Sun 16/2 kl. 13:00 30.sýn
Sun 26/1 kl. 13:00 27.sýn Sun 9/2 kl. 13:00 29.sýn
Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum!
Þingkonurnar (Stóra sviðið)
Fim 16/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 24/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 8/2 kl. 19:30 12.sýn
Fös 17/1 kl. 19:30 9.sýn Lau 1/2 kl. 19:30 11.sýn
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í leikstjórn Benedikts Erlingssonar.
Pollock? (Kassinn)
Lau 18/1 kl. 19:30 Fös 31/1 kl. 19:30 Lau 1/2 kl. 19:30
Skemmtilegt leikrit með framúrskarandi leikurum. Síðustu sýningar.
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 18/1 kl. 13:30 Sun 26/1 kl. 16:00 Sun 9/2 kl. 16:00
Lau 18/1 kl. 15:00 Sun 2/2 kl. 16:00 Sun 16/2 kl. 16:00
Karíus og Baktus bregða á leik.
Áfram Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 16/1 kl. 20:00 3.sýn Lau 18/1 kl. 22:30 Aukas. Lau 25/1 kl. 20:00 8.sýn
Fös 17/1 kl. 20:00 4.sýn Fim 23/1 kl. 20:00 6.sýn Lau 25/1 kl. 22:30 Aukas.
Fös 17/1 kl. 22:30 Aukas. Fös 24/1 kl. 20:00 7.sýn
Lau 18/1 kl. 20:00 5.sýn Fös 24/1 kl. 22:30 Aukas.
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Óraunveruleikir (Kassinn)
Fim 16/1 kl. 20:00 Frums. Lau 25/1 kl. 20:00
Fös 17/1 kl. 20:00 Sun 26/1 kl. 20:00
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fös 17/1 kl. 19:00 Lau 25/1 kl. 13:00 Mið 5/2 kl. 19:00 aukas
Lau 18/1 kl. 13:00 Sun 26/1 kl. 13:00 Fim 6/2 kl. 19:00 aukas
Sun 19/1 kl. 13:00 Fim 30/1 kl. 19:00 Fös 7/2 kl. 19:00 aukas
Mið 22/1 kl. 19:00 aukas Lau 1/2 kl. 13:00 aukas Lau 8/2 kl. 13:00 aukas
Fös 24/1 kl. 19:00 Sun 2/2 kl. 13:00 aukas Sun 9/2 kl. 13:00 lokas
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Síðustu sýningar!
Jeppi á Fjalli (Gamla bíó í janúar, Hof í febrúar)
Fim 16/1 kl. 20:00 Sun 19/1 kl. 20:00 Lau 1/2 kl. 20:00 í Hofi
Fös 17/1 kl. 20:00 Lau 25/1 kl. 20:00 Sun 2/2 kl. 20:00 í Hofi
Lau 18/1 kl. 20:00 Sun 26/1 kl. 20:00
Sýnt í Gamla bíói í Janúar. Tvær sýningar í Hofi á Akureyri í Febrúar.
Hamlet (Stóra sviðið)
Fim 16/1 kl. 20:00 3.k. Lau 25/1 kl. 20:00 aukas Sun 9/2 kl. 20:00
Lau 18/1 kl. 20:00 4.k. Sun 26/1 kl. 20:00 7.k. Fös 14/2 kl. 20:00
Sun 19/1 kl. 20:00 5.k. Fös 31/1 kl. 20:00 8.k. Lau 15/2 kl. 20:00
Fim 23/1 kl. 20:00 6.k. Sun 2/2 kl. 20:00
Frægasta leikrit allra tíma. Ný kynslóð, nýjir tímar, nýr Hamlet.
Óskasteinar (Nýja sviðið)
Fös 31/1 kl. 20:00 frums Fim 13/2 kl. 20:00 7.k Sun 23/2 kl. 20:00 14.k
Lau 1/2 kl. 20:00 2.k Fös 14/2 kl. 20:00 aukas Þri 25/2 kl. 20:00 15.k
Sun 2/2 kl. 20:00 3.k Lau 15/2 kl. 20:00 8.k Fös 28/2 kl. 20:00 16.k
Þri 4/2 kl. 20:00 4.k Sun 16/2 kl. 20:00 9.k Sun 2/3 kl. 20:00 17.k
Mið 5/2 kl. 20:00 aukas Þri 18/2 kl. 20:00 10.k Þri 4/3 kl. 20:00 18.k
Lau 8/2 kl. 20:00 aukas Mið 19/2 kl. 20:00 11.k Mið 5/3 kl. 20:00 19.k
Sun 9/2 kl. 20:00 5.k Fim 20/2 kl. 20:00 aukas Lau 8/3 kl. 20:00 20.k
Þri 11/2 kl. 20:00 6.k Fös 21/2 kl. 20:00 12.k Sun 9/3 kl. 20:00 21.k
Mið 12/2 kl. 20:00 aukas Lau 22/2 kl. 20:00 13.k
Glænýtt verk eftir Ragnar Bragason. Grátt gaman með ógæfufólki á leikskóla
Hamlet –★★★★ – SGV, Mbl