Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Side 33
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjörtur Matthías Skúlason, James William Dickie, María
Guðjónsdóttir, Elín Bríta sjálf, Kjartan Þór Trauner, Guðný
Pálsdóttir og Ólöf Rut Sfefánsdóttir. Öll eru þau vöruhönn-
uðir nema James sem er vefsíðuhönnuður.
Ítalska rauðvínið Villa Puccini Chi-
anti Superiore passaði einkar vel
með öndinni.
500 ml rjómi
500 ml nýmjólk
vanillustöng eða 2 tsk.
vanilluextrakt
100 g sykur
6 blöð af matarlími
8 ástaraldin
Matarlímsblöðin látin mýkj-
ast í köldu vatni í um 10 mín-
útur.
Rjómi, mjólk, sykur og vanilla hituð í potti. Tekið af
hitanum rétt áður en fer að sjóða og matarlímsblöð-
unum bætt út í. Hrært saman þar til þau leysast upp.
Hellið blöndunni í falleg glös og geymið í kæli í að
minnsta kosti tvær klukkustundir. Setjið innihald ást-
araldins ofan á búðinginn þegar hann er orðinn stífur.
5.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
BLANDAÐ SALAT
Búnt af klettasalati
½ agúrka
1 rauðlaukur
krukka af kapers
2 stórar rauðrófur
2 pakkar halloumi-ostur
4 andabringur
nokkrir hvítlauksgeirar (má sleppa)
nokkrar timíangreinar (má sleppa)
BALSAMGLJÁI FYRIR RAUÐ-
RÓFURNAR
100 ml balsamedik
4 msk. sykur (má nota hunang í
staðinn)
rifinn börkur af einni sítrónu
safi úr hálfri sítrónu
salt og pipar eftir smekk
Allt hitað saman í potti þar til gljáinn
Andabringur með ýmsu
þykknar örlítið. Rauðrófurnar skornar í
þykkar sneiðar, þeim er raðað á ofn-
grind og penslaðar með balsamedik-
gljáanum. Bakað við 225 gráður í 30-40
mínútur, snúið þeim á 5-10 mínútna
fresti og penslið meiri gljáa á þær í hvert
skipti.
Saltið og piprið andabringurnar og
steikið þær með fituna niður, u.þ.b.
fimm mínútur á hvorri hlið. Gott er að
bæta fersku timíani og heilum hvítlauks-
geirum á pönnuna meðan bringurnar
steikjast.
Halloumi-osturinn skorinn í sneiðar
og þurrsteiktur á heitri pönnu þar til
hann brúnast á báðum hliðum.
Skerið rauðrófurnar og ostinn í þykka
strimla og bætið í salatið.
Skerið andabringurnar í sneiðar og
berið fram með salatinu. Gott að bera
fram með fíkjubalsamediki.
Ástaraldins-
pannacotta