Morgunblaðið - 10.02.2014, Side 10

Morgunblaðið - 10.02.2014, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2014 Óhætt er að fullyrða að í íslensku samfélagi séu fjölmargar fjölskyldur þar sem annar eða báðir aðilar sem til hennar stofna eiga barn eða börn úr fyrri samböndum. Þar af leiðandi eru stjúptengsl í mörgum fjöl- skyldum og eru þær fjölskyldur af öll- um stærðum og gerðum. Á vefsíðunni www.stjuptengsl.is er að finna ýmiss konar fróðleik um ólíkar fjölskyldugerðir. Framundan er áhugavert námskeið á vegum Stjúptengsla fyrir fagfólk og á því námskeiði kennir Valgerður Halldórsdóttir, félagsráðgjafi og að- júnkt við HÍ. Námskeiðið er einkum ætlað fag- fólki sem vinnur með fjölskyldum en farið verður í saumana á sýnileika stjúpfjölskyldna, staðalmyndir, hlut- verk, hollustu, ofmat eða vanmat á stuðningsneti og það að vinna með stjúpfjölskyldum. Vefsíðan www.stjuptengsl.is Morgunblaðið/Rósa Braga Stjúptengsl Valgerður Halldórsdóttir félagsfræðingur kennir m.a. fagfólki. Hver er í fjölskyldunni? Annað kvöld, þriðjudaginn 11. febr- úar, verður notaleg bókmenntastund í húsakynnum Landssamtakanna Geðhjálpar, Borgartúni 3 í Reykjavík. Þá er svokallað bókmenntakvöld og að þessu sinni mun Kristín Steins- dóttir fjalla um tilurð skáldsögu sinn- ar, Ljósu. Hún mun lesa upp úr völd- um bókarköflum og svara spurningum gesta sem geta fengið sér kaffi og meðlæti. Bókin fjallar um glímu aðalpersón- unnar, Ljósu, við geðhvörf í íslenskri sveit á fyrrihluta síðustu aldar. Krist- ín hlauta Fjöruverðlaunin árið 2011 fyrir bókina og Menningarverðlaun DV í bókmenntum árið 2010. Geðhjálp er hagsmunasamtök sem stofnuð voru árið 1979 með það að markmiði að gæta hagsmuna þeirra sem þurfa á aðstoð að halda vegna geðrænna vandamála, aðstandenda eða annarra sem láta sig geðheil- brigðismál varða. Samtökin standa fyrir ýmsum upp- byggilegum viðburðum og er öllum frjáls mæting. Endilega … … farið á bók- menntakvöld Geðhjálpar Morgunblaðið/Einar Falur Umræður Kristín mun lesa upp Ljósu. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Malín Brand malin@mbl.is Stuttmyndin Hvalfjörður vartekin upp þegar Ágúst Örnvar tíu ára. Myndin erfimmtán mínútna löng og á þessum fimmtán mínútum gerist býsna margt. Hún fjallar um afar sérstök og sterk tengsl á milli tveggja bræðra, þeirra Ívars og Arnars. Þeir búa í Hvalfirði ásamt foreldrum sínum. Í myndinni er horft á heiminn með augum Ívars, sem Ágúst Örn leikur, og hvernig heimsmynd hans kollvarpast. Myndin hefur fengið mikið lof á ýmsum kvikmyndahátíðum auk þess sem hún fékk fimm tilnefningar til Edduverðlaunanna, sem er býsna óvanalegt fyrir stuttmynd. Mikið lof Alls hlaut hún tólf verðlaun á al- þjóðlegum hátíðum á síðasta ári: Á Cannes í Frakklandi, Giffoni á Ítal- íu, Brest í Frakklandi, Ghent í Sviss, Hamptons í Bandaríkjunum, Varsjá í Póllandi, Les Percéides í Kanada, Zagreb í Króatíu, Chicago í Banda- ríkjunum, tvenn verðlaun á RIFF hér á Íslandi og Arcipelago í Rúss- landi. Myndin er auk þess sögð ein af fimm bestu stuttmyndum síðasta árs á frönsku kvikmyndasíðunni Format Court. Sjá má brot úr myndinni með því að skanna qr-kóðann aftan við greinina. Hvaða drengur er þetta? Það er því ljóst að hér er eitt- hvað býsna áhugavert á ferðinni. Myndin hefur ekki síst vakið athygli fyrir framgöngu leikarans unga, Ágústs Arnar. Hann er tólf ára gamall og stundar nám í Austurbæjarskóla. Svo skemmtilega vildi til að hann átti einmitt afmæli daginn sem hann var tilnefndur til Edduverð- launanna. Persónan Ívar, sem Ágúst leikur, varð að hans sögn til fyrir styttri útgáfu stuttmyndarinnar. „Svo vildi hann fá aðeins lengri stuttmynd úr þessu svo ég vissi al- veg hvernig þessi karakter var og reyndi einhvern veginn að koma mér í karakterinn í tökum,“ segir Ágúst Örn sem er fjarri því að vera óvanur að bregða sér í ýmis hlutverk. Hann lék til dæmis í Eldfjalli, mynd Rún- ars Rúnarssonar, í Oliver Twist í Fór bara sjálfkrafa í karakter í tökunum Ágúst Örn B. Wigum er einn yngsti leikarinn á landinu. Ágúst Örn gerði það gott í myndinni Hvalfirði þar sem hann fer með aðalhlutverkið og var tilnefndur til Edduverðlaunanna fyrir leikinn. Hann er ánægður með tilnefninguna en lætur hana ekki slá sig út af laginu, enda nóg að gera í körfuboltanum auk þess sem það er auðvitað full vinna að vera í sjötta bekk í Austurbæjarskóla! Leikari Ágúst Örn B. Wigum er áhugasamur um leiklist og hefur komið víða við á ferlinum sem nú spannar tæp fimm ár þrátt fyrir ungan aldur. Einbeittur Ágúst Örn er tilnefndur til Edduverðlaunanna fyrir leikinn í að- alhlutverki Hvalfjarðar. Alls voru tilnefningarnar fimm talsins. Ljósmynd/Gunnar Auðunn Jóhannsson Verðlaunamynd Stuttmyndin Hvalfjörður hefur fengið fjölda verðlauna. Söludeild Hringhellu 6 • 221 Hafnarfjörður • Sími 535 2510 • gamar@gamar.is • endurvinnslutunnan.is m ag gi @ 12 og 3. is 21 .8 51 /0 1. 13 m ag gi @ 12 og 3 is 21 85 1/ 01 13 Flokkunarílát til notkunar innan húss FLOKKUNARBARIR Eitt hólf 20 l. 2 x 11 l. 3 x 11 l. 1 x 8 l. karfaTvistur (á sleða) Þristur (á sleða) Fáanlegir í mörgum litum. Mál: 38 x 39/93 cm. 2 x 40 l. á vagni 2 x 90 l. á vagni Ás (á sleða)2 x 60 l. á vagni 2 x 10 l. + karfa. Mál: 25 x 38/35 cm.Mál: 56 x 56/66 cm.Mál: 56 x 56/66 cm.Mál: 38 x 66/66 cm. Allar upplýsingar í síma 535 2510 Mál: 31 x 46/36 cm. Mál: 31 x 46/36 cm. Með snerti/pedalopnun. Mál: 26/59 cm. Mál: 25 x 31/44 cm. Mál: 25 x 47/44 cm. Fyrir lífræna söfnun. Mál: 18 x 22/22.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.