Morgunblaðið - 10.02.2014, Síða 14

Morgunblaðið - 10.02.2014, Síða 14
BAKSVIÐ Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Framboðslistar Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara 31. maí næstkomandi eru farnir að skýrast en kosið var um uppröðun á lista flokksins í fimm sveitarfélögum um helgina, þ.e. Kópavogi, Akureyri, Mosfellsbæ, Ísafirði og Grindavík. Kosningaþátt- takan var á bilinu 45 til 50 prósent í og segir Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur að sjálfstæð- ismenn geti vel við unað. „Almennt verður að telja þetta góða þátttöku í prófkjöri og einnig þegar litið er til prófkjörs flokksins í Reykjavík sem var nokkuð minna en sjálfstæðismenn í Reykjavík eiga að venjast,“ segir Stefanía. Kynjahlutfallið jafnt Þrátt fyrir að karlmenn leiði lista flokksins í öllum sveitarfélögunum sem kosið var í um helgina eru kynja- hlutföllin jöfn eftir prófkjör helg- arinnar. Af þeim 30 einstaklingum sem röðuðu sér í efstu sex sæti lista flokksins í sveitarfélögunum fimm eru 15 konur og 15 karlar. „Niðurstaðan er góð fyrir konur sem eru að raða sér ofarlega á lista flokksins eins og t.d. í Kópavogi og síðan má heldur ekki gleyma próf- kjörinu í Hafnarfirði um síðustu helgi þar sem Rósa Guðmundsdóttir leiðir lista Sjálfstæðisflokksins og alls eru fjórar konur í sex efstu sætunum,“ segir Stefanía. Hún bendir á að kon- um hafi almennt gengið betur í sveit- arstjórnarpólitíkinni á höfuðborg- arsvæðinu en út á landi. Fléttulisti í Mosfellsbæ Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, hlaut flest atkvæði í prófkjöri flokksins um helgina og bæjarfulltrúarnir Bryndís Haralds- dóttir og Hafsteinn Pálsson skipa annað og þriðja sæti listans. „Ég er mjög ánægður með prófkjörið og stuðninginn sem ég fæ til að leiða lista flokksins í vor,“ segir Haraldur en hann fékk tæp 90 prósent greiddra atkvæða í prófkjörinu. Sjálfstæðisflokkurinn er með 4 bæj- arfulltrúa og hreinan meirihluta en er þrátt fyrir það í meirihluta- samstarfi með Vinstri grænum. „Við höfum starfað í meirihluta með Vinstri grænum í tvö kjörtímabil og það samstarf hefur gengið vel.“ Haraldur telur að flokkurinn hafi alla burði til að bæta við sig bæjar- fulltrúum í vor og segir hann að nið- urstaða prófkjörsins hafi skilað Sjálf- stæðisflokknum sterkum lista í Mosfellsbæ. „Kynjahlutfallið á listan- um er jafnt þar sem konur og karla raða sér jafnt niður listann. Þá er ald- ursdreifingin og reynsla fólks mjög góð.“ Nú sitja sjö bæjarfulltrúar í bæjarstjórn Mosfellsbæjar en þeim mun fjölga í níu á næsta kjörtímabili. Sóknarfæri í Grindavík Nýr maður leiðir lista Sjálfstæðis- flokksins í Grindavík en þar hlaut Hjálmar Hallgrímsson flest atkvæði í fyrsta sætið. Eini bæjarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins í bæjarstjórn Grindavíkur, Guðmundur Pálsson, er í öðru sæti listans og Jóna Rut Jóns- dóttir í því þriðja. „Við stefnum á betri kosningu í vor en fyrir fjórum árum enda fjöldi sóknarfæra í Grindavík bæði í lífæð bæjarins sem er höfnin en líka í ferðaþjónustunni,“ segir Hjálmar. Bæjarstjóraskipti á Ísafirði Daníel Jakobsson, bæjarstjóri á Ísafirði, hlaut flest atvæði í fyrsta sæti í prófkjöri flokksins um helgina. Jónas Þór Birgisson og Kristín Hálf- dánadóttir koma í næstu sætum á eftir. „Við erum komin með sigur- stranglegan lista og ég er ánægður með prófkjörið,“ segir Daníel en hann ætlar ekki að gefa kost á sér sem bæjarstjóri fái Sjálfstæðisflokk- urinn umboð til að stýra Ísafjarðabæ í kosningunum í vor. „Ég ætla að sitja fram á vor sem bæjarstjóri en síðan taka við önnur verkefni hjá mér.“ Fái Sjálfstæðisflokkurinn um- boð til að mynda meirihluta er ekki ljóst hvort ráðinn verði faglegur bæj- arstjóri eða einstaklingur valinn af lista flokksins. Blásið til sóknar á Akureyri Gunnar Gíslason, fræðslustjóri Ak- ureyrarbæjar, sigraði í prófkjöri sjálfstæðismanna í bænum um helgina og er því oddviti flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Gunnar hlaut 48,9% atkvæða í fyrsta sætið. Í öðru sæti er Eva Hrund Einarsdóttir og í þriðja sæti er Njáll Trausti Friðbertsson. Gunnar segist ætla að axla leið- togahlutverkið með ánægju enda listinn að hans mati sterkur. Núna munum við fara á fullt í málefna- vinnu og búa okkur til skýra sýn og stefnu sem við getum lagt fram í vor. Við munum vinna okkar heimavinnu og stefnum að þremur til fjórum bæjarfulltrúum,“ segir Gunnar, en í dag hefur flokkurinn aðeins einn bæjarfulltrúa. „Flokkurinn hefur lengi verið sterkur og ég held að við séum að ná fyrri stöðu,“ segir Gunnar en hann ætlar að funda með núverandi bæj- arstjóra um starf sitt sem fræðslu- stjóri en hann ætlar að sinna því eins lengi og þörf krefur. Sjálfstæðismenn velja á sína lista  Fimmtán konur og fimmtán karlmenn eru í sex efstu sætum lista Sjálfstæðisflokksins í þeim fimm sveitarfélögum sem valið var á um helgina  Kosningaþátttakan var um fimmtíu prósent Niðurstöður prófkjörs Sjálfstæðisflokksins á Akureyri Sa m t. í 1.- 3. sæ ti Sa m t. í 1.- 4. sæ ti Sa m t. í 1.- 5. sæ ti Sa m t. í 1.- 6. sæ ti Sa m t. í 1. sæ ti Sa m t. í 1.- 2. sæ ti 1. Gunnar Gíslason 580 638 674 705 741 722 2. Eva Hrund Einarsd. 5 578 704 833 925 990 3. Njáll T. Friðbertsson 495 562 616 668 707 762 4. Bergþóra Þórhallsd. 46 279 489 736 823 923 5. Baldvin Valdemarss. 31 88 540 657 767 835 6. Sigurjón Jóhanness. 9 56 141 307 452 592 Gunnar Gíslason Hjálmar Hallgrímsson Haraldur Sverrisson 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2014 Forsíðumerkingar Kjölmiðamerkingar V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is Múlalundur - fyrir betri framtíð Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Ég get ekki litið öðruvísi á en að mér sé sýndur mikill sómi, og ég er mjög ánægður með það,“ segir Þórður Þórarinsson stjórnmálafræð- ingur, en hann var fyrir helgi ráðinn næsti framkvæmda- stjóri Sjálfstæð- isflokksins, frá og með 15. mars næstkomandi. Þórður er fæddur árið 1967 og hefur und- anfarin níu ár verið fram- kvæmdastjóri Vestnorræna ráðs- ins sem er samstarfsvettvangur Alþingis, Landsþings Grænlands og Lögþings Færeyja. Hann tek- ur við starfinu af Jónmundi Guð- marssyni, sem hefur gegnt starf- inu frá árinu 2009. Þórður segir að hann hafi verið spurður fyrir rúmum tveimur vikum hvort hann væri reiðubú- inn til að íhuga að taka starfið að sér. Aðdragandinn að ráðning- unni hefði því ekki verið langur fyrir sig persónulega. „En ég þurfti heldur ekki langan um- hugsunarfrest, ég svaraði nánast um hæl að ég væri tilbúinn ef mér byðist starfið.“ Þórður hefur áður verið virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins, og gegndi á sínum yngri árum ýms- um trúnaðarstörfum fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. Hann segir að það séu mörg spennandi verkefni framundan sem hann hlakki til að takast á við. „Í Sjálfstæðisflokknum starfa þúsundir manna, bæði í sjálf- boðaliðastarfi og sem frambjóð- endur, og reynslan hefur sýnt mér að þetta er allt afbragðsfólk, sem ég hlakka til að starfa með. Þannig að það eru bjartir tímar framundan,“ segir Þórður. Aðspurður hvaða verkefni verði mest aðkallandi á fyrstu dögunum í starfi nefnir Þórður sveitarstjórnarkosningarnar í vor sem augljóst dæmi. „Það er stutt í þær og það hlýtur að taka mestan tíma í starfi flokksins og flokksskrifstofunnar á næstu vikum. Annars verður fyrsta verkefni mitt að halda flokks- ráðsfund,“ segir Þórður, og seg- ist hann hlakka til þess að hitta þar sjálfstæðisfólk af öllu land- inu. „Bjart framundan“  Þórður Þórarinsson ráðinn nýr framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins Þórður Þórarinsson Grindavík 1. Hjálmar Hallgrímsson með 185 atkvæði í 1. sæti. 2. Guðmundur Pálsson með 168 atkvæði í 1-2. sæti. 3. Jóna Rut Jónsdóttir með 144 atkvæði í 1-3. sæti. 4. Þórunn Svava Róbertsdóttir með 176 atkvæði í 1-4. sæti. 5. Sigurður Guðjón Gíslason með 213 atkvæði í 1-5. sæti. 6. Klara Halldórsdóttir með 250 atkvæði í 1-6. sæti. Ísafjörður 1. Daníel Jakobsson með 196 atkvæði í 1. sæti 2. Jónas Þór Birgisson með 183 atkvæði í 1-2. sæti. 3. Kristín Hálfdánsdóttir með 148 atkvæði í 1-3. sæti. 4. Marta Pálmadóttir með 189 atkvæði í 1-4. sæti. 5. Sif Huld Albertsdóttir með 232 atkvæði í 1-5. sæti. 6. Steinþór Bragason með 225 atkvæði í 1-6. sæti. Mosfellsbær 1. Haraldur Sverrisson - 660 atkvæði í 1. sæti 2. Bryndís Haraldsdóttir - 415 atkvæði í 1. – 2. sæti 3. Hafsteinn Pálsson - 358 atkvæði í 1. – 3. sæti 4. Kolbrún G. Þorsteinsdóttir – 362 atkvæði í 1. – 4. sæti 5. Theodór Kristjánsson – 376 atkvæði í 1. – 5. sæti 6. Eva Magnúsdóttir – 372 atkvæði í 1. – 6. sæti 7. Rúnar Bragi Guðlaugsson – 348 atkvæði í 1. – 7. sæti 8. Karen Anna Sævarsdóttir – 369 atkvæði í 1. – 8. sæti Niðurstöður úr prófkjörum helgarinnar SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN PRÓFKJÖR Daníel Jakobsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.