Morgunblaðið - 10.02.2014, Blaðsíða 17
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Eric Holder, dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að
ríkisstjórn Bandaríkjanna myndi
víkka út viðurkenningu á hjónabönd-
um samkynhneigðra fyrir rétti. Þá
yrði tryggt að samkynhneigð pör
ættu sama rétt á bótum og gagnkyn-
hneigð pör.
Þetta er talinn vera stór sigur fyr-
ir stuðningsmenn hjónabanda sam-
kynhneigðra, en áður hafði Hæsti-
réttur Bandaríkjanna sett tvo
úrskurði, sem gáfu slíkum hjóna-
böndum aukinn rétt.
Samkvæmt breytingunum munu
samkynhneigð pör njóta sama réttar
í öllum ríkjum Bandaríkjanna, jafn-
vel þeim sem viðurkenna ekki hjóna-
bönd þeirra, svo lengi sem viðkom-
andi hafi gifst á löglegan hátt í öðru
ríki.
Á meðal þess helsta sem ákvörð-
unin hefur í för með sér, er að nú
munu samkynhneigðir einstaklingar
sem misstu maka sinn í hryðjuverk-
unum 11. september 2001 eiga sama
rétt til bóta og gagnkynhneigð pör.
Þá munu eftirlifandi makar þeirra
lögreglumanna og slökkviliðsmanna
er létu lífið þann dag eiga rétt á
styrkjum til menntunar.
Tilkynningu Holders var víða
fagnað af samtökum sem hafa barist
fyrir réttindum samkynhneigðra.
Nokkur íhaldssöm samtök hafa hins
vegar gagnrýnt hana og sagt Holder
hafa teygt sig of langt í túlkun sinni á
úrskurðum Hæstaréttar.
Holder, sem er fyrsti blökkumað-
urinn til að gegna starfi dómsmála-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði að
barátta fyrirrennara sinna í embætti
fyrir jöfnum réttindum fólks óháð
litarafti hefði haft mikil áhrif á sig.
„Eins mikilvæg og baráttan gegn
kynþáttamisrétti var þá og er enn í
dag, má vita það: staðfesta mín til
þess að berjast gegn mismunun
vegna kynhneigðar eða kynvitundar
er jafnmikil og þeirra,“ sagði Holder.
Ríkið viðurkennir
samkynhneigð pör
Fá rétt á bótum úr sjóði fyrir fórnarlömb 11. september
AFP
Kampakátir Bandaríska alríkið mun víkka út viðurkenningu á hjónabönd-
um samkynhneigðra fyrir rétti, einnig í ríkjum þar sem slíkt er bannað.
Hjónabönd
samkynhneigðra
» 17 ríki Bandaríkjanna hafa
lögleitt hjónabönd sam-
kynhneigðra.
» 33 ríki hafa hins vegar bann-
að slík hjónabönd.
» Í tveimur ríkjum, Utah og
Oklahoma, hefur alrík-
isdómstóll talið að bannið
brjóti gegn stjórnarskránni.
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2014
Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími 540 7000
www.falkinn.is
Það borgar sig að
nota það besta!
Bíla- og vélavörur
...sem þola álagið
Kúplingar- og höggdeyfar
Hjólalegusett Kúlu- og rúllulegur
!
Stýrisendar og spindilkúlur
Hjöru- og öxulliðirHemlahlutir
Viftu- og tímareimar
Kúplingar- og höggdeyfar
TRAUSTAR VÖRUR…
…sem þola álagið
Rúmlega sex hundruð almennir
borgarar voru fluttir frá Homs,
þriðju stærstu borg Sýrlands, í gær.
Konur, börn og gamalmenni voru í
forgangi og virtust þau vera ör-
magna og veikburða samkvæmt
sjónvarpsmyndum.
Um 3.000 manns hafa ekki komist
út úr borginni vegna umsáturs
stjórnarhers Sýrlands í um 600
daga, og hefur komið fram í fréttum
að fólkið hafi dregið fram lífið á ólív-
um og villtu korni. Um 80 manns
voru fluttir frá borginni á föstudag-
inn eftir að Sameinuðu þjóðirnar
komu í kring „mannúðarhléi“ á átök-
um.
Fylkingarnar sökuðu hvor aðra
um að hafa rofið vopnahléið, en fimm
manns létust þegar skothríð úr
sprengjuvörpu hófst í einu hverfi
borgarinnar. Þá bárust fregnir af því
að skotið hefði verið á starfsfólk
Rauða hálfmánans í borginni á laug-
ardaginn.
Fátt bendir til friðar
Önnur lota friðarviðræðna hefst í
dag í Genf. Samninganefnd Bashars
al-Assads, Sýrlandsforseta, kom til
Genfar í gær, á meðan fulltrúar
stjórnarandstöðunnar tíndust til
borgarinnar einn af öðrum. Óvíst var
hvort Ahmad Jarba, leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar, yrði á meðal við-
semjenda þeirra.
Fátt virðist benda til þess að stríð-
andi fylkingar séu nærri því að ná
sáttum um frið. Ríkisstjórn Assads
krefst þess að viðræðurnar snúist
um baráttu gegn „hryðjuverkum,“
en andstaðan ljær vart máls á öðru
en að Assad víki úr embætti.
Á meðan samninganefndirnar
þrefa virðist vera lítið lát á ofbeldinu
í Sýrlandi. Um þrjú hundruð manns
féllu á laugardaginn. Þar af voru um
tuttugu manns sem voru teknir af lífi
af stuðningsmönnum Assads í hér-
aðinu Hama í miðju Sýrlandi.
Þá berast einnig fréttir af því að
fólk í flóttamannabúðum láti lífið
vegna vannæringar og skorts á lyfj-
um. Um 136.000 manns hafa nú þeg-
ar fallið í borgarastríðinu, sem hefur
staðið í nærri því þrjú ár. Þá eru
margar milljónir á vergangi vegna
átakanna.
Fleiri borgarar
fluttir frá Homs
Friðarviðræður hefjast á ný í Genf
EPA
Aðstoð Starfsmaður Sameinuðu
þjóðanna heldur á barni í Homs.